Vísir - 02.02.1980, Síða 2

Vísir - 02.02.1980, Síða 2
?: bh tai n HÉ Jón Sigurösson hefur i gegnum árin spilaö á mörg og margvisleg hljóöferi en uppáhaldiö er samt alltaf gamia góöa harmónikan. vtsnt Laugardagur 2. febrúar 1980 Geiri elskan, gráttu ei, gráttu ei, ég segi nei. Þú vildir mig ekki, veslings flón, þvi varð ég að eiga hann vin þinn Jón... Þessar ljóðlinur kannast væntanlega flestir við. Þær eru úr laginu „Sagan af Ninu og Geira” sem hljómsveitin Brimkló söng nýlega inn á plötu og hefur það undanfarið verið eitt vinsælasta lagið á Fróni. Lagið er erient en textann samdi Jón Sigurðsson, gamalreyndur i þessum bransa. Jón hefur siðastliðin 30 ár samið texta við f jöldann allan af vinsælum lög- um, hann hefur og samið ýmis vinsæl lög sjálf- ur og rekur nú sina hljómsveit sem spilar á Borginni á sunnudögum. Nálægt 200 textar ,,Ég hef veriö svona 15 ára gamall þegar 6g byrjaöi aö hnoöa saman textum”, sagöi Jón i spjalli viö Helgarblaöið nýlega. „Þeir voru oftast við útlend lög sem ég gleypti i mig úr útvarpinu og fannst gaman að reyna að búa til við þau is- lenskan texta. Bg er fæddur undir Eyjafjöllum og þetta var tilvaliö meöan ég var aö smala kindum eöa reka kýr og hesta. Fyrstu textarnir eftir migbirt- ust i Heimilisritinu upp úr 1945. Svo fluttist ég til Reykjavik- ur og fór aö spila i hljómsveit- um, ég var meö Hljómsveit Bjarna Böövarssonar i ein 5-6 ár og þá vantaði alltaf texta... Svavar Lárusson söng um það leyti fyrsta textann eftir mig inn á hljómplötu, þaö var lagið „1 Milanó” sem kom út hjá Is- lenskum tónum. Nú hafa komið út á plötum nálægt 200 textar eftir mig held ég, ég man ekki fjöldann...” Engar öndvegisbók- menntir Þegar skoöuö er skrá yfir texta þá sem Jón hefur samiö kemur i ljós aö hann hefur átt texta viö ótrúlega mörg af vin- sælustu lögum hérlendis i fjölda ára. En hvernig lltur höfundurinn á verk sin? ,,Ja, það er nú það. Þetta eru nú engar öndvegisbókmenntir. En ég vildi fyrst og fremst búa til islenska texta sem fólk gæti sungiö, þaö hefur miklu meira gaman af þvi heldur en ef út- lenskir textar eru viö lögin. Margt af þessum textum er samið undir mikilli pressu, suma þeirra samdi ég á aöeins klukkutima þó aðrir tækju kannski margar vikur. Ætli ég sé ánægöur meö nema einn ti- unda af þeim.” Textinn viö „Linu og Geira”? „Ég er hundóánægður meö hann!” Textinn tilbúinn klukkan eitt „Ég man eftir þvl aö einu sinni ætlaöi KK-sextettinn aö fara að gefa út plötu sem upp- haflega átti aö vera tveggja laga en svo var ákveöiö aö bæta tveimur viö á slöustu stundu. Þrjú lög voru tilbúin en fjóröa lagiö, sem þeir vildu endilega hafa meö, var enn meö enskum texta. Þeir voru þá aö spila I Þórskaffi og Kristján hljómsveitarstjóri hringir i mig klukkan átta um kvöld og biður mig aö búa til texta. Þá átti aö taka plötuna upp strax næsta morgun. Nú, ég tók bíl niöur I Þórs- kaffi og sótti nótur aö laginu og var svo kominn aftur klukkan eitt um nóttina — meö textann — segir Jón Sigurðsson, tónlistarmaður, textahöfundur og lagasmiður en næstum 200 textar eftir hann hafa komið út á hljómplötum tilbúinn! Þá þurftu þeir aö æfa lagiö yfir nóttina. Þetta var reyndar einn af minum bestu textum. Hann var viö lagiö „Næturfuglinn” sem Ragnar Bjarnason söng.” Komst aftur í sviðsljósin með „Lummuplötunni" A árunum 1950-65 var gefinn út mikill fjöidi af textum Jóns á plötum enda var þá mikiö blómaskeið i innlendri plötuút- gáfu og 2ja laga plöturnar réöu rikjum. Uppúr 1965 dróst þessi útgáfa mjög saman og þá fór mjög að hægjast um hjá Jóni i textagerðinni. „Ég var steinhættur þessu, geröi ekkert I mörg ár. En svo gaf Gunnar Þórðarson út „Lummuplötuna” sina með gömlum lögum og þar átti ég sjö af tólf textum. Þá fóru strákarnir aö athuga hvort ég væri lifandi eða dauöur og siö- an hef ég haft alltof mikiö aö gera, ég er sennilega búinn aö gera milli 20 og 30 texta á s vona einu ári.” Þú ert ekki oröipn leiöur á þessu? „Neinei, þaö er nú ekki. En þaö þurfa yngri menn að taka viö...” Fær meiri tima nú en áð- ur „Ég fæ reyndar miklu meiri tima nú en áöur, þegar oft lá mikiö á textunum. Nú koma þeir til min strákarnir meö lagiö á spólu og ég fæ aö hafa þaö hjá mér vikum saman, þetta er miklu meiri um- hugsunartimi. Samvinnan við þá er mjög skemmtileg og þeir láta mig bara vita ef þeir eru óánægöir meö eitthvaö, og þá breyti ég þvi. Ég hef aldrei ver- iö viökvæmur gagnvart þvi sem ég hef framleitt, þaö má alltaf gera betur...” Þú notar oröið framleitt? „Já, ætli þaö sé ekki rétt- ast.” A móti áróðurstextum Er einhver sérstakur boö- skapur, eöa lifsskoðun, sem þú hefur viljað koma á framfæri i textum þinum? „Nei, þetta hefur nú bara veriö ^bundið viö að skemmta fólki. Ég er afskaplega mikiö á móti öllum áróðurstextum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.