Vísir - 04.03.1980, Page 16
„Veiðiferð”
frumsýnd á
laugardag:
ÆVINTYRALEGUR DAG-
UR A ÞINGVðLLUM
„Kvikmyndin var tekin upp i júlimánuöi á Þingvöllum. Hiin gerist
öll á einum degi og einmitt þennan dag eins og endranær leggja
margir leiö sina þangaö”, sagöi Andrés Indriöason f spjalli viö VIsi
um kvikmyndina Veiöiferðin, sem frumsýnd veröur á laugardaginn
I Austurbæjarbíó og Borgarbfó á Akureyri.
Framleiöendur myndarinnar eru þeir Andrés og Gfsli Gestsson.
Andrés skrifaöi handritiö og leikstýröi, en Gísli kvikmyndaöi. Jón
Kjartansson annaöist hljóöupptöku, en Valgeröur Ingimarsdóttir
var skrifta.
Jafnt fyrir börn og full-
orðna.
Veiöiferöin er kvikmynd jafnt
fyrir börn og fullorðr.a. Það er
orðiö nokkuð langt siðan börn
hafa fengið að sjá islenska kvik-
mynd viö sitt hæfi i kvikmynda-
húsi. Óskar Gíslason gerði
nokkrar barnamyndir upp úr
1950, t.d. Siöasti bærinn i daln-
um, og Reykjavikurævintýri
Bakkabræðra. Þær voru teknar
á 16 millimetra filmu, en Veiði-
ferðin er gerð fyrir breiðtjald.
Hún var tekin upp á sömu tækin
og kvikmynd Agústs Guö-
mundssonar Land og synir. Þeir
Andrés og Gisli náðu rétt að
ljúka sinu starfi, áður en tækin
voru send norður i land og Agúst
tók viö þeim.
í Veiðiferðinni leika atvinnu-
leikarar, áhugafólk og krakkar
hlið viö hlið. Með stór hlutverk
fara þrir krakkar, þau Guð-
mundur Klemenzson, Yrsa
Björt Löve, og Kristin Björg-
vinsdóttir. Þá má nefna Sigriði
Þorvaldsdóttur og Sigurö Karls-
son sem leika hjónin Július og
Guggu. Með þeim er veiðifélagi
þeirra sem leikinn er af Sigurði
Skúlasyni. Þá eru á Þingvöllum
þennan sólrika sumardag eldri
hjón sem leikin eru af Guðrúnu
Þ. Stephensen og Klemens
Jónssyni
Þá koma einnig tveir vafa-
samir náungar við sögu. Þá
leika þeir Pétur Einarsson og
Arni Ibsen. Einnig eru laganna
verðir með i spilinu.
I myndinni koma upp mörg
Guörún Þ. Stephensen og Klemenz Jónsson f hlutverkum sínum í
myndinni.
Guömundur Klemenzson, Yrsa Björt Löve, og Kristfn Björgvinsdóttir fara meö stór hlutverk I kvik-
myndinni Veiöiferö.
óvænt atvik, en hún er gaman
söm og við söguna koma t.d.
tveir Eyjapeyjar sem leiknir
eru af þeim Halla og Ladda.
Ungt ástfangið fólk er einnig á
feröinni á Þingvöllum þennan
dag, og þar eru í hlutverkum
þau Auður Elisabet Guðmunds-
dóttir og Einar Einarsson.
Milli 40 og 50 manns koma
fram í myndinni, en í veiga-
miklum hlutverkum eru 17
manns.
Neistinn sem tendraði
bálið
Andrés Indriðason hefur unn-
ið mikið af efni fyrir börn. Eftir
hann liggur verðlaunasaga,
Lyklabörn. Leikrit eftir hann
hafa verið sýnd í sjónvarpi og
flutt I útvarp og sett á svið I
Þjóðleikhúsinu. Andrés hefur
starfaö hjá sjónvarpinu frá þvi
það tók til starfa og hefur
stjórnað upptöku fjölda þátta og
leikrita.
,,Það er mjög skemmtilegt að
vinna efni fyrir börn, hvert með
sinum hætti. Það er ánægjulegt
hve mikil gróska er nú i kvik-
myndagerðinni, en það er Kvik-
myndasjóði að þakka. Það var
neistinn sem tendraði bálið og
var mikil hvatning fyrir okkur”,
sagði Andrés.
Tónlistina við Veiðiferð hefur
Magnús Kjartanson gert. Plata
með lögunum úr kvikmyndinni
kemur út á næstunni, en á henni
eru tvö lög. Pálmi Gunnarsson
syngur annað þeirra, en stúlkur
úr Skólakór Garðaiiæjar hitt.
Undirleik annast Magnús
Kjartansson og félagar úr
hljómsveitinni Mezzoforte.
Aætlaður kostnaður við Veiði-
ferð nemur um 40 milljónum
króna.
Sýningartimi myndarinnar er
um einn og hálfur timi. Hún
verður eins og áður sagði sýnd i
Austurbæjarbió og Borgarbió á
Akureyri.
Siðan verður kvikmyndin sýnd
viðsvegar um landið. Miðaverð
hefur verið ákveðiö 1800 krónur.
-KP.
kvikmyndir
Nýja bió — Butch og Sundance
(Yngri árin)
Leikstjóri: Richard Lester.
Framleiöendur: Gabriel Katzka
og Steven Bach
Handrit eftir Allan Burns,byggt
á persónum sköpuöum af VVilli-
am Goldman.
Myndatökumaöur: Laszlo
Kovacs
Tónlist: Patrick Williams
Aöalhlutverk: William Katt,
Tom Berenger
William Katt og Tom Berenger I hlutverkum sinum.
LELEG EFTIRLIKING
Richard Lester er sannkall-
aöur ævintýraleikstjóri, aö fara
út i sllka mynd sem þessa þegar
búiö er aö gera frábæra mynd
um þessar hetjur, meö Robert
Redford og Paul Newman I
aöalhlutverkum, er ævintýra-
mennska.
Það kemur llka í ljós þegar
upp er staðiö aö verkefnið er
framleiöendum,leikstjóra og
leikurum ofviöa.Útkoman verð-
ur léleg eftirllking af hinni upp-
runalegu mynd um Butch
Cassidy og Sundance Kid.
Það má segja að þessa mynd
vanti allt það sem svona mynd
þarf að hafa. Sum atriði hennar
eru svo teygö aö halda mætti að
verið væri aö fylla aðeins upp I
til að myndin næöi réttum sýn-
ingartlma.
Aðalleikarar myndarinnar er
auösjáanlega valdir eftir útliti
þeirra Roberts Redfords og
Paul Newman, en ekki leikhæfi-
leikum, og óhætt aö segja aö vel
hafi tekist til með William Katt,
þvl aö hann er lygilega llkur
Robert Redford I útliti.
Eins og áöur sagði er Richard
Lester leikstjóri og er þetta
örugglega það versta sem frá
honum hefur komið.
Þegar maður hefur fyrri
myndina um þessa útlaga
vestursins til viðmiöunar, sem
maöur kemst ekki hjá að gera,
er þessi mynd þvi mislukkuö og
hefði aldrei átt að vera gerð.
Mól.
Áhrif kvik-
mynda og
sjónvarps
- fyrirlestur Ole Breltensteln
í Norræna húslnu
Kvikmyndafræðingurinn Ole Breitenstein heldur
fyrirlestur um áhrifamátt kvikmynda og sjónvarps
i Norræna húsinu i kvöld klukkan 20.30iHann er hér i
boði Myndlistarkennarafélags íslands og Norræna
húsins. Fyrirlesturinn nefnir hann „Film, TV og
modtagerne”.
Breitenstein fjallar um þátt
kvikmynda og mynda I útbreiðslu
menningar og einnig hvernig þær
geta oröið til aö stuðla að
skoöanakúgun og flatneskju. Þá
fjallar hann um hver áhrifa-
valdur myndefni er I söluauglýs-
ingum.
Ole Breitenstein er danskur, en
fluttist til Svíþjóöar 1955. Þar
lauk hann fil. kand. prófi 1971 og
vinnur nú við Stokkhólmsháskóla.
Þar kennir hann fjölmiðlunar-
fræði, kvikmyndasögu og grein-
ingu. Hann hefur einnig kennt við
sænska kvikmyndaskólann og
starfað við sjónvarpið.
Blaðamaöurinn Eva Wikander
og Breitenstein hafa gert
athuganir á þeim áhrifum, sem
kvikmyndir hafa á börn og
unglinga. A slðasta ári birtu þau
niðurstööur þessarar könnunar I
bók sem nefnist „Kila pá bio- Köp
en livsstil”.