Vísir - 27.07.1979, Page 8
8
VÍSIR
Föstudagur 27. júll 1979.
útgeiandi: Reykjaprenth/f
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
Ritstjórar: úlafur Ragnarsson
Höröur Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriðason, Gunnar
Salvarsson, Halldór Reynisson, lljugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin
Páisdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson,
Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og
Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit
og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
'Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R, Pétursson
Auglýsingar og skrifstofur:
Siöumúla 8. Simar 86411 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611.
Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 Ifnur.
Askrift er kr. 3-S00imánu6i^
innanlands. VerJTT
lausasölu kr. 180 eintakiö.
„Prenlun Blaöaprent h/f
Takmarkað slálfstæði fll 1991
Meö framlengingu samnings islenska rlkisins og norræna simaeinokunarfélagsins er
komið i veg fyrir að við fáum fullt sjálfstæði varðandi fjarskipti við útlönd næsta ára-
tuginn.
Þaö hefði einhverjum þótt
skrýtið/ þegar barist var fyrir
því að aflétta verslunareinokun
útlendinga á íslandi, ef við hefð-
um sætt o^kur við að erlendir
menn ættú öll þau skip, sem
sigldu með vörur til íslands. Við
fengjum aðeins afnot af þeim
fyrir flutninga okkar en þeir
ákvæðu flutningsgjöldin. Það
verslunarfrelsi hefði verið lítið.
Varðandi einn þátt samgöngu-
mála okkar, f jarskiptaþjónustu,/
má i raun segja, að þannig sé
ástatt enn þann dag í dag vegna
undirgefni íslenskra stjórnvalda
viðMikla norræna ritsímafélagið
i Kaupmannahöfn.
Það félag á að meginhluta til
sæsímastrengina til og frá land-
inu, ákvarðar afnotagjald af
þeim og leyfir svo íslensku póst-
og símamálastofnuninni að af-
greiða símtöl og önnur f jarskipti
um strengina á uppsprengdu
verði.
Eins og fram kom í Vísi í gær
þurfa þeir, sem hringja til út-
landa héðan að greiða miklum
mun hærra gjald en aðilar, sem
hringja hingað frá útlöndum
sömu vegalengd, og sýnir það
best, að eitthvað er bogið við
álagningu Mikla norræna á utan-
landssímtöl islendinga.
Samningur ríkisstjórnar ís-
lands við Mikla norræna ritsíma-
félagið frá 1960 átti að falla úr
gildi í árslok 1985, en að tilhlutan
ríkisstjórnar Geirs Hallgríms-
sonar var sá samningur endur-
skoðaður og hann framlengdur
til ársins 1991. Þá var meðal ann-
ars samið um samvinnu við
Mikla norræna um byggingu
jarðstöðvar fyrir gervihnatta-
fjarskipti hér á landi, sem ekki
verður séð að þörf hafi verið á,
því að langheppilegast hefði ver-
ið að við ættum og ræktum jarð-
stöðina einir.
Mikla norræna ritsímafélaginu
tókst einnig að koma í kring
furðulegum skuldbindingum
Pósts og síma,meðal annars um
að nýting sæstrengjanna skuli
hafa forgang umfram nýtingu
jarðstöðvarinnar fyrir símtöl
næsta áratuginn.
Þannig tryggja símayfirvöld á
Islandi símafélaginu að í notkun
séu að minnsta kosti 24 rásir í
Scotice til Evrópu og á meðan
einhverjar rásir séu lausar um
lcecan strenginn til Canada
meg i íslendingar ekki nota jarð-
stöðina fyrir slík símaviðskipti.
En hver er réttur íslendinga? í
samningnum er kveðið á um, að
eftir að jarðstöðin sé komin I
gagnið geti símayf irvöld hér far-
ið fram á taxtalækkanir og tekið
fram að Mikla norræna skuli
ræða við okkar menn um slíkt, en
fyrirtækið hafi aftur á móti
neitunarvald í þeim efnum.
Þetta þýðir með öðrum orðum,
að einokunarfélagið hafi í hendi
sér hve mikið það hirði af okkur í
símagjöldum umfram það sem
sanngjarnt væri.
Við höfum því enn ekki fengið
sjáifstæði á sviði f jarskiptasam-
bandsins við umheiminn og með
framlengingu nýlendusamnings-
ins verðum við á klafa norræna
símafélagsins til ársins 1991.
Ert Dú með Firestone 500 undir bílnum:
GALLAÐIR FIRESTONE HJOL-
BARDM IHHKALLABIR I USA
Bandariskylirvöld hafa fyrir-
skipaö Firestone hjólbaröa-
verksmiöjunni að hætta fram-
leiðslu á Firestone 500 hjólbörö-
um og innkalla alla hjólbarða
þessarar gerðar sem enn eru i
notkun. Firestone 500 hjólbarð-
arnir sem eru svokallaöir stál-
radial hjólbarðar, hafa verið
„Það er rétt að við
höfum umboð fyrir
Firestone á íslandi, en
við höfum aldrei flutt
inn hjólbarða af þess-
ari gerð,” sagði Eyjólf-
ur Brynjólfsson skrif-
stofustjóri Jöfurs h.f. i
samtali við Visi.
Aftur á móti sagði Eyjólfur að
sér væri kunnugt um aö nokkrir
bandariskir bilar sem fluttir
hafi veriðtillandsins hafi komið
á slikum dekkjum og eitthvað
værium þau undir bilum varn-
arliösins.
Er hann var inntur eftir þvi
hvortekkiheföi komiö tiltals að
innkalla dekkin hérlendis, sagði
hann að fyrirspurn um slikt
heiði veriö send til verksmiðj-
unnar. Þar heföi ekki verið talin
framleiddir allt frá árinu 1972
og er taliö að alls hafi verið
seldar um 24 milljónir hjólbarða
þessarar gerðar þau sexársem
framleiðslan stóð yfir.
Bandariska vikuritið Time
skýrði nýlega frá þvi aö til loka
júni á þessu ári sé talið aö i
Bandarikjunum hafi gallar á
ástæða til innköllunar, þar sem
ekki heföi verið um beinan inn-
flutning á dekkjunum að ræða
þótt svo að þau hefðu „slæöst”
hingað undir nokkrum nýjum
bilum.
Sagði Eyjólfur að ef Jöfur h.f.
ætlaöi að innkalla dekkin upp á
eigin spýtur þá þyrfti fyrirtækið
sjálft að bera s kaöann, en einnig
spilaði inn i að fyrirtækið ætti
ekki á lager þá dekkjagerö sem
ætlast væri til að afhent yrðu i
staðinn fyrir innleyst dekk.
Þá kom þaö fram I máli
Eyjólfs að aðeins einn Islenskur
bileigandi hefur sett sig i sam-
band viö Jöfur vegna umræddra
dekkja, en sá hafði einmitt lesiö
greinina i Time. Sagði Eyjólfur
að þrátt fyrir aö ekkert heföi
fundist athugavert við dekkin
sem sá maöur átti, heföi þeim
engu að siöur veriö veitt mót-
taka i skiptum fyrir ný.
— GEK.
dekkjunum valdiö 42 dauðaslys-
um, auk 60 annarra slysa og
nokkur hundruð óhappa þar
sem aðeins hefur verið um
eignatjón að ræða.
Blaðið skýrir frá þvi að þrátt
fyrir að efasemdir um gæöi
Firestone 500 dekkjanna hafi
vaknað strax árið 1973, hafi
verksmiðjurnar haldið áfram
að framleiða’ þau án afláts allt
til ársins 1978, er þær urðu aö
láta undan þrýstingi stjórn-
valda sem kröfðust þess aö
Economy & Business
Forewarnings of Fatal Flaws
IIiii l'ireMonecontiimed to v<7/a tronhled tiiv
Grein bandariska vikuritsins
Time um Firestone hjólbarð-
ana.
„Ekki talin ástæöa til
innköllunar á íslandi”
- seglr Eyldlfur Brynlðlfsson,
skrifsfofusfjöri Jöfurs
framleiðslu yrði hætt og öll dekk
af þessari gerð innkölluð. Var
Firestone verksmiðjunni gert
að láta eigendur dekkjanna fá
nýja hjólbarða af gerðinni Fire-
stone 721.
Samkvæmt upplýsingum
Time hafa verksmiöjurnar
fengið inn um 3 milljónir hjól-
barða af umræddri gerð i U.S.A.
sem er lauslega áætlað aö vera
um 40% þeirra sem enn eru i
notkun þar I landi.
— GEK.
„Berum ekki ábyrgo á hjðl-
börðum innfluttra blfreiða”
- seglr Gunnar Gunnarsson hjá
Véladelld SIS
„Þegar við ílytjum
inn bila til landsins, þá
kemur hvergi fram,
hvorki i faktúrum né
öðrum innflutnings-
gögnum hverrar teg-
undar hjólbarðarnir
undir bilnum eru.
Mér er hins vegar kunnugt
um, að það heyrir til algjörra
undantekninga ef bilar frá
General Motors koma hingaö
með Firestone hjólbörðum,”
sagði Gunnar Gunnarsson
aöstoðarframkvæmdastjóri
Sambands islenskra samvinnu-
félaga. Sambandið hefur sem
kunnugt er umboð fyrir General
Motors i Bandarikjunum og er
stærsti aðilinn i innflutningi
þarlenskra bila.
Gunnar sagöist telja að gall-
inn I Firestone 500 hjólböröun-
um hlyti að vera mjög einangr-
aö dæmi þvi yfirleitt væru hjól-
barðar frá Firestone verksmiðj-
unum mjög hátt skrifaöir.
,,Ég tel, sagði Gunnar, ,,að
likurnar á þvi að þessir hjól-
barðar hafi komið undir okkar
bilum séu svo hverfandi að þaö
væri eins og að leita að saumnál
i heystakk ef ætti að kanna
það.”
Varöandi ábyrgð á hjólbörð-
um innfluttra bila sagöi Gunnar
að við afhendingu þeirra skrif-
uðu kaupandi og seljandi undir
sérstakt ábyrgðarskjal.
í þessu skirteini er að sögn
Gunnars sérstaklega tekið fram
að söluaðili beri enga ábyrgð á
hjólbörðunum. Sagði hann þaö
vera venju að framleiðendur,
t.d. bíla, tækju ekki að sér
ábyrgð á framleiöslu undir-
verktaka sem afgreiddu sina
vöru undir eigin nafni. I þessu
tilviki bæru þvi Firestone verk-
smiðjurnar og umboösmenn
þeirra alfarið ábyrgð á þeim
hjólbörðum sem kynnu að reyn-
ast gallaðir.
— GEK.