Vísir - 01.10.1979, Blaðsíða 24

Vísir - 01.10.1979, Blaðsíða 24
Mánjudagur 1. október 1979 1 prjónastofunni eru 20 vélar og getur einn mabur séb um 5 vélar. „FRAMLEIÐSLAH TVðFALDAST A HVERJII ARI" „Fyrirtækið hefur vaxið upp i það að verða stærsti atvinnuveitandinn á staðnum. Við greiðum 15 milljónir á hverjum mánuði i vinnulaun. Hér vinna að jafnaði 60 til 70 manns, en það myndi samsvara um 5 til 6 þúsund manna fyrirtæki i Reykjavik, miðað við fólksfjölda”, sagði Sophonias Zophoniasson, framkvæmdastjóri Pólarprjóns, i samtali við Visi. Ullariðnaðurinn hefur tekið stórstigum framförum á undanförnum árum og er orðinn ein af helstu útflutningsgreinum landsmanna. Þessi útflutning- ur er orðinn um 10 milljarðar á ári. Þessi framleiðsla kemur að miklu leyti frá litlum saumastofum, sem eru dreifðar um landið. Þær veita fjölda manns atvinnu og auka á fjölbreytni i atvinnulifi i litlum byggðarlögum. Visir heimsótti fyrir skömmu Pólarprjón á Blönduósi en fyrirtækið rekur saumastofu á staðnum og prjónastofu sem framleiðir voðir fyrir margar saumastofur á Norðurlandi. Tvöföldun á hverju ári „Fyrirtækiö var stofnaö áriö 1971 og er hlutafélag. Viö byrj- uöum meö tvær prjónavélar og sex saumavélar. Þetta var til- raunaframleiösla fyrsta áriö og þaö þurfti talsveröan tima til aö þjálfastarfsfólkiö, sem haföi ekki unniö viö svona áöur”, sagöi Sophonías. „I fyrstu prjónuöum viö aöeins voöir fyrir okkar saumastofu, þvi þá voru þessar saumastofur á stööunum i kring ekki til. Þetta hefur þróast smám saman og salan hefur aukist. Þaö er fariö aö vanda meir til fram- leiöslunnar og þetta er oröiö allt önnur vara en áöur var. Fyrstu árin unnu hér 8 til 10 manns en frá árinu 1973 hefur framleiöslan tvö- faldast á hverju ári. Fyrstu árin var taprekstur þannig aö þetta var mest byggt á bjartsýni en upp úr 1972 er fariö aö stofna saumastofur á stööun- um i kring, m.a. aö frumkvæöi Péturs Péturssonar, forstjóra Alafoss. Viö höfum framleitt voöir fyrir þessar saumastofur. Þaö er hag- stætt aö vera meö prjóniö á einum staö, þvi aö stofnkostnaöur viö þaö er svo mikill, mun meiri en viö saumastofur”. Selja á 10 saumastofur „Viö seljum nilna voöir á 10 saumastofur, allt frá Hvamms- tanga austur á Vopnafjörö. Viö framleiöum allar geröir af prjónavoð og erum aö prjóna um 120 þúsund trefla á RUsslands- markaö. Voöin erseld eftir þyngd og viö prjónum um 600 til 700 klló af henni á sólarhring en þaö efni á aö duga I 500 flikur. A fyrstu sex mánuöum þessa árs framleiddum viö fyrir um 400 milljónir króna bæöi á prjónastof- unni og saumastofunni, en þaö er jafnmikiö og framleitt var allt áriö i fyrra. Viö erum einnig meö sauma- stofu sjálfir, þar sem vinna 18 stúlkur Viö framleiöum ein- göngu fóöraöaullarjakka sem eru seldir til Bandarikjanna og Vest- ur-Evrópu. Um 95% af fram- leiöslunni er selt út. Viö saumum vísíp ræöir víð Sophonías Zophoníasson framkvæmdastjóra Pólarprjóns á Blönduósi um 100 til 110 slika jakka á degi hverjum. Viö seljum þessa jakka á 13 þúsund krónur en þeir kosta um 60 þúsund krónur út úr búö i Dan- mörku. Þvi er ekki aö leyna aö okkur finnst aö viö eigum aö fá stærri hluta af endanlega verö- inu ”. Nýtt hús — Hvernig er aðstaöan? „Þetta húsnæöi sem viö höfum núna, er aö spri>nga utan af okk- ur. Viö höfum látiö teikna nýtt hús fyrir okkur og fengiö lóö undir þaö og veröur byrjaö á fram- kvæmdum af fullum krafti á næsta ári. Viö erum meö saumastofuna i ööru húsnæöi.en auk þess vinna 8 konur fyrir okkur i Sveinsstaöa- hreR)i viö frágang á treflum. Hér á prjónastofunni höfum viö 20 prjónavélar og þar af eru 4 tölvustýröar. Viö fengum þær á þessu ári og við fáum tvær vélar i viöbót. Nýjar tölvuvélar kosta um 14 milljónir, þannig aö þetta er tals- vert mikil fjárfesting”. — Hvernig er vinnufyrirkomu- lag? „Þaö er unniö á prjónastofunni ailan sólarhringinn 6 daga vik- unnar á þrem 8tima vöktum, ená saumastofunni er yfirleitt ekki unnið nema 8 tima á dag”. — En launin? ,,Þaö er alveg sama kaup hér og i frystihúsum. A saumastof- unnier lægsta kaupiö borgaö eftir Sophonias Zophoniasson sýnir hér jakka, sem biíiö er aö seija 100 þúsund stykki af.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.