Vísir - 22.11.1979, Page 20
20
Umsjón:
Katrin Páls-
dóttir
VÍSIR
Fimmtudagur 22. nóvember 1979
„Eg álli
mér ósk
sem helur
rast"
- segin Katla María, 10 ára
sðngkona, um fyrstu
plðtuna sína
,,Ég átti mér ósk, sem nú hefur ræst. Nú á ég
aðra ósk, en ég vil ekki segja hver hún er, þvi þá
rætist hún ekki”.
Það er hún Katla Maria, tiu ára stelpa úr Mela-
skóla sem hefur fengið ósk sina uppfyllta, en hún
var sú að fá einhvern tima að syngja inn á plötu.
Á plötunni syngur Katla
Maria tiu spönsk barnalög.
Islenska texta hefur afi hennar
Guðmundur Guömundarson
gert, við öll lögin nema eitt, en
það syngur Katla Maria á
spönsku.
Það er Svavar Gests sem
gefur út plötuna, en Olafur
Gaukur hefur annast útsetningu
og hljómsveitarstjórn.
Sjónvarpsáhorfendur kannast
eflaust við Kötlu Mariu og
félaga hennar úr Melaskóla-
kórnum. Þau hafa tvivegis
sungið i sjónvarp og söngur
þeirra þar á sinn þátt i þvi aö
óskin hennar Kötlu rættist.
Jafnvig á spönsku og
islensku.
Katla Maria tala spönsku og
islensku jöfnum höndum. A
sumrin dvelur hún hjá föður
sinum á Tossa del Mar á Costa
Brava.
,,Pabbi hefur mjög gaman af
þvi að spila á gitar og syngja og
við syngjum oft saman á
kvöldin, þegar við höfum ekkert
sérstakt að gera. Þaö var
Visismynd BG
Katla María syngur bæði á spönsku og Islensku á nýju plötunni sinni
ákveðið aö taka upp plötuna i
vor og við æföum okkur dálitið i
sumar”, segir Katla Maria.
Myndirnar á plötuumslaginu
voru einmitt teknar s.l. sumar á
Spáni af föðurbróður ungu söng-
konunnar, en hún er að læra á
pianó og flautu.
Leikfimi og kóræfingar
skemmtilegustu
timarnir.
Skemmtilegustu timarnir i
skólanum segir Katla Maria að
séu leikfimi og kóræfingar. Hún
hefur verið i Melaskólakórnum
undir leiðsögn Magnúsar
Ingimarssonar siðan hún var
átta ára.
„Einu sinni dreymdi mig að
krakkarnir ráku mig af kór-
æfingu. Þau sögðu að ég mætti
ekki vera með. Ég var óskap-
lega leið þegar ég vakanði, en
rétt eftir hádegið þá var hringt
heim og sagt að við ættum að
syngja i sjónvarpið”, segir
Katla Maria.
„Sum lögin var erfitt að
syngja, segir hún þegar við
snúum okkur aftur að plötunni.
Það getur verið erfitt að anda á
réttum stöðum og stundum var
ég næstum að kafna, en ólafur
Gaukur leysti vandamálin og
kenndi mér”.
Ragnhildur og Rut i
uppáhaldi.
„Ég á svo mörg uppáhalds-
lög, en nú langar mig mest I
diskóplötuna hans Gunna
Þórðar. Vonandi fæ ég hana I
jólagjöf”, segir Katla Maria. En
hún á tvær uppáhalds söng-
konur, þær Ragnhildi Gisla-
dóttur og Rut Reginalds.
„Ég ætla alla vega ekki að
reyna að verða ópersöngkona”,
segir hún, þegar við spyrjum
frekar um sönginn. „Það er
örugglega miklu skemmtilegra
að syngja létt lög með hljóm-
sveitum”.
Hinn hrelnl tónn
Tónabió: New York, New York.
Leikstjóri: Martin Scorsese.
Myntataka: Laszlo Kovacs.
Tónlist eftir John Kander og Fred
Ebb.
Aðalhlutverk: Liza Minelli og
Robert De Niro.
Bandarisk, árgerð 1977.
kvikmyndii
Góöar tónlistarmyndir eru ekki á
hverju strái, en „New York, New
York” ætti a.m.k. að valda kæti
meöal djassáhugamanna. Tón-
listin er burðarás kvikmyndar-
innar og söguþráðurinn er þvi
harla litilf jörlegur. Ungur saxó-
fónleikari kynnist ungri söng-
konu, þau ákveða að rugla saman
reitunum en hjónabandið endar
að lokum meö skilnaði. Flest
atriði myndarinnar gerast i
djassklúbbum, á hljómsveitar-
æfingum og i dansstöðum.
„New York,NewYork” erekki
fyrsta bandariska kvikmyndin
sem fjallar um ungt fólk á upp-
leið, en hún er talsvert betri en
flestar þeirra. Myndin sekkur
ekki niður i tárvota væmni þegar
illa gengur hjá aöalpersónunum
heldur eru þær látnar bregðast
viö eins og venjulegt fólk bæði ill-
vig og aum I senn.
Liza Minnelli er ágæt söngkona
og leikkona en Robert De Niro
sýnir yfirburði sina sem leikari i
„New York, New York”. Minnelli
viröistoft ekki annaö en stór augu
og sakleysissvipur við hliöina á
honum. De Niro meðhöndlar
saxófóninn kunnáttusamlega, en
þó hann hafi aö sögn æft sig
mánuðum saman á hljóðfærið er
ótrúlegt annað en að einhver
annar sjái I raun um tónlistar-
flutninginn. Svona smáatriöi
skipta aö sjálfsögöu engu máli,
djassinn stendur fyrir sinu.
Það er engin tilviljun að Martin
Scorsese sýnir okkur i myndinni
svolitin bUt Ur frábærri eftir-
likingu af tónlistarmynd „a la
Hollywood” frá fimmta ára-
tugnum. Kvikmyndatakan I
þessum bUti er hlægileg, tónlistin
leiöinleg og dansatriðin eins og
ofskreytt striðsterta. Þetta atriöi
minnir óneitanlega á hversu
breitt bilið er milli „New York,
New York” og gömlu dans- og
söngvamyndanna.
Engar aukvisar eru að verki
þegar Martin Scorsese og Robert
De Niro eru annars vegar, enda
lætur árangurinn ekki á sér
standa. Laszlo Kovacs er hug-
kvæmur I kvikmyndatöku, hann
notar t.d. svipaöa tækni viö aö
kvikmynda manngrúa og eina
eöa fáar persónur,og sýnir okkur
niöur á sviðiö. „New York, New
York” er án efa einhver besta
tónlistarmynd sem framleidd
hefur veriö og auðvitaö á tónlist
þeirra John Kander og Fred Ebb
ekki minnstan þátt i þvi. „New
York.New York” er ekki fram-
leidd til að sinna sérþörfum
djassunnenda, allir sem gaman
hafa af góöri tónlist ættu að geta
skemmt sér I Tónabió þessa dag-
ana. — SKJ
Francine Evans (Liza Minnelli) og Jimmy Doyie (Robert De Niro) eru
ekki ævinlega sammála og hér deila þau um það hvort þeirra eigi að
stjórna hljómsveitinni.
FYRSTIIEINLEIKSTÖNLEIK-
AR Á TÚRU HÉRLEHDIS
Sinfóniuhljómsveit Islands
heldur sina fimmtu áskriftartón-
leika i kvöld klukkan 20.30 i
Háskólabiói.
A efnisskránni eru Sinfónia nr.
82 eftir Haydn, Konsert f. túbu
eftir Vaughan Williams og Sin-
fónia nr. 8 eftir Dvorak.
Hljómsveitarstjóri er Gilbert
Levine. Hann er fæddur i New
York árið 1948. Levine stundaði
m.a. námi við Julliard-skólann i
Néw York, Princeton-háskólann
hjá Jacques Monod, hjá Nadiu
Boulnager i Paris og viö Yalehá-
skólann i Connecticut hjá Gustav
Meyer.
Arið 1973 var Levine sérlegur
aðstoðarmaður George Solti i
London og Paris.
Levine varð framkvæmdar-
stjóri Norwalk Symphony
Orchestra árið 1974 og hefur siöan
stjórnað ýmsum hljómsveitum I
Frakklandi, Þýskalandi og
Skandinaviu. Hann komst I úrslit
i hinni þekktu Karajan-keppni i
Berlin árið 1975 og er eini
Amerikumaðurinn sem það hefur
tekist.
Einleikari með Sinfóniuhljóm-
sveitinni að þessu sinni er Roger
Bobo. Hann er Bandarikjamaður
fæddur árið 1938. Hann stundaöi
nám við Eastman-Tónlistarhá-
skólann og útskrifaðist þaðan
með meistarapróf.
Bobo starfaði sem túbuleikari i
sex ár með Filharmóniusveitinni
i Los Angeles. Þá hefur hann
komiö viða fram sem einleikari,
bæði i Ameriku og Evrópu.
Þetta er I fyrsta sinn sem ein-
leikstónleikar á túbu eru haldnir
hér á landi.
— KP.