Vísir - 31.08.1979, Blaðsíða 24

Vísir - 31.08.1979, Blaðsíða 24
Föstudagur 31. ágúst 1979 símiimerdóóll Spásvæði Veöurstofu tslands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiðafjörð- ur, 3. Vestfirðir, 4. Norður- land, 5. Norðausturland, 6. Austfirðir, 7. Suðausturland, 8. Suðvesturland. veðurspá dagsins Klukkan 6 var vaxandi 1000 mblægð llOOkmSaflandinuá hreyfingu NNA, en 1027 mb hæð yfir N-Grænlandi. Norðanlands verður enn kalt i veðri. SV land og SV miö: A 2-4 og srðan 4-5, dálitil rigning. Faxaf lói og Faxaflóamið: A l-2ogsfðanNA 3-5. dálítil rign- ing sunnan til siðdegis. Breiöafjörður til N lands og Breiöafjarðarmið til N miöa: A 2-3 og siðar NA 4-5, skýjað, þurrt að mestu. NA land og NA mið: A 1-2 og siðar 3-4, dálitil rigning eða súld. Austfiröir og SA land, Aust- fjarðamið og SA mið: A 2-3 og siðar 4-6, rigning eða súld öðru hvoru. Veðrlð hér 09 har Veðrið kl. 6 i morgun: Akureyri skýjað 4, Bergen þokumóða 8, Helsinki skýjað 16, Kaupmannahöfn þoka 11, ósló léttskýjaö 7, Reykjavík skýjað 7, Stokkhólmur þoku- móða 13, Þórshöfn skýjað 4. Veöriö kl. 18 i gær: Aþena léttskýjað 24, Berlin hálfskýjað 22, Chicago al- skýjaö 29, Feneyjarléttskýjað 22, Frankfurt heiðskirt 23, Nuuk skýjað 8, London létt- skýjaö 24, Luxemburg létt- skýjað 20, Las Palmas létt- skýjað 23, Mallorka heiðskirt 26, Montreal léttskýjaö 26 Paris skýjað 24, Róm skýjað 22, Malaga alskýjað 25, Vin léttskýjaö 27, Winnipeg létt- skýjað 18. LOki segir Mikili taugatitringur hefur verið á siðum Moggans und- anfarið vegoa Svarthöfða- greinar um framboðsmál Sjálfstæðlsflokksins á Vestur- . iandi. Það er svo sem auðséð að margir •'stta sér að komast þar ofariega á lista. Harka f deiiu Craflska sveinaiélagslns og prenlsmi ðlueigenda: VERKFALLI VÆNTANLEGA SVARAD MEÐ VERKRANNI Félag isienska prentiðnaðarins hefur farið þess á leit við sam- bandsstjórn Vinnuveitendasambandsins að hún boði tafarlaust verkbann á Grafiska sveinafélagið. Þetta skuli gert til að knýja á um skjóta lausn i yfirstandandi kjaradeilu. „Prentsmiðjueigendur sætta sig ekki viö að starfsemin verði lömuð að hálfu leiti með yfir- og vaktavinnuverkfalli. Jafnframt með alsherjar verkfall yfirvof- andi. Viö þvi verður að bregðast”, sagöi Þorsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands ts- lands i samtali við VIsi i morg- un. Fundur hófst i morgun, skömmu áður en blaðið fór i prentun, hjá sambandsstjórn vinnuveitenda þar sem fjallaö er um verkbannið og var talið sennilegt, aö ákveðiö yrði að boða slíkt bann. „Þaö er alveg Ijóst að það eru engar efnahags- eöa siðferöileg- ar forsendur fyrir þvi að hækka kaup þessara starfsmanna i prentsmiöjunum, umfram þaö sem samið hefur verið um með bindandi samningum til ára- móta, gagnvart þeim sem vinna við hlið þeirra i prentsmiöjun- um”, sagöi Þorsteinn. Félagar i Grafiska sveina- félaginu fara fram á um 20 pró- sent kauphækkun fram til 1. júli á næsta ári. Einnig fara þeir fram á það að yfirborganir sem þeir telja að séu almennar 35 prósent komi inn i kauptaxta. Ef vinnudeilan dregst á lang- inn hefur Félag islenska prent- iðnaöarins farið fram á heimild til þess aö ákveða samúðar- verkbann gagnvart öðrum þeim sem starfa hjá fyrirtækjum i félaginu. Þetta næði t.d. til félaga I Verslunarmannafélag- inu og blaöamanna. —KP vansklla- vextir 54% á ári Samkvæmt lögum um stjórn efnahagsmála frá þvi I vetur skal stefnt að verötryggingu verði komið á fyrir árslok 1979,i áföng- um. Fyrsti áfanginn I verðtryggingu sparifjár var 1. s.l. og nú 1. september er komið að öðrum hluta þess, en áætlaö var að verð- tryggingin kæmist á I sjö áföng- um. Vextir af almennu sparifé hækka um 5%, úr 22% I 27%, for- vextir vfxillána hækka úr 25,5% I 28,5% og vaxtaaukalánsvextir hækka úr 35,5% i 40%. Mestu virðist muna um drátta- vaxtahækkunina, en dráttavextir eru núna 4% en hækka I 4,5% og verða þvl á ársgrundvelli 54%, hvorki meira né minna. —SS— DÖMI FRESTftB Dómi I máli Islendinganna sjö sem ákærðir eru I Gautaborg fyrir fikniefnasmygl, hefur nú verið frestað til 10. september. Að sögn eins af dómurunum I málinu á enn eftir að ganga frá ýmsum þáttum málsins og enn- fremur að komast aö niðurstööu um einstaka dóma, en eins og skýrt var frá i VIsi nýlega hefur veriö krafist 1—3 ára dóms yfir Islendingum allt eftir þvl hversu brot þeirra voru alvarleg. —HR „Ég býst við að ef þessi tlöindi eru ánægjuieg fyrir einhvern þá séu þau ánægjuleg fyrir byggingaraðila á höfuðborgar- svæðinu, þvi það eru ekki nema örfáir dagar siðan allir alþingis- menn fengu bréf frá Landsam- bandi isienskra iönaöarmanna, þarsem iýster geysilega þungum áhyggum” yfir atvinnuhorfum I byggingariðnaði á þessu svæði sagði Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður, þegar Visir bar undir hann frétt þess efnis, að rlkisstjórnin hafi samþykkt að gefa Framkvæmdastofnuninni leyfi til að halda áram að byggja stórhýsi það, sem stöövaöar voru framkvæmdir á sfðastliðinn vetur. Sighvatur sagði, að rangur skilningur heföi veriö á málinu hjá forsætisráöherra og rikis- stjórn þegar óskað var eftir að byggingarframkvæmdir væru stöövaöar. Þarna hefði gætt þess misskilnings, að bygginguna ætti aö fjármagna með þvi fé, sem ætlaö er til lána. „En hjá Framkvæmdastofnun er til fé i húsbyggingasjóöi, sem búið er aö leggja I i 25-30 ár. Hann var stofnaður af Framkvæmda- bankanum, sem er fyrirrennari Framkvæmdastofnunar. Mér og Sverri Hermannsyni var faliö að fara á fund forsætis- ráöherra I vetur og útskýra fyrir honum, hvernig i málinu iægi. Það var um áramótin, og ég hef ekkert frétt að þessu máli fyrr en núna að þú segir mér þessar fréttir”, sagöi Sighvatur. -JM. Framkvæmdir við húsgrunn Framkvæmdastofnunnar áfram. Vlsismynd: JA Framkvæmdir voru stöðvaðar f vetur. Nú má heflasl ð halda þeim ný Greioslustöðvun Slgurmðta á sfðustu stundu: UPPB0B ftTTI AB FARA FRAM VEGNA 10 MILLJÚNA KRÖFU //Það var komiö að uppboði á bygaingarkrana, sem Sigurmót eiga vegna 10 milljón króna kröfu Steypu- stöðvarinnar, þegar forráðamenn fyrirtækisins komu og báðu um úrskurð um greiðslustöðvun" sagði Hlöðver Kiartansson/ fulltrúi bæjarfógeta i Hafnarfirði/ i sam- tali við Vísi. Beiðnin um úrskurðinn var undirritúð af þeim Sigurvini Snæbjörnssyni og Sigurði Kristinssýni, sem munu vera aðaieigendur byggingafyrir- tækisins. Hlöðver sagöi að sér væri ekki kunnugt um hve Sigurmót skulduðu mikið, en með þessari þriggja mánaða greiðslustöðvun gæfist kostur að kanna st§5una. Tilkynna þyrfti öilum sem ættu kröfur á hendur fyrirtækinu, um þennan úrskurð eri það væri fyrst og fremst sá lögmaðut, sem til þess var ráðinn, sem sæi um framkvæmd á könnun á stöðu búsins. „t lögum sem tóku gildi um siðustu áramót er ákvæði um greiðslustöðvun. Skilyrði til að fá úrskurö um greiðslustöðvun er, að viðkomandi skuldari hafi ráðið sér lögmann eða endurskóðanda til að koma nýrri skipan 4 fjár- máiin”, sagði Hlöðver er hann var spuröur um iögin um greiðslustöðvun. „t lögunum segir að skuldara sé óheimilt og óskylt að greiða skuldir meðan stöðvunin varir. Þá má hann ekki stofna til skuld- bindinga og óheimilt er að taka bú hans til gjaldþrotaskipta. 1 greinagerö með lögtsnum sé til- gangurinn meðal annars sá að bæta úr þvi sem áður var, að bú, sem stóðu höllum íæti, komu ekki eða illa til skiptanna og var kannski þegar orðið eignalaust, þegar skipti hófust. Greiðsiu- síöðvun getur veriö undanfari gjaldþrota, en getur lika gc-rt skuldara kleift að ná nauðar- samningum”, sagði Hlöðver.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.