Vísir - 11.08.1979, Side 4

Vísir - 11.08.1979, Side 4
4 Laugardagur 11. ágúst 1979. Hinn huídi heimur HOWARD HUGHES Morguninn var hinn ákjósanlegasti til að fljúga. Hvergi sást ský á himni og hægur andvari lék um pálmatrén á veröndinni fyrir framan Acapulco Princess Hotel í Mexico. Það var einmitt á svona morgni sem gamli maðurinn, sem nú lá i rúmi sínu á hótelsvítunni, hafði á sinum yngri árum notið lífs- orku og ríkidæmis síns hvað mest, — að öllu óbreyttu væri hann nú í loftinu gagntekinn kappi ofurhugans. Hann hafði eitt sinn verið flugmaður, maður sem flaug bæði hraðar og lengra en sjálfur Lindberg. Líkami hans hafði líka eitt sinn verið stæltur og þróttmikiII. Nú var lítið orðið eftir, andlit hans var grátt og magurt, dökk augun sokkin og með gráar hártjásurnar líktist hann einna helst draugi. Líf- læknir hans gerði sfnar ráðstafanir og Howard Robard Hughes hélt í sína hinstu flugferð og um leiðá vitörlaga sinna. Þetta var íaprílárið 1976. Billjónamæringur í tennisskóm Þessi ferö varö jafn drama- tisk og allt annaö i hinu leyndar- dómsfulla iifshlaupi Howard Hughes. A fimmtiu ára ferli sin- um i viðskiptum, haföi hann framleitt kvikmyndir og upp- götvaö kvikmyndastjörnur. Hann haföi búiö til hrlöskota- byssur og hannaö nýjar flug- vélategundir, þ.á m. orustuflug- vélar. Hann haföi komiö fram sem talsmaöur leyniþjónustu Bandarikjanna CIA og veriö velgjöröarmaöur og verndari a.m.k. tveggja Bandarikjafor- seta. Hann var sérvitringur þjóöar sinnar númer eitt, ljósmynd haföi ekki birst af honum siöan 1957. Hann var billjónamæring- ur i tennisskóm, sem trúöi þvi aö hver væri sinnar gæfu smiö- ur, en fáir þess veröugir aö njóta hennar. Hann var myndarlegur eins og Gable, óáþreifanlegur eins og Garbo, — hugrakkur eins og reynsluflugmaður en um leiö haldinn þeim sjúklega ótta, aö sýklar myndu aö lokum koma honum fyrir kattarnef. Hann eyddi milljónum i aö einangra sig frá „saurugu” um- hverfi og tók aö stjórna fyrir- tækjum sinum bak við luktar dyr. Hvar sem hann bjó i gisti- húsum eða eigin húsum, alls staöar var það um búiö eins og hjá best sótthreinsuöu sjúkra- húsum. Engum var hleypt á hans fund, án þess aö undir- gangast rannsókn á þvi, hvort þar væri á ferö hugsanlegur sýklaberi. Sótthræðslan ágerö- ist meö árunum og undir þaö siöasta þoröi hann varla að neyta matar. Leikslokin voru enda skammt undan og aö lok- um gáfu nýrun sig og eitrun i þvagi dró hann til dauða, — en þá var u.þ.b. fimmtán minútna flug eftir til Houston i Texas. Hann var þá um sjötugt og virö- ist allt benda til aö hann hafi þá verið oröinn forfallinn eitur- lyfjaneytandi. Kvikmyndir og kvennafar Howard Hughes fæddist á jólakvöld i Houston áriö 1905. Faöir hans var vel stæöur kaup- sýslumaður og sendi hann son sinn i bestu skóla sem völ var á og miðaöist námiö viö góöan undirbúning til aö taka viö fyr- irtæki fjölskyldunnar. Atján ára gamall tók hann svo viö fyrir- tæki fööur sins, Hughes Toool Company. A næstu árum þandi hann út fyrirtækiö, frá þvi aö selja áhöld til oliuborana uns þaö var oröið risasamsteypa fjölda fyrirtækja. Hinn ungi Howard haföi þó meiri áhuga á flugi og kvikmyndagerð en þurrum viðskiptum. Hann steypti sér út i eigin kvik- myndaframleiöslu um leiö og efnahagurinn leyföi. Sem kvikmyndaframleiöandi kynntist hann fjölda þeirra feg- uröardisa, sem prýddu hvita tjaldiö i þá daga. Sást hann oft I fylgd þeirra á skemmtistööum og fékk á sig orö fyrir aö vera kvennamaöur. Meö sumum reyndi hann hjónabönd, sem ekki blessuðust. Fyrir siöari heimsstyrjöldina haföi honum tekist aö framleiöa nokkrar myndir sem fengu met- aösókn. Má þar nefna myndir eins og „Hell’s Angels (1930), Scarface” (1932, „Front Page” (1931) og „Outlaw” (1944). 1 fyrstu mynd sinni „Hell’s Angels” kom hann fram meö fyrstu stjörnuuppgötvun sína, ljóshærðu kynbombuna Jean Harlow. önnur stórstjörnuupp- götvun hans var Jane Russel i A hnefaleikakeppni með kvikmyndaleikkonunni Ava Gardner áriö 1946.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.