Morgunblaðið - 07.10.2001, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 07.10.2001, Blaðsíða 44
AFMÆLI 44 SUNNUDAGUR 7. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ „HANN á afmæli í dag, hann Hermann, hann er áttræður í dag,“ var einhvers staðar sungið snemma í morgun en eins og endranær á slíkum dögum lét Hermann, minn góði vinur, sig hverfa í dag út í ís- lenska sveit, þar sem honum á ungum dög- um leið svo vel á löngum sumrum hjá góðu bændafólki og þar sem hann fékk tækifæri til að nota og stæla sína ungu krafta og æfa þá í seiglu og þolinmæði í breytilegu veðri við heyskapinn og í umgengni og umhirðu hinna kæru húsdýra, já við að moka flórinn og venjast og njóta ilmsins við þá góðu iðju. Svo í sumarlok að fara í réttirnar, kynnast hinni glöðu og góðu stemmningu þar í þá gömlu og góðu daga og að heyra þetta góða fólk sveitanna taka lagið við réttarvegginn og syngja „Hvað er svo glatt“ og eftir að hafa fengið tárið „Mikið lifandi, skelfingar ósköp er gaman…“ Stundum voru bæði há- ar og lágar raddir grátklökkar í þeim vinsæla söng. Já, gott og gaman fannst vini mínum að vera í sveitinni og fá þar reynslu, innsýn og skilning á lífinu í okkar kæra landi í 1.000 ár. Þótt hann hafi ferðast um fjölmörg lönd í fjórum álfum heims, þá er hann nú sannfærðari en nokkru sinn fyrr, um að „heima er best“. Ísland er óskalandið í þessum nú hrjáða heimi. Það þurfa landsmenn að átta sig betur á. Vinurinn get- ur haldið langar tölur um þessi gæði okkar og hann biður stjórn- völd landsins einlæg- lega um að hrapa nú ekki að neinu vegna hugsanlega skjótfengins peningagróða og hann minnir á orðin sígildu: „Greiðið keis- aranum það sem keisarans er, en Guði það sem Guðs er.“ Hann er höf- undur alls sem er og við ráðsmenn Hans yfir sköpunarverkinu. Með góða samfylgd við þennan höfund í 1.000 ár ættum við Íslendingar svo sannarlega að reynast góðir ráðs- menn en ekki vondir, segir afmæl- isbarn dagsins og bætir við: Án af- sökunar erum við, þegar að loka- uppgjörinu kemur, ef við bregðumst nú. Hugsum um það. Afmælisbarnið, nú 7. október, valdi íslenska sveit til að gleðjast í og þakka með nokkrum vinum á þess- um degi. Faðir hans Þorsteinn, ey- firski trésmiðurinn og Grundar- kirkju-smiðurinn (Fegursta kirkja á Íslandi, stendur í gömlu landafræði- bók vinar míns), var uppalinn hjá ömmunni í Ljósavatnsskarði, sem lét honum eftir Viðeyjarbiblíuna sína veglegu, er hann hélt að heiman suð- ur til höfuðborgarinnar í byrjun síð- ustu aldar. Þar fann hann konuefnið sitt, gersemið Guðrúnu hina dýr- firsku. Hann var fæddur 8. okt. 1874, en lést um aldur fram frá konu og 6 börnum árið 1938. Þá reyndi á, en sú dýrfirska „hélt haus“ – eins og strák- arnir okkar í handboltanum orða það nú. Hún hélt ferðinni óhikað áfram með hópinn sinn. Hinn næmi og við- kvæmi sonur, Hermann, sá móður- ina aldrei tárast eða bugast á þess- um erfiða tíma. Það skipti öllu máli fyrir þennan dreng, sem vildi líkjast móður sinni og vera duglegur og þol- inmóður í þjáningunni, bæði þá og síðar, er mikið á reyndi. Og afmæl- isdagur yngsta bróðurins, Ágústs Marinó, er 18. október, en hann er fæddur 1925. Og ekki má gleyma októberbarninu, sjálfri Maríu, ger- semi og gleði Hermanns þessi árin, eftir andlát Ingu, konu hans fyrir 8 árum. Já, María hans Hermanns á afmæli 28. október og verður þá hvorki meira né minna er 9 ára. Hún er góður söngfugl eins og Inga og full af músík og er í flautunámi þessi árin, en systirin Steinunn, 11 ára, lærir á píanó, svo það er mikið um kammermúsík á heimili þeirra og móðurinnar Helgu Rakelar. Þær hafa allar góðar söngraddir og þær litlu eru báðar í barnakór sóknar- kirkjunnar. Og viðbót á þessum vetri er svo fótbolti og handbolti hjá Val á Hlíðarenda, hinu gamla, góða og lit- ríka félagi, sem séra Friðrik stofnaði fyrir um 90 árum. Er ég settist niður með Hermanni fyrir nokkrum dögum til á fá hann til að spjalla eitthvað við mig um lang- ferðina hans, svo ég gæti aðeins minnst hans í dag hér í Morgun- blaðinu, eins og mér finnst bæði rétt og verðugt, virti ég hann fyrir mér, þennan glaðsinna, teinrétta léttfeta og varð hugsað til hinna fjölmörgu jafnaldra hans inni á stofnunum víðs- vegar, sitjandi álútir, bíðandi eftir sláttumanninum slynga. Ég minntist samtals í útvarpi á stórum afmæl- isdegi hetjutenórsins okkar, Stefanó Íslandi, sem fluttist hingað heim frá Danmörku til að deyja hér heima á Fróni. Hann furðaði sig á, hve lengi hann þyrfti að bíða eftir þeim slynga og kvartaði raunar yfir því – í léttum tón. Og í leiðinni: Á ferð sinni um HERMANN ÞORSTEINSSON mbl.isFRÉTTIR FRANZ@holl.is gsm: 893 4284 AGUST@holl.is gsm: 894 7230 Ef þú vilt kaupa eða leigja atvinnuhúsnæði, þá ertu svo sannarlega á réttum stað! Á www.holl.is getur þú skoðað fjölda mynda eða videó, sem gefa þér skýra mynd af útliti og ástandi hverrar eignar fyrir sig. Sparaðu þér margar skoðanir og þar með dýr- mætan tíma með því einfaldlega að hefja leit- ina á www.holl.is. Já, auðveldara getur það ekki verið! Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði Kjarna  Þverholti 2  270 Mosfellsbæ  Sími 586 8080  Fax 586 8081  www.fastmos.is Draumakaffi er kaffihús og veitingastaður í hjarta Mosfellsbæjar. Fyrirtækið er staðsett í 55 fm leiguhúsnæði í miðbænum. Um er að ræða fyrirtæki í fullum rekstri ásamt tækjum og tólum. Spennandi fyrirtæki, tilvalið fyrir hjón eða stóra fjölskyldu. TIL SÖLU kaffihúsið Draumakaffi í Mosfellsbæ Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar. Kjarna  Þverholti 2  270 Mosfellsbæ  Sími 586 8080  Fax 586 8081  www.fastmos.is 218 fm einbýlishús með bílskúr, við Búagrund á Kjalarnesi. Verð 16,9 m. Áhv. 9,6 m. Ekkert greiðslumat. OPIÐ HÚS Jóhanna og Ágúst bjóða ykkur velkomin í dag milli kl. 15 og 17. Upplýsingar í síma 566 8670. EINBÝLISHÚS – KJALARNESI Nánari upplýsingar hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar. EIGNIR ÓSKAST Einbýlishús í Þingholtunum óskast Fjársterkur kaupandi hefur beðið okkur að útvega einbýlishús í Þingholtunum. Staðgreiðsla í boði. Einbýlishús - staðgreiðsla (einn tékki) Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 300-500 fm steinhús í vestur- borginni eða öðrum stað í nágrenni mið- borgarinnar. Staðgreiðsla. Allar nánari uppl. veita Kjartan ogSverrir. Efstaleiti - Gimli Fjársterkur kaupandi óskar eftir 120-130 fm íbúð í öðrum hvorum framangreindra staða. Allar nánari uppl. veitir Sverrir. 2JA HERB. Snorrabraut - laus strax Góð, um 50 fm vel skipulögð íbúð á 2. hæð með vestursvölum og parketi á gólfum. V. 6,8 m. 1848 EINBÝLI Rauðagerði Stórglæsilegt u.þ.b. 400 fm einbýlishús á frábærum stað í Rauðagerði. Eignin skiptist m.a. í stofu, borðstofu, sjón- varpsstofu, sex herbergi, eldhús, bað- herbergi, snyrtingu og tómstundaher- bergi. Arinn. Tvennar svalir. Mjög falleg- ur og gróinn garður. Innbyggður u.þ.b. 46 fm bílskúr. Vönduð eign í mjög góðu ástandi. V. 35,0 m. 1738 Ystasel Fallegt og vel skipulagt 230 fm einbýli auk ca 80 fm rýmis í kjallara og 50 fm bíl- skúrs. Húsið skiptist m.a. í 5 svefnh., 4 stofur, 2 baðherb., eldhús o.fl. Parket á gólfum, flísalögð baðherb. og mikil loft- hæð. Útsýni er í stofu. V. 23,8 m. 1409 HÆÐIR Fýlshólar - hæð og aukaíb. Til sölu frábærlega staðsett um 165 fm efri hæð ásamt 38 fm bílskúr og 2ja herb. aukaíbúð í kjallara. Stórar stofur m. arni og 4 svefnh. Frábært útsýni og staðsetn- ing. V. 24,9 m.1856 Kambsvegur Falleg og björt 110 fm fimm herbergja neðri sérhæð í fallegu þríbýlishúsi sem hefur verið nýlega tekið í gegn að utan, viðgert og málað. Eignin skiptist m.a. í þrjú herbergi, stofu, borðstofu, eldhús og baðherbergi. Útgangur út í garð af svöl- um. Bílskúrsréttur. Góð eign á eftirsóttum stað í rólegu hverfi. V. 15,4 m. 1833 FOSSALEYNIR 16 TIL SÝNIS Í DAG Á MILLI KL. 14 OG 16 ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU EÐA SÖLU Erum með til sölu eða leigu þetta glæsilega 2.132 fm atvinnuhúsnæði. Auðvelt er að skipta eigninni í smærri einingar. Eginin er til afhendingar strax fullbúin að utan og tilbúin til innréttinga að innan. Húsið stendur á 6.500 fm lóð sem verður fullfrágengin. Húsið er að mestu á einni hæð. Mikil lofthæð er í plássinu og engar súlur. Húsnæðið getur hentað undir margvíslega starfsemi svo sem fyrir bílaumboð, byggingarvöruverslun, heildverslun eða hvers konar iðnað, verslun eða þjónustu. Eignin er til sýnis í dag á milli kl. 14 og 16. Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason á Höfða í síma 895 3000. sími 533 6050, www.hofdi.is Suðurlandsbraut 20. Mjóahlíð 16 - Rvík 3ja herb. íbúð 79,2 m², gengið niður hálfa hæð. Baðherbergi allt gegnum- tekið, ný tæki og flísar. Fallegur hlaðinn sólpallur. Eign sem er nýyfir- farin og laus til afhendingar. Guðmundur og Sonja taka á móti ykkur á milli kl. 14 og 18 í dag. - heilshugar um þinn hag Suðurlandsbraut 50  108 Reykjavík  Sími 533 4300  Fax 568 4094 Vilhjálmur Bjarnason, sölum. Elvar Gunnarss., sölum. Hrafnhildur Helgad., sölum. Haraldur R. Bjarnas., sölum. Valþór Ólason, sölum. Sigríður Margrét Jónsd., ritari Jóhanna Kr. Guðmundsd., skjalafrág. Salómon Jónss., lögg. fasteignas. Agnar Agnars., sölustj. atv. húsnæðis. Opið hús sunnudaginn 7. október
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.