Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 4

Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ NEMENDUR 4. bekkjar á Norð- urlandi eystra náðu bestum árangri á samræmdum prófum í haust, en nemendur 7. bekkjar í Reykjavík náðu bestum árangri á prófunum í samanburði við aðra landshluta. Heildarniðurstaða prófanna var kynnt fyrir skólunum í gær. Sé litið á töflu yfir normaldreifð- ar einkunnir hjá nemendunum voru nemendur 4. bekkjar á Norð- urlandi eystra með einkunnina 5,3 í stærðfræði en þar á eftir komu Suðurnes með 5,2, Reykjavík og Austurland með 5,0, Vestfirðir, Suðurland og nágrenni Reykjavík- ur með 4,9, Vesturland með 4,8 og Norðurland vestra með 4,3. Suðurnes bæta sig Athyglisvert er að skólar á Suð- urnesjum hafa bætt sig verulega í stærðfræði í 4. bekk því hún fer úr 4,5 í fyrra í 5,2. Nemendur 4. bekkjar á Norður- landi eystra voru með 5,4 að með- altali í íslensku, en næst á eftir kom Reykjavík með 5,2, Austurland 5,1, nágrenni Reykjavíkur 5,0, Suður- land 4,8, Vesturland 4,7, Vestfirðir og Norðurland vestra 4,6 og Suð- urnes 4,4. Nemendur 7. bekkjar í Reykja- vík og nágrenni Reykjavíkur voru með 5,1 að meðaltali í stærðfræði, en þar á eftir kom Norðurland eystra með 5,0, Vesturland og Vestfirðir með 4,9, Suðurnes og Norðurland vestra 4,8, Suðurland 4,7 og Austurland 4,6. Nemendur 7. bekkjar í Reykja- vík voru líka efstir á íslenskuprófi með einkunnina 5,2, en næst kom nágrenni Reykjavíkur með 5,1, Norðurland eystra 5,0, Vesturland, Vestfirðir, Norðurland vestra og Austurland með 4,9, Suðurland 4,7 og Suðurnes 4,4. Samræmd próf í 4. og 7. bekk íslenskra grunnskóla Góður árangur á Norðurlandi eystra matvöruverslanir Kaupfélags Aust- ur-Skaftfellinga og hafa þær verið reknar undir nöfnum KÁ og 11/11 síðan í ársbyrjun 2000. Um leið var gerður samningur um að KASK leigði Kaupási húsnæði fyrir KÁ Verslun í hinu nýju verslunarhúsi sem nú hefur verið opnað. Kaupás rekur áfram 11/11 verslun á Höfn en KÁ versluninni, sem var til húsa í Vöruhúsi KASK, hefur verið lok- að. Auk KÁ Verslunar voru opn- aðar í dag Blómabúðin Bláa blómið og Hársnyrtistofan Jaspis í Miðbæ auk þess sem brauðgerð KASK er Hornafjörður – Kaupfélag Austur- Skaftfellinga opnaði í gær versl- unarmiðstöð á nýja miðbæjarsvæð- inu á Höfn. Húsið hefur fengið nafnið Miðbær. Mikill mannfjöldi fylgdist með þegar Guðrún Ingólfs- dóttir, ekkja Ásgríms Halldórs- sonar, fyrrverandi kaupfélags- stjóra, klippti á borða og opnaði með því Miðbæ formlegum hætti. Auk þess rakti Pálmi Guðmunds- son, framkvæmdastjóri KASK, byggingarsögu hússins og Albert Eymundsson flutti ávarp. Árið 1999 keypti Kaupás hf. allar þar einnig til húsa. Sport- og tísku- vöruverslun mun opna í byrjun des- ember og fleiri aðilar eru í starthol- unum með að hefja starfsemi í Miðbæ, að sögn Pálma Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra KASK. Húsið er alls 1930 fermetrar að stærð. Það skiptist í 1.180 fermetra stálgrindarhús á einni hæð og 250 fermetra steinsteypt hús á tveimur hæðum. Tengibygging með gler- þaki, nokkurs konar göngugata, tengir byggingarnar saman. Margs konar uppákomur verða í göngugötunni í dag og á morgun. Morgunblaðið/Sigurður Mar Það var mikill handagangur í öskjunni þegar KÁ-verslun var opnuð í Miðbæ á Höfn. Tilboðsvörurnar voru rifnar út og tuttugu sjónvarpstæki seldust á sjö mínútum. Þriggja daga opnunarhátíð verður í verslunarmiðstöðinni. Ný verslun opnuð á Höfn í Hornafirði ÞÆR unglingsstúlkur, sem beita of- beldi, hafa mun meiri sektarkennd vegna ofbeldisverka sinna en piltar. Unglingspiltar líta frekar á ofbeldi sem sjálfsagðan hlut og líklegra er að þeir fremji ofbeldisverk að yfir- lögðu ráði. Þetta kom fram á mál- þinginu „Kynjamunur á skilningi og viðhorfum ofbeldisfullra unglinga til unglingaofbeldis“ sem Rannsókna- stofa í kvennafræðum stóð fyrir í Norræna húsinu í gær. Á málþinginu kynnti Páll Biering niðurstöður doktorsritgerðar sinnar í geðhjúkrunarfræði en þær eru byggðar á virkri athugun hans á meðferðarheimilinu Háholti á sex mánaða tímabili á árinu 2000 og við- tölum við 15 og 16 ára unglinga sem dvöldust þar, foreldra þeirra og umönnunaraðila. Páll byggði rannsóknir sínar á skýringarlíkönum unglingaofbeldis, þ.e. hugmyndum þeirra, sem koma að meðferð unglinga sem beita of- beldi, um ofbeldishegðun og við- brögð við henni. Hann segist hafa átt von á því að sjá mun milli líkana ung- linga, umönnunaraðila og foreldra. Það hafi hins vegar komið sér á óvart hvað það var mikill kynjamunur á líkönum unglinganna. Lítill munur var hins vegar á afstöðu umönnunar- aðila og foreldra eftir kyni og afstöðu þeirra til ofbeldis stúlkna annars vegar og pilta hins vegar. Skýringarlíkön umönnunaraðila sýna að þeir telja að rekja megi of- beldisfulla hegðun unglinga til fjöl- skylduþátta, sársaukafullrar lífs- reynslu, meðfæddra þátta, veikrar sjálfsmyndar, reiði, áhrifa áfengis og fíkniefna og ofbeldis. Athyglisvert er að foreldrar eru sammála umönnun- araðilum um alla þessa þætti nema fjölskylduþættina sem þeir telja ekki hafa áhrif. Ofbeldi stúlkna persónu- legra en ofbeldi pilta Unglingarnir leggja hins vegar aðaláherslu á áfengis- og fíkniefna- neyslu, reiði og sókn í breytt hugar- ástand. Í skýringarlíkönum ungling- anna er ofbeldi hins vegar hvorki rakið til veikrar sjálfsmyndar né meðfæddra þátta. Þá tengja stúlkur gjarnan ofbeld- isverk sín við sársaukafulla lífs- reynslu en piltar segjast bregðast við hindrunum og ógnunum með of- beldi. Páll segir ofbeldi stúlkna yf- irleitt tilfinningatengdara og per- sónulegra en ofbeldi pilta. Stúlkur fremji ofbeldisverk vegna tilfinn- ingalegra og persónulegra átaka en ofbeldi pilta snúist frekar um reglur hópsins og um heiður og völd. Þá segir Páll að greina megi sam- svarandi mismun í afstöðu ofbeldis- hneigðra stúlkna og pilta til endur- hæfingar. Stúlkur vilji vinna úr vandamálum sínum til að öðlast betri líðan og meiri sjálfsvirðingu en piltar til að ná stjórn á aðstæðum og til að komast áfram í samfélaginu. Mikill kynjamunur á við- horfum unglinga til ofbeldis HANNES Hlífar Stefánsson fékk bronsverðlaun fyrir þriðja besta ár- angur á fyrsta borði á Evrópumóti skáklandsliða sem lauk á Spáni í gær. Íslenska karlasveitin varð í 21. sæti af 35 með 18 vinninga af 36 mögulegum en Lettland fékk jafn- marga vinninga. Kvennasveitin varð í 26. sæti af 32 með 7½ vinning af 18 mögulegum eins og sveit Skotlands. Karlasveitin var í 27. sæti að stigum fyrir mótið en kvennasveitin í neðsta sæti. Hollendingar urðu Evrópumeist- arar í opnum flokki með 24½ vinning en Frakkar urðu í 2. sæti með 23 vinninga og Þjóðverjar í því þriðja með 22 vinninga. Karlasveitin gerði jafntefli við Slóvakíu í níundu og síðustu umferð í gær. Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli við Lubomir Ftacnik á fyrsta borði og Jón Viktor Gunnars- son hélt einnig jöfnu á öðru borði gegn stórmeistaranum Igor Stohl. Bragi Þorfinnsson tapaði sinni skák á þriðja borði en Stefán Kristjánsson vann á fjórða borði. Í heild fékk Hannes Hlífar 6 vinninga af 9 á efsta borði, Jón Viktor fékk 4 vinninga á öðru borði, Bragi 3 vinninga á þriðja borði og Stefán 5 vinninga á fjórða borði. Í kvennaflokki urðu Frakkar meistarar með 12½ vinning af 18 mögulegum. Moldavía varð í öðru sæti með 12 vinninga eins og Eng- land, sem varð í þriðja sæti. Harpa nálægt alþjóð- legum áfanga Í síðustu umferð vann Ísland Alb- aníu 1½:½. Harpa Ingólfsdóttir vann sína skák en Aldís Rún Lárusdóttir gerði jafntefli. Harpa fékk samtals 4½ vinning af 9 en Aldís Rún 3 vinn- inga af 9. Harpa var hársbreidd frá því að ná alþjóðlegum áfanga kvenna og hefði gert það ef hún hefði sigrað sterkari mótherja í síðustu umferð. „Hæst ber frábæran árangur hjá Hannesi Hlífari og Hörpu,“ sagði Bragi Kristjánsson, fararstjóri og liðsstjóri, við Morgunblaðið að mótinu loknu, en Hannes Hlífar tap- aði aðeins einni skák. „Aðrir stóðu sig líka ágætlega og þess ber að geta að við höfðum engan varamann.“ Hann bætti við að Harpa hefði teflt við þrjá stórmeistara og fengið 1½ vinning, sem væri mjög gott. Bragi segir að ekki sé annað hægt en gleðjast yfir árangri Íslending- anna. Hannes Hlífar tryggði sér bronsverðlaun Hollendingar og Frakkar Evrópumeistarar skáklandsliða HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað tannlækni af kröfum ungrar konu, sem gekkst undir rótfyllingaraðgerð hjá honum þegar hún var 15 ára. Konan hélt því fram að mistök tann- læknisins hefðu valdið sýkingu við tannrætur, sem leitt hefðu til höfuð- verkja hennar næstu 7 ár á eftir, eða þar til hún gekkst undir nýja aðgerð hjá sérfræðingi í munn- og kjálka- skurðlækningum. Í málinu kom fram að matsmenn töldu ótvírætt sam- hengi á milli höfuðverkja konunnar og þeirrar staðreyndar að tannrótin hafði verið yfirfyllt. Aðgerðin á um- ræddri tönn hefði hins vegar verið gerð á réttum forsendum. Þótt til yf- irfyllingar ætti ekki að koma gæti hún orðið „í erfiðum tilvikum eða þá af slysni sem er annað en mistök.“ Tannlæknir ekki bóta- skyldur vegna höfuðverkja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.