Vísir - 31.08.1979, Síða 12
VISIR Föstudagur 31. ágúst 1979.
12
VÍSIR
Föstudagur 31. ágúst 1979.
De Nord-wctt-
hoctk van
Jan Maven
EYLANT.
veriö
A HOLLENDINGASLOB-
UM í ROSTUNGSVOGI
Hér fyrr á öldum hefur
sjá Ifsagt oft og tíðum verið
meiri ys og þys á Jan May-
en heldur en vart verður
þar nú á dögum.
Skömmu eftir að Hol-
lendingurinn Jan Jacobsz
May/ sem eyjan er síðan
kennd við# fann hana árið
1614/ hófu Hollendingar
miklar hvalveiðar þaðan.
Er talið/ að meðan hvala-
vertíðin stóð yfir á ári
hverju hafi mörg hundruð
manns dvalist á eynni,
jafnvel heilar fjölskyldur.
I fyrstu var mikil mergð
hvala á þessum slóðum, og
hafa hvalveiðarnar sjálf-
sagt verið stundaðar af
miklum fjölda skipa.
Aðalbækistöð Hollend-
inga var í Rostungsvegi á
eynni norðanverðri, þar
sem skipalægi er gott, skjól
fyrir ölium vindáttum
nema vestan og norðvest-
an.
Gamlar minjar í
Rostungsvogi
Við íslendingarnir vörðum tals-
verðum hluta af tima okkar i
Rostungsvogi, en er þar ýmislegt
forvitnilegt að sjá. Vogurinn sjálf
ur er mjög fallegur, liggur i
skeifulaga hvilft, sem takmark-
ast að austanverðu af Rostungs-
höfða, sem aö visu er ekki neitt
störfjall, aðeins 157 metrar á hæð,
en nokkuð sérkennilegt. Neðantil
er höfðinn úr gosbergi, en ofantil
úr lagskiptu og grófgerðu mó-
bergi. Má sjá alls kyns sérkenni-
legar myndanir i móberginu, sem
er orðið mjög svo veörað. I Rost-
ungshöfða er talsvert fuglalif,
aðallega ýmiss konar sjófuglar,
eins og gefur aö skilja.
Niöur við Rostungsvog má enn
finna minjar um lif og starf hval-
veiðimannanna, sem þar höföust
við fyrir u.þ.b. 350 árum. Helst
eru þetta leifar af gólfum bæki-
stöðva þeirra, og eru viðir þeirra
furöu litiö fúnir. Þá eru þarna
talsverðar múrsteinshrúgur, en
þessi múrsteinn mun hafa verið
notaður i eldhólf lýsisbræðslu-
pottanna i hvalveiöistöðvunum. 1
grein, sem Freymóður Jóhannes-
son listmálari skrifaði eftir för
nokkurra tslendinga til Jan May-
en árið 1918, hefur hann orð á þvi,
aö enn sjáist m.a. leifar af hlóö-
unum undan bræðslupottunum.
Þessar leifar eru nú horfnar,
enda munu allar gamlar minjar á
Jan Mayén hafa fariö mjög illa á
striðsárunum.
____ _ Lítið rannsakað
Móbergið I Rostungshöföa er ‘viöa sérkennilegt» Ekki hefur mikiö veriö gert af
f*.
mmm
m.
þvi að rannsaka hinar gömlu
hvalveiðibækistöðvar á Jan
Mayén eöa umhverfi þeirra.
Fyrir nokkrum árum fundu Norö-
menn, nánast fyrir tilviljun, tvær
miklar fallbyssur og fallbyssu-
skot í Rostungsvogi, en frá þeim
var sagt I einni af fyrri greinun-
um hér I VIsi. Er talið vist, að
Hollendingar hafi komið sér upp
þessum byssum til varnar gegn
ásælni annarra þjóða manna. Sá
varnarviðbúnaður hefur sjálfsagt
ekki veriö af tilefnislausu, þvi aö
sagnir eru m.a. tilum þaö, aö áriö
1632 hafi spánskir vlkingar rænt
birgðastöð Hollendinga á Jan
Mayen. Vegna þessa atburðar
létu Hollendingar sjö menn hafa
vetursetu á eynni veturinn 1633-
34, og er það fyrsta vetursetan,
sem þar er vitað um. Þegar kom-
ið var til eyjarinnar sumarið
eftir, voru vetursetumennirnir
allir látnir, en þeir höfðu veikst
af skyrbjúg um veturinn. ! dag-
bók, sem þeir höfðu haldið um
vist sina á eynni, var að finna
mikinn fróöleik um vetrarlifiö á
þessum norðlægu slóðum, hafis-
komu, komu isbjarna og sela,
veöráttuna og jarðskjálfta, sem
yfir dundu.
. Hvaðveiðinni hætt
Auk Hollendinga munu Eng-
lendingar og Frakkar eitthvaö
hafa sótt i hvalinn við Jan Mayen.
Munu Frakkar þá hafa kallað
eyna Isle de Richelieu, en Eng-
lendingar, a.m.k. um einhvern
tima, ýmist Trinity eða Sir
Thomas Smith’s Island. En ekki
mun vitað til þess, að Frakkar
eða Englendingar hafi stundað
veiöina frá stöövum i landi, held-
ur hafi þeir sótt hvalveiðarnar á
skipum, þar sem brætt var um
borð.
Sjálfsagt hafa hvalveiöarnar
við Jan Mayen verið stundaðar
meira af kappi en forsjá, þvi að
hvalirnir hurfu alveg frá eynni,
og er talið, að áriö 1642 hafi hval-
veiðarnar þar hætt með öllu,
a.m.k. frá landstöðvum.
Nú á timum verður ekki mikið
vart viö hval umhverfis Jan May-
Halvor Strandrud, foringi liös Norðmanna á Jan Mayen, skýrir nokkrum tslendinganna frá aöstæöum I Rostungsvogi og starfsemi Hollendinga þar á fyrri öldum. Fremst á myndinni skagar út hvalbein, sem veriö hefur notaöur sem
bjálki undir gólfi i einni bækistöö Holiendinga f Rostungsvogi. Einnig má sjá ieifar af gólfviöum.
en, og er sagt, að hann sé þar
sjaldséðari heldur en sovéskir
„togarar”. Hins vegar er talsverð
selveiði umhverfis eyna, og er
hún fyrst og fremst stunduö frá
Norður Noregi. Norska liöið á Jan
Mayen hefur sérstakan selveiöi-
kvóta fyrir sig, sem nú er 100 selir
á ári. Norðmennirnir á Jan
Mayén nýta sér þó litt þessa
heimild, og var okkur sagt, að á
þessu ári hefðu þeir ekki veitt
nema einn sel. Fannst okkur Is-
lendingunum þaö táknrænt um
„efnahagslifið” á Jan Mayen.
Komu Islendingar
1945?
Þaö er fyrst eftir 1840, sem
Norðmenn taka að venja komur
sinar til Jan Mayen, fyrst til sel-
veiöa og siöan einnig til refa-
Ferð Víslsmanna
og uingmanna
lli Jan Mayen -
4. niuiiaiáNa
Myndlr og texti:
Gunnar V. Andrésson.
HðrOur Elnarsson
ölafur Ragnarsson
veiöa, eins og áður hefur verið
minnst á.
I Rostungsvogi, á sómu slóðum
og áöur voru bækistö
hollensku hvalveiðimannj
hafa Norömenn einhvern ti
þessari öld reist skýli, seir
stendur. Mun 'þaö hafa
hugsað sem skipbrotsma
skýli. Það vakti athygli okki
lendinganna, að rist hafði
með hnifi I gluggasyllu frair
skýlinu: G (eða 6) Island 7
(að þvi er okkur helst sýni
Okkur var ekki kunnugt um i
leiðangur Islendinga til
Mayén á fimmta áratugnum
aö þessi áletrun kom okkur i
uö á óvart. Við vissum um
angur Freymóðs Jóhanness
listmálara og félaga hans
1918 og leiöangur undir f,
stjórn Agústs Jónssonar
smiöameistara á Akureyri
1957 sem báöir voru fyrs
fremst rekaviðarleiðangrar.
væri þvi skemmtilegt, ef ____
hverjir Visislesendur gætu að-
stoðað okkur við að upplýsa það,
hvernig þessi áletrun á skipbrots-
mannaskýlinu á Rostungsvogi er
til komin, þvl að vissulega bendir
hún til komu íslendinga þangaö á
fimmta tug þessaraldar.
Þessi dagstund I Rostungsvogi
verður okkur Visismönnum og
þingmönnunum, ferðafélögum
okkar, sjálfsagt lengi minnisstæð.
Ef til vill er þetta sá staður á
þessari litlu norðlægu eyju, sem
hvað mest saga er tengd við, at-
vinnusaga og saga um mannleg
örlög. Og sjálfsagt geymir sand-
urinn i Rostungavogi enn mikla
sögu, sem gaman væri að rýna
betur I.
Skipbrotsmannaskýliö f Rostungsvogi, sem taliö er reist af Norömönnum fyrir u.þ.b. 50árum. Framan viöskýliö mó m.a. sjá
múrsteinahrúgur frá timum Hollendinga á Jan Mayen og leifar úr gólfum stööva þeirra.
Gömul teikning frá Rostungsvogi. 1 baksýn gnæfir eldfjalliö Bjarnarfjail 2277 metra hátt.
Rostungshöföi, sem lokar Rostungsvogi aö vestanveröu.
t gluggasyllu skipbrotsmanna-
skýlisins i Rostungavik hefur
veriö skoriö: G. (eöa 6) Island
7/9 45 (?). Viö höfum ekki
spurnir af feröum tslendinga til
Jan Mayen á fimmta áratugn-
um. Getur einhver lesenda
blaösins upplýst okkur um,
hvernig þessi áietrun er til
komin?
Ingvar Gislason og Ólafur Ragnar Grimsson skoöa múrstein úr hlóöum undan
lýsisbræöslupottum hollenskra hvalveiöimanna frá upphafi 17. aldar.