Vísir - 11.03.1980, Síða 8
8
vtsm
Þriöjudagur 11. mars 1980
utgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Davið Guömundsson
Ritstjórar: ölafur Ragnarsson
Ellert B. Schram
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaöamenn: Axel Ammendrup, Friða Astvaldsdóttir, Gisli Sigurgeirsson, Hannes
Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Páll Magnússon, Sæmundur Guðvinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson.
Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson.
utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson, Askrift er kr. 4.500 á mánuöi
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. innanlands.
Auglýsingar og skritstofur:
Siöumúla 6. Simar 86611 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur.
Verö i lausasölu
230 kr. eintakið.
Prentun Blaöaprent h/f.
Elnstæður íbröttaviðburður
Sigur Vals yfir spænsku meisturunum á sunnudagskvöldiö hefur vakiö fögnuö og hrifn-
ingu. Gildi iþrótta er ekki einvöröungu fólgiö i sigrum sem þessum, en þeir eru þó ómet-
anlegir til aö vekja athygli á þýöingu iþróttanna og hvetja æskuna til dáöa.
Það var ógleymanleg stund,
sem menn upplifðu í Laugardals-
höllinni á sunnudagskvöld.
(slenskt íþróttalið náði þeim
ótrúlega en glæsilega árangri að
vinna sér rétt til að leika til úr-
slita í Evrópukeppni í handknatt-
leik. Handknattleiksmenn Vals
gerðu sér lítið fyrir og sigruðu
spænsku meistarana í einhverj-
um mest spennandi íþróttaleik,
sem fram hef ur farið hér á landi.
Húsið bókstaflega sprakk af
fögnuði, og öll þjóðin samgleðst
Valsmönnum og þakkar þeim
f rammistöðuna.
Þakkirnar eru ekki aðeins
verðskuldaðar vegna frammi-
stöðunnar í þessum eina leik.
Þessi sigur er ómetanleg upp-
lyfting og hvatning fyrir alia þá,
sem unna íþróttum og íþrótta-
þátttöku almennt. Hann er stað-
festing á því, að með eljusemi,
ástundun og reglusemi, er unnt
að lyfta grettistaki, jafnvel þótt
lítil þjóð eigi i hlut.
Við vitum að strákarnir í Val
haf a ekki unnið sinn glæsta sigur
fyrirhafnarlaust. Frá blautu
barnsbeini hafa þeir stundað
íþrótt sína, að baki þeim stendur
stórt og öflugt íþróttafélag og
síðustu vikur og mánuði hafa
þeir lagt á sig þrotlausar æfing-
ar. Þeir eru áhugamenn, sem
með ósérhlífni og sjálfsaga, leik-
gleði og baráttuþreki hafa skotið
þaulreyndum atvinnumönnum
ref fyrir rass.
Og vert er einnig að vekja at-
hygli á þeirri ánægjulegu stað-
reynd, að hér heima hef ur annað
lið, Víkingur, sýnt talsverða yfir-
burði í vetur í handknattleiknum,
þannig að breiddin er mikil í
þessari vinsælu íþrótt.
Gildi íþróttanna er ekki allt
fólgið í sigrunum. Þar öðlast
ungt fólk félagsþroska og ein-
beitingu, lærir að temja skap sitt
og taka mótlæti sem meðbyr. Þar
verður hver einstaklingur að
leggja sig fram í þágu liðsheild-
ar, en jafnframt að treysta á
samherja og samstarf. íþrótta-
maðurinn, æskumaðurinn, stælir
líkama sinn, skapgerð og andleg-
an þroska og fátt er ungu fólki
heilbrigðara enástundun íþrótta,
hvort sem það er fyrir ánægjuna
eða keppnina. Hvort tveggja fer
þó oftast saman sem betur fer.
En sigrar eru einnig nauðsyn-
legir, og afreksmenn í íþróttum
eru æskunni fordæmi og fyrir-
mynd. íslendingar hafa átt
marga slika, sem hafa veitt okk-
ur ómælda gleði og aukið hróður
þjóðarinnar. Sigur Vals í undan-
úrslitum Evrópukeppninnar er
enn ein skrautfjöður í hatt
íslenskrar íþróttahreyf ingar og
íslensku þjóðarinnar.
Nú er mál til komið að stjórn-
völd hér á landi láti af þeim ná-
nasarskap og skilningleysi, sem
ríkt hefur í garð íþróttamála.
Það er margsannað, að fátt skil-
ar sér betur en öf lugur stuðning-
ur við hina frjálsu íþróttahreyf-
ingu. íþróttaforystan hef ur ekki
farið fram á, að ríkið taki
íþróttastarfið upp a sína arma.
Hún vill starfa sjálfstætt og án
bónbjarga, en hef ur sett f ram þá
ósk að fá þá viðurkenningu, sem
starfsemi hennar á skilið. Ekki
fyrir afreksmennina eða íþrótta-
forystuna, heldur æskuna og
þjóðina.
Valsmenn geta verið stoltir af
handknattleiksmönnum sínum.
En við skulum muna, að strák-
arnir í rauðu peysunum, sem
unnu hug okkar og hjörtu á
sunnudagskvöldið, eru umfram
allt íslenskir æskumenn, glæsi-
legir fulltrúar þjóðarinnar allr-
ar. Til hamingju, Valsmenn.
Næst er það úrslitaleikurinn.
ER HASKÓLINN AB VERÐA TJEKI
I HÖNDUM FAMENNRAR KLÍKU?
Fylkingin S'jmtök byltingar-
sinnabra kr.mmúnista, er nú
oröin alls íaöandi innan náms-
mannahreyfingarinnar, sem er
hátt i tiu þúsund nemendur. Hér
er átt viB samtök stúdenta viB
Háskóla Islands (S.H.I.) Sam-
band islenskra námsmanna er-
lendis, (SINE) og Bandalag is-
lenskra sérskólanema, (BISN).
Hitt er þó miklu alvarlegra aB
nú hefur Fylkingin uppi áform
um aB innlima I þessa sam-
steypu öll nemendasamtök
framhaldsskóla á næstunni.
Takist þeim þessi ráöagerB
munu þeir stjórna samtökum
hvorki meira né minna en tug-
þúsunda námsmanna.
Skattur til
Fylkingarinnar
Þessi tiöindi þurfa ekki aB
koma neinum þeim á óvart, sem
gert hefur sér grein fyrir þeirri
aöstööu og fjármunum, sem
Fylkingin hefur þegar öölast
yfirráB yfir. Hér á ég viö þær 25
milljónir sem fara I útgáfu
Stúdentablaösins, eftir aö blöö
SHl og SINE voru sameinuB i
eitt blaö. Þetta fé er fengiö meö
skattheimtu islenskra nám-
smanna bæöi erlendis og hér-
lendis. Þannig er. aö stúdentum,
sem innritast I H.l. er gert skylt
aö greiöa innritunargjald, sem
aö stórum hluta rennur til
Stúdentablaösins, en fá ekki
inngöngu ella. Hvaö SINE varö-
ar er dæmiö þó enn hrikalegra,
þar sem skatturinn er innheimt-
ur beint af námslánum allra is-
lenskra námsmanna erlendis.
Þannig eru Islenskir námsmenn
nauöbeygöir til að halda uppi
útgáfustarfsemi Fylkingarinn-
ar, hvort sem þeim llkar betur
eöa verr.
Hvaðan koma
peningarnir?
Hér er þó ótalin sú aöstaöa
sem Fylkingin hefur náö meö
neöanmóls
Arni C.Th. Arnarson viöskipta-
fræöinemi skrifar hér um póli-
tisk áhrif Fylkingarinnar innan
námsmannahreyfingarinnar,
bæöi hér á landi og erlendis og
telur, aö námsmenn veröi aö
gripa i taumana áöur en stofn-
anir stúdenta og Háskólinn
sjálfur veröi i höndum fámennr-
ar öfgakiiku.
stjórn sinni á Félagsstofnun
stúdenta (F.S.). Þar hafa þeir
ekki látiö sér nægja aö gera F.S.
aö vettvangi baráttusamkoma
Fylkingarinnar, heldur hefur
ósvifnin gengiö svo langt, að þar
stunduðu Fylkingarmenn út-
hringingarstarfsemi sina fyrir
siöustu þingkosningar.
Fylkingin sem býður fram I
kosningum til Stúdenta- og
Háskólaráös undir dulnefninu
„Félag Vinstri Manna” gaf ný-
íega út kosningablaö, sem vitaö
er aö kostaö hefur á aöra mill-
jón króna. Engar auglýsingar
voru i þessu blaði, né styrktar-
linur af neinu tagi. Hver leggur
þeim til fé þetta?
Áþreifanlegar kröfur
Hvernig munu Fylkingar-
menn nýta sér þá aöstööu i
námsmannahreyfingunni, sem
þeir hafa komiö sér upp?
Svariö er að finna i grein Ein-
ars Baldvinssonar (Trotskýisti
og þar af leiöandi Fylkingar-
maður) i siöasta Stúdentablaöi.
„Auövitaö er hlutverk
byltingarsinnaðra sósialista alls
staöar aö útskýra nauösyn
sósialismans, en i baráttunni er
nauðsynlegt aö virkja sem
flesta i kringum áþreifanlegar
kröfur, ekki aö útiloka þá, sem
ekki eru „frelsaðir” fyrir."
Fylkingin hyggst þvi nota
hagsmunabaráttu námsmanna
til aö draga nýliða inn I hreyf-
ingu sina. Sláandi dæmi um
þetta er nýafstaðinn útifundur
námsmanna á Arnarhóli um
lánamál. Þessar aðgeröir voru
ráögeröar af fulltrúum
Fylkingarinnar I SHI, BISN og
SINE án þess aö samráö væri
haft viö til þess kjörna fulltrúa.
Þannig var t.d. gengiö framhjá
Kjarabaráttunefnd, en hún er sá
aöili, sem til þess er kjörinn aö
tir Stiidentablaðinu.
marka samræmda stefnu náms-
manna I kjaramálum þeirra.
Þannig svifastþeireinskis. þegar
hagsmunir Fylkingarinnar eru
annars vegar.
Sameining Stúdentablaöanna,
SHI og SINE og fyrirhuguð inn-
ganga BISN i þaö samstarf veit-
ir þeim margfalt öflugri
áróöursmiöil en þeir hafa áöur
haft til umráöa, allt á kostnaö
námsmanna. Þannig hefur fá-
mennri kliku öfgasinnaöra
marxista tekist aö sölsa undir
síg tugmilljóna sjóði náms-
manna og nota þá til aö iöka trú-
boð meöal þeirra þúsunda
námsmanna,sem aöild eiga aö
þessum hreyfingum.
Marxisk
inntökuskilyrði
Þó er það, sem á undan er tal-
ið smámunir einir, miöaö viö
þær afleiðingar, sem það heföi,
ef Fylkingarmönnum tækist aö
koma fram áformum sinum um
fagrýniinnan Háskóla íslands.
Þessi stefna heföi það I för með
sér aö stór hópur stúdenta yröi
aö hverfa frá námi þar sem
hann aöhyllist ekki marxiskar
stjórnmálaskoöanir. Þegar má
sjá nokkum visi að þessu I ljósi
nýlegra dæma.
Fagrýni gerir nefnilega ráö
fyrir þvi, aö hver og ein fræöi-
grein sé sett i þjóöfélagslegt
samhengi i ljósi marxiskra
kenninga og fundnar leiöir til aö
hún geti i samræmi viö þessar
kenningar þjónaö hagsmunum
„öreigastéttarinnar”.
Þess má geta að tilraunir I
þessa átt erlendis hafa oft og
einatt leitt til þess að háskólar
legðust niður.
Ábyrgð stúdenta.
Nú er svo kcmið, aö stúdentar
i Háskóla Islands veröa að gripa
I taumana til að koma I veg
fyrir, aö stofnanir stúdenta og
Háskólinn veröi tæki I höndum
fámennrar öfgakliku.
Arni C.Th. Arnarson
viöskiptafræöinemi