Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 2

Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 2
HJÁ fyrirtækinu Voice Era kom á mánudag út fyrsta útgáfa fyrirtæk- isins af hugbúnaði, sem ætlað er að skilja mannsrödd í gegnum síma og svara spurningum um verð- bréfamarkaðinn. Fyrirtækið hefur m.a. skrifað undir samning við Ís- landsbanka-FBA og Öryrkjabanda- lag Íslands um að þróa tungu- tæknikerfi til notkunar annars vegar í fjármálaheiminum og hins vegar búnað sem gerir fötluðum kleift að stjórna heimilistækjum, s.s. sjónvarpi, síma og tölvu með raddskipunum. Þá er búnaðinum einnig ætlað að gera fötluðum kleift að kveikja og slökkva ljós á sama hátt. „Raddstýring mun aldrei koma beinlínis í staðinn fyrir notk- un lyklaborðs eða venjulegra stjórnhnappa á tækjum, heldur er um að ræða hreina viðbót til að auð- velda aðgengi að tækjum,“ segir Hallur Hallsson, framkvæmdastjóri Voice Era. Fyrirtækið er einnig með í þróun raddstýrt öryggiskerfi sem greinir mannsrödd í síma með því að bera hana saman við áður hljóðritaða rödd viðkomandi, sem geymd er í gagnabanka. Kerfinu er ætlað að greina röddina frá öllum öðrum röddum og þannig fyr- irbyggja að menn villi á sér heim- ildir. Hjá Voice Era starfa fimm manns á Bolungarvík og stendur til að fjölga þeim í sjö á næstu vikum. Björn Bjarnason mennta- málaráðherra opnaði nýjan vef á þriðjudag, www.tungutaekni.is, sem á er að finna ítarlegar upplýs- ingar um tungutækni í tengslum við átak menntamálaráðuneytisins um framgang tungutækni hérlendis. Með verkefninu, sem lýtur stjórn Ara Arnalds, verkfræðings og verk- efnisstjóra, er ætlunin að stuðla að því að íslenska verði áfram lifandi tungumál íslenskrar þjóðar í þekk- ingarsamfélagi 21. aldar. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Starfsmenn Voice Era eru fimm, en gert er ráð fyrir fjölgun þeirra. Geta stjórnað heimilistækjum með röddinni  Tungan/11 FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Birgir Leifur í góðum málum á Spáni/C4 Arnar settur á sölu- lista hjá Leicester/C1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Á FÖSTUDÖGUM SETTUR landlæknir, Lúðvík Ólafs- son, hefur dregið til baka áminningu sem hann veitti Högna Óskarssyni geðlækni fyrir að hafa brotið 11. grein læknalaga. Högni segir að í þessu felist viðurkenning á því að settur landlæknir hafi brotið stjórn- sýslulög. Í bréfi setts landlæknis til Högna þessa efnis segir að afstaða til áminningar verði tekin að loknum fresti sem Högna sé veittur til and- mæla og óski hann lengri frests verði hann fúslega veittur. Högni sagði í samtali við Morg- unblaðið að í þessu fælist fullkomin viðurkenning setts landlæknis á því að hann hefði brotið stjórnsýslulög og það sem hann hefði gert í síðustu viku með veitingu áminningar hefði því ekkert gildi. „Nú er hægt að fara að snúa sér að meginatriði þessa máls en það er að fjalla um og hrekja hin efnislegu rök Lúðvíks Ólafssonar,“ sagði Högni. Fresturinn er til 26. nóvember næstkomandi, en eins og fram kem- ur er hægt að lengja hann ef óskað er. Aðspurður hvort þessi frestur dygði sagði Högni að það ætti bara eftir að koma í ljós. Hann ætti eftir að setjast niður og fara yfir það og myndi sjá til með það hvort hann þyrfti á lengri fresti að halda eða ekki. Ákvað að leyfa Högna að njóta vafans Lúðvík Ólafsson, settur land- læknir, sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann hefði dregið áminninguna til baka þannig að Högni nyti andmælafrestsins án áminningarinnar. Það væri lög- fræðilegt álitamál hvort þess hefði þurft eða ekki, en hann hefði ákveð- ið að leyfa Högna að njóta vafans og því hefði hann dregið áminninguna til baka. Hann myndi síðan taka málið aftur til skoðunar þegar at- hugasemdir Högna væru komnar. Settur landlækn- ir dregur áminn- ingu til baka  Samstiga Eddur  Hugarró og rósemd hjartans  Kynjagleraugu á fjárlagafrumvarpið  Dýragarðar ekkert stundargaman  Skart  Auðlesið efni EVRÓPUBÚAR í jólahug sækja nú í auknum mæli til Íslands eftir því nýjasta í jólaskreytingum og verða risajólatré á opinberum stöðum á Ítalíu, Stokkhólmi og Dyflinni með íslensku skrauti um þessi jól. Hér er um að ræða ljósleiðaraskreytingar, sem fyrirtækið Dengsi útvegar, en þær hafa verið á jólatrjám hérlendis undanfarin ár. Dengsi kaupir ljós- leiðarann frá bandaríska framleið- andanum Supervision í Flórída og er umboðsaðili fyrir Norðurlöndin. Ljósleiðarinn er klipptur hér niður í mismunandi stærðir og hannaðar úr honum skreytingar. Dengsi ann- ast skreytingar fyrir fyrirtæki hér- lendis og „klæðskerasaumar“ serí- urnar utan á hvert tré. Landvinningarnir erlendis eiga rót sína að rekja til sýningar fyrir- tækisins í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. „Þá veltu menn fyrir sér hvað við værum að vilja upp á dekk með jólaskreytingar þegar hægt var að fá kínverskar skreyt- ingar fyrir minna. Það hefur hins vegar sýnt sig að menn vilja meiri gæði, þ.e. meiri skerpu í ljósunum, sem er aðalatriðið,“ segir Jóhannes Tryggvason, eigandi Dengsa. Að- eins ein pera lýsir upp heilu serí- urnar, en það sem sést glitra á trjánum eru ljósleiðaraendar sem lýsast upp. Síðan er hægt að láta endana skipta litum með sérstöku litahjóli í búnaði seríunnar. Ekkert rafmagn er leitt út í trén og vatn og vindar vinna ekki á ljósunum. Í fyrra afgreiddi Dengsi fyrstu pöntunina til útlanda en það var sería fyrir jólatré í Dyflinni og í kjölfarið var 8 metra hátt tré á Ax- elstorgi í Kaupmannahöfn með skrauti frá Dengsa auk eins trés í Málmey í Svíþjóð. „Fyrir þessi jól erum við með fimm stór tré í Dyflinni, aðal- jólatréð í hjarta Stokkhólms og jóla- tréð fyrir framan Ráðhúsið í Málm- ey.“ Við þetta er síðan því að bæta að 13 metra hátt jólatré á dóm- kirkjutorginu við Piazza del Duomo í Mílanó verður ljósleiðaravætt frá Dengsa, að ógleymdum trjám í Reykjavík m.a. fyrir framan Lands- símahúsið við Austurvöll. Morgunblaðið/Kristinn Ljósleiðaraskreytingar eru komnar upp hér og hvar og minna á jólin, þótt hlýindin minni á allt annan árstíma. Risajólatré í borgum Evr- ópu með íslensku skrauti Flugumferðarstjórar Fundur eftir tæpa viku STAÐAN er óbreytt í kjara- deilu flugumferðarstjóra og ríkisins en sáttafundur var í húsakynnum sáttasemjara rík- isins í gær og hefur sá næsti verið boðaður 22. nóvember. Í vikubyrjun ákvað trúnaðar- ráð flugumferðarstjóra að af- lýsa verkföllum sem áttu að hefjast í dag og standa á hverj- um degi út mánuðinn. Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, segir ljóst að deilan standi leng- ur en flugumferðarstjórar hafi ætlað. Þeir muni sjálfsagt bregðast við á einhvern hátt en ekki sé tímabært að greina frá því hvað þeir hyggist gera. NOKKRIR ungir piltar eru grun- aðir um að hafa kveikt í barnavagni í kjallara fjölbýlishúss við Breið- vang í Hafnarfirði í gær. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði hafa nokkrir þeirra játað aðild að mál- inu. Tilkynnt var um eldinn til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins klukkan 14.30. Þegar slökkvilið kom að logaði í barnavagninum sem stóð í hjólageymslu og hafði talsverður reykur borist um stigagang hússins, sem er fjölbýlishús á fjórum hæð- um. Nokkuð var um að íbúar þess hefðu samband við slökkvilið en þeim var sagt að halda sig innan- dyra. Að sögn lögreglu virðist sem pilt- arnir hafi brotið rúðu og hent log- andi drasli ofan í barnavagninn. Málið er í rannsókn. Piltar grunaðir um að kveikja í barnavagni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.