Vísir - 20.07.1979, Qupperneq 24
Föstudagur 20. júlí 1979
síminner86611
Spásvæði Veðurstofu tslands
eru þessi:
1. Faxaflói, 2. Breiöafjörð-
ur, 3. Vestfirðir, 4. Norður-
land, 5. Norðausturland, 6.
Austfirðir, 7. Suðausturland,
8. Suövesturland.
veðurspá
dagsins
Skammt út af Breiðafirði er
997 mb. lægð sem hreyfist
hægt A. Heldur mun kólna
noröan til á landinu.
SV miö, Faxaflói, SV land
Faxaflóamið: Sv og V gola til
landsins og viða kaldi á mið-
um i dag, skúrir. Léttir til i
nótt með NV og N kalda.
Breiðafjörður og Breiða-
fjarðarmiö: Hæg breytileg átt
og dálítil rigning i dag. NA
kaldi og smá-skúrir i nótt, létt-
ir smám saman til.
Vestfiröir og Vestfjarða-
miö:NA gola og siöan kaldi og
stinningskaldi. Litilsháttar
rigning öðru hverju, en þurrt
sunnan til á Vestfj. i nótt.
Nland og Nmið: A gola eða
kaldi og rigning með köflum i
dag. NA kaldi og súld I nótt.
NA land og NA miö: SA og
siðar NA gola, skúrir til lands-
ins, súld á miðum.
Austfiröir og Austfjarða-
mið:Hæg breytileg átt og súld
öðru hverju, en viöast þurrt i
kvöld og nótt.
SA land og SA mið: V gola
eða kaldi og skúrir á miðum
og viöast þurrt til landsinsi
dag. NV og N gola eða kaldi og
léttskýjað i kvöld og nótt.
veðriO hér
09 har
Veðrið kl. 6 i morgun:
Akureyri skýjað 6, Bergen
skýjað 12, Helsinki skýjaö 14,
Kaupmannahöfn skýjað 12,
óslóskýjað 14, Reykjaviklétt-
skýjað 7, Stokkhólmur skýjað
13, Þórshöfn skýjaö 7.
Veöriö kl. 18 i gær:
Bergen skýjað 17, Chicago
skýjað 26,Feneyjar þokumóöa
27, Frankfurt skýjað 20, Lon-
don skýjað 18, Luxemburg
léttskýjað 17, Las Palmaslétt-
skýjað 23, Mallorka léttskýjað
28, Montreal léttskýjað 26,
New York léttskýjað 27, Paris
léttskýjað 19, Róm þoka 26,
Malaga heiðskirt 34, Vln hálf-
skýjað 22, Winnipeg heiðskirt
26.
L0kí segir
Rikisstjórnin leysti á
sniildarlegan hátt vandann
vegna oliuhækkunar til út-
geröarinnar. Ráðherrarnir
samþykktu að greiða niöur
oliuna, en láta Seðlabankann
um að útvega fé til þess. Þeir I
bankanum eru nú að kanna
kaup á mjög hraövirkri seðla-
prentsmiðju.
Vllr 20 bilar
í Vfslsralllnu
Lengsta \
rallkeppnl}
hérlendls: /
Vist er nú, að 21 bifreiö mun taka þátt I hinu tæplega 3000 km
langa Visisralli umhverfis landið sem Bifreiðaiþróttaklúbbur
Reykjavikur mun gangast fyrir dagana 16.-19. ágúst. Siðari frestur-
inn til að skila þátttökutilkynningum rann út á miðvikudaginn. Frá
Reykjavik verða 15 bifreiöar, fjórar verða frá stöðum utan Reykja-
vikurog tveir bilar koma frá Noregi til keppninnar.
Frá Noregi kemur norska
stúlkan Wenche Knudsen, en
hún er reyndur rallökumaður og
aðstoðarmaður hennar er einnig
kvenkyns, en eins og flestir vita
þá eru tveir keppendur i hverj-
um bil.
Hinn norski ökumaðurinn er
Sverre Amunsen, en hann er rit-
stjóri norsks' bilablaös og hefur
einnig mikla reynslu að baki i
rallkeppnum. Bæði norsku liðin
munu aka bilum af Lada-gerð og
hefur Ladaumboðiö samþykkt
að veita þessum keppendum
alla nauðsynlega þjónustu á
meðan á keppninni stendur.
Nú er einungis að biða og sjá
hvernig islenskir ökumenn
standa sig á móti erlendum öku-
mönnum sem tekið hafa þátt i
alþjóðlegum röllum. Svo er
einnig að sjá hvernig hinum
norsku ökumönnum list á að-
stæður hér, en þær munu vera
eðlilegri til rallaksturs en geng-
ur og gerist erlendis, þar sem
langflestir vegir eru með varan-
legu slitlagi.
-SS-
SteypubiIIinn mun vera ónýtur eftir veltuna. Visismynd: ÞG.
Steypubíll vall í Jútúnsbrekku
HAUKUR
ÞA SIÐUSTU
Steypubill frá BM Vallá, fullur
af steypu, valt i Ártúnsbrekkunni
um klukkan sjö i gærkvöldi. Oku-
maður bilsins var kona og mun
hún hafa meiöst eitthvað við velt-
una. Steypubillinn var á leið niður
Artúnsbrekkuna er slysið vildi til.
Var hann á hægri akrein en á
hinni vinstri var Volvobifreið sem
sveigði skyndilega fyrir steypu-
bilinn. Konan sem ók honum
reyndi að vikja út I kantinn en
hann gaf sig með fyrrgreindum
afleiðingum. Vegna þyngsla bils-
ins var miklum erfiðleikum bund-
iðaðkoma honum á réttan kjöl en
hann er talinn gjörónýtur.
Sv.G.
t siðustu umferð skákmótsins i
Philadelfia I Bandarikjunum
sigraði Haukur Angantýsson
Bretann Britton og náði þar með I
áfanga alþjóðlegs meistaratitils.
Heimsmeistaramóti sveina i
skák, sem haldið var I Belfort I
Frakklandi, lauk i gær, og lenti
Jóhann Hjartarson I 5.—10. sæti.
Haukur hefur nú náð tveimur
áföngum alþjóðlegs meistaratit-
ils af þremur. Hann tók góðan
endasprett i mótinu, þvl að I næst-
siðustu umferð vann hann
Zlotnikov. Margeir Pétursson
gerði jafntefli i tveimur siðustu
skákum sinum, við þá Pundy og
Shipman, en hann mun hafa átt
við einhver veikindi að striða
þegar þær voru tefldar. Sigurveg-
ari I mótinu varð Georghiu með 8
vinninga, en Peters varð annar
með 7 1/2 vinning. Haukur hlaut 6
1/2 vinning, og Margeir 6 vinn-
inga.
Jóhann Hjartarson vann Júgó-
slavann Drasgo I siðustu umferð
heimsmeistaramóts sveina, og
fékk þar með 7 vinninga á mótinu.
Tempone varð efstur með 8 1/2
vinning, en hins vegar er búist við
að Short frá Englandi vinni bið-
skák sína við þá Benjamin frá
Bandarlkjunum, og yrði Short þá
jafn Tempone að vinningum.
— AHO.
Loltleiðallugmenn halda lund I dag:
Stöðvast
fflug tii
Ameríku?
„Við viljum taka út þá fridaga sem viö eigum inni fyrir tvo siöustu
mánuðina, en það þýðir I raun að Flugleiðir yrðu að fella niður eitthvaö
af ferðum sinum” sagði Baldur Oddsson, formaður Félags Loftleiða-
flugmanna, i samtali við Visi, en félagiö hefur óskað þess að Flugleiðir
taki uppsagnir flugmanna til endurskoðunar, en að öðrum kosti yrðu
þessir fridagar teknir út.
FÁIR NÁMII STABAR
Litii þátttaka virðist hafa verið i bilastoppi þvi sem samstarfsnefnd
bifreiðaeigenda hvatti til I gær. Ætlunin var að mótmæla óeðlilegri
skattheimtu ríkisins afbensini i skjóli erlendra verðhækkana.
Baldur sagði að flugmenn ættu
8 fridaga á mánuði en upp á sið-
kastið hefðu margir flugmenn
ekki fengið svo mikið sem einn
fridag. Flugleiðir vildu láta flug-
mennina fresta þessum fridögum
i tilhliðrunarskyni við félagið og
það jafnvel þótt margir þessara
flugmanna væru nú komnir með
uppsagnarbréf upp á vasann,
ekki i fyrsta heídur áttunda sinn
meðan þeir hafa starfað hjá fé-
laginu.
Loftleiðamenn halda fund i dag
þar sem þetta mál verður rætt, en
Flugleiðir hafa óskað eftir aö
flugmenn yrðu áfram samvinnu-
þýðir með töku fridaga. Að lokn-
um fundinum mun Flugleiðum
verða send tilkynning um hvað
flugmenn hyggjast gera i málinu.
Ljóst er að stöðvun Atlantshafs-
flugsins nú myndi hafa alvarleg-
ar afleiðingar i för meö sér fyrir
Flugleiðir.
— HR.
Fyrirnokkru gengu fulltrúar úr
samstarfsnefnd bifreiðaeigenda á
fund fjármálaráðherra og af-
hentu honum mótmælaskja). gegn
skattheimtunr.i. Þá lýsti fjár-
málaráðherra þvi yfir að hann
væri sammála þvi að ákveðið
hlutfall af tekjum rikisins af
bensinhækkunum rynni til vega-
mála, en þetta hlutfall hefur farið
minnkandi.
Bifreiðaeigendur vilja minna á
hve gifurlegur sparnaður er að
varanlegri vegagerð, bæði orku-
sparnaður og sparnaður vegna
viðhalds og endurnýjunar öku-
tækja.
-SS-