Vísir - 02.02.1980, Qupperneq 19
Laugardagur 2. febrúar 1980
19
Visir á hljómleikum með Dr. Hook:
AUt á útopnu hjá Dr. Hook.
„Segðu aðdáendum okkar á íslandi að við vilj-
um koma til íslands tii að heiisa þeim öllum. Við
erum nefnilega hvorki hræddir við is né snjó —
við erum ekki einu sinni hræddir við eldgos”,
sagði Ray Sawyer, aðalsprautan i hljómsveitinni
Dr. Hook, við ljósmyndara Visis, er þeir hittust
aðafioknum hljómieikum i borginni Providence i
Rhode Island nýlega.
Þetta var það eina sem tókst að hafa upp úr
Ray Sawyer, en ijósmyndara Visis voru skammt-
aðar tvær minútur með Ray og Dennis
Locorriere, hinum aðalsöngvara hljómsveitar-
innar, eftir hljómleikana. Timinn fór allur i það
að kapparnir reyndu að bera fram nafn ijós-
myndarans frá islandi.
99
Vid viljum
koma til
íslands”
sagdi Krókur læknir
Krókur læknir er undarlegt
nafn á hljómsveit, en þegar Ray
Sawyer birtist á sviðinu virðist
annað nafn ekki koma til greina.
Hann er ótrúlega ólikur öðrum
poppstjörnum, eineygöur og
hrukkóttur og venjulega kall-
aður Dr. Hook, þó svo nafnið
eigi viö alla hljómsveitina.
Maður með hans útlit virðist
lika eiga betur heima i stefni
sjóræningja-skips en á sviði.
En tónlistin er ágæt og söngur
Króks læknis er hrjúfur en
góður.
A fyrrnefnum hljómleikum i
Providence kom Krókur fyrstur
inn á sviðiö og ávarpaði áhorf
endur, en siöan stukku þeir
Dennis Locorriere, Billy
Francis, Rik Elswit, John
Walters, Jance Garfat og Bob
„WÚlard” Henke inn á sviðiö,
gripu hljóðfæri sin og hófu að
leika formálalaust.
Flest lögin voru nýleg, en inn
á milli mátti heyra gamlar
lummur eins og „Sylvia's
mother”.
Þegar eitt lag var eftir á dag-
skránni, yfirgaf ljósmyndari
Visis áhorfendasvæðið, staðráö-
inn i aö ná tali af hljómsveitar-
mönnum. Hann fékk leyfi til
þess en varð að biða þar til þeir
komu út úr búningsherberginu.
Er Krókur og félagar hans
komu út, þustu æstir aödáendur
að og heimtuðu eiginhandar-
áritanir. Og eftir að hafa rætt
við ljósmyndarann meö fyrr-
nefndum árangri, þutu þeir upp
1 bilana sina — tóku reyndar
nokkra kven-aðdáendur meö sér
— og voru horfnir.
Dennis Locorriere hleypir einnidömu inn ibllinnsinn. Þrjár aör- Aö loknum túnleikunum. Ahorfendur fagna og Dennis smeilir
ar, sem greinilega hugsa gott til gióðarinnar, koma hiaupandi en mynd af þeim.
verða of seinar.
Ray og Dennis.
Ray Sawyer og Dennis Locorriere reyna að bera fram nafn ljús myndarans frá tslandi. Þúrir Guðmundsson stendur á milii þeirra.