Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 6

Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÖRN eru sjaldséðir gestir í Blóð- bankanum og því hafa ef til vill ein- hverjir orðið undrandi yfir krakka- stóðinu sem var þar statt í vikunni. Ekki var um óvenju unga blóðgjafa að ræða heldur voru krakkarnir glaðlegur og stoltur hópur við- urkenningahafa í samkeppni sem Blóðbankinn stóð fyrir í sumar á heimasíðu sinni. Þar var auglýst eftir nöfnum á aðalsöguhetjurnar í nýrri barnabók um blóðflokkafjölskylduna. Blóð- bankinn hélt upp á 48 ára afmæli sitt í vikunni og í tilefni afmælisins gaf bankinn út þessa nýju barna- bók. Bókin um blóðflokkafjölskyld- una, sem er eftir Ólaf Gunnar Guðnason, verður gefin blóðgjöfum sem geta lesið hana fyrir börn sín eða barnabörn. „Krakkarnir sýndu mikla hug- myndaauðgi og okkur bárust marg- ar góðar tillögur um nöfn á fjöl- skyldumeðlimi eins og Blóðgóð, Dreyri, Bjargar og Flaga sem voru meðal fjölda sniðugra nafna,“ segir Sigríður Ósk Lárusdóttir, deild- arstjóri hjá Blóðbankanum. „Þetta eru allt afskaplega fín nöfn og litlu blóðdropabörnin fengu nöfnin Dreyra, Blíða og Blóða.“ Að sögn Sigríðar er alltaf þörf á blóðgjöfum og því nauðsynlegt að vekja athygli á starfsemi Blóðbank- ans en jafnframt að barna- bókaútgáfan sé líklega nýstárlegri en hingað til hefur tíðkast. „Það er mikilvægt að alltaf sé til nóg blóð í Blóðbankanum svo hægt sé að hjálpa öllum sem þurfa að fá blóðgjöf. Á Íslandi má hver blóð- gjafi gefa þrisvar til fjórum sinnum á ári og til að við getum sinnt eft- irspurn þurfa sem flestir að gefa blóð en við þurfum á milli 60 og 70 blóðgjafa á hverjum degi. Allir krakkar ættu að hugsa um að gefa blóð þegar þeir verða eldri en til þess að gerast blóðgjafi verður maður að vera orðinn 18 ára,“ segir Sigríður og bendir á að árlega er safnað um 15.000 einingum blóðs frá 8–10.000 virkum blóðgjöfum og þennan hóp megi alltaf stækka. Á heimasíðu Blóðbankans blodbankinn.is er að finna sér- staka tengingu, Krakkahornið, þar sem eru alls konar skemmtileg verkefni og tilraunir fyrir framtíð- arviðskiptavini Blóðbankans að spreyta sig á. Verkefnin eru flest ætluð börnum á aldrinum 6–12 ára en yngstu börnunum gæti kannski fundist betra að fá smá aðstoð við að lesa og skilja tilraunirnar. Það þarf ekki að kunna neitt um blóðið eða blóðflokkana til að geta gert til- raunirnar, þótt það geti auðvitað hjálpað til. Í Krakkahorninu eru líka myndir af blóðflokkafjölskyld- unni og blóðflokkabörnunum sem hægt er að lita auk fróðleiksmola um blóð og blóðgjafir og starfsemi Blóðbankans. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Barnafjöld í Blóðbankanum VIÐHORF til kláms er frekar nei- kvætt þegar á heildina er litið sam- kvæmt niðurstöðum könnunar á við- horfi fólks til kláms sem háskóla- nemarnir Hildur Fjóla Antonsdóttir og Gunnhildur Kristjánsdóttir unnu í sumar með styrk m.a. frá Nýsköp- unarsjóði námsmanna. Í könnuninni kemur einnig fram að talsverður munur er á viðhorfi kynjanna til kláms þ.e. konur telja klám almennt neikvæðara en karlar. Konur virðast einnig taka afdráttarlausari afstöðu gegn klámi en karlar. Í sumum til- vikum er einnig munur á viðhorfi til kláms eftir aldri, segja þær Hildur og Gunnhildur, þ.e. yngra fólk tekur ekki eins skýra afstöðu gegn klámi og það eldra. Þær taka þó fram að yf- irgnæfandi meirihluti þátttakenda könnunarinnar hafi tekið afdráttar- lausa afstöðu gegn barnaklámi. Þær Hildur og Gunnhildur kynna niðurstöður verkefnis síns á afmæl- ismálþingi Rannsóknastofu í kvennafræðum sem haldið verður í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag. Hefst það kl. 15.30 og ber yfirskrift- ina Kynjamyndir í klámi. Niðurstöður könnunarinnar eru byggðar á svörum við spurningalist- um sem þær Hildur og Gunnhildur lögðu fyrir 345 manns í 17 fyrirtækj- um, stofnunum og félagasamtökum á höfuðborgarsvæðinu í sumar. Sem dæmi um skilgreiningu má vísa í greinargerð frumvarps að lög- um nr. 126/1996 en þar segir: „Klám er lýsing sem virkar stuðandi eða er á annan hátt til þess fallin að vera lít- illækkandi eða niðrandi. Þar með eru taldar kynferðislegar lýsingar með notkun barna, dýra, ofbeldis, þving- unar og kvalalosta.“ Viðhorf til kláms er frekar neikvætt TILLAGA að aðalskipulagi Reykja- víkur 2001 til 2024 var tekin til fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar í gærdag en samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg er í henni m.a. gert ráð fyrir þéttari byggð í Reykja- vík en er í núgildandi aðalskipulagi. Árni Þór Sigurðsson, borgar- fulltrúi R-listans, vék á borgarstjórn- arfundinum m.a. að framtíðarsýn og stefnumörkun skipulagstillögunnar. „Tillagan byggir á þeirri sýn að Reykjavík sé öflug og gróskumikil höfuðborg landsmanna allra og for- ystuafl á sviði þekkingar og alþjóða- væðingar,“ sagði hann m.a. Sagði hann einnig að með aðalskipulaginu væri stefnt að því að styðja nýjar sem og hefðbundnar atvinnugreinar, efla miðborgina, þétta byggðina og end- urskipuleggja eldri iðnaðarsvæði. Engin skýr stefna um Vatnsmýrina Inga Jóna Þórðardóttir, borgar- fulltrúi sjálfstæðismanna, gagnrýndi ýmsa þætti tillögunnar og þar á með- al um Vatnsmýrina. Sagði hún m.a. að með tillögunni væri ekki verið að marka skýra stefnu í nýtingu Vatns- mýrarinnar. „Niðurstaðan hér er eig- inlega einhvers konar stefna sem mætti kalla hvorki né stefnu,“ sagði hún m.a. Sagði hún einnig að „svo- kölluð atkvæðagreiðsla um framtíð Vatnsmýrarinnar,“ eins og hún orð- aði það hefði ekki skilað neinni nið- urstöðu. „Það sem liggur fyrir með Vatnsmýrina er það að R-listinn hef- ur staðfest flugvöll til framtíðar í Vatnsmýrinni. Það gerði hann með afgreiðslu síðasta aðalskipulags og endanlega með afgreiðslu deiliskipu- lags sem endurbygging flugvallarins byggðist á.“ Inga Jóna hélt því fram að aðal- skipulagstillagan gerði ráð fyrir því að „flugvöllurinn væri og að flugvöll- urinn væri ekki“ eins og hún orðaði það. Það gengi hins vegar ekki. Sagði hún að það ætti að bíða með að taka til afgreiðslu einstaka hluta Vatns- mýrarinnar. Þá taldi Inga Jóna að full ástæða væri til að fara varlega í að þétta byggðina og taka meira af grænum svæðum undir byggingu íbúða- eða atvinnuhúsnæðis, s.s Laugardalinn og Klambratún. Nokkrar umræður spunnust um skipulagningu Geldinganess en í máli fulltrúa Sjálfstæðisflokksins kom fram að það væri ákjósanlegt bygg- ingarland og ekki væri tekið mið af því í aðalskipulaginu. Sigrún Magn- úsdóttir, R-lista, sagðist furða sig á hugmyndum sjálfstæðismanna um Geldinganes. Byggð á nesinu væri ekki ákjósanleg, þar hefði aldrei nein byggð verið, líklega vegna þess hversu vindasamt þar væri. Reykjavík að dragast aftur úr öðrum bæjarfélögum Í máli Júlíusar Vífils Ingvarssonar, fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, kom fram að í áformum borgaryfirvalda um fjölgun atvinnu- og íbúðarhús- næðis fram til ársins 2024 væri mark- ið sett allt of lágt og ljóst að fjölgun starfa, íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í Reykjavík yrði langtum minni en í hinum bæjarfélögunum á höfuðborg- arsvæðinu. Þetta væri þróun sem hafist hefði fyrir nokkrum árum og ekki útlit fyr- ir annað en hún héldi áfram miðað við markmið meirihlutans eins og þau birtist í aðalskipulagi. Fjölgun íbúða og atvinnuhúsnæðis væri hvorki full- nægjandi fyrir fyrirtækin né fjöl- skyldur. Enda þótt tveir þriðju hlut- ar íbúa á höfuðborgarsvæðinu byggju í Reykjavík yrði fjölgun íbúða í Reykjavík á tímabilinu ekki nema 38% en væri áætluð 51% fyrir höf- uðborgarsvæðið í heild. Þetta þýddi að Reykjavík bæri mjög skarðan hlut frá borði og táknaði jafnframt minni tekjur fyrir borgina. Júlíus Vífill sagði framboð af lóðum fyrir atvinnu- og íbúðarhúsnæði í Reykjavík hafa verið of takmarkað og það yrði það áfram. R-listinn ætlaði sér greinilega að treysta á að takmarkað framboð þýddi hærra verð fyrir lóðir til borg- arinnar. Sala á lóðum í Grafarholti hefði verið undir þeim merkjum. Verðið hefði farið upp úr öllu valdi, sem aftur leiddi til hækkunar fast- eignaverðs almennt og hærri húsa- leigu. Þá minnti Júlíus á það að safnað hefði verið 35 þúsund undirskriftum á sínum tíma vegna fyrirhugaðra framkvæmda í Laugardalnum og þá hefði R-listinn neyðst til þess að hætta við þau áform. Nauðsynlegt væri að breyta áætlunum í aðalskipu- lagi um Laugardalinn í samræmi við óskir borgarbúa. Laugardalurinn nýttist langbest sem útivistar- og fjölskyldusvæði. Erum ekki í samkeppni við önnur bæjarfélög Árni Þór Sigurðsson, R-lista, sagði að í aðalskipulaginu birtist mjög skýr framtíðarsýn og þar væri verið að horfa til þess hver líkleg þróun byggðar yrði næstu 24 árin og sett fram fjögur skýr markmið með tilliti til þeirrar þróunar. Árni sagði að í reynd snerist gagnrýni sjálfstæðis- manna aðeins um örfá mál og hún væri því meira í orði en á borði. Árni sagði að ummæli Júlíusar Víf- ils um að Reykjavík væri að dragast aftur úr öðrum sveitarfélögum á höf- uðborgarsvæðinu fælu sér algeran misskilning á stefnu borgarinnar. Reykjavík væri ekki í samkeppni við hin bæjarfélögin um hlutfallslega fjölgun íbúa heldur snerist málið um að byggja upp gott borgarsamfélag. Ekki skipti öllu máli hvort fjölgun íbúa væri mest innan Reykjavíkur eða annarra bæjarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu. Sú samkeppnispóli- tík sem Júlíus Vífill héldi á lofti væri lítt uppbyggileg. Hart deilt um aðalskipulag Morgunblaðið/Þorkell Júlíus Vífill Ingvarsson, Inga Jóna Þórðardóttir, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson bera saman bækur sínar í gær. Fulltrúar R-listans segja að í aðalskipulagi sé sett fram skýr sýn á framtíð Reykjavík- ur. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja margt orka tvímælis og að aðalskipulag Vatnsmýrarinnar sé ekkert skipulag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.