Vísir - 23.01.1980, Blaðsíða 16

Vísir - 23.01.1980, Blaðsíða 16
vtsnt Miðvikudagur 23. janúar 1980 Umsjón: Katrin Páls- dóttir Atriði úr leikritinu Kirsiblóm á Norðurfjalli, sem Haukur J. Gunnarsson setti upp AUSTRÆN GAMANSEMI Hin óvenjulega leiksýning Þjóðleikhússins, Kirsiblóm á Norðurfjalli, hefur fengið mjög góðar undirtektir áhorfenda sem og allra gagnrýnenda. Er þaö vonum framar þar eð hér er um hefðbundna japanska leiklist aö ræða en sýnir þó að gamansemin er alls staðar söm við sig og ís- lendingar njóta hennar jafnt þó hún sé færö i austrænan búning. Leikstjóri sýningarinnar er Haukur J. Gunnarsson og er hann einn af fáum vesturlandabúum sem hlotið hafa leikhúsmenntun sina 1 Japan. Meö hlutverk fara Sigurður Sigurjónsson, Anna Kristin Arngrlmsdóttir, Jón Gunnarsson, Þórhallur Sigurðs- son og Árni Ibsen. Alla tónlist sýningarinnar samdi Egill Ólafs- son eftir strangri japanskri fyrir- mynd og er hún flutt af honum sjálfum. Næsta sýning á Kirsiblómum á Norðurfjalli er I kvöld. Myrkir músikdagar: Konurnar elnráðar Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Sara Lidman fékk aðeins prjú atkvæði af tíul Frá Jóni Einari Guð- jónssyni i Osló: Eftir þrjár atkvæðagreiðslur i úthlutunarnefnd til bókmennta- verðlauna Norðurlandaráðsins fékk sænska skáldkonan Sara Lidman flest atkvæði fyrir bók sina „Börn heimsíns”. Hún fékk 9 atkvæði af 30 mögulegum. Næst Lidman kom danska skáldkonan Dorite Wijlundsen sem fékk sjö atkvæði fyrir bók- ina Hvis det virklig var film. I þriðja sæti var Odd Eidem með bók sina Diter og jeg. Nú er það svo að atkvæða- greiðsla nefndarinnar á að vera leyndarmál. Norski prófessor- inn Leif Mæhle, sem er for- maður nefndarinnar, sagði aö allt sem við kæmi atkvæöa- greiðslunni hefði ekkert að gera i fjölmiðla. Það mikilvægasta væri hver hlyti verðlaunin. Hvort sem prófessornum lik- ar betur eöa verr, þá hafa upp- lýsingar um atkvæöagreiðsluna lekið út. Eftir þessum upplýsingum þá fer atkvæðagreiðslan fram I fjórum umferðum. Verk sem fær flest atkvæði i fyrstu þrem atkvæðagreiðslunum fær öll at- kvæði nefndarmanna I siöustu umferð og þar með verðlaunin. Við skulum nú lita á hvernig þetta kerfi virkar i atkvæða- greiðslunni I ár. I fyrstu atkvæðagreiöslunni fékk bók Söru Lidman þrjú at- kvæði. Landi hennar Sonnevi fékk tvö atkvæði og Willundsen fékk tvö. 1 annarri umferð fékk bók Lidman áfram þrjú atkvæði frá þeim sömu og greiddu henni at- kvæði I fyrstu umferð. Eidem fékk þrjú Sonnevi tvö og Ólafur Haukur Simonarson eitt. I þriðju umferð fékk skáld- saga Lidman enn á ný þrjú at- kvæði, Willundsen fékk þrjú, Eidem tvö og Ólafur Haukur Simonarson eitt. Þar með fékk Lidman niu at- kvæði samtals og vann at- kvæðagreiðsluna, þó svo að að- eins þrlr af tiu nefndarmönnum gæfu henni atkvæði sitt. —KP Sara Lidman verðlaunahafi Norðurlandaráðs. Myrkir músikdagar Kammersveit Reykjavíkur i Bústaðakirkju Stjórnandi Páll P. Pálsson Efnisskrá: Karólina Eiriksdóttir: Brot (1979) Vagn Holmboe: Zeit op. 94 (1974) Einsöngvari Ruth L. Magnússon Miklos Maros: Konsert fyrir sembal og kammer- sveit Einleikari Helga Ingólfsdóttir Páll P. Pálsson: Lantao (1979-80) Jón Nordal: Concerto lirico (1975) A þessum tónleikum voru ekki færri en þrjú tónverk frumflutt eitt var flutt I fyrsta sinn hér- lendis, en aðeins eitt var áður kunnugt, þ.e. konsert Jóns Nor- dal. Það verður naumast látið i ljós endanlegt álit á svo miklu „nýmeti” eftir aðeins eina heyrn. En bæði Islensku verkin, sem þarna heyröust I fyrsta sinn eru forvitnileg til nánari kynna. Verk Karólinu er litrikt, ferskt og áheyrilegt og verk Páls, sem samið er fyrir óbó, hörpu og sláttarhljóðfæri afarfingert i ljóð rænum blæbrigðum sinum. Verk- ið eftir Vagn Holmboe er samið við heldur tyrfinn þýskan texta, sem ýmist er sunginn eða sagður fram. Flutningur Ruth L. Magnússon var afrek að sinu leyti, en sennilega er verkiö Ingi Hrafn Hauksson hefur opnað myndlistarsýningu I Studio S við Skóiastræti S. Þar sýnir hann 28 myndir, sem allar eru málaðar á siðasta ári. Ingi Hrafn hefur tekið þátt i samsýningum hér heima og erlendis og einnig haldið sjö einkasýningar. Sýningin er opin frá klukkan 16 til 22 daglega fram til 3. febrúar. Karólina Eirfksdóttir samdi verk sitt sérstaklega fyrir Kammersveit Reykjavfkur. skemmtilegra fyrir söngvarann en áheyrandann. Verk sænska tónskáldsins Miklos Maros, sem samið er fyrir Kammersveitina og var frumflutt þarna, virtist skorta fyllsta jafnvægi milli hljómsveitar og einleikshljóö- færis. Einleikshlutverkið, sem var prýðilega leikiö af Helgu Ingólfsdóttur á nýjan sembal Tónlistarskólans, hið glæsileg- asta hljóðfæri, naut sin þvi naum- ast sem skyldi. Þetta mun verða að skrifa á reikning tónskáldsins fremur en flytjendanna. Verk Jóns Nordal var vafalitið veiga- mesta viðfangsefnið á þessum tónleikum. Þarna komu fram 23 hljóðfæra- leikarar Kammersveitarinnar, flestir i stórum eða smáum ein- leikshlutverkum og var frammi- tónlist Jón Þórarins- son, tón- skáld, skrifar staöa þeirra öll með hinum mestu ágætum. óneitanlega vekur það athygli þegar litið er yfir þennan nafnalista hvaöa ályktanir sem af þvi kann að mega draga að i hópi fimmtán strengjaleikara sem þarna komu fram er aðeins einn islenskur karlmaður, hitt eru konur eða útlendingar, sumt út- lendar konur. Er hljóðfæraleikur á Islandi á þessum jafnréttistim- um að verða kvennastarf ein- göngu og „farandverkamanna”? Konur eru ekki lakari strengja- leikarar en karlar, svo aö áhyggjuefni þarf þetta ekki að vera, en umhugsunarefni er það engu að siöur. Hvað veldur? Hljómsveitarstjórinn frægi, Sir Thomas Beecham, vildi aldrei hafa konur I þeim hljómsveitum, sem hann stjórnaði. Hann hefði átt erfitt uppdráttar á íslandi um þessar mundir. Röksemdafærsla hans var þessi: „Ef stúlkurnar eru fallegar, trufla þær piltana i hljómsveitinni ef þær eru þaö ekki, trufla þær mig!”. En sjálf- sagt er þetta ekki lengur vanda- mál, þegar konurnar eru orönar einráðar. Jón Þórarinsson

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.