Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ljósbrot við Eyjar
NÝVERIÐ vakti athygli ljósmynd-
ara Mbl. í Vestmannaeyjum, Sig-
urgeirs Jónassonar, þetta ein-
kennilega ljósbrot sunnan við Hænu
á vesturhimni að morgni dags, í
gagnstæðri átt við sólaruppkomu.
BJÖRN Líndal, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Landsbankans,
segir ákvarðanir um að draga úr
þjónustu bankans á Raufarhöfn og
Kópaskeri byggjast m.a. á þeirri bú-
seturöskun sem orðið hefur á við-
skiptasvæði þessara útibúa. Útibú
Landsbankans á Raufarhöfn og
Kópaskeri hafa verið opin hálfan dag-
inn alla virka daga en bankinn hefur
ákveðið að fækka afgreiðsludögum í
tvo á viku.
Björn segir þessar ákvarðanir
jafnframt byggjast á mati bankans
um raunverulega þörf fyrir útibú og
þjónustu á þessum stöðum, að teknu
tilliti til annarra samskiptaleiða við
bankann. „Þá má ekki gleyma því,
eins og við höfum margoft sagt, að
samskipti banka við viðskiptavini
sína séu að breytast. Útibúin eru
vissulega mikilvæg leið til að nálgast
sinn viðskiptabanka og mjög mikil-
væg undir vissum kringumstæðum,
en í öðru tilliti hafa nýjar leiðir leyst
útibúin af hólmi og munu gera það
enn frekar á næstu árum. Netið er að
ryðja sér mjög hratt til rúms og við
höfum reyndar boðið sveitarstjórn-
um bæði á Raufarhöfn og Kópaskeri
að setja upp, þeim að kostnaðarlausu,
búnað til að allir íbúar geti nálgast
þjónustu bankans á Netinu. Við höf-
um líka boðist til að senda fólk til þess
að kynna þessa þjónustu fyrir við-
skiptavinum okkar enn frekar.“
Engar ákvarðanir verið
teknar um lokun útibúanna
Þá segir Björn að bankinn bjóði
upp á símaþjónustu frá átta á morgn-
ana til sjö á kvöldin og þar sé hægt að
framkvæma ýmsar aðgerðir, auk
þess að fá upplýsingar. Einnig bendir
Björn á að bankinn gefi út bæði deb-
etkort og kreditkort og mjög víða séu
posar til að taka við greiðslum í gegn-
um slík kort.
„Þannig að það má telja upp mjög
margar leiðir sem við höfum þegar í
boði gagnvart okkar viðskiptavinum.
En útibúin gegna mikilvægu hlut-
verki engu að síður og þess vegna
höfum við ákveðið að stíga varlega til
jarðar og hafa þau opin tvo daga í
viku og þannig held ég að við séum að
koma eins mikið og kostur er til móts
við þarfir viðskiptamanna okkar í
þessum byggðarlögum.“
Björn segir að ekki hafi verið tekin
nein ákvörðun um að leggja útbúin á
Raufarhöfn og Kópaskeri niður en
þetta sé niðurstaða sem bankinn hafi
komist að á þessum tímapunkti.
Samskipti banka
við viðskiptavini
að breytast
Landsbankinn segir búseturöskun
valda minnkandi þjónustu
BJÖRN Hermannsson, sem sagt var upp
störfum framkvæmdastjóra Sólheima í
fyrradag, segir enga samstarfsörðugleika
hafa verið til staðar en framkvæmdastjórn
Sólheima ákvað að leita eftir því við Björn
að hann léti af störfum vegna örðugleika í
samstarfi. Björn segist hins vegar hafa gert
ákveðnar athugasemdir við stjórnsýslu og
umsýslu á Sólheimum sem telja megi ólög-
mæta og snerti þau störf sem Pétur Svein-
bjarnarson stjórnarformaður gegni á Sól-
heimum.
„Ég vissi ekki annað en ég skilaðu þarna
góðri vinnu en það var ýmislegt sem mér
fannst ekki vera í lagi, bæði varðandi um-
sýslu og stjórnsýslu, og gerði athugasemdir
við það. Það sneri meðal annars að því að
standa við gefin loforð til starfsmanna og að
gerð úttektar á högum fatlaða fólksins og
þar komu peningar inn í spilið. Þriðja atriðið
var ákveðið stjórnsýsluvandamál sem var
þarna innandyra, þ.e.a.s. að stjórnarformað-
ur Sjálfseignarstofnunar Sólheima er jafn-
framt framkvæmdastjóri Styrktarsjóðsins,
en það tel ég vera ólöglegt. Ég lagði aðeins
til að þessu yrði breytt og það yrði fenginn
nýr maður, annaðhvort til að stýra sjóðnum
eða vera formaður félagsins.“
Einhliða ákvörðun um að
hækka húsaleigu hjá fötluðum
Rekstur Sólheima er mjög flókinn, að
sögn Björns, en þar búa nú um 80 manns og
er um helmingur þeirra fatlaður. Sjálfseign-
arstofnun Sólheima sér um fötluðu einstak-
lingana og fær til þess 140 milljónir á ári úr
ríkissjóði. Þá er starfandi Styrktarsjóður
Sólheima og segir Björn að búið sé að færa
allar eignir sjálfseignarstofnunarinnar yfir á
Styrktarsjóðinn. Pétur Sveinbjarnarson er
bæði stjórnarformaður sjálfseignarstofnun-
arinnar og Styrktarsjóðsins og jafnframt
framkvæmdastjóri Styrktarsjóðsins. Björn
segir að slíkt fyrirkomulag sé ólöglegt því
lög um sjálfseignarstofnanir kveði skýrt á
um að framkvæmdastjóri megi ekki jafn-
framt vera formaður í stjórn.
„Honum varð mjög illa við þegar ég benti
honum á að hann yrði annaðhvort að fá stað-
gengil til að gegna formennskunni fyrir sig
eða þá að láta af framkvæmdastjórn. Þarna
er velta upp á 100 milljónir á ári og alls
staðar verið að byggja hús og hann er þar
potturinn og pannan í öllu, bæði sem for-
maður og framkvæmdastjóri,“ segir Björn.
Björn segir jafnframt að stjórnarformað-
urinn hafi tekið einhliða ákvörðun um að
hækka húsaleigu hjá fötluðu einstaklingun-
um, sem greiði jafnframt rafmagn, bílaafnot
og fleira af 80 þúsund króna örorkubótum á
mánuði. „Það var ein af ábendingunum sem
stjórnarformaður fékk að þetta væri
kannski komið út í öfgar. Sólheimar fá 140
millljónir til rekstursins og það er orðið ansi
slæmt þegar Sólheimar eru farnir að taka 60
til 70 þúsund á mánuði af 80 þúsund króna
tekjum öryrkja ofan á þessar 140 milljónir,“
segir Björn.
Fékk ekki tækifæri
til að tala sínu máli
Björn segist ekki hafa haft hugmynd um
annað en allt væri í góðu lagi þegar stjórnin
hafi skyndilega ákveðið að gefa honum þrjá
valkosti; að segja upp sjálfur, gera starfs-
lokasamning eða verða sagt upp störfum.
Ástæðan sem stjórnin gaf upp var sam-
starfsörðugleikar við Björn en hann segir
slíkt vera algjörlega úr lausu lofti gripið.
„Ef hægt er að tala um samstarfsörðugleika
má nefna að stór hluti af mínum vinnutíma
fór í að ganga inn í samstarfsörðugleika sem
voru á milli stjórnarformanns og starfs-
manna, verktaka, nágranna og sveitar-
stjórnar og svo get ég lengi talið. Að tala
um samskiptaörðugleika hjá mér við annað
fólk er eins og að kasta steini úr glerhúsi
hjá stjórnarformanninum,“ segir Björn.
Að sögn Björns taldi hann sig ekki hafa
annan kost en að láta segja sér upp og
stjórnin hafi ákveðið að gera það strax og
óska eftir því að hann léti þegar af störfum.
Björn segist ósáttur við þau vinnubrögð
stjórnarinnar að hafa ekki gefið honum
tækifæri til að tala sínu máli en hafi ein-
göngu farið að ráðum stjórnarformanns.
„Þetta er eins og dómari í máli sem lætur
bara annan aðilann tala og dæmir síðan
þann aðila sekan sem fær ekki að tala,“ seg-
ir Björn.
Framkvæmdastjóri Sólheima
ósáttur við uppsögn úr starfi
Engir samstarfsörð-
ugleikar til staðar
FRAMKVÆMDASTJÓRN Sólheima í Gríms-
nesi kom saman til fundar á mánudag þar sem
til umfjöllunar voru m.a. málefni framkvæmda-
stjórans, Björns Hermannssonar, sem gegnt
hafði starfinu í þrjá mánuði. Að sögn sr. Val-
geirs Ástráðssonar, sem á sæti í framkvæmda-
stjórninni og gegndi þar formennsku um tíma,
höfðu ítrekaðar kvartanir borist stjórninni um
störf Björns. Valgeir segir við Morgunblaðið að
það hafi verið samróma niðurstaða stjórnarinn-
ar að starfið hentaði Birni ekki. Stjórnin lýsi
jafnframt yfir furðu á yfirlýsingum Björns í
fjölmiðlum og kveður fullt traust borið til starfa
Péturs Sveinbjarnarsonar sem stjórnarfor-
manns Sólheima til tuttugu ára.
„Hafi það verið einhverjum vafa undirorpið
þá er ljóst núna, eftir viðbrögð Björns í ljós-
vakamiðlunum, að þetta var rétt niðurstaða hjá
stjórninni. Framkvæmdastjórnin ber ábyrgð á
störfum framkvæmdastjórans og hann starfar í
umboði hennar. Þess vegna var það skylda
stjórnar að koma að málinu. Eftir fundinn var
formanni og varaformanni falið að fylgja eftir
samþykkt stjórnarinnar og bjóða Birni sam-
komulag um starfslok, ella yrði að grípa til þess
úrræðis að segja honum frá starfi. Björn brást
þannig við að hann gekk út af skrifstofu sinni,
fjölfaldaði uppsagnarbréfið og gekk síðan á
milli vinnustaða Sólheima. Síðan var málinu
komið á framfæri við Ríkisútvarpið áður en
okkur gafst ráðrúm til að ræða við helstu
starfsmenn og íbúa á staðnum. Þetta eru ekki
traustvekjandi vinnubrögð gagnvart viðkvæm-
um íbúum heimilisins,“ segir Valgeir.
Engin loforð verið svikin
Hann segir það miður að Björn, eftir að hafa
verið sagt upp eftir þrjá mánuði í starfi, skuli
setjast í dómarasæti og kveða upp dóma um
starfsemi Sólheima.
„Húsaleiga fatlaðra íbúa Sólheima, sem
Björn dylgjar með í ummælum sínum, er alls
ekki hærri en gerist um húsaleigu á félagslegu
húsnæði við svipaðar aðstæður. Þegar hann
nefnir vanefndir við loforð framkvæmdastjórn-
ar til starfsmanna, þá veit enginn hvað hann er
að tala um. Framkvæmdastjórnin hefur ekki
svikið nein loforð við starfsfólk Sólheima og
engin slík erindi hafa borist,“ segir Valgeir.
Að sögn Valgeirs hafði Björn ekki sent nein
erindi til framkvæmdastjórnar og umræður
aldrei farið fram um þau atriði sem hann hafði
gagnrýnt opinberlega eftir uppsögnina. Eng-
inn ágreiningur hafi verið til staðar og forsend-
ur uppsagnarinnar hafi verið allt aðrar.
„Björn reynir að gera starf Styrktarsjóðs
Sólheima tortryggilegt. Sjóðurinn hefur verið
aflgjafi allra helstu framkvæmda á Sólheimum
síðastliðin 15 ár. Samkvæmt skipulagsskrá
sjóðsins ber formanni framkvæmdastjórnar
Sólheima að gegna formennsku í sjóðsstjórn-
inni. Núverandi formaður ræður þar engu um.
Styrktarsjóðurinn hefur ekki fasta starfsmenn
en formaðurinn hefur tilsjón með starfi sjóðs-
ins milli stjórnarfunda. Björn fullyrðir í fjöl-
miðlum að Pétur Sveinbjarnarson megi ekki
vera formaður og annast störf fyrir sjóðinn
milli funda. Það er byggt á algjörum misskiln-
ingi,“ segir Valgeir og vísar til þess að sjóð-
urinn starfi á grundvelli laga um sjóði og stofn-
anir sem starfa samkvæmt staðfestri
skipulagsskrá. Sjóðurinn starfi ekki á grund-
velli laga um sjálfseignarstofnanir, líkt og
Björn hafi haldið fram.
„Seta Péturs sem stjórnarformanns og um-
sjónarmanns er bæði eðlileg og í samræmi við
lög. Það er furðulegt og fráleitt að fráfarandi
framkvæmdastjóri skuli beina reiði sinni sér-
staklega að Pétri Sveinbjarnarsyni. Það er leitt
þegar á að fara að persónugera eitthvað sem
stendur á miklu víðari grunni. Pétur var bara
að sinna skyldu sinni sem stjórnarformaður
þegar hann var að útfæra samþykkt fram-
kvæmdastjórnar. Pétur hefur verið stjórnar-
formaður Sólheima í ein 20 ár og hefur unnið
ómetanlegt starf í þágu heimilisins. Á þeim
tíma hefur verið byggt upp blómlegt byggða-
hverfi þar sem bæði fötluðum og ófötluðum
hefur verið búin góð aðstaða til búsetu og
vinnu.
Framkvæmdastjórn Sólheima ber fullt
traust til formannsins og lýsir undrun á þeim
aðdróttunum sem fyrrverandi framkvæmda-
stjóri hefur í frammi. Þær dæma sig sjálfar og
staðfesta enn frekar réttmæti þess að Björn
Hermannsson var ekki rétti maðurinn til að
sinna því viðkvæma og vandasama starfi sem
starf framkvæmdastjóra Sólheima er. Á þeim
grundvelli var honum sagt upp,“ segir sr. Val-
geir Ástráðsson.
Stjórnarmaður í framkvæmdastjórn Sólheima
um uppsögn Björns Hermannssonar
Ekki rétti maðurinn
til að sinna starfinu
LÖGREGLAN í Reykjavík hand-
tók í fyrrinótt tvo menn sem grun-
aðir eru um innbrot í apótek í Þor-
lákshöfn. Mennirnir voru stöðvaðir
í bifreið sinni skammt frá borgar-
mörkunum en höfðu áður kastað
poka með lyfjaglösum út um
glugga á bílnum.
Tilkynning um innbrotið barst
til lögreglunnar á Selfossi kl. rúm-
lega þrjú og gat íbúi í grennd við
apótekið gefið lýsingu á bifreið
mannanna. Lögreglan hóf að
grennslast fyrir um bifreiðina en
bað jafnframt lögregluna í Reykja-
vík um að fylgjast með ferðum
hennar. Um hálftíma síðar var bíll
mannanna stöðvaður við Rauða-
vatn. Lögreglan á Selfossi yfir-
heyrði mennina í gær.
Brotist var inn í billjardstofu við
Lágmúla í Reykjavík um kl. þrjú í
fyrrinótt. Innbrotsþjófarnir
reyndu árangurslaust að spenna
upp peningakassa en voru á bak og
burt þegar öryggisvörður og lög-
regla komu á staðinn.
Hentu poka með lyfjaglösum