Vísir - 19.01.1980, Síða 5
Laugardagur 19. janúar 1980.
' Na-\,ÍÍX; ..
Schleyer er troöiö inn I
„rúgbrauöiö”, rániö tók
aöeins 90 sekúndur. {
Annar bili ræningjanna lokar
ieiöinni og bill iifvaröanna rekst
á bil Schieyers.
Ommando
Rangt: Bill lifvaröanna er of skammt á
eftir bil Schleyers og þvi litiö pláss til at-
hafna fyrir þá. Bilar ræningjanna eru
dökkir á myndinni. Rétt: Nóg bii er miili
bílanna og þvi hægara úm vik fyrir Iff-
veröina.
sólarhringinn sem dtki vikur
frá hliö hans. Þeim er fylgt á
salernið og ætiö biöur lifvöröur
viö svefnherbergisdyrnar —
hvernig sem stendur á! Allt
þetta er nauðsynlegt segir
Watts og skipar mönnum sinum
einnig að leita gaumgæfilega i
öllum vistarverum, áður en
skjólstæöingurinn stigur þar inn
fæti, leita aö sprengjum, hljóö-
nemum eða tilræðismönnum.
Þaö er þó aöalatriði verndar-
innar aö lífi þess sem hana
kaupir sé aldrei stofnað i hættu
og mönnum Watts er sagt að
helst eigi aldrei að koma til þess
aö byssur séu notaðar.
Ýmsar aðferðir eru notaðar.
T.d. er lifvörðunum skipað að
vingast ætið við starfsfólk gisti-
húsa sem dvalið er á, enda fari
fátt grunsamlegt fram hjá þvi.
Þeim er kennt aö opna pakka og
bréf sem sprengjur gætu leynst
i, aöferðir viö að koma skjól-
stæðingnum hratt og örugglega
úr og i bifreið o.s.frv. Bregðist
öll önnur úrræði er ætíast til
þess að lifvörður noti llkama
sinn sem skjöld til að hindra
byssukúlur i að hitta skjól-
stæðinginn.
,, Iðnaðarráðgj afar’ ’
Auk verndarfyrirtækja eins
og Saladins, sem sérhæfa sig I
beinni öryggisgæslu eru einnig
til annars konar fyrirtæki sem
gegna nokkurs konar milliliða-
hlutverki. Af þvi taginu er t.d.
Zeus Security Consultants Ltd i
Bretlandi en þvi er stjórnað af
Peter Hamilton sem hefur
margþætta reynslu á þessu
sviði. Fyrirtæki hans hefur
milligöngu milli þeirra sem
æskja verndar og þeirra sem
veita hana. Hamilton og aö-
stoöarmaður hans, tungumála-
fróð stúlka sem heitir Alison
Kettell, heimsækja skjól-
stæðinga sina, fá upplýsingar
um það hvers konar vernd
óskað er eftir, hvers konar
vernd er á boðstólum o.s.frv.
Þjónusta Hamiltons er ekki
gefin, hann tekur allt að 210 þús-
und krónur á dag fyrir verkið.
,,Ég tel mig vera nokkurs konar
iönaðarráðgjafa”, segir hann,
„ég hef tengsl við aðila málsins
eftir að beinum afskiptum mi'n-
um lýkur”.
Hamilton leitar gjarnan til-
boða hjá verndarfyrirtækjunum
til að geta veitt þeim sem leita
til hans besta og ódýrasta
vernd. Það skiptir oft miklu
máli þvi mikils tæknibúnaðar er
þörf ef menn vilja fullkomna
verndog segir sig sjálft að slikt
kostar peninga. Tæknibúnaður-
inn verður æ mikilvægari en þó
eru einna dýrustu „tækin”
heldur gamaldags, þ.e.a.s.
hundar. A italiu eru til sölu
hundar sem eru þjálfaðir til að
beinlinis rifa I sig alla nálæga ef
húsbóndinn réttir upp hendurn-
ar, likt og að honum væri beint
byssu. Þessi þarfaþing kostar
rúmlega eina milljón króna.
Brynvarðir bilar
Eins og mönnum er I fersku
minni varbæðiSchleyer og Aldo
Moro rænt eftir að setiö hafði
verið fyrir bilum þeirra og lif-
veröirnir drepnir. Hvorugur
þeirra réði yfir brynvörðum bil
en þeir eru nú mjög aö ryðja sér
til rúms meðal þeirra sem hafa
ástæöutilaðætlaaö einhverjum
sé illa við þá.
Nú er svo komið að hinir full-
komnustu þeirra likjast meira
virkjum en bifreiðum. Auk
þykkra stálplatna á öllum
hliðum bi'lsins, sérstaks bensi'n-
geymis sem ómögulegt er að
sprengja,plastrúða sem stöðva
byssukúlur o.þ.h. eru nú sumir
þeirra útbúnir með sérstökum
gasgeymum sem unnt er aö
skjóta að árásarmönnum, þeir
hafa skotraufar i hliðunum og
meðfylgjandi skotvopn,hvergi á
að vera smuga.
Einnig eru komnir á
markaðinn bilar sem standast
sprengikúlur og jafnvel jarð-
sprengjur, þá er sætisrýmið allt
heill stálklefi sem ekkert fær
haggað. Bestu og öruggustu
bflarnir eru taldir vera Rolls
Royce en brynvarðar geröir
þeirra kosta um 100 milljónir
króna.
Þá er hægt að láta koma fyrir
ibilnum hjá séralls kynsradió--
tækjum sem greina eiga ef
sprengjur eru i veginum fram-
undan, rekja slóð byssukúlu
afturábak til staðarins sem
henni var skotiö frá, koma i veg
fyrir aö hægt sé aö koma fyrir
sprengjum i bilnum.með þvi að
senda merki i viðtæki sem öku-
maðurinn ber með sér hvert
sem hann fer.
Loks hafa verið settir á stofn
sérstakir skólar sem kenna öku-
tækni sem aö gagni má koma ef
setið er fyrir bilum. Þangað
geta stjórnmála- eöa peninga-
menn sent bilstjóra sina og er
þar á stundaskránni hvernig
komast skal hjá hindrunum,
átta sig á öllum aðstæðum, rétt
viöbrögð viö hvers kyns vanda,
hraöakstur og ótal margt fleira.
Mannránstryggingar
En hvaö gerist ef allt þetta er
til einskis? Ef ungu, vel þjálfuðu
og fráneygðu lifverðirnir, allur
tæknibúnaðurinn og radió-tæk-
in, brynvöröu bilarnir og vel
þjálfuöu ökumennirnir — ef
þetta er til einskis og árásar-
mönnum heppnast aö ræna
þeim sem þeir ætluðu sér?
Æ siðan syni Lindberghs var
rænt 1932 hefur Lloyd’s trygg-
ingarfélagið i London haft á
boðstólum mannránstryggingar
og verða þær æ vinsælli, þó
hættulegar séu. Gffurlegar fjár-
upphæöir er um að tefla’ er
Borgebræðrunum var rænt i
Argentinu á sinum tima fengu
ræningjarnir 27 milljarða króna
i lausnargjald.
Þegar svona staöa kemur upp
eru einnig til sérfræðingar sem
vita hvað gera á. Einn slfkur,
Andrew Nightingale, vinnur hjá
fyrirtækinu Lawn West, en hann
er fyrrverandi starfsmaður SAS
og ýmsu vanur úr viðskiptalif-
inu. Hann segir að það sem ger-
ist eftir aö manni hafi verið rænt
sékomið i' býsna fastar skorður,
nánast orðið sérstakt ritúal.
„Venjulega hafa ræningjarnir
samband við fyrirtæki eða fjöl-
skyldu þess sem rænt er”, segir
hann. „Ef ég er kallaöur til
hjálparreyni égfyrstað komast
að þvi hverjir rændu honum og
hvort þeir sem setja fram
lausnargjaldskröfur séu hinir
rétturæningjar. Oftmáfá nokk-
uð miklar upplýsingar af sim-
tali ræningjanna viö fjölskyldu
þess sem rænt er.
Siðan geng ég úr skugga um
hvort lögreglan fylgist með
málinu, jafnvel i þeim löndum
þar sem lögreglunni er ekki
fyllilega treystandi, reyni siöan
að setja mig eins vel inn i allar
aðstæður ogunnter. 1 byrjun er
best að nota einhvern innfæddan
sem milligöngumann þvi þeir
tala jú tungumálin og eiga auö-
veldara með að ráöa ýmislegt af
þvi sem ræningjarnir segja og
hvernig.
Jafnvægislist
Siöan kemur aö samningavið-
ræðum um lausnargjald og geta
þær oft falið i sér mikla jafn-
vægislist. Ég verö að hafa gott
samband við alla aðila reyna aö
fá ræningjana til aö slá af kröf-
um sinum og helst niöur i þá
upphæð sem viökomandi er
tryggður fyrir. Jafnframt reyni
ég að fá þá til að hætta við póli-
tiskar kröfur á hendur rikis-
stjórn landsins sem venjulega
er ómögulegt að fá uppfylltar.
Þá veröur að freista þess aö
þrifa frumkvæðið af ræningjun-
um, setja samningaviðræöun-
um skorður sjálfur og reyna á
allan hátt aö ráðskast með ræn-
ingjana,gera þeim t.d. ljóst að ef
þeir drepa fórnarlamb sitt megi
þeir ekki vænta neinnar
miskunnar. Erfiðasta stundin
rennur upp þegar búiö er að
semja um lausnargjald og þaö
afhent, það er oft m jög erfitt að
koma þvi i kring, best er að ég
afhendi peningana sjálfur þvi
annars gætu ræningjarnir
hreinlega rænt þeim sem þaö
gerði, t.d. ef það væri ættingi
hins rænda”.
Þeir sem þetta starf stunda
lita nánast á sig sem diplómata
og ekki að ósekju.
Margir eru þeir sem lita með
uggá vaxandi uppgang þessara
einkaverndarfyrirtækja og telja
að auðvelt væri að misnota þau
t.d. til að berjastfyrir eða gegn,
tiltekinni stjórnmálastefnu.
Talaö er um einkaheri sem eng-
inn hafi stjórn á nema sá sem
haldi um budduna og þvi sé
fyllsta ástæða til þess aö hafa
rækilegt eftirlit með starfsemi
þessara stofnana.
t Bretlandi t.d. eru nú uppi æ
háværari raddir sem krefjast
þessaðsett veröisérstök lög um
þessi mál og starfsemi fyrir-
tækjanna bundin ákveðnum
skilyrðum og reglum. Mætti þá
koma i veg fyrir að þessir vel-
þjálfuðu einkaherir veröi
notaöirtil ills fremur en góðs...
< Endursagt og þýtt —-)
5. september 1977, kiukkan rúmlega
fimm I Köin. Barnavagni er ýtt fyrir
bil Schleyers.
Rangt: Vegna þess hve skammt
var á milli biianna getur ekill
Schleyers ekki bakkað. Lif-
verðirnir eru auðvelt skotmark
fyrir ræningjana sem fela sig i
„rúgbrauðinu” t.v. Rétt: Ekili
Schleyers hefur nægt rými til
athafna og iifverðirnir á góðum
stað.
Rangt: Llfverðirnir eru skotnir áður en
þeir komast út úr bOnum. Bili Schleyers
er óvarinn og þvl auðvelt að drepa ekil
hans. Rétt: Lifverðirnir hefja skothrlð i
skjóli við bii sinn. Ræningjarnir komast
ekkert áleiðis gegn brynvörðum bil
Schleyers.
Rangt: Vegna lélegrar þjálfunar og út-
búnaðar liggja llfverðirnir I valnum.
Schleyer getur ekki komið I veg fyrir að
ræningjarnir þrifi hann með sér. Rétt:
Ræningjarnir eiga I vök að verjast og
falla. Schleyer i brynvörðum bil sinum
kemst burt vegna sérþjálfaðs ekils.
Ræningjarnir stökkva fram, drepaU
lifverðina þrjá og ekil Schieyers
Forsvarsmenn öryggisfyrir-
tækjanna telja að Hanns-Mart-
in Schleyer væri enn á lífi ef
hann hefði notað brynvarðan
bíl og Iffverðir hans og ekill
verið vel þjálfaðir. Það er sýnt
hér.