Vísir - 17.09.1979, Page 1

Vísir - 17.09.1979, Page 1
Aöalheiður skrifar skáldsögu Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir hefur nú sest á skáldabekk og gef- ur i haust út sina fyrstu skáld- sögu. Hún heitir „Myndir úr raunveruieikanum” og fjailar um börn, sem alast upp I vafasömu umhverfi. Vfsir ræðir i dag við rithöfund- inn Aðalheiði og birtist spjallið i Lif og iist á bls. 24. Tveir létust í bílslysl á Fiarðarhelði Tveir ungir menn létust þegar jeppabifreið fór út af veginum á Fjarðarheiði milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða klukkan rúmlega eitt i gærdag. Mikil hálka var á Fjaröarheið- inni er slysið varð og auk þess slæmt skyggni. Okumaðurinn missti vald á bilnum og hann fór út af veginum og valt. Tveir far- þeganna sátu i aftursætinu og hentust þeir ilt úr bilnum og biðu bana. Alls voru sjö manns I bilnum og sluppu hinir fimm með minni háctar meiösli. Billinner talinn ó- nýtur. Ekki er hægt að skýra frá nöfn- um ungu mannanna, sem létust, þa r sem ekki hefur enn náðst i a Ua aðstapdendur þeirra. —ATA. ÁRANGURS- LAUSLEIT Mikil leit hefur staðið yfir á Snæfeilsnesi alla heigina. Ungur Reykvikingur GIsli Guömunds- son, fór úr bil sinum á föstudags- kvöldið og hugðist ganga til næsta bæjar, en ekkert hefur spurst til hans siðan. Það var um ellefuleytið á föstu- dagskvöldið, að bni bilaði á milli bæjanna Stakkhamars ogKrossár i Staöarsveit. Þrir menn voru I' bflnum og ætlaöi Gisli að ganga til næsta bæjar til að sækja hjálp. Annar þeirra, sem eftir varð i bflnum, er þaulkunnur svæðinu og reyndi hann að teija Gisla af þvi að fara, þvi svæðiö er stór- hættulegt yfirferðar I myrkri, mýrar, fen og dý. En Gisli hélt samt af stað og hefur ekkert sést til hans siðan. — A.T. A. í Víða t|ón I óveðrinu sem gekk yilr landið um helgina: í ! FJÁRSKAÐAR VEGNAÍ I SKRHUFALLA í VÍK j ! 20-30 bílar festust á milli snjóskriða i Gifurlegt óveöur gekk yfir landið á laugardaginn. Sunnan- lands varð veöurhæðin mest um miðjan daginn og voru þá vel 12 vindstig á Stórhöfða i Vest- mannaeyjum og I Vik I Mýrdal var úrkoman 99 millimetrar frá kl. 9-18. Á Norðausturlandi var blindhrlö og féllu þar sumstaðar snjóskriður og tepptist umferð á mörgum stöðum. „Þessu olli lægð suð-vestur undan landinu sem dýpkaði skyldilega og meira en búist hafði veriö við” sagði Páll Bergþórsson veðurfræðingur I viðtali við Visi. Sagði hann að veðurhæðin heföi orðið mest sunnanlands um miðbik laugar- dags, en norðanlandsá miönætti og þar heföi fylgt snjókoma eða slydda. „Hér var kolvitlaust veður á laugardag og komst veöurhæöin upp fyrir 12 vindstig á Stórhöfða eða 16 vindstig samkvæmt gamalli mælingu” sagði Ólafur Sigurðsson lögreglumaður i Eyjum. Tjón varð þó litið, nema hvað nokkrar trillur slitnuðu upp án þess þó að skemmast, og plötur fuku af húsum”. Snjóskriður féllu á veginn yfir Ólafsfjarðarmúlann á laugar- daginn. Milli 20 til 30 bilar voru tepptir vegna þeirra, flestir milli snjóskriðanna. „Það var á laugardagsmorg- uninn sem fyrsta snjóskriöan féll I Brikagili, Hvasst var um morguninn og eldri snjó skóf uppi á fjallinu og setti niður skriður”, sagði Valdimar Stein- grimsson starfsmaður Vega- gerðarinnar á Ólafsfirði i sam- tali við Visi I morgun. Valdimar sagöi aö siðar um daginn hefði farið aðsnjóa og þá hafi fleiri skriöur fallið á veginn þannig, aö hann varð ófær fram undir kvöld, þar til vegagerðar- menn höfðu rutt hann. Ólafsfjaröarmúlinn er nú fær bilum með drifi á öllum hjólum, en fólksbilar komast yfir Múl- ann meö keðjur. Alhvitt er nú niður 1 byggö á Ólafsfirði og hitinn við frost- mark. Svipaða sögu er að segja frá Raufarhöfn. Þar snjóaði um helgina og gerði leiðinda veöur. Loðnubátar, sem ætluðu aö landa á Raufarhöfn, hættu viö vegna veöurhæðarinnar og sneru frá. Veöurhæöin var um tiu vindstig á laugardag. A Egilsstööum er hvitt niður i byggð og Fjarðarheiði lokaðist á laugardag. Hún varð fær vel búnum bilum eftir aö hún var rudd. - KP/HR ■\ V 4J í IHra , aVv ■1 TnVL vestmannaeylngar Vestmannaeyingar urðu um helgina tslandsmeistarar i knatt- spyrnu og var mikiö um dýröir er þeir komu til Eyja meö sigur- launin. Muna elstu menn þar ekki annan eins fögnuö, enda mættu um tvö þúsund manns á bryggjunni úl aö taka á móti piltunum er þeir komu til Eyja meö Herjólfi. Leikmenn liösins voru ofsakátir eftir aö þeir höfðu tekiö við íslandsbikarnum á Laugardals- Islandsmelstarar! velli I gær, enda hefur tBV aldrei sígraö' i Islandsmótinu áöur. A myndinni sem Friðþjófur Helga- son tók má sjá nokkra leikmenn IBV komna inn i rútuna sem flutti þá frá Raykjavik til Þorlákshafn- ar, en þar stigu þeir um borö i Herjólf. Sjá nánar um lokaumferö tslandsmótsins i knattspyrnu og aðra iþróttaviðburði helgarinnar á bls. 15-16-17 og 18. i

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.