Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 18
SUÐURNES
18 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKÓLASTJÓRAR Gerðaskóla
lækka í launum um 20% vegna
ákvæða kjarasamninga Launa-
nefndar sveitarfélaga og kennara-
samtakanna sem tóku gildi í haust,
eða um tugi þúsunda hvor á mán-
uði. Þeir sögðu upp störfum vegna
óánægju með kjaraskerðinguna.
Hreppsnefnd Gerðahrepps treysti
sér ekki til að bæta þeim þetta upp
og ákvað að auglýsa stöðurnar laus-
ar til umsóknar á fundi sínum í
fyrrakvöld.
Sigurður Jónsson sveitarstjóri
segir að Gerðahreppur hafi falið
Launanefnd sveitarfélaga allsherjar
umboð til samningsgerðar. Fram
hafi komið í bókun við kjarasamn-
inga kennarasamtakanna að allir
viðbótarsamningar kennara og
skólastjóra myndu renna út 31. júlí
2001. Þá tæki við ný launatafla sem
fæli í sér að öll yfirvinna og auka-
sporslur féllu inn í launataxtana.
Sigurður segir ekki fært annað en
að fylgja þessum töxtum, ef það
væri ekki gert myndi Launanefndin
hætta allri þjónustu við Gerða-
hrepp. „Við teljum því að mögu-
leikar okkar til að gera aðra samn-
inga við einstaka starfsmenn séu
alls ekki til staðar,“ segir Sigurður.
Vitað frá því
samningar voru gerðir
Einar Valgeir Arason skólastjóri
rekur aðdraganda málsins til kjara-
samninganna síðastliðinn vetur.
Hann segist hafa spurst fyrir um
málið hjá Skólastjórafélaginu þegar
hann frétti af hugsanlegri launa-
lækkun í kjölfar nýrra kjarasamn-
inga. Fram hafi komið hjá fram-
kvæmdastjóra þess að ekkert
hamlaði því að skólastjórar héldu
aukasamningum við sín sveitar-
félög, þrátt fyrir ákvæði í samning-
unum um að yfirvinna kennara og
aukasamningar yrðu felldir inn í
kjarasamninginn. Fljótlega hafi
komið í ljós að Launanefnd sveitar-
félaga væri á öndverðum meiði í
túlkun á þessu ákvæði.
„Við töluðum við okkar yfirboð-
ara í vor og fengum mikinn skiln-
ing. Þeir sögðu okkur að eitthvað
yrði að gera í málinu,“ segir Einar
Valgeir. Hann vísar þarna til viðtala
sinna og Jóns Ögmundssonar að-
stoðarskólastjóra við einhvern eða
einhverja af forystumönnum sveit-
arfélagsins en vill ekki greina nánar
frá þeim samtölum.
Hann segir að þeir hafi haldið
fram eftir sumri að við þetta yrði
staðið. Í lok júlí hafi hann síðan séð
í hvað stefndi og óskað eftir við-
ræðum við hreppsyfirvöld.
Sigurður Jónsson segist hafa lát-
ið skólastjórana vita bréflega í byrj-
un mars að breytingar yrðu á
launafyrirkomulaginu 31. júlí. Hann
neitar því að skólastjórunum hafi
verið gefið undir fótinn með að fá
aukasamninga í haust. Einar Val-
geir segist vita til þess að gerður
hafi verið fjöldi viðbótarsamninga
við skólastjórnendur sem væru í
svipaðri stöðu og skólastjórar
Gerðaskóla. Hann gæti hins vegar
ekki greint frá því hverjir ættu í
hlut, það gæti skemmt fyrir við-
komandi mönnum. Sigurður sveit-
arstjóri segir að skólastjórarnir hafi
ekki getað bent á það með rökum
að slíkir viðbótarsamningar hafi
verið gerðir. Vitað væri að bifreiða-
styrkir hafi sums staðar haldið sér
og það hafi gerst í Gerðahreppi. Þá
væri hugsanlegt að skólastjórum
væri greitt aukalega fyrir önnur
störf, en það væri þá allt annað mál.
Einar skólastjóri segir að það
skjóti skökku við að laun skóla-
stjóra og kennara séu lækkuð á
sama tíma og vinna þeirra og
ábyrgð sé aukin, meðal annars í
kjölfar nýrra kjarasamninga. Veru-
lega dragi saman með stjórnendum
og almennum kennurum. Nú sé svo
komið að með smávægilegri yfir-
vinnu geti almennir kennarar haft
sömu laun og skólastjórar.
Verulegur vandi á höndum
Einar Valgeir sagði upp starfi
sínu fyrir 1. október og lætur því af
störfum um mánaðamót. Jón Ög-
mundsson sagði upp í þessum mán-
uði og lætur af störfum í lok febr-
úar.
Sigurður Jónsson segir að það
hafi komið sér á óvart að skólastjór-
arnir skyldu ekki hafa sýnt meiri
þolinmæði í málinu, halda út skóla-
árið og breyta þá til í vor ef ekki
hefði úr ræst í vetur. Telur hann að
málið hljóti að eiga við stærri hóp,
miðað við upplýsingar skólastjór-
anna, og því hefði verið rétt að taka
málið upp á milli Skólastjórafélags-
ins og Launanefndar sveitarfélga.
Hann segir að verulegur vandi
steðji að skólastarfinu. Nú verði
auglýst eftir nýjum skólastjórum en
ekki sé að vita hvernig gangi að fá
nýja menn til starfa á miðju skóla-
ári.
Skólastjórnendur Gerðaskóla láta af störfum
Fullyrða að for-
dæmi séu fyrir við-
bótargreiðslum
Garður
NOKKRIR kaupmenn og þjón-
ustuaðilar í Reykjanesbæ tilkynntu
þátttöku í norrænu samvinnuverk-
efni á kynningarfundi sem Mark-
aðs- og atvinnumálaskrifstofa
Reykjanesbæjar efndi til í vikunni.
Útlit er fyrir að 10 til 15 aðilar
verði þátttakendur, eins og stefnt
hefur verið að. Markmiðið með
verkefninu er að efla litlar sérversl-
anir í bæjum á landsbyggðinni.
Verkefnið er danskt að uppruna.
Smærri verslunareigendur í Hors-
ens tóku sig saman um að efla fyr-
irtæki sín og náðu góðum árangri.
Verkefnið hefur nú fengið vilyrði
fyrir styrkjum úr sjóði sem starfar
á vegum Norrænu ráðherranefnd-
arinnar og hefur kaupmönnum á
Norðurlöndum verið boðið að
ganga inn í starfið. Ákveðið hefur
verið að Reykjanesbær og Moss í
Noregi verði þátttakendur og málið
er í athugun í bæjum í Svíþjóð og
Finnlandi.
Fram kom hjá Helgu Sigrúnu
Harðardóttur atvinnuráðgjafa á
kynningarfundinum að helstu
markmið starfsins eru að hjálpa
fyrirtækjum að vaxa og dafna, að
mennta starfsfólk þeirra og stjórn-
endur og hjálpa þar með við upp-
byggingu bæjarins. Þá gefist þátt-
takendum tækifæri til að koma sér
á framfæri við aðra og byggja upp
viðskiptatengsl á Norðurlöndum.
Mikilvæg þekking verði til í verk-
efninu og það muni skapa þátttak-
endum forskot á aðra. Telur Helga
Sigrún að uppbygging verslunar og
þjónustu verði hraðari vegna þess
að hópurinn hafi aðgang að mik-
ilvægri reynslu og þekkingu sem
orðið hafi til í svipuðu umhverfi í
Danmörku.
Áætlað er að verkefnið taki þrjú
ár og fer upplýsingamiðlun að
miklu leyti fram á Netinu.
Fram kom í umræðum versl-
unarfólks á kynningarfundinum í
Reykjanesbæ að menn hafa áhyggj-
ur af þróun verslunar á svæðinu.
Helga Sigrún sagðist hafa heyrt að
fjórar eða fimm verslanir á Hafn-
argötu myndu hætta eftir áramót
en tók fram að hún hefði þetta ekki
staðfest. Fram kom hjá fund-
armönnum að leita þyrfti leiða til
að halda í Keflvíkinga sem færu
mikið til innkaupa á höfuðborg-
arsvæðið. Einnig að fá fólk innan að
í verslunarferðir til Keflavíkur;
reynslan sýndi að fólki sem það
gerði líkaði vel.
Fram kom að samvinna hópsins
gæti styrkt stöðu verslunarinnar
gagnvart bæjaryfirvöldum, meðal
annars um lagfæringar á Hafn-
argötu, og stuðlað þannig að
framþróun bæjarins. Þá gætu þau
stuðlað að fjölgun valmöguleika í
sveitarfélaginu með aukinni menn-
ingu og skemmtun sem myndi
styrkja verslunina.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Frá kynningarfundi verslunarverkefnisins, f.v. Oddgeir Garðarsson í
Ný-Ung, Reynir Þór Róbertsson í Bústoð, Sigurbjörn Sigurðsson í Kaffi
Duus og Kristín Örlygsdóttir í Kaffi Duus.
Norrænt verkefni um eflingu verslunar
10–15 kaupmenn
munu taka þátt
Reykjanesbær
KEFLAVÍKURKIRKJA efnir til
námskeiðs um streitu og streitu-
stjórnun í Kirkjulundi laugardaginn
17. nóvember næstkomandi. Sigur-
lína Davíðsdóttir, lektor við Háskóla
Íslands, heldur námskeiðið sem
stendur frá klukkan 10 til 14.
Sigurlína lauk doktorsprófi frá
Loyola University í Chicago í
Bandaríkjunum. Á námskeiðinu
mun hún fyrst flytja fyrirlestur um
vítahring streitunnar en síðan fjalla
um streitustjórnun. Eftir hádegið
verða umræður og fyrirspurnir.
Námskeiðið er þátttakendum að
kostnaðarlausu, en boðið verður upp
á léttan hádegisverð gegn vægu
verði.
Í tilkynningu frá Keflavíkurkirkju
segir að vert sé að geta þess, nú þeg-
ar jólin nálgast, að hafa þessi vanda-
mál í huga. Sigurlína hvetji fólk til
þess að setja sér sértæk og raunhæf
markmið með námskeiðinu. Þannig
sé til dæmis ekki rétt að setja sér það
markmið að losna við allan kvíða.
Vonandi læri fólk eitthvað á nám-
skeiðinu sem hjálpar því að takast á
við vandamálið.
Námskeið um
streitu og
streitustjórnun
Keflavík
FULLTRÚAR meirihluta
Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks í bæjarstjórn
Grindavíkur höfnuðu því á bæj-
arstjórnarfundi í vikunni að
gefa leikskólanum við Dalbraut
nafnið Laut.
Foreldrafélag leikskólans
lagði til að leikskólinn fengi
nafnið Laut með vísan til ör-
nefnis á staðnum, og tóku bæj-
arfulltrúar Samfylkingarinnar
undir þá tillögu. Bæjarfulltrúar
meirihlutans vöktu athygli á
því að fyrir dyrum stæði bygg-
ing nýs leikskóla í stað þess
gamla, annaðhvort við Dal-
braut eða annars staðar í bæn-
um, og því væri ekki tímabært
að gefa skólanum nafn.
Leikskólinn
fær ekki að
heita Laut
Grindavík