Vísir - 15.10.1979, Page 3
VISIR Mánudagur 15. október 1979
r Laugardalssvæðið:
! MÚTMÆLI GEGN
: ÞÉTTINGU
! BYGGÐARINNAR
Hópur áhugafólks um verndun Laugardalsins
■ og opnu svæðanna við Suðurlandsbraut ætlar nú
■ að hefja undirskriftasöfnun gegn þvi, að þessi
I svæði verði tekin undir íbúðabyggð.
Vill hópurinn mótmæla „öll-
um áformum um skeröingu á
útivistarsvæðum og fráteknum
opnum svæðum í Laugardal og
milli Gnoðavogs og Miklubraut-
ar með þvi að búta þau niður i
einkalóðir”, eins og segir i til-
kynningu, sem hann hefur sent
frá sér. Þar er það talin mikil
skammsýni að ganga á þessi
svæði, sem tekin hafa veriö frá
til sameiginlegra nota fyrir
borgarbúa til útivistar og
iþróttaiðkana og talið að nóg
svigrúm sé fyrir byggingalóöir,
þótt ekkl sé gengiö á þessi
svæði.
Meðal forgöngumanna undir-
skriftasöfnunarinnareru Herdis
Tryggvadóttir og Arni Bergur
Eiriksson. — HR
Eitt af svæöunum fimm, þar
sem rætt er um að þétta
byggðina, er I Laugardalnum
vestan Glæsibæjar. Nú á aö fara
af stað mótmælaherferö gegn
byggð á þessum stað og við
Suðurlandsbraut. — Visismynd
BG
Bfldudalur séður úr lofti: Þeir eru fáir, sem hafa fengið aö njóta þess-
arar sjónar upp á siðkastið, þvi að flugferöir hafa verið með eindæmum
stopular.
Bfiddæiingar óhress-
ir með Arnarflug
- Flugsamgöngur við Bildudal
hafa veriö f megnasta ólagi siðan
Arnarflug tók við áætluninni og
finnst fólki hér á Bildudal það
skjóta skökku við, að flugfélagi,
sem engar hefur fhigvélarnar, sé
veitt einkaleyfi á flugleið sem
þessari.
Ekkert hefur verið flogið
hingað frá Reykjavik i meira en
viku, en þriðjudaginn 2. október
var siðast ferð hingað. A sama
tima hefur flugfélagið Ernir á
Isafirði flogið hingað daglega, en
að visu frá Isafirði. Þá hafa Flug-
leiðir verið með sinar reglu-
bundnu ferðir á Patreksfjörð.
Þótt þetta komi sér illa, hvað
farþegaflutninga snertir, þá er
ástandiðhálfu verra, hvað snertir
flugfragt. Blöðin hafa ekki borist
hingað I meira en viku og fyrir-
tæki og bátar hafa orðið fyrir
margvislegum óþægindum vegna
skorts á vörum og varahlutum.
Raunar hafa flugsamgöngur
við Bildudal ekki veriö I lagi siðan
Flugfélagiö hætti aö fljúga hingað
og þykir mönnum hér þetta að
vonum bagalegt.
HF Bíldudal / —HR
Menntaskólinn á
Egllsslððum vfgður
Menntaskólinn á Egilsstöðum
var vigður i gær, sunnudag og
hófst athöfnin kl. 14 i Egilsstaöa-
kirkju. Þvi næst var gengið til
skólans, þar sem flutt voru ávörþ
og gestum boðið að skoða skólann
og þiggja kaffiveitingar.
Skólastarf er þó þegar hafiö I
Menntaskólanum og eru nem-
endur þar 99, þar af flestir frá
Austurlandi. Skólinn starfar eftir
samræmdu eininga- og áfanga-
kerfi fjölbrautaskólanna og er
stefnt að Utskrift fyrstu stúdenta
vorið 1981 a viöskipta-, maia-,
uppeldis- og náttúrufræði-
brautum. Auk þess stunda nem-
endur nám i skólanum, sem
stefna aö öðru en stúdentsprófi.
Má þar nefna bóklega kjarna iðn-
náms, leiðbeinendanám i
iþróttum o.fl. Þá er mötuneyti
rekið I skólanum, bæði fyrir
heimavistarnemendur og einnig
þá, sem búa úti i bæ.
Skólameistari Menntaskólans á
Egilsstöðum er Vilhjálmur
Einarsson.
—HR
Hý stjórn I Nðttúru-
læknlngafélaglnu
Á landsþingi Náttúrulækninga-
félags Islands, sem haldið var
nýlega, var m.a. kosin ný stjórn
fyrir félagið.
Stjórnina skipa: Jóhannes
Gíslason, fœ-seti, Einar Aöal-
steinsson, varaforseti, Höröur
Friðþjófsson, ritari, Oddgeir
Ottesen, gjaldkeri og Svana H.
Stefánsdóttir, meðstjórnandi.
Varastjórn skipa: Þorvaldur
Bjarnason, Unnur Dís
Skaptadóttir, Hilmar Norðfjörð.
USA
„SWEATSHIRTS"
(háskólabolir)
Ósvikin amerísk aœðavara
á góðu verði
Litir: Dökkblátt - rautt Stœrðir: 12 - 14 - 16 -
hvítt • grátt - beige S - M - L - XL
Verö kr: 5.500.-
Sendum í póstkröfu samdœgurs
Laugavegi 3 Laugavegi 89
Sími 12861 Sími 10353