Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 3

Vísir - 08.08.1979, Blaðsíða 3
3 VISIR Miövikudagur 8. ágúst 1979. Rafmagnsveilur rfklslns llla slæfiar: vanlar 3.500 milljðnir í árl Beinn rekslrarhalll er elnn miiliarður Fjárvöntun Rafmagnsveitna rikisins nemur alls 3,5 milljörðum króna á þessu ári og þar af er beinn rekstrarhalli einn milljarður króna. Þetta kom fram þegar Visir ræddi við Kristján Jónsson, raf- magnsveitustjóra rikisins. Sagði hann að auk rekstrarhallans vantaði 860 milljónir króna til að ljúka við framkvæmdir á þessu ári, en kostnaður við þær hefði farið fram úr áætlun vegna hækk- ana innanlands og gengisbreýt- inga. Þá ætti Rarik eftir að fá 500 milljónir úr rikissjóði végna byggðalina og einnig hefðu g'amlar vanskilaskuldir að upp- hæð 400 milljónir verið greiddar. Siðan’bættust við ýmsar aðrar skuldir, dráttarvextir og oliu- keyrsla i disilstöðvum, þannig aö fjárhagsvandinn yrði 3,5 milljarðar eins og áður sagði. Kristján sagöi að þetta hefði komið fram, þegar úttekt var gerð á fjárhagsstöðu Rarik. Til þess að leysa úr þessum f járhags- vanda hefði verið lagt til að staðið yrði betur að fjármögnun en hingáð til, bæði með þvi að létta skuldabyrðina sem nú hvildi á Rarik og einnig að fyrirtækið þyrfti ekki að standa undir óarö- bærum framkvæmdum. Þar væri einkum um að ræða svokallaðar „félagslegar framkvæmdir”, sem væru fólgnar i þvi að byggja linur þangað sem markaðurinn gæti ekki staðið undir kostnað- inum vegna smæðar sinnar. Þess væru dæmi að markaðurinn stæði aðeins undir 10% af kostnaði við framkvæmdir og vildi Rarik að rikið tæki þátt I að greiða það, sem á milli bæri. Væru þessar tillögur nú til áthugunar i iðnaðarráðuneytinu. Þá sagði Kristján að nú væri einnig verið að. athuga hvernig best mætti hagræða rekstrinum og koma i veg fýrir alla óþarfa eyðslu. Einnig hefðu verið s'éttar.. reglur, sem takmörkuðu auka- vinnu starfsmanna og stefnt væri að þvi að reksturinn yrði i sem bestu lagi i framtiðinni. Kristján var spurður, hvort aukinn þrýstingur á innheimtu útistandandi skulda stæði I sam- bandi við þennan fjárhagsvanda Rarik, en hann taldi svo ekki vera að öðru leyti en þvi, að fyrirtækið mætti siður við þvi að eiga miklar óinnheimtar skuldir. —HR Krabbamelnsmyndandi efnl í viskí 09 bjórl Fundist hefur vottur af krabba- meinsmyndandi efnum I nokkr- um vinsælum skoskum viski- tegundum, eftir þvi sem banda- riskir visindamenn segja. Um leiö hefur matvæla- og lyfjaskrárnefnd Bandarikjanna birt lista með nokkrum bjórteg- undum, sem sögð eru hafa þetta sama efni, er kallast nitros- amines. Rannsóknir þóttu leiða i ljós, að f jöldi anarra áfengra drykkja eins og létt vin.búrbonviski, rúg- viski, likjörar, vodka, romm og konjak væru alveg laus við þessi efni. Skosku viskiin, sem upp voru talin og innihéldu nitrosamines, voru Chivás Regal, Black and White, J&B, Ballatines, Cutty Sark og Sandy Scot. Bjórtegundirnar á listanum voru San Miguel (Filippseyjum), Kirin (Japan), Marathon Dark (Grikkl.) Heineken (Holl.), Skol (Holl), St. Pauli Girl (V-Þýska- land), Guinness (írl.), Fosters (Astr.) og Newcastle Dark Ale (Bretl.). Drengur drukknaði Fimm ára gamall drengur, Stefán Július Sveinsson féll i kvina við Torfunesbryggju og drukknaði sl. föstudagskvöld. Stefán var i fylgd með dreng á liku reki, og er þeir komu ekki heim um kvöldmatarleytið var farið að svipast um eftir þeim. Þegar hinn drengurinn fannst gat hann skýrt frá málavöxtum og bent á staðinn þar sem Stefán litli hafði dottið i sjóinn. Frosk- maður var kvaddur til og fann hann lik Stefáns skömmu siðar. fEvintýrin gerast enn... Tvö kostabod f rá RC 727 sambyggt útvarps- og kass- ettutæki sterio. Meðal atriða má nefna: Stór magnari 7 wött. 4 bylgjur: FM sterio/ MW/LW/SW 4 hátalarar innbyggðir/2 bassar / 2 diskant. Hægt að tengja við tvo aukahátalara Tekur Cr02 (crom) spólur Peak Ijós og mælar fyrir bestu mögulegu upptöku. 2 mikrófónar innbyggðir + inn- Ars ábyrgð; - stunga fyrir 2 aðra. Verð kr. J»»,008* Rafmagn/rafhlöður/12V fyrir bíl- Kostaboð frá JVC kr: 161.000.- inn auk f jölda annarra möguleika. Staðgreiðsluverð Útvarpsmagnari með innbyggðum „Graphic Equaliser" 2x120 sinus wött við 8 ohm á sviðinu 20-20.000 Einn alviðurkenndasti og f ullkomn- asti útvarpsmagnarinn á markaðin- um, var m.a. valinn „Best buy" magnari í sínum stærðarf lokki að mati t.d. Hi-Fi choice bókarinnar um útvarpsmagnara. JR-S600 Mark II hlaðinn gæðum, orku og möguleikum. 3ja ára ábyrgð. Sendum i póstkröfu. S.E.A. Graphic Equaliser Fjölþættur „Equaliser" fyrir huia f ullkomnu tónstillingu. Verð kr: 509.880* Kostaboð frá JVC kr: 350.000.- 5% stgr. afsl. JR-S600 Mark II „Risinn" JVC leiðtogi é sviði nýjunga Laugavegi 89

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.