Vísir - 22.11.1979, Síða 4
4
VÍSIR
Fimmtudagur 22. nóvember 1979
KJÖRFUNDUR
í REYKJAVÍK
viö alþingiskosningar 2. og 3. desember 1979
hefst sunnudaginn 2. desember kl. 10 árdegis.
Athygli er vakin á heimild yfirkjörstjórnar til
aö ákveða lok kosninga eftir fyrri kjördag 2.
desember hafi 80% kjósenda eða fleiri neytt
atkvæðisréttarsíns.
Kjörfundur mánudaginn 3. desember hefst kl.
12 á hádegi verði framangreind heimild ekki
notuð.
Kjörfundi skal slíta eigi síðar en ki. 23.00 á
kördegi.
Talning atkvæða í Reykjavíkurkjördæmi hefst
þegar að kjörfundi loknum, enda sé þá
kosningu lokið hvarvetna á landinu.
Aðsetur yfirkjörstjórnar verður í Austur-
bæjarskólanum.
20. nóvember 1979.
YFIRKJÖRSTJÓRN REYKJAVIKUR
LÖGTÖK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin
fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað
gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir eftirtöldum gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og
miöagjaldi, svo og söluskatti af skemmtunum
vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vöru-
gjald, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, sölu-
skatti fyrir júlf, ágúst og september 1979, svo
og nýálögðum viðbótum við söluskatt, lesta-,
vita- og skoðunargjöldum af skipum fyrir árið
1979, skoðunargjaldi og vátryggingaiðgjaldi
ökumanna fyrir árið 1979, gjaldföllnum
þungaskatti af díselbifreiðum samkvæmt
ökumælum, almennum og sérstökum út-
flutningsgjöldum, aflatryggingasjóðsgjöld-
um, svo og tryggingaiðgjöldum af skipshöfn-
um ásamt skráningargjöldum.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ I
REYKJAVIK
20. nóvember 1979.
LAUS STAÐA
I dóms- og kirkjumálaráðuneytinu er laus til
umsóknar staða umboðsfulltrúa, er annist um
að taka á móti fyrirspurnum og kvörtunum
fólks varðandi dómgæslu, löggæslu og
fangelsismál, og veita því leiðbeiningar eða
úrlausn í þvi sambandi.
Um nýja stöðu er að ræða, sem veitist í tvö ár
til reynslu. Lögfræðimenntun er áskilin.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu hafa borist dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu fyrir 15. desember nk„ en
staðan verður veitt frá 1. janúar 1980.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
15. nóvember 1979.
aöutan
Hví gerir
Carter ekkert?
Ringlaftur hefur almenningur I
Bandarlkjunum horft á rikis-
stjórn sina standa varnarlausa
frammi fyrir árás stúdentaskrils
i Teheran á bandarlskt yfirráða-
svæöi, sem sendiráðiö er sam-
kvæmt allra skilningi á alþjóða-
lögum.
Grimulausu ofbeldi hefur siöan
veriö beitt viö bandarlska rikis-
borgara, sem stúdentarnir tóku
fyrir gisla, og vilja slöan versla
meö lif þeirra og frelsi til þess aö
knýja Bandarikjastjórn til þess
aö láta aö vilja þeirra og fram-
selja keisarann.
Hvaö gat Washington gert?
Samningaleiöin var snarlega
lokuö, þegar Khomeini neitaði aö
veita fulltrúum Bandarikja-
stjórnar viötöku.
Von var aö fólki I Bandarlkjun-
um brygöi viö: Þetta samrýmist
ekki þeirri hugmynd, sem þorri
manna gerir sér þar um, aö lög
og réttur skuli fara meö sigur af
hólmi. Hvar var nú kominn mátt-
ur risaveldissins? — Geriö eitt-
hvaö! var hrópaö. Sendiö land-
gönguliöiö á hólminn!
Eöa hvi skyldu ekki Bandarikin
bregöast djarflega viö, eins og
tsraelsmenn I júli 1976, þegar þeir
sendu vikingasveit á flugvöllinn i
Entebbe I Uganda og björguöu
gyöingum úr klóm flugræningja
og hermanna Idi Amins?
Fordæmln eru tll
Þaö heföi svo sem ekki veriö I
fyrsta sinn, sem Bandarikin
heföu gripiö til sliks ráös. Flokkur
landgönguliða flotans var til
dæmis sendur til aö tugta Bar-
bary-sjóræningja I Tripóli 1801,
og einni öld slðar voru um 2.500
bandariskir dátar sendir til Kina
aö hjálpa til viö aö berja niður
Boxarauppreisnina, eftir aö
Boxarar höföu ráöist á trúboös-
stöövar og sendiráð i Peking. Þaö
var einnig aö nokkru til þess aö
vernda lif bandariskra borgara,
aö Eisenhower sendi herlið á land
i Libanon 1958 og svo aftur
Johnson i Dominikanska lýöveld-
iö 1965. Enn nýlegra dæmi er end-
urheimt skipsins Mayaguez I
stjórnartiö Fords úr höndum
kommúnista Kambodiu i mai
1975.
Var þaö svo óhugsanlegt, aö
Washington sendi herliö til Irans,
ef gislunum yröi ekki sleppt?
Vlndáttln dreytlst
1 fyrstu viöbrögöum gáfu tals-
menn Carterstjórnarinnar þaö
skýrt til kynna, aö hervald kæmi
ekki til greina. 1 fyrradag kvaö
viö annan tón hjá Carter forseta,
þegar hann varaöi Iran viö þvi, aö
Bandarikin gætu séö sig knúin til
hernaðaraögeröa til þess aö verja
lif bandariskra þegna og banda-
riskt yfirráöasvæöi eins og
sendiráöiö i Teheran. Undir
strikaöi hann ódulbúna viövörun
sina meö þvi aö árétta, aö slik
viöbrögö væru i fullu samræmi
viö sáttmála Sameinuöu þjóö-
anna.
Hversvegna haföi Bandarikja-
stjórn ekki reynt strax Entebbe-
bragö Israelsmanna? Hvaö hefur
breyst siöan, sem kemur Carter
til aö kreppa hnefann?
Vonlaust feigöarílan
Aö áliti hernaöarsérfræöinga,
sem fjölmiölar I Bandarikjunum
báru fyrrnefndu spurninguna
undir, heföi veriö algert feigöar-
flan aö eitthvaö á borö viö þaö,
sem lsraelsmenn geröu I Ent-
ebbe. Þar valt allt á þvi, aö koma
hryðjuverkamönnunum aö óvör-
um. Annars heföu gislarnir veriö
drepnir um leiö og vitnaöist, aö
hjálp væri á leiöinni. Þaö heföi
veriö vonlaus vitleysa, aö ætla sér
að reyna aö laumast aftan að
Irönum.
Eitt var þaö, aö Bandarikja-
menn höföu ekkert nærtækt her-
liö, sem var nógu skammt undan.
Flugmóöur6kipið Midway meö 75
herþotur um borö var um 2.000
mllur I burtu I Indlandshafi.
Næsta herliö var á Miöjaröarhafi.
82. fallhlifasveit hersins, sem er
sérstaklega þjálfuö til leifturviö-
bragöa og forsendinga, hvert,
sem vera skal. hefur aöalstöövar
sinar i Fort Bragg I Noröur Karó-
lina, 6.500 milur frá Teheran. Þótt
ekki heföi veriö sent af staö nema
fámennt úrvalslið, er óliklegt, aö
þess yröi hvergi vart. Eins og
einn foringi liösins lét hafa eftir
sér: „Ef maöur segöi strákunum
aö hafa sig klára, er viöbúiö, aö
einhver hringdi I mömmu sina til
þess aö segja henni aö hann væri
á förum. Hvalsagan mundi
fljúga.”
Þótt flugher Irans og loftvarnir
séu meira og minna komnir úr
böndum á þessu ári byltingar -
innar, eru starfsmenn radar-
stöövanna þó ekki orönir staur-
blindir. Þaö þyrftu þeir helst aö
vera, ef bandarisk flugvél ætti aö
komast óséö inn i lofthelgi Irans.
Hvaö þá alla leiö til Mehrabad-
flugvallar. Sllk flugvél yröi skotin
niöur i eldflaugaregni, án þess aö
auga fengi fest á.
Jafnvel þótt slikur strand-
höggsflokkur kæmist til Mehra-
bad-flugvallar, þá hagar málum
allt ööruvisi til en á Entebbe, þar
sem flugræningjarnir voru svo
þægilegir aö geyma gislana til-
tæka á flugvellinum, sem þar aö
auki var illa gætt I útjaröri
Kampala. Teheran er milljóna-
borg en ekki 350 þúsund manna
bær eins og Kampala. Banda-
risku gislarnir eru inni I miöri Te-
heran. Til þess aö komast aö
sendiráöinu þyrfti björgunar-
sveitin aö berjast hvern þumlung
leiðar sinnar um mannþröng
strætin, þvi aö varla mundi
Khomeini vera svo vænn aö biöja
múginn, sem hann meö stuttri
æsingaræöu I útvarpi getur töfraö
tug-þúsundum saman út á göturn-
ar, aö rýma göturnar.
Þaö var borin von, aö
frelsararnir kæmu aö gislunum
lifandi, þegar þeir loks næöu
sendiráöinu, ef þeir einhvern
tima næöu þvi takmarki. Eöa aö
þeir kæmu yfirleitt aö gislunum
þar ennþá.
carter brýnlr raustlna
Þess vegna var þetta útilokuö
hugmynd, og er auðvitað enn,
þótt Carter geri sig valdsmann-
legri I rómnum. Þaö, sem hefur
breytst, er einfaldlega þaö, aö
dagarnir hafa liðið og vikan, án
þess aö vonir aukist til þess aö
gíslarnir náist. Þvert á móti.
Stundaglasiö virðist ætla aö
renna út, og stúdentarnir aö þvi
komnir aö gera alvöru úr þeirri
hótun sinni, aö efna til sýndar-
réttarhalda yfir gislunum.
Réttarhöld byltingarmanna yfir
heimamönnum hafa öll haft einn
og sama sviplega endinn, og horf-
andi framan I ofstækiö gengur
enginn aö þvi gruflandi, hver end-
irinn gæti oröiö. Almenningur er
oröinn eins og á nálum. Hún
brennur æ heitar spurningin um,
hvaö Carterstjórnin ætli aö gera.
Carter er ekki sætt undir þvi
þegjandi og hljóöalaust, þótt hann
geti ekkert gert. Fortölur tjóa
ekki. Mega hótanir sin einhvers
þá?
verður strlð?
Þaö gæti veriö undir þvi komiö,
hversu alvarlega þær veröa tekn-
ar. Trúir þvi nokkur, aö Banda-
rikin leggi út I nýtt striö, enn hel-
aum undan Vietnamhörmungun-
um?
Þaö er möguleiki, sem kannski
er ekki svo fjarlægur, þegar skoö-
aöar eru fréttir, sem berast af
handalögmálum og pústrum á
götum og háskólalóöum, I Banda-
rikjunum þar sem iranskir náms
menn sæta hrakningum af hendi
skólabræöra sinna. Þau hækka á
lofti spjöldin meö kröfum um aö
visa öllum Irönum burt úr Banda-
rikjunum. Þar er kviknuð glóöin,
sem striöseldurinn brennur
venjulega út frá. Þaö er heldur
ekki saman aö bera fjarlægt Viet-
namstrlöiö háö i þágu útlendinga
og svo þvi aö mæta árás á banda-
riska borgara og bandarlskt yfir-
ráðasvæöi.
Þaö er ekki fjarlægt, aö þaö séu
einmitt glyrnurnar, á striös-
draugnum, uppvöktum, sem sjást
gægjast upp úr gröfinni.