Vísir - 11.08.1979, Side 18
18
Laugardagur 11. ágllst 1979.
VÍSIR
Lýst er eftir konunni I hringnum hér aö ofan. Þaðbfha hennar tiu þúsund krónur á ritstjórn Vfsis.
Ert þú í
hringnum?
— ef svo er ert þú 10.000 krónum ríkari
Að þessu sinni lýsum
við eftir konunni í hringn-
um á myndinni hér að of-
an. Hún var að skoða í
búðarglugga í Lækjar-
götu klukkan 14:30 á
föstudaginn, þegar Jens
Ijósmyndari tók myndina
af henni
Konan í hringnum er
beðin um að gefa sig
fram á ritstjórnarskrif-
stofum Vísis að Síðumúla
14 í Reykjavik, innan viku
frá því að myndin birtist.
Þar bíða hennar tíu þús-
und krónur.
Ef þú kannast við kon-
una í hringnum þá ættirðu
að hafa samband við
hana og segja henni frá
þessu uppátæki okkar.
Hugsanlegter að hún hafi
ekki enn lesið blaðið og þá
gætir þú orðið til þess að
hún yrði tíu þúsund krón-
um ríkari.
,,Eins og
ad vinna
í happ-
drætti”
— sagði Svanhildur Pálsdóttir, en hún
var konan í hringnum í síðustu viku
„Við vorum á leiðinni á
Þjóðhátíð í Eyjum þegar
myndin var tekin svo
þetta var alger tilviljun",
sagði Svanhildur Páls-
dóttir sem var konan í
hringnum í síðustu viku,
en hún hringdi til okkar
frá Ólafsvík þar sem hún
býr.
,,Ég var mjög undrandi
þegar ég sá myndina af
mér. Mér finnst þetta
eins og að vinna í happ-
drætti og þetta er þá í
fyrsta skipti sem ég vinn í
happdrætti. Mér finnst
þetta virkilega sniðugt
uppátæki"#
Svanhildur var ekki
sjálf búin að lesa blaðið
þegar fyrsta símhring-
ingin kom á laugardaginn
og svo stoppaði síminn
varla.
,,Ég hélt fyrst að verið
væri að gera at i mér en
svo sá ég myndina. Hún
var að vísu ekki góð af
mér en ég þekkist þó",
sagði Svanhildur.