Vísir - 27.07.1979, Blaðsíða 2
Föstudagur 27. júll 1979.
Spurl á HusavlK
Borðar ðú
hafragraul
á morgnana?
Arna E. Karlsdóttir, I vinnuskól-
anum:—Nei, aldrei. Ég fæ mér
frekar súrmjólk eöa eitthvaö svo-
leiöis.
Skarphéöinn tvarsson, bæjar-
vinnumaöur: — Nei, ég fær mér
bara kornflex eöa eitthvaö annaö.
Ég hef aldrei smakkaö hafra-
graut svo ég veit ekki hvort hann
er góöur eöa vondur.
Runný Björk Danielsdóttir,
nemi: — Nei, ég geri þaö sjaldan.
Ég fæ mér frekar brauö, jógúrt
eöa eitthvaö annaö. Mér finnst
hafragrautur ekkert sérstaklega
góöur.
Ingvar Þórarinsson, bóksali: —
Nei, það geri ég ekki, en ég drekk
hins vegar lýsi á hverjum
morgni. Það hefur ekki áraö svo
vel aö maöur þurfi ekki á lýsinu
aö halda.
Sigrún Helga Kjartansdóttir, 8
ára: — Nei, ég fæ mér oftast
kornflex. Ég hef smakkaö hafra-
graut og mér finnst hann góöur.
Umsjón:
Anna Heiður 1
Oddsdóttir og
Gunnar E.
Kvaran.
Karlar áhugalauslr
um nám barnanna
seglr i niðurstððum skoðanakðnnunar
lafnréttlsnelndar á Neskaupstaö
Jafnréttisnefnd Neskaupstað-
ar hefursent frá sér niðurstöður
ýtarlegrar skoðanakönnunar,
sem gerð var I bænum á ýmsum
málum er varða mismunandi
stöðu kynjanna. Var könnunin
gerði I samvinnu við jafnréttis-
nefndir i Garðabæ, Hafnarfirði
og Kópavogi.
100 konum og 100 körlum i
Neskaupstað á aldrinum 20-55
ára var færður spurningalisti.
Svörbárust frá 80% kvennanna
og 73% karlanna. Sams konar
könnun var gerð i Garðabæ,
Kópavogi og Hafnarfirði. Sam-
kvæmt könnununum álitur
meirihluti Ibúa þessara bæja að
jafnrétti milli kynja riki ekki I
raun, en I þeim hópi eru fleiri
konur en karlar.
Karlarnir sjá ann-
marka á útivinnu
kvenna
1 Neskaupsstað eru fleiri úti-
vinnandi konur en húsnæöur, en
um 80% þeirra, sem vinna utan
heimilis, eru i láglaunastörfum.
Mikill meirihluti kvenna og
karla telur eðlilegt, að konur
vinni fyrir sér sjálfar, en þó sjá
margir karlanna á þvi ýmsa
ánnmarka, og telja aö til þess
þurfi sérstakar aðstæöur aö
vera fyrir hendi.
Sumir þeirra aðhyllast hálfs-
dagsstörf, ogálitaaö konur eigi
áfram aö vinna heimilisstörfin
einar. Þrátt fyrir þetta erukarl-
ar i Neskaupstað mun jákvæö-
ari i viöhorfum til útivinnu
kvenna en karlar i Garðabæ,
Hafnarfiröi og Kópavogi.
Aðeins 8% telja vinnu utan
heimilis algerlega óæskilega, en
engin kona á Neskaupstað er á
þeirri skoöun.
Kannaöur var vinnutimi karla
og kvenna i Neskaupstaö, og
kom i ljós, að sextiu og fjórir af
hundrað körlum vinna meira en
fjörutiu klukkustundir á viku,
en tiu af hundraði kvenna.
Flestar kvennanna i úrtakinu
vinna minna en fjörutiu tima á
viku. 1 Kópavogi, Hafnarfiröi og
Garðabæ er nokkuö minna um
aö karlar vinni yfirvinnu.
Áhugalausir um nám
barnanna
Karlar i Neskaupstaö sýna
námi barna sinna mikið áhuga-
leysi, og eru aö þvi leyti ólikir
körlum i hinum bæjunum, sam-
kvæmt upplýsingum nefndar-
innar. Þriðjungur þeirra svar-
aöi ekki spurningu um þaö,
hvort þeir teldu æskilegt, að
dætur þeirra eða synir færu i
framhaldsnám. Tiu karlar svör-
uðu neitandi eða sögðust láta
sér á sama standa. Konurnar
tóku skýrari afstöðu, og töldu
áttatiu úr þeirra hópi nám sona
og dætra æskilegt.
Spurt var um þörf á starfs-
þjálfun fyrir húsmæður, sem
vilja fara út á vinnumarkaðinn,
og virtust flestir vera sammála
um, að þörfin væri mikil. I
námsflokkum Neskaupstaðar
eru konur i yfirgnæfandi meiri-
hluta. 80% kvenna i bænum eru
án sérmenntunar, en 36% karla.
I Kópavogi, Hafnarfirði og
Garðabæ eru nokkru fleiri kon-
ur sérmenntaðar en i Neskaup-
stað, en eftir sem áður eruþær I
miklum minnihluta.
Umhirða barna lendir
oftast á mæðrunum
Athugun á þvi, hvort foreldra
léti meira til sin taka við um-
hirðu barna, leiddi i ljós, að
barnaumönnun lendir aðallega
á mæðrunum. Þær vakna oftar
til ungbarna á nóttunni, sjá
frekar um almenna umhirðu, og
faraoftar á foreldrafundi i skól-
anum. Þó sagðist fjórðungur
foreldra skipta jafnt með sér
verkum viðkomandi barnaupp-
eldi. í hinum bæjunum er það
hlutfall heldur hærra.
Foreldrar I Neskaupstað eru
ósammála um, hvort kynjanna
er hæfara til barnauppeldis.
Flestir karla telja móðurina
hæfari i hlutverkið, en meiri-
hluti kvenna að bæði kynin séu
jafnhæf. Eitthvað virðist þó af-
staða karlmannanna vera að
breytast, því að 78% karla á
aldrinum 35-39 ára telja konur
hæfari, en aðeins 21% karla á
aldrinum 20-24 ára.
Um helmingur karla og
kvenna er á þeirri skoðun, að
dagvistun sé æskileg fyrir börn,
en i Kópavogi Hafnarfirði og
Garðabæ aðeins 30-40%. Ekki er
erfiðleikum bundið að koma
börnum á dagheimilii Neskaup-
stað, en helmingur foreldra i
hinum bæjunum sagðist hafa
áhuga á dagvistun fyrir börn
sin, en ekki fá pláss.
Verkaskipting á heim-
ilunum
Verkaskiptingu á heimilum i
Neskaupstað er þannig farið, að
konan sér yfirleitt alltaf um
matargerð og þvotta, enda þótt
á þvi séu nokkrar undantekn-
ingar. Uppvaskið er hins vegar
greinilega það af heimilisverk-
unum, sem karlmenn gripa
fyrst i', þvi að 37% h jóna sögðust
skipta þvi bróðurlega á milli
sin. Svipaðasögueraðsegja um
hreingerningar. I hinum bæjun-
um taka karlmenn hins vegar
siður þátt i hreingerningum.
Smáviðgerðir á húsnæði sleppa
karlmenn i Neskaupstað aðeins
við i fjórðungi tilfella, og helm-
ingur þeirra, sem spurðir voru,
sögðu karlinn annast umhirðu
bilsins.lhinum bæjunum leggja
enn færri konur sig niður við
slika umhirðu. Á 24 heimilum i
úrtakinu koma fjármálin til
kasta beggja kynjanna, og á 8
heimilum sér konan aðallega
um fjármál. 1 öðrum tilfellum
hefur maðurinn umsjón með
fjármálum.
-AHO
MFTAKAR MEISTARANNA
Heimsmeistaramóti sveina i
skák er nýlokiö, og varö röö
efstu manna þessi:
1. Tempone, Argentinu8 1/2 v. af
11
2. Short, Englandi 8 1/2
3. Morovic, Chile 8
4. Milos, Brasiliu 71/2
í 5.-10. sæti uröu Ehlvest, Sovét-
rikjunum, Greenfeld, Israel,
Gabulescu, Rúmenia, Jóhann
Hjartarson og Benjamin,
Bandarikjunum með7 vinninga.
Sigur Tempones er nokkuð
óvæntur, en verðskuldaöur.
Fyrirfram hefði mátt búast við
Short, Benjamin eða Ehlvest i 1.
sæti, þvi allir hafa þeir getið sér
frægðarorö, þó ungir séu að ár-
um. Hinn 14 ára gamli Short var
nýbúinn að vinna sigur I alþjóð-
legumóti, þar sem stórmeistar-
ar og alþjóðlegir meistarar
tefldu. Benjamin hefur oft verið
likt við sjálfan Fischer, enda
þykir honum svipa töluvert til
þessa fræga landa sins, bæöi
hvað iátbragð og skákstyrk
áhrærir. Benjamin er oröinn
hagvanur i alþjóölegum mótum,
og vann t.d. stórmeistarann
Lein fýrir skömmu. Ehlvest
hefur veriö sigursæll i heima-
landi sinu, en allir urðu þessir
piltar að sætta sig við að heims-
meistaratitillinn færi til Argen-
tinu. Tempone fór sér aö engu
óöslega i skákum sinum, gaf
ekki höggstað á sér, en var fljót-
ur að gripa tækifærið,' þegar
andstæðingurinn hafði yfirspil-
að sig. Short tapaði einni skák,
fyrir Ehlvest i 3. umferð og það
var nóg. Marovic tefldi i þriðja
sinn á heimsmeistaramótí
sveina, en það vareinmitt gegn
honum sem Jón L. Arnason
gerði jafntefli i lokaumferðinni
1977, og tryggði sér þar með
heimsmeistaratitilinn. Ehlvest
hóf mótið með miklum krafti,
vann 5 fyrstu skákirnar á glæsi-
legan hátt, og virtist I sérflokki.
3. Rd2
4. e5 •
5. Bd3
6. c3
7. Re2
Rf6
Rf-d7
c5
Rc6
Db6
skák
Umsjón:
Jóhann örn
Sigurjóns-
son
Siöari hlutinn var heldur
dapurlegur, aðeins 2 vinningar
skiluðu sér i 6 siðustu umferðun-
um.
Jóhann Hjartarson fékk sama
vinningshlutfall nú og 1 fyrra.
Hann er i' mikilli framför, og
heföi þvi mátt búast við enn
betri árangri. Mótið i ár var þó
mun sterkara en i fyrra, og að
ná sömu vinningatölu og kepp-
endur frá skákveldum eins og
Bandarikjunum og Sovétrikjun-
um, hlýtur að teljast gott afrek.
Jóhann lauk mótinu með einkar
snoturri vinningsskák, og leik-
fléttan þar minnir á snjalla
skákþraut.
Hvitur: Jóhann Hjartarson
Svartur: Drasko, Júgóslavla
Frönsk vörn.
1. e4 e6
2. d4 d5
(Rökréttasta framhaldið. Hvit-
ur fær betra tafl eftir 7. . . f6 8.
exf6 Dxf6 9. Rf3 cxd4 10. cxd4
Bb4+ 11. Bd2.)
8. RÍ3 cxd4
9. cxd4 Bb4?
(Að áliti Uhlmanns og fleiri sér-
fræðinga i franskri vörn, er rétti
leikurinn 9. . . f6! Eftir 10. exf6
Rxf6 11. 0-0 Bd6, hefur svartur
mun meira mótspil.)
10. Kfl Be7
(Ef 10. . . 0-0? 11. Bxh7+ Kxh7
12. Rg5+ Kg8 13. Dd3 g6 14. Dh3
og vinnur.)
11. h4 Rf8
12. h5 Bd7
13. Hh3 0-0-0
14. Hg3 g6
15. h6!
(Rétt einu sinni enn verða veik-
leikarnir á svörtu reitunum af-
gerandi.)
15. . . f6
16. exf6 Bxf6
17. Bg5 Bxg5
18. Rxg5 Be8
19. Dcl!
(Valdar b-peðið, heldur niðri
eina mótspili svarts, e6-e5, og
opnar drottningunni leiö út á
borðið.)
19.. . . Dc7
20. Hf3
(Nú er hótunin 21. Hxf8 Hxf8 22.
Rxe6.)
20.. . De7
21. De3 Hd6
22. Hcl Kb8
23. Rc3 a6
24. Hel Hg8
25. DÍ4 Ka8
26. Ra4!
(Hér virðist svartur loks fá ein-
hver gagnfæri, enda er hann
fljótur að gripa tækifærið.)
26... Rxd4?
(Ef 26.. . Rb4 27. Rc5 með aukn-
um bindingi.)
27. Dxd4 Dxg5
<£> ,JL4X
± ± ± X± ±± ± #
&
A, S
±± ± ±
28. Dg7!
(Þessi stórskemmtilegi leikur
gerir út um skákina i snarhasti.
Svartur þrjóskast að visu við
nokkra leiki, en úrslitin eru ráð-
in.)
28.. . Hxg7
29. hxg7 Rd7
30. g8D De7
31. Hcl Kb8
32. Rc5 Rxc5
33. Hxc5 Hd8
34. Df8
(Ekki 34. Hcl? Bb5 35. Df7 Dxf7
36. Hxf7 Bxd3+ ogsvartur vinn-
ur!)
34.. Dh4
35. Df4+ Gefið.
Jóhann örn Sigur jónsson