Vísir - 31.08.1979, Side 16
VÍSIR
Föstudagur 31. ágúst 1979.
Umsjón:
Katrin Páls-
Kolbrún meö postulinsskálar á mismunandi vinnsiustigi. Sú til
hægri er aöeins mótuð nokkurn veginn I rétt form. Sú til vinstri er
fuiimótuð, en hana er Kolbrún búin að slipa til og þynna kanta henn-
ar og við það notar hún sandpappir. Visisniynd JA.
Postulin ekki
bara mávastell
og kóngaolatlar
,,Ég er eingöngu með postulinshluti á þessari
sýningu bæði handmótaða og rennda”, sagði Kol-
brún Björgólfsdóttir leirkerasmiður i spjalli við
Visi, en hún opnar sýningu á munum sinum i
Galleri Langbrók á laugardag. Sýningin verður
opin alla daga frá klukkan 13 til 18.
Kolbrún stundaði nám i
Myndlistar- og handlðaskólanum
en hélt siðan til framhaldsnáms
til Kaupmannahafnar og var
þar I tvö ár við Listiðnaðarskól-
ann. Hún er nú umsjónarkenn-
ari við keramikdeildina I Mynd-
listar- og handiðaskólanum.
Hugmyndir um form
sóttar i náttúruna
Kolbrún sækir hugmyndir sín-
ar um form i náttúruna. „Ég
reyni að ná fram þeim ótrúlega
fjölbreyttu formum sem skeljar
hafa. En það er mikil ná-
kvæmnisvinna og oft þarf mikla
þolinmæöi þegar postulinið er
unnið mjög þunnt”, sagði Kol-
brún.
„Postulinið er unnið á sama
hátt og annar leir,” sagði Kol-
brún þegar við báöum hana að
lýsa vinnuaðferðinni. „Ég tek
leirinn og flet hann út með köku-
kefli, eins og deig. Siðan er hann
mótaður nokkurn veginn eins og
maður vill hafa hlutinn og látinn
þorna, þannig að hann missi
ekki form. Þá er mesta vinnan
eftir,en þaðer að slipa t.d. skál-
ina með sandpappir og ná fram
endanlegu formi. Þá tekur hrá-
brennslan við. Siðan er settur
glerungur og hluturinn skreytt-
ur og loks er hann settur i loka-
brennsluna i ofninum”, sagöi
Kolbrún.
Töluvert eyðileggst i
siðustu brennsiu
„Það er alltaf töluverð óvissa
um útkomuna eftir siðustu
brennsluna. Þegar um er að
ræða handmótaða hluti verður
flöturinn aldrei nákvæmlega
jafn, þannig að sprungur geta
myndast við hitann. Það eyði-
leggst þvi töluvert i slðustu
brennslunni og þá er öll vinnan
til einskis, þvi ekkert er hægt að
gera við gallaðan hlut”, sagði
Kolbrún.
Þegar Kolbrún gerir t.d. vin-
sett, flösku með sex glösum, þá
hefur hún ætið eitt glas auka
ef eitthvað kæmi fyrir I ofn-
inum.
„Ég hef orðiö vör viö þaö að I
augum margra er postulin að-
eins mávastell eða kóngaplatt-
ar. En það er kannski skiljan-
legt þvi það hefur ekki verið
unniö mikið úr postulini hér á
landi. Mér finnst skemmtilegt
að fást við þennan leir, þvi hann
er ljós og léttur og skreytingar
njóta sin vel”, sagöi Kolbrún.
—KP.
á hvíta tjaldmu
SJóræningjaball
Tónabió
Þeir kölluðu manninn Hest.
Leikstjóri: Irvin Kershner.
Agætlega gert framhald af
myndinni Maður kallaöur Hestur
sem sýnd var hérna fyrir nokír-
um árum siðan.
Myndin fjallar um enska
lávarðinn Morgan sem áður hafði
kynnst all náið siðum og venjum
indjána. Honum leiöist lifiö I Eng-
landi og ákveður að halda aftur
vestur um haf til vina sinna. Þar
er allt oröið breytt. Hviti maöur-
inn, hér sem skinnakaupmenn,
hefur niöst á indjánunum og er
Morgan kemur ákveða hann og
vinir hans að ná aftur sinu úr
höndum skinnasalanna.
Myndin er mjög skemmtileg
fyrir þá sök að hún sýnir indjána
á annan hátt en bara grimmdar-
lega villimenn. Hollywood hefur
þvi miður gertalltof litið af þvi aö
reyna aö sýna þessa frumbyggja
Bandarikjanna I réttu ljósi en
þeir eru nú á siðustu árum að
vakna betur til meðvitundar um
rétt sinn og hafa hafið baráttu
fyrir þvl sem þeir telja réttilega
vera sitt.
Ýmsir framámenn og þekktir
persónuleikar svo sem Marlon
Brando hafa stutt dyggilega viö
bakiö á indjánunum i þessari
baráttu þeirra.
Laugarásbíó
Stefnt á brattann
Leikstjóri: Michael Schults
Myndin sem byggir á kvikmynd
Linu Wertmuller, The Seduction
of Mimi, fjallar um dug- og dáð-
lausan náunga Leroy Jones að
nafni. Hann flækist út I verka-
lýösbaráttu fyrir slysni og er rek-
inn úr heimabæ sinum fyrir vikiö.
Fyrirtækiö, sem rak hann, sér þó
fljótt að það geti vel notað slikan
já-mann sem hann er og ræöur
það hann aftur til vinnu. Inn I
þetta er svo fléttað ástarmálum
kappans, sem vægast sagt eru
mjög brösótt.
Ærslabelgurinn Richard Pryor
leikur þrjú hlutverk I myndinni og
kemur hann vel út þegar á heild-
ina er litið enda bráðskemmti-
legur leikari.
Myndin er hálfmisheppnuð
endurgerð á T.S.O.M. þar sem
þema þeirrar myndar, hinn mót-
sagnakenndi og litilssigldi
maður, er látiö vlkja of mikiö
fyrir grlninu. En myndin er mjög
fyndin á köflum og sérstaklega
samskipti Jones viö konu sína.
Hafnarbió
Sweeney 2
Leikstjóri: Tom Clegg
Myndin fjallar um sérsveit hjá
Scotland Yard sem fær það verk-
efni að útrýma bófaflokki nokkr-
um sem rænir banka af mikl
um móö I London. Berst leikurinn
frá London til Möltu og London
aftur þar sem verulega fer að
hitna I kolunum.
Hnökralaus leikstjórn, bráð-
skemmtilegt handrit og góður
leikur gera þessa mynd aö ágætri
afþreyingu. Auk þess er gaman
að sjá breska útgáfu af þessu efni
en bandarlskar myndir af svip-
uðu tagi hafa veriö alls ráðandi
hérlendis.
Þrátt fyrir mikiö blóð og ofbeldi
I myndinni eru sumar senurnar
mjög fyndnar og má nefna sem
dæmi tilraunir lögreglustjóra til
þesc »* kvenmenn meö sér I
y
a Stjörnubíó
Varnirnar rofna
Leikstjóri: Andrew Mclagen
Myndin greinir frá hluta af inn-
rás bandamanna i Normandy
1944. Þar er Steiner liðþjálfi
(Burton) kominn og berst
hetjulegri baráttu viö slæma yfir-
menn þýska hersins en hann er
liöþjálfi i þeim her. Bæði efnið og
nafn aðalsögupersónunnar minna
mikiö á aðra strlðsmynd „Járn-
krossinn”, leikstj. Sam Peckin-
pah.
Myndin er hvalreki á fjörur
unnenda strlðsmynda en hún er
fagmannlega unnin og skartar
mörgum stórstjörnum.
Steiner fær það hlutverk að
bera skilaboð á milli þýskra hers-
höföingja og bandamanna um
skilyröislausa uppgjöf þeirra
fyrrnefndu eftir það þeir hafa
kálað Hitler sem mistekst og
strlðið heldur áfram.
Leikur I myndinni er til fyrir-
myndar enda allir sem með aöal-
hlutverk fara þrautreyndir leik-
arar.
Regnboginn
Hjartarbaninn
Leikstjóri: Michael Cimino
Mjög myndræn og áhrifamikil
frásögn af kynnum þriggja vinnu-
félaga af striðinu I Vietnam.
Myndin skiptist I þrjá hluta. I
þeim fyrsta er greint frá llfi
þeirra og starfi I stáliönaðarbæ i
Pennsilvanlu. Næsti hluti fjallar
um kynni þeirra af strlðinu I Viet-
nam en þaðan koma þeir allir
meira og minna andlega og
llkamlega skertir. Siðasti hlutinn
fjallar siöan um heimkomuna og
eftirköstin.
5 Óskarsverðlaun segja slna
sögu en myndin er mjög vel gerð
á allan hátt. Cimino hefur gott
auga fyrir sjónrænni spennu og
kemur þaö vel fram þegar þeir
félagar eru neyddir til aö spila
rússneska rúllettu. Cimino er
ekki algjörlega óþekktur hérlend-
is þvi Tónabió hefur sýnt mynd
eftir hann sem hét Thunderbolt
and Lightfoot.
F.I.
Sjóræningjaball verður um
borö I Akraborginni á laugar-
dagskvöld. Skipið leggur frá
bryggju klukkan 23, en dans-
leikurinn stendur til klukkan 3.
Það er Cöal sem hefur veg og
vanda af þessari óvenjulegu
skemmtun.
Einn er sá flokkur sem lætur
pólitik lönd ogleið en sinnir dans-
lögum þess meira. Það er B.G.
flokkurinn frá Isafirði, sem B.G.
sjálfur, Baldur Geirmundsson
hefur stjórnaö af sinni alkunnu
lipurö og smekkvlsi i fjöldamörg
ár. Það segir sina sögu, að hann
hefúr náð þvi aö halda I sama
hópinn I nærfellt tiu ár utan þess
að Ingibjörger nú hætt að syngja
með þeim, en I hennar staö er
komin Svanfrlður Arnórsdóttir.
B.G. flokkurinn hefur I sumar
sem endranær skemmt fólki sem
mest hann hefur mátt á heima-
miöum, þ.e. Vestfjarðamiðum.
Nú er hinsvegar afráðið að flokk-
urinn komi suöur og skemmti á
Suður- og Vesturlandi um næstu
helgi. Lengri verður nú stansinn
ekki. Ranghermt hefur verið i
auglýsingum að B.G. flokkurinn
ætli að halda uppi fjörinu I Stapa
áföstudaginn, —ekki þaöað hann
sé ekki fær um það, —heldur hitt
að hljómsveitin mun leika á
Akranesi það kvöld og harla ó-
sennilegt að þeim takist aö f jörga
Sundlaug hefur veriö komiö
fyrir aftur á skipinu. Ýmislegt
veröur gert til aö skemmta gest-
um m.a. veröurfalinn fjársjóöur I
kistli i skipinu, og sá sem fund-
vlsastur er fær úttektarseðil I
Óöali.
Miðar verða seldir I Cöali.
mannskapinná Suðurnesjum rétt
á meðan. A laugardagskvöldið
verður flokkurinn svo á Flúðum
og á sunnudagskvöld skemmtir
hann I Borgamesi.
Er ekki nokkur vafi að aðdá-
endur B.G. flokksins hér sunnan-
og vestanlands mæti i gleðskap-
inn en hljómsveitin er núna skipuð
þeim Baldri Geirmundssyni,
bróður hans Karli, Ólafi Guð-
mundssyni, Rúnari Vilbergssyni,
Samúel Einarssyni og Svanfrlði
Arnórsdóttur.
—Gsal
LESÐRÉTTING
1 samtali við Orn Bjarnason
sem birtist I VIsi I gær uröu llnu-
brengl. Setningin er rétt þannig:
Sigurjón varð mér mjög hjáíp-
legur og fylgdist vel méö þvl sem
ég var að gera og á ég honum
mikiö að þakka. Einnig Guðrúnu
Asmundsdóttur og Kjartani
Ragnarssyni en þau fór endan-
lega yfir verkið með mér.
B.G. flokkurlnn
stormar suður
i—i.-