Vísir - 16.10.1979, Blaðsíða 2

Vísir - 16.10.1979, Blaðsíða 2
VÍSIR Þri&judagur 16. október 1979 T f ?'■ /yv r\f> i m b 4* Þannig er gert ráö fyrir aö skreytingin muni lita út þegar hún er fullbúin. Skreytmg á stúku Laugardalsvailar: Listaverkið verður um 60 m langt „Aö minu mati er þaö miklu betri lausn aö fá listamönnum i hendur verkefni sem þetta og sleppa öllum listamannastyrkj- um, sem okkur er úthlutaö eins og ölmusu”, sagöi Gestur Þor- grímsson i spjalli viö VIsi. Gesturhefur ásamtkonu sinni Sigrúnu Guöjónsdóttur fengiö þaö verkefni aö gera skreytingu á stúku Laugardalsvallar, þá hliö sem snýr aö Reykjavegi. Þegar hafa þau hjón lokiö við fjóröung verksins og er búiö aö koma skreytingunni fyrir á sfn- um staö. Þau Gestur og Sigrún hafa unniö aö þessu verki í tvö ár. Skreytingin veröur sett upp I fjórum áföngum og vonast er til þess aö verkinu veröi lokiö á næsta ári. Veggurinn þar sem verkinu veröur komiö fyrir er um 80 metrar aö lengd og um fimm metrar að hæö. Þær „figúrur” sem skreyta vegginn eru hátt á þriöja metra á hæö. Þær eru úr steinleir sem er brenndur viö mjög hátt hitastig. —KP. Þau Gestur Þorgrimsson og Sigrún Guöjónsdóttir hafa unniö aö skreytingunni á stúkuna i u.þ.b. tvö ár. J Hvernig list þér á Vil- mund sem dómsmála- ráðherra? Halidór Reynisson: Ég vil halda þvi fram aö Vil- mundur sé starfi sínu vaxinn. Ég /trúi á Vilmund... Magnús Óskarsson: Vel, hann gerir kannski eitthvaö i þeim málum sem hann hefur ver- iö aö gagnrýna. Hanna Fisker: Hann veröur eflaust ágætur, best- ur af þeim sem komu til greina. HaDa Guömundsdóttir: Þaö er gott aö fá ungan mann i staöinn fyrir þá gömlu. Einar tsleifsson: Hann getur varla veriö verri en hver annar, og kannski kemur hann einhverju í verk af því sem hann hefur veriö aö rifa niöur. HeilbrígOiseftirlitið: Fyrst áætl- anir en síðan frestur Hrafn Friöriksson forstööu- maöur Heilbrigöiseftirlits rikisins haföi samband viö Vísi ogsagöist vilja koma leiö- réttingu á framfæri.viö frétt blaösins i' gær um mengun i KfsUiöjunni viö Mývatn. Hrafn sagöi þaö ekki rétt eftir sér haft að heilbrigöis- yfirvöld myndu líklega setja verksmiöjunni sex mánaöa frest til aö bæta úr mengunar- vörnum. Fyrst yröu aö liggja fyrir raunhæfar áætlanir um úrbætur frá KisUiöjunni áöur en heilbrigöisyfirvöld ákvæöu frestinn, en þó væri ljóst aö sá frestur yröi ekki haföur mjög langur. 1. des. kosningar Kosningar til hátföarnefnd- ar 1. desember meöal stú- denta i' Háskóla Islands fara fram á stúdentafundi f Há- tíöarsal Háskóla lslands, mánudaginn 22. október 1979. Neftidin skal skipuö7 mönnum er kosnir skulu leynilegri listakosningu. Framboöum ásamt meö- mælum 10 stuöningsmanna og tiUögum um markmiö og til- högun hátiöarhaldanna skal sldlað fyrir kl. 12.00 fimmtu- daginn 18. október á skrifstofu Stúdentaráös Háskóla lslands. Fundurinn hefst kl. 20.00 meö framsöguræöum. Hver listi fær 30 mínútur til ráö- stöfunar og aö þvi loknu hef j- ast almennar umræöur. Kosningarnar standa frá kl. 20.00 til kl. 24.00. Jón Páll Sigurjónsson, formaöur mótsnefndar BSt afhendir bikarmeisturunum sigurlaunin. Viö tekur Þórarinn en næstur honum er óli Már og til hægri feögarnir Stefán og Egill. liröu bridge-blkarmeistarar Úrslitaleikur bikarkeppni Bridgesambands Islands fór fram á Hótel Loftleiðum á sunnu- daginn,milli sveita Þórarins Sig- þórssonar og Hjalta Eliassonar, en þaö vorusiöustu tvær sveitirn- ar, sem eftir stóöu, þegar aörir keppinautar höföu verið slegnir út i' sumar. Fall reyndist vera fararheill fyrir sveit Þórarins, sem fór ógæfulega af staö, en náöi siöan aö jafna metin og taka þegar á&eig forystu, sem sveit Hjalta náöi ekki aö vinna upp fyrir lokin. Sveit Hjalta Eliassonar var skipuö auk hans Asmundi Páls- syni, Guölaugi R. Jóhannssyni og Erni Arnþórssyni. Bikarmeistarar aö þessu sinni eru auk Þórarins Sigþórssonar, Óli Már Guömundsson, Stefán Guöjohnsen og Egill Guöjohnsen. -Gp. Seley tók niðri í Sandgerðishðtn Seley SU 10 tók niöri i inn- siglingunni I Sandgeröishöfn á föstudag. Báturinn var meö full- fermi af loönu. Flóö var þegar hann tók niöri og þurfti aö biöa eftir þvf næsta til þess aö ná bátn- um á flot aftur. Um 200 tonnum af loönu var dælt i sjóinn til aö létta bátinn og þá gekk auöveldlega aö ná honum á fk>t aftur. Froskmaöur kannaöi botn bátsins, en hann var aöeins rispaöur. Eftir aö hafa landaö aflanum, hélt Seley aftur á loönu- veiöar. — KP. Seley SU lOtókniöriIinnsiglingunniISandgeröishöfn. Vlsismynd: H.B.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.