Morgunblaðið - 16.11.2001, Qupperneq 16
AKUREYRI
16 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sveinn–meistari
Upplýsingar gefur Ívar
í síma 462 3022
Hafnarstræti 87-89, Akureyri
Hársnyrtifólk óskast
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
kl. 3 á nóttunni og er unnið til kl. 15 á
daginn. Í landvinnslunni á Dalvík
starfa um 130 manns.
Afköstin aukist um 70%
Þennan góða árangur í rækju-
vinnslunni á Akureyri má rekja til
gagngerra breytinga í verksmiðj-
unni á síðasta ári en þá var fram-
leiðlsulínan endurnýjuð nánast frá
grunni. Í kjölfarið jukust afköstin
um 70% án þess að fjölga þyrfti
starfsfólki. Um 90 manns starfa í
verksmiðjunni á Akureyri og þar af
rúmlega helmingur við rækjuvinnsl-
una.
Gestur Geirsson framleiðslustjóri
á Akureyri sagði að nokkur lægð hafi
verið í rækjuvinnslu á síðasta ári en
nú vonist menn eftir betri tíð.
Rækjuafli á Íslandsmiðum hafi verið
mjög lélegur undanfarin misseri og
því hafi um tveir þriðju hlutar hrá-
efnisins komið annars staðar frá,
bæði frá dótturfélögum Samherja í
Skotlandi og Þýskalandi en einnig
hefur félagið keypt hráefni frá Nor-
egi og Kanada. Þá hafi afurðaverð
verið með því lægsta sem þekkist en
gengisþróun íslensku krónunnar
hafi komið félaginu til góða.
Rækjuveiði á Íslands-
miðum að glæðast
Gestur sagðist horfa með nokkurri
bjartsýni til næsta árs, þar sem
rækjuveiði á Íslandsmiðum hafi ver-
ið að glæðast. Einnig vonast Gestur
eftir hækkandi afurðaverði í kjölfar
minni framleiðslu bæði í Noregi og
Kanada.
Frystihús Samherja á Dalvík er
sérhæft fyrir vinnslu á bolfiski og
miðast vinnslan við að skapa sem
mest verðmæti úr hráefninu. Fisk-
urinn er roð- og beinhreinsaður og
skorinn í bita. Hluti afurðanna fer á
smásölumarkað í litlum pakkningum
og hluti á svokallaðan veitingahúsa-
markað erlendis. Hráefnið kemur
frá fjórum ísfiskskipum sem Sam-
herji gerir út en þau sjá einnig um að
afla hráefnis fyrir frystihús félagsins
á Stöðvarfirði, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur og Síldarvinnsluna í Nes-
kaupstað.
RÆKJUVINNSLA Samherja á Ak-
ureyri hefur gengið mjög vel á árinu.
Í liðinni viku höfðu verið framleidd
2.900 tonn frá áramótum, sem er
jafnmikið og félagið hefur áður fram-
leitt á heilu ári. Ljóst er að fram-
leiðslan á þessu ári verður vel yfir
3.000 tonn, sem er athyglisvert í ljósi
þess að félagið rekur nú eina rækju-
verksmiðju en þegar gamla metið
var sett, árið 1995, voru verksmiðj-
urnar tvær.
Vinnsla í frystihúsi Samherja á
Dalvík hefur einnig gengið mjög vel
á árinu. Á dögunum var þar fram-
leiðslumet ársins tvíbætt, fyrst þeg-
ar unnið var úr 37,4 tonnum af hrá-
efni og svo daginn eftir þegar unnin
voru 37,5 tonn. Þetta kemur fram á
heimasíðu Samherja.
Þar segir Gunnar Aðalbjörnsson
frystihússtjóri á Dalvík að þennan
góða árangur megi þakka því að hrá-
efnið sé gott og eins sé um að ræða
afrakstur átaks sem miði að auknum
afköstum í frystihúsinu. Allt þetta ár
hefur verið unnið á vöktum, 12 tíma á
sólarhring í stað 8 áður. Vinna hefst
Rífandi gangur í landvinnslu Samherja
Framleiðslumet bæði
á Dalvík og Akureyri
MARGAR nýbakaðar mæður á
Akureyri þáðu boð Leikfélags
Akureyrar fyrir skömmu og
fengu miða á „Blessað barna-
lán“ sem félagið sýnir nú við
gríðarlegar vinsældir. Það
eina sem félagið bað um í stað-
inn fyrir leikhúsmiðann var að
nýbakaðar mæður kæmu með
börnin í leikhúsið þegar þær
fengu miðana afhenta.
Með þessu vildi Leikfélag
Akureyrar gefa ungum mæðr-
um kost á því að komast í leik-
húsið á sama tíma og barnalán
Akureyringa var fest á filmu.
Fjöldi ungra mæðra mætti á
staðinn og fá þær því að sjá
sýningu Leikfélagsins á „Bless-
uðu barnaláni“ á næstunni.
Með
börnin í
leikhús
BJÖRN Ingimarsson hagfræðingur
hefur verið ráðinn nýr sveitarstjóri á
Þórshöfn í stað Magnúsar Más Þor-
valdssonar sem látið hefur af störf-
um.
Björn hefur víðtæka reynslu sem
ráðgjafi og stjórnandi fyrirtækja og
stofnana bæði hér á landi og erlend-
is. Einkum hefur hann starfað fyrir
fyrirtæki á sviði sjávarútvegs, versl-
unar og þjónustu auk sveitarfélaga.
Björn hefur setið í stjórnum margra
fyrirtækja og stofnana. Síðastliðin
tvö ár hefur Björn starfað fyrst sem
fjármálastjóri hjá Hraðfrystistöð
Þórshafnar hf. og síðan sem starf-
andi meðeigandi hjá Ráðgjafarþjón-
ustunni ehf. í Hafnarfirði.
Björn er kvæntur Sigrúnu Jónu
Óskarsdóttur förðunarfræðingi og
eiga þau 5 börn.
Sigurður Ragnar Kristinsson,
oddviti Þórshafnarhrepps, segir að
trúnaðarbrestur hafi komið upp í
einu tilteknu máli á milli fráfarandi
sveitarstjóra og sveitarstjórnar.
Nýr sveitarstjóri
á Þórshöfn
KAUPFÉLAG Eyfirðinga efnir
til opins fundar um málefni fé-
lagsins og framtíð samvinnu-
félaga á morgun, laugardaginn
17. nóvember, frá kl. 10 til 14.
Fundurinn verður að Hólum,
samkomusal Menntaskólans á
Akureyri. Frummælendur á
fundinum verða Birgir Guð-
mundsson, fréttastjóri DV, og
Jón Sigurðsson rekstrarhagfræð-
ingur. Einnig mun séra Hannes
Örn Blandon, prófastur Eyfirð-
inga, verða með „Innslag úr
Eyjafjarðarsveit“.
Að loknum erindum framsögu-
manna verður fyrirspurnum
fundarmanna svarað og almenn-
ar umræður. Auk frummælenda
verða til svara Eiríkur Jóhanns-
son, kaupfélagsstjóri KEA, Jó-
hannes Geir Sigurgeirsson, for-
maður stjórnar KEA svf. og
KEA ehf., Benedikt Sigurðarson,
varaformaður KEA svf., og
Tryggvi Þór Haraldsson, vara-
formaður KEA ehf.
Fundurinn er liður í kynning-
arátaki sem KEA hóf í síðustu
viku með útgáfu upplýsinga-
bæklings sem var dreift inn á öll
heimili á félagssvæðinu.
Fundur um framtíð KEA og
málefni samvinnufélaga
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akur-
eyri verður með sinn árlega laufa-
brauðsbasar á morgun, laugardag-
inn 17. nóvember, kl. 15 í húsa-
kynnum sínum við Hvannavelli 10.
Einnig verður þar vöfflukaffi, sem
menn geta notið um leið og þeir
styrkja gott málefni.
Laufabrauðsbasar
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur-
eyrar hefur samþykkt að byggðir
verði upp tveir 400 fermetra pútt-
vellir, annars vegar við fjölbýlishús
aldraðra við Víðilund og hins vegar
við Lindasíðu.
Áætlaður kostnaður er tæplega
700 þúsund krónur. Þetta var ákveð-
ið í kjölfar erindis frá stjórn Félags
eldri borgara á Akureyri, þar sem
þess var farið á leit við ÍTA að
byggðir yrðu tveir golfpúttvellir ut-
anhúss við fjölbýlishúsin.
Púttvellir við
fjölbýlishús
aldraðra
♦ ♦ ♦
FÆÐINGARDAGUR Jóns Sveins-
sonar, Nonna er í dag, 16. nóvember,
og af því tilefni verður Nonnahús opið
á morgun, laugardaginn 17. nóvem-
ber, frá kl. 14-16. Aðgangseyrir er 300
kr. en frítt fyrir börn yngri en 16 ára.
Nonnahús er safn helgað hinum
vinsæla rithöfundi og jesúítapresti
Jóni Sveinssyni, Nonna, sem fæddist
að Möðruvöllum í Hörgárdal 16. nóv-
ember 1857. Nonni bjó í Nonnahúsi
frá 7 til 12 ára aldurs, en þá kvaddi
hann Ísland og hélt einsamall út í hinn
stóra heim.
Safnið geymir marga góða muni
sem tengjast ævi og störfum Nonna
auk þess sem húsið sjálft gefur góða
mynd af hýbýlum fólks fyrr á öldum.
Zontaklúbbur Akureyrar sér um
rekstur Nonnahúss.
Fæðingardagur Jóns Sveinssonar
Nonnahús opið