Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 10

Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁFORM um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu voru til umræðu að tilhlutan Bryn- dísar Hlöðvers- dóttur, Samfylk- ingunni. Hún sagði tilefnið það að Morgunblaðið hefði greint frá því í fyrri viku að heimilislæknir auglýsti nú einkaþjónustu og byðist til að koma á heimili sjúklinga, óskuðu þeir þess. Þjónusta þessi væri alfarið fyrir utan sjúkratryggingakerfið, þjónustusvæðið væri höfuðborgar- svæðið allt og að sögn læknisins væri mikill áhugi meðal kollega hans að bjóða upp á þjónustu af þessu tagi. Bryndís benti á að í sama blaði hefði birst frétt í ágúst sl. undir yfirskrift- inni: Þörf á að fjölga heimilislæknum. Þar hefði verið greint frá því að lækn- ir nokkur hefði hug á að koma á fót einkarekinni heilsugæslustöð. Þús- undir manna væru án heimilislæknis í Reykjavík og fram kæmi að heilsu- gæslan í borginni væri í vanda, enda hefði hún illa getað sinnt hlutverki sínu vegna fjárskorts. Vantar 30–50 milljónir til heilsugæslunnar í Reykjavík Benti hún á að skv. upplýsingum frá Heilsugæslunni í Reykjavík vant- aði á bilinu 30–50 milljónir kr. í rekst- urinn til þess að geta haldið uppi óbreyttri þjónustu, en um 100 millj- ónir til að koma til móts við þá þörf sem væri til staðar. Stærsti vandinn væri hjá heilsugæslustöðvunum í Grafarvogi, Kópavogi og Breiðholti og ekki sæi fyrir þann vanda. „Aukinn áhugi á því að bjóða þjón- ustu án þátttöku almannatrygginga er án efa sprottinn af þessari óánægju og þeirri staðreynd að heilsugæslunni er ekki gert kleift að þjóna þörfinni,“ sagði Bryndís og spurði ráðherrann hvernig hann hygðist bregðast við þessum tíðindum. Vísaði hún til þess að margsinnis hefðu komið fram hug- myndir og tillögur úr röðum sjálf- stæðismanna um einkavæðingu í heil- brigðiskerfinu og forveri Jóns Krist- jánssonar í embætti, Ingibjörg Pálmadóttir, hefði jafnan lýst því yfir að Framsóknarflokkurinn hafnaði al- farið frekari einkavæðingu. Slíkt hefði í för með sér tvö kerfi; annað fyrir þá sem gætu greitt og vildu fá þjónustuna strax, en hitt fyrir hina sem yrðu að bíða. Tók Bryndís undir undir það sjónarmið fv. heilbrigðis- ráðherra en velti því fyrir sér um leið hvort vilji væri fyrir því að rjúfa þá þjóðarsátt sem gilt hefði um almanna- tryggingar hér á landi sem eina styrkustu og mikilvægustu stoð vel- ferðarkerfisins. Ýmsar samþykktir nýlegs landsfundar Sjálfstæðisflokks hefðu m.a. hnigið í þá átt. Jón Kristjánsson (B) sagðist telja að þegar heilsugæslan hér á landi væri borin saman við grunnþjónustu í öðrum löndum gætum við kinnroða- laust horft framan í nágranna okkar. Gilti þá einu hvort litið væri til veittr- ar þjónustu eða aðstæðna og al- mennra kjara starfsmanna. Viður- kenndi hann þó að uppbygging hefði gengið hægar en hann hefði kosið á höfuðborgar- svæðinu, en í þeim umræðum mætti þó ekki gleyma því að einkarekin vakt- þjónusta lækna hefði fært mjög út kvíarnar síð- ustu misserin. Umfang hennar hefði aukist um 30% frá árinu 1999 og þetta þyrfti að hafa í huga þegar rætt væri um bið í heilsugæslunni. „Almennt séð er það skoðun mín, og raunar forvera míns líka, að heilsu- gæslan eigi að vera sú grunnþjónusta sem fólk leitar til fyrst þurfi það á lækni að halda,“ sagði Jón og benti á að á undanförnum sex árum hefði ver- ið reynt að ýta undir þetta með lágum komugjöldum og hækka þau ekki til jafns við önnur gjöld. „Mér hugnast það ekki ef heimilis- læknar eru farnir að bjóða upp á vitj- anir í heimahús fram hjá þeirri ágætu grunnþjónustu sem við rekum sam- eiginlega og hvet til þess að menn nýti sér þá þjónustu,“ sagði Jón og kvaðst myndu láta kanna hvort sótt hefði verið um leyfi fyrir þessari starfsemi og hvort landlækni væri kunnugt um hana. Einn heimilislæknir ógnar ekki grunnþjónustu heilsugæslunnar „Grunnþjónusta heilsugæslunnar er sterkari en svo í vitund fólks og vilji til að viðhalda því kerfi er meiri en svo að einn heimilislæknir hér í Reykjavík ógni því fyrirkomulagi,“ sagði ráðherrann ennfremur og þetta einstaka dæmi myndi því ekki leiða til neinnar kerfisbreytingar. Um skort á heilsugæslulæknum í höfuðborginni sagði Jón Kristjánsson að æskilegt væri að fjölga námsstöð- um í heilsugæslunni og fjölga heilsu- gæslulæknum. Bað hann menn þó fara varlega í að benda á kjör heilsu- gæslulækna sem ástæðu vandans, því launaúttekt Ríkisendurskoðunar á kjörum lækna benti eindregið til þess að kjör heilsugæslulækna væru að meðaltali nokkuð góð. Gat hann þess að sú könnun hefði ekki hlotið þá at- hygli sem bæri. Ítrekaði Jón það viðhorf sitt, sem hann hefði marglýst úr ræðustól á Al- þingi, að aðgangur að heilbrigðisþjón- ustunni ætti að vera almennur og ekki væri rétt að hafa tvö kerfi hér á landi. Þær skoðanir hefðu ekkert breyst. „Einkavæðingarkrumlur íhaldsins“ Skiptar skoðanir á framtíðarfyrir- komulagi heilbrigðisþjónustunnar komu fram í máli þeirra þingmanna sem tóku þátt í umræðunni. Þannig hafnaði Jón Bjarnason (Vg) alfarið tvöföldu heilbrigðiskerfi og sagði réttinn til þjónustu eiga að vera alfar- ið óháðan fjárhag og búsetu. Gísli S. Einarsson (S) tók enn dýpra í árinni og sagði tíma til kominn að losa heil- brigðisþjónustuna úr „einkavæðing- arkrumlum íhaldsins,“ eins og hann orðaði það. Sigríður Jóhannesdóttir (S) taldi ljóst að fjárveitingavaldið undir stjórn Sjálfstæðisflokksins reyndi að svelta málaflokkinn í því skyni að kalla fram umræðu um aukinn einka- rekstur. Sagði hún ljóst að öryrkjar og einstæðar mæður yrðu vart á lista yfir viðskiptavini hinnar nýju einka- læknisþjónustu. Það yrðu fremur bet- ur megandi einstaklingar á sjúkra- beði. Sagði hún verið að opna á tvöfalt kerfi með því að leyfa slíka þjónustu – kerfi sem byði upp á mismunun. Ásta Möller (D) sagði hins vegar að stjórnarandstaðan talaði ávallt um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu með neikvæðum formerkjum. Þó væri ljóst að sá þáttur væri nú þegar stór í kerfinu og næmu fjárlög til einka- reksturs í fjárlagafrumvarpi næsta árs um 30 milljörðum kr., eða um 22% af heildarfjármagni í þennan mála- flokk. Benti hún á að fjölmargar stofnanir á borð við Hrafnistu, SÁÁ, Skjól, Reykjalund og margar fleiri væru reknar af einkaaðilum. Auk þess væri t.d. heilsugæslan í Lágmúla rekin af einkaaðilum. Rakti hún fleiri dæmi um slíkan einkarekstur sem ætti það sameiginlegt að viðkomandi aðilar væru þekktir að áreiðanlegri og góðri heilbrigðisþjónustu. „Þetta er einkarekin heilbrigðis- þjónusta en að mestu greidd af op- inberu fé. Þetta er grýlan sem stjórn- arandstaðan varar við,“ sagði Ásta ennfremur. „Sjálfstæðismenn telja að heil- brigðisþjónustan sé, líkt og mennta- kerfið, samfélagsleg þjónusta sem eigi að mestu að vera greidd úr sam- eiginlegum sjóðum landsmanna. Sjálfstæðismenn vilja að ríkið skil- greini þá þjónustu sem veita á, greiði fyrir hana að mestu og hafi með hönd- um visst gæðaeftirlit. Stjórnvöld eiga hins vegar að semja við einkaaðila, fé- lagasamtök, sveitarfélög eða stofnun sem rekin er af ríkinu um þjón- ustuna,“ sagði Ásta Möller og gagn- rýndi að enn og aftur væri gerð til- raun til að gera einkarekstur tortryggilegan. Það væri rangt að hugmyndir sjálfstæðismanna leiddu til mismununar sjúklinga, að hinir efnameiri kæmust fram fyrir og gætu keypt sér betri þjónustu. Rangt væri að tala um tvöfalt heilbrigðiskerfi. Þvert á móti leiddu hugmyndir sjálf- stæðismanna til betri og skilvirkari þjónustu við sjúklinga og betri nýt- ingar fjármagns. 7–800 manns bíða eftir mjaðmaaðgerðum Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, kvaðst þykjast vera í stjórnarandstöðu en bað Ástu Möller þó ekki gera sér upp skoðanir eða afstöðu í þessu máli. Sagði hann okkur standa frammi fyrir risavöxnu vandamáli sem stjórnvöld hefðu ekki náð tökum á. Benti hann m.a. á að í starfsemi Tryggingastofnunar ríkis- ins væri víða pottur brotinn. Gat hann þess að sífellt lengdust biðlistar, 7–800 manns væru t.d. á bið- lista eftir mjaðmaaðgerðum og hann hefði séð fólk þjást af þessum sökum. „Ég spyr: Ef ég yrði nú gripinn þessari veiki og næði ekki að ganga upp á Valhúsahæð daglega, er ég þá skuldbundinn til þess að bíða í tvö ár eftir þessari viðgerð ef ég get kostað hana sjálfur eða flúið í önnur lönd til viðgerðar?“ spurði Sverrir og sagði að þetta ættu menn að hafa í huga í þessu sambandi. Hann mælti ekki endilega með tveimur kerfum, en við megum til með að hliðra til svo betur gangi en nú er. Ekki muni af veita. Ísólfur Gylfi Pálmason (B) sagði ís- lenska heilbrigðisþjónustu með því besta sem þekktist. Benti hann á að í Bandaríkjunum hefði mest verið einkavætt í heilbrigðisþjónustu og þar væri hún jafnframt dýrust. Hún væri skilvirkari en annars staðar þar í landi fyrir 40% þjóðarinnar, en 25– 30% íbúa þar í landi fengju litla sem enga heilbrigðisþjónustu og gætu dá- ið drottni sínum í friði. „Þetta er hin frjálsa samkeppni í heilbrigðisþjón- ustu,“ sagði Ísólfur og hafnaði alfarið slíku, því fólk veldi sér ekki sjúk- dóma. Umræða á Alþingi um áform um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu Ráðherra hugn- ast ekki einka- þjónusta lækna Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra ætlar að láta kanna hvort leyfi séu fyrir einka- þjónustu heimilislæknis á höfuðborgar- svæðinu og hvetur almenning til að nýta sér fremur þjónustu heilsugæslunnar. Hann vill að landlæknir kanni málið. Morgunblaðið/Þorkell Þingmennirnir eiga það til að kíma yfir kersknum texta á þingi. Guð- mundur Hallvarðsson gægist hér yfir öxlina á Jóni Bjarnasyni. bingi@mbl.is GUÐJÓN A. Kristjánsson, Frjáls- lynda flokknum, mælti í gær fyrir frumvarpi á Alþingi um breytingar á lögum um kirkjuskipan ríkisins. Er þar gert ráð fyrir fullum aðskilnaði ríkis og kirkju. Frumvarpið felur í sér að öllum trúfélögum skuli gert jafnhátt undir höfði og í samræmi við það skuli stefnt að aðskilnaði ríkis og hinnar evangelisku lútersku kirkju. Þar sem frumvarpið miðar að því að breyta kirkjuskipan ríkisins ber skv. stjórnarskránni að leggja málið, verði frumvarpið samþykkt, undir þjóðaratkvæðagreiðslu. „Aðskilnað- ur ríkis og kirkju er flókið verk og margt sem þarf að huga að og því er ekki gert ráð fyrir því í frumvarpinu að aðskilnaðurinn sé að fullu yfir- staðinn fyrr en að fimm árum liðnum frá gildistöku laganna að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2002,“ sagði Guðjón Arnar, en meðflutn- ingsmenn hans eru Sverrir Her- mannsson (F) og Árni Steinar Jó- hannsson (Vg). „Íslenskir söfnuðir, sem standa utan þjóðkirkjunnar, eru margir og þeim hefur fjölgað ört á undanförn- um árum,“ sagði Guðjón ennfremur og gat þess að sífellt fleira fólk flytt- ist hingað frá öðrum þjóðlöndum, fólk sem iðkar ólík trúarbrögð. Því fólki og þeim trúarbrögðum beri okkur skv. stjórnarskránni að sýna fyllstu virðingu. Mismunun gagnvart þeim sé engan veginn sæmandi. Með núverandi skipan mála megi segja að öðrum trúarhópum en þjóðkirkjunni sé sýnt óréttlæti sem ekki samrým- ist eiginlegu trúfrelsi. Aðskilnaður ríkis og kirkju KJÖRSEÐLAR hafa verið sendir til þeirra kúabænda og mjólkurframleiðenda sem mega taka þátt í kosningu um til- raunainnflutning á fósturvísum úr norskum kúm af svonefndu NRF-kyni. Reiknað er með að úrslit kosninga um málið liggi fyrir um næstu mánaðamót. Rétt til þátttöku í kosningunni hafa þeir sem standa að mjólk- urframleiðslu innan greiðslu- marks og eru félagar í búnaðar- sambandi og/eða félagi kúa- bænda. Alls hafa verið sendir út 1.639 kjörseðlar. Deildar mein- ingar eru um þennan innflutn- ing en með honum er ætlunin að gera samanburð á NRF-kúm og íslenskum mjólkurkúm. Ásthildur Skjaldardóttir, kúabóndi á Bakka á Kjalarnesi, er í stjórn Búkollu, samtaka áhugafólks um íslensku mjólk- urkúna, sem stofnuð voru fyrr á þessu ári. Ásthildur segir í sam- tali við Morgunblaðið að fé- lagsmenn Búkollu telji fjárhags- legan ávinning af innflutningn- um ekki vera það mikinn að verkefnið borgi sig. „Við höfum til langs tíma búið við offramleiðslu á mjólk og bændur frekar hvattir til að láta kýrnar ekki mjólka eins og þær gætu. Menn hafa því verið með fleiri kýr og kostað minna til framleiðslunnar. Auðvitað er ekki hægt að alhæfa um þetta, misjafnt er milli kúabænda hvað hentar hverjum og einum. En framför íslenska kúastofnsins hefur í raun verið ótrúleg. Þegar ég byrjaði búskap fyrir um 17 árum þótti gott ef hver kýr mjólkaði um 4 þúsund lítrum á ári en í dag eru fjölmörg bú komin með yfir 5 þúsund lítra framleiðslu á hverja kú og sum með 7 þúsund lítra. Framfarirn- ar sýna að íslenska mjólkurkýr- in á meira inni en mælingar segja til um. Við ættum frekar að verja þeim 185–190 milljón- um, sem eiga að fara í þessa til- raun, til rannsókna á íslensku kúnni. Það myndi skila sér strax til baka,“ sagði Ásthildur. Samanburður skapar góðan grunn Bændasamtök Íslands og Landssamband kúabænda leggja til að innflutningurinn verði samþykktur og málið unn- ið á faglegan hátt með langtíma- hagsmuni kúabænda í huga. Snorri Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúabænda, segir mjólkurfram- leiðendur hafa væntanlegan ávinning af því að kynbæta kýrnar en til þess þurfi að gera samanburðarrannsóknir. „Þetta skapar góðan grunn fyrir okkur varðandi samanburð á íslensku kúakyni við önnur kyn og hvaða framleiðslutekjur við erum í rauninni með í hönd- unum. Við teljum skynsamlegra að gera þessa tilraun á sameig- inlegum grunni í ljósi þess að ákveðnir aðilar, Nautgriparækt- arfélag Íslands, NRFÍ, vilja flytja fósturvísa beint inn í land- ið án nokkurra tilrauna og hafa þetta í einkafélagsformi. Leyfi til innflutningsins liggur fyrir af hálfu landbúnaðarráðherra og verði málið fellt í kosningu er líklegt að NRFÍ sæki um að standa eitt og sér að innflutn- ingnum ef félagið uppfyllir öll skilyrði,“ segir Snorri. Innflutningur á fósturvísum úr norskum kúm Kosning hafin meðal kúabænda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.