Vísir - 17.09.1979, Blaðsíða 15
Mánudagur 17. september 1979
14
Mánudagur 17. september 1979
j Réttardagur fTungnarétt í Biskupstungum:
Sex konur i nopi
gangnamanna
Þaðvar eins og saman væri komið úr-
val úr helstu karlakórum landsins i
Tungnarétt i Biskupstungum. Bændur
sungu margraddað að gömlum sið og
blandaðist söngurinn við jarm kind-
anna. Gifurlegur fjöldi fólks var sam-
an kominn á réttardaginn, bæöi úr
sveitinni og kaupstöðum.
Réttað var á miðvikudaginn i sið-
ustu viku en gangnamenn komu með
safnið í byggö daginn áður. Leitirnar
tóku vikutima og varfariö alla leið upp
á Hveravelli.
Gangnamennirnir voru 28 og höfðu
tvo og þrjá hesta til reiðar. Sex konur
voru i' hópi gangnamanna en i seinni
tiðer þaðorðiö algengt að konur fari i
langar leitir.
Það er vel akfært um afréttinn og
fengu gangnamenn matinn sendan
með bil.
Safnið varum 10 til 12þúsund kindur
og var byrjað að rétta strax um
morguninn og var þvi lokið um miðjan
dag.
Kallarnir létu ekki brjóstbirtuna
vanta ogbrátt tókað hýrna yfirmönn-
um og þeir tóku sig saman og sungu
ættjaröarljóð og gamla slagara.
Fjöldimanna úr þéttbýlinu, ungirog
gamlir, voru komnir til aö fylgjast
meðréttunum. Margir sem hafa verið
þarna i sveit koma árlega i réttirnar
og veröa þá fagnaðarfundir og faðm-
ast er og kysst.
Lömbin komu ekki væn af fjalli og
höfðu bændur stundum ekki fyrir þvi
að opna dilkana heldur vippuöu létt-
ustu lömbunum yfir í þá.
Um kvöldiö var siðan haldið réttar-
ball i Aratungu þar sem gleöinni var
haldið áfram. — KS
W JfF jH
r
1 almenningnum. Hvorki ungir né gamlir láta sig vanta.
Rekið i réttirnar úr nátthaga með miklum hamagangi.
■ , ■ :
1 safninu voru um 10 tii 12 þúsund fjár. Hér er þaö að koma I byggð fyrir neðan Gigjarhól.
Sungiö af hjartans lyst
Fjöldi manna var mættur i réttirnar og hjálpar til við reksturinn.
Núverandi og fyrrverandi fjallkóngur. Sveinn I Bræðratungu og
Einar I Holtakotum. VlsismyndirGVA.