Vísir - 15.10.1979, Side 2

Vísir - 15.10.1979, Side 2
? '2 VÍSIR Mánudagur 15. október 1979 Hvernig list þér á embættismannastjórn i stað þingstjórnar næstu mánuði. Gunnar Erlendsson startsmaöur i Sigurplasti: Mér líst ágætega á embættismannastjórn svona til tilbreytingar. Edith Schmidt öryrki: Ég er nd svo litið inn i stjórnmálum að ég veit ekki hverju ég á að svara. Þó held ég að ég kysi fremur þingstjórn. Sævar Karlsson rafvirki: Ég væri til í að prófa það — það kemur varla verr Ut. Hallfriöur Þorsteinsdóttir afgreiðslustúlka: Ég held að þaö sé nokkuð sama hvað gert er — útkoman værialltaf hin sama. Þó held ég að ég vildi fremur þing- stjórn. Páll Pálsson yfirdýralæknir: Mér list vel á að fá embættismanna- kerfið i stjórn — það gengur hvort sem er ekkert hjá þingflokkun- um. Mönnum getur stafað hætta af kfsilryki I Kisiliðjunni við Mývatn, en sums staðar I verksmiðjunni hefur mengunin mælst við 14-15 föld hættumörk. Hættuleg mengun í KísiliDjunni vlð Mývatn - sums staðar 14-15 tðld hættumörk Rykmengun i Kisiliðjunni við Mývatn og á tengdum vinnustöðum er sumstaðar við 14-15 föld hættumörk af kristallaðri kisilsýru, en hún getur valdið sjúkdómnum silikosis eða kisilveiki, sem er alvarlegur og ólæknandi lungnasjúkdómur. Þetta kom fram á blaða- mannafundi, sem Heilbrigðis- eftirlit rikisins og landlæknir efndu til, þar sem niðurstöður mælinga á rykmengun I and- rúmslofti starfsmanna verk- smiðjunnar voru kynntar. Mæl- ingar þessar voru gerðar 1978 og voru þær kostaðar af Kísiliðj- unni, en starfsmenn Heilbrigö- iseftirlitsins framkvæmdu þær. Það er ekki klsilgúrinn sjálf- ur, sem veldur þessari veiki, en þegar hann hefur verið glæddur, en I þvi er vinnsla hans fólgin I Kisiliðjunni, þá kristallast hann og sem slikur getur hann orðið hættulegur heilsu manna. Ein- kenni sjúkdómsins eru vaxandi mæði, en áhrifanna veröur venjulega ekki vart fyrr en mörgum árum eftir að menn fá rykið i sig. Þegar þeir svo einu sinni hafa sýkst af kisilveiki, þá veldur sá sjúkdómur sivaxandi örorku, þar sem hann eyðilegg- ur smátt og smátt lungu manna og getur á löngum tima leitt til dauða. Það kom fram hjá landlækni, Ólafi Ólafssyni, aö enn hefðu ekki fundist nein tilfelli þessa sjúkdóms i Kisiliðjunni, en hins vegar væri ekki hægt aö segja með vissu, að engir hefðu sýkst þvi að áhrifin kæmu venjulega ekki i ljós fyrr en 10-20 árum eftir að menn fá rykið I sig. Það væriætlunin að hafa náið eftirlit með öllum þeim starfsmönnum, sem yrðu fyrir þessari mengun, en þeir væru nú um 300. Enn- fremur yrði reynt að hafa upp á þeim, sem áður hefðu unnið við slik störf. Hrafn Friðriksson, forstöðu- maður Heilbrigðiseftirlits rikis- ins, og Einar Sæmundsson, starfsmaður þess, sögöu að mest væri rykmengunin viö sekkjun á kisilgúrnum og svo við útskipun hans á Húsavik. A siðasttalda staðnum ætti þó að vera fremur einfalt mál aö minnka mengunina til muna. Þá sögðu þeir, að vilji væri fyrir hendi hjá Kisiliöjunni að setja upp mengunarvarnir og hefði fjárhagsforstjóri verk- smiðjunnar lýst þvi yfir að eðli- legt að það yrði gert. Loks sagði Hrafn Friðriksson, að liklega yrði Kisilgúrverk- smiðjunni gefnir sex mánuðir til að vinna að úrbótum, en ef ekk- ert heföi verið gert að þeim tima liðnum, væri allt eins liklegt að starfsleyfi verksmiðjunnar yröi afturkallað. -HR Frá loönuveiöum. VERDA LOÐNUVEIÐAR STðÐVAÐARí HAUST? „Nauðsynlegt gæti verið að stöðva loðnuveiðar i haust eða i siðasta lagi um miðjan desember. Gæti sú stöðvun verið tilkynnt með stuttum fyrir- vara, þegar islenski flotinn hefur veitt 350-400 þúsund tonn. Skynsamlegt er talið að geyma 150 þúsund tonn til hrognatöku og e.t.v. eitthvað um- fram það vegna loðnufrystingar”. Þetta kom fram á fundi, sem Kjartan Jóhannsson, sjávarút- vegsráöherra, hélt með hags- munaaðilum um loðnuveiöar á fimmtudaginn. Fram kom, að nú þegar hafa Islenskir og norskir loönusjó- menn veitt 375 þúsund tonn af loðnu, en fiskifræðingar hafa fyrr á árinu lagt til að ekki verði veitt meira en 600 þúsund tonn á haust-og vetrarvertlö. Lögö var áhersla á það, að takmarkaðan loðnuafla yrði að nýta, þegar hann væri afurðamestur. Þann- ig yrði loönu til frystingar aflað m eð þvi að heimila „dæmigerð- um loönubátum” að landa til- tölulega litlum förmum til vinnslu á þeim tima, sem loðnan hentar til frystingar (siöast I febrúar). Afla á hrognatökutim- anum (eftir febrúarlok) verði svo skipt á milli skipa, sem telj- ast „dæmigerð loðnuskip”. Við slika skiptingu verður tekið tillit til burðargetu skip- anna og aflabragöa þeirra eftir stærö undanfarin ár. Rltgerðlr um EFTA Friverslunarsamtök Evrópu, EFTA, efna til verölaunasam- keppni til aö minnast 20 ára af- mælis gildistöku Stokkhólmssam- þykktarinnar um stófnun samtakanna 3. mai 1980. Þátttakendur eiga að leggja fram frumsamda ritgerð um efni, sem snertir verkefni EFTA og árangur samtakanna eða fram- tiðarverkefni þeirra. Ritgerðirn- ar ber að senda i ábyrgðarpósti til EFTA Secretariat, 9-11 Rue de Varembé, 1211 Geneva 20, fyrir febrúarlok 1980. Ritgerðirnar mega vera á ensku, frönsku, þýsku, finnsku, Islensku, itölsku, norsku, portú- gölsku eða sænsku. Ritgerð ber aö senda nafnlausa, en auðkenna hana með málshætti eða tals- hætti, sem einnig veröur á lokuðu umslagi utan um nafn og heim- ilisfang keppanda. Verðlauna- upphæðin nemur 20 þúsund sviss- neskum frönkum og fyrstu verö- laun verða ekki lægri en 5000 frankar. Vilhjálmur Lúðvlksson formaður tðnrekstrar- sjóðs Nýlega hefur verið skipuð ný stjórn Iðnrekstrarsjóðs. Stjórnina skipa: Vilhjálmur Lúöviksson, formaöur, Þorvarður Alfreðsson, Snorri Jónsson, Hjörtur Eiriksson og Valur Valsson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.