Morgunblaðið - 16.11.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ
20 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
vík þessa leið á svipðuðum tíma á
morgnana. Slíkt sé óhagræði og hafi
fjölmargir aðilar bent á nauðsyn til
úrbóta. Það vanti þéttari áætlun frá
Borgarnesi um Vesturland, sérstak-
lega yfir sumartímann.
Fundurinn beindi því einnig til
ríkisstjórnar Íslands að hún stofn-
setji ferðamálaráðuneyti í Stjórnar-
ráði Íslands.
Í skýrslu stjórnar sagði fráfarandi
formaður Guðrún G. Bergmann, að:
„þrátt fyrir samdrátt nú sé ferða-
þjónusta vaxandi atvinnugrein sem
þurfi á stuðningi að halda meðan hún
Á AÐALFUNDI Ferðamálasam-
taka Vesturlands var samþykkt
ályktun sem send verður til sam-
gönguráðuneytis, sérleyfishafa og
allra sveitarstjórna á Vesturlandi
um „mikilvægi þess að komið verði á
fót umferðarmiðstöð í Borgarnesi,
sem stuðlað geti að samræmdum
áætlunarferðum sem leiði til bættra
almenningssamgangna innan Vest-
urlands sem og við aðra landshluta“.
Helga Halldórsdóttir, stjórnarfor-
maður Upplýsinga- og kynningar-
miðstöðvar Vesturlands, UKV, bar
fram ályktunina og segir hún í sam-
tali við blaðið að undanfarin ár hafi
nokkrar rútur lagt upp frá Reykja-
er að skila raunverulegum tekjum og
störfum til samfélagsins. Stjórn-
málamenn þurfa að losa sig við það
viðhorf að þeir séu að halda þessari
atvinnugrein uppi með fjárframlög-
um. Enginn heilvita maður telur að
verið sé að halda sjávarútvegi uppi
þótt gerðar séu góðar hafnir“.
Í nýja stjórn samtakanna voru
kjörnir: Marteinn Njálsson, Hjörtur
Árnason, Ingunn Jónsdóttir, Magn-
ús Magnússon og Guðrún Jónsdótt-
ir.
Hafinn er undirbúningur að sögu-
korti um Vesturland, sem gefið verð-
ur út næsta vor í tilefni 20 ára afmæl-
is samtakanna.
Fundur ferðaþjónustu-
aðila á Vesturlandi
Reykholt
Ályktað um umferðarmiðstöð í Borgarnesi
UPPSKERUHÁTÍÐ verkefnisins
Fegurri sveitir var nýverið haldin á
Flúðum.
Þetta verkefni var sett á laggirnar
í fyrra að tilhlutan landbúnaðarráð-
herra Guðna Ágústssonar í umboði
ríkisstjórnarinnar. Þá var haldin
uppskeruhátíð í Húnaþingi en með
slíkum fundum er verið að bera sam-
an bækur sínar um árangur af verk-
efninu. Fundargestir hófu daginn
með því að allstór hópur þátttakenda
fór skoðunarferð um Flúðir og ná-
grenni og kynnti sér Garðyrkju-
stöðvarnar Mela og Flúðasveppi en
einnig var Límtrésverksmiðjan
heimsótt.
Yfir hádegisverði ávarpaði Drífa
Hjartardóttir, formaður landbúnað-
arnefndar Alþingis, hópinn.
Í setningarávarpi sem fulltrúi
landbúnaðarráðuneytisins og for-
maður stjórnar Fegurri sveita, Níels
Árni Lund, flutti í upphafi fundar
kom m.a. fram að verkefni fimm
manna framkvæmdanefndar sem
skipuð var af þessu tilefni sé að
standa vörð um ásýnd sveitanna og
að varðveita margt sem ekki má
skemma. Auk Níelsar Árna í nefnd-
inni eru Sigríður Jónsdóttir, bóndi á
Fossi, fulltrúi Bændasamtaka Ís-
lands, Þórunn Gestsdóttir sveitar-
stjóri er fulltrúi Sambands íslenskra
sveitarfélaga, Guðrún Þóra Hjalta-
dóttir, hússtjórnarkennari og nær-
ingarráðgjafi, er fulltrúi Kvenfélaga-
sambands Íslands og Sigríður
Stefánsdóttir deildarstjóri situr í
nefndinni sem fulltrúi umhverfis-
ráðuneytisins.
Eftir ávarp oddvita Hrunamanna-
hrepps Lofts Þorsteinssonar léku
tveir ungir nemendur úr Flúðaskóla
þau Hörður Már Bjarnason og Alda
Þórsdóttir á píanó og flautu.
Þriggja ára verkefni
Ragnhildur Sigurðardóttir, M.Sc.
í umhverfisfræði og lektor við Land-
búnaðarháskólann á Hvanneyri, er
átaksverkefnisstjóri Fegurri sveita.
Í áfangaskýrslu hennar kom fram að
verkefnið hefði upphaflega verið
hugsað til eins árs en fljótlega hefði
komið í ljós að sá tími dugði ekki til
að ná settum markmiðum, því var
ákveðið að halda áfram
og verkefninu yrði lokið í árslok
2002. Nú í október eru tengiliðir við
verkefnið 148 þar af 64 sveitarfélög.
Ragnhildur sagði meðal annars að
Íslendingar hafi almennt verið að
vakna til vitundar um mikilvægi þess
að ganga vel um, ásýnd sveitabæja
skipti miklu máli fyrir markaðssetn-
ingu landbúnaðarafurða, hafi áhrif á
sjálfsvirðingu og líðan ábúenda.
Verkefnastjóri hefur sl. tvö sumur
verið í fullri vinnu við að ferðast um
landið og ráðleggja þátttakendum.
Sem dæmi má nefna að í Svínavatns-
hreppi, Ásahreppi og Helgafellssveit
stefnir í 100% þátttöku íbúa í verk-
efninu. Í Hveragerði er verkefnið
tengt iðnaðarhverfi þéttbýlisins,
garðyrkjubændum og hesthúsa-
byggð. Í Eyjafjarðarsveit er lögð
áhersla á brotajárnshreinsun og nið-
urrif ónýtra húsa. Á ýmsum stöðum
er búið að hreinsa fjörur, vötn, heið-
ar og girðingar, raða vélum og tækj-
um bæði gömlum og nýjum, bera í
plön og slóða og merkja heimreiðar
og svo mætti áfram telja.
Gæðastýring og umhverfisstjórn-
unarkerfi, vottun og rekjanleiki af-
urða er sá raunveruleiki sem íslensk-
ir bændur annaðhvort búa við eða
eru að sigla inní. Margir eru þó ugg-
andi yfir þeim tíma og kostnaði sem
fylgir hreinsun.
Með Ragnhildi starfaði í sumar Ól-
ína Gunnlaugsdóttir frá Ökrum á
Hellnum til þess að aðstoða við papp-
írs- og símavinnu 2 daga í viku.
Mengun strandsvæða er mikil
Þau Hafdís Sturlaugsdóttir og
Matthías Lýðsson, bændur á Húsa-
vík í Kirkjubólshreppi, fluttu fróð-
legt erindi um mengun strandsvæða,
vel uppbyggt erindi um tveggja ára
rannsókn á uppruna, magni og gerð
úrgangs sem berst á fjörur í sunn-
anverðum Steingrímsfirði. Auk
Matthíasar unnu að verkefninu og
höfðu faglega umsjón þeir Anton
Helgason Cand Scient, heilbrigðis-
fulltrúi Vestfjarða, og Stefán Gísla-
son MSc umhverfisstjórnunarfræð-
ingur, UMÍS. Þau dreifðu
bæklingum um þessa samantekt og
kostnaðaráætlanir um hreinsun,
Matthías sagði að bændurnir legðu
ekki til ruslið á fjörurnar, það kæmi
frá skipum og netum. Hann spurði;
„á að halda áfram að hreinsa fjörurn-
ar, ruslið er ekki fyrir neinum, það er
líka kostnaður við að urða þetta. Við
viljum fá stuðning við þetta vanda-
mál.“ Matthías sagði að þau hefðu
sent umhverfisráðuneytinu tvö bréf
vegna þessa en ekkert svar fengið.
Ásahreppur til fyrirmyndar
Í máli Jónasar Jónssonar, oddvita
Ásahrepps, kom m.a. fram að þar
hefði verið lagt bundið slitlag heim á
alla bæi og settir upp tveir ljósa-
staurar við hvern bæ á kostnað sveit-
arfélagsins. Frárennslismál væru í
góðu lagi, sveitarfélagið sæi um að
hreinsa rotþrær íbúum að kostnað-
arlausu. Hvarvetna í sveitinni væri
búið að taka til og mála, það væri al-
gjör umbylting í hreppnum, ætlunin
væri að ljúka verkefninu fyrir 1. júní
á næsta ári. Til stæði að halda um-
hverfisveislu og veita vel í mat og
drykk og verðlauna þá sem staðið sig
hefðu best í þessum efnum.
Ásborg Arþórsdóttir, ferðamála-
fulltrúi uppsveita Ánessýslu, talaði
m.a. um ásýnd sveitanna frá sjónar-
horni þeirra 300 þúsund ferðamanna
sem heimsækja landið á hverju ári.
Margt væri hægt að gera betur og
hvatti til dáða. Þá flutti Anna Karls-
dóttir, lektor við Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri, athyglisvert
erindi um hlutverk bændaskólanna
þriggja í þesssum efnum og gat um
að landbúnaðarsskólarnir hafi verið
þáttakendum til ráðgjafar. Anna
sagði að tugir nemenda við Land-
búnaðarháskólann á Hvanneyri hafi
unnið umhverfisverkefni fyrir býli á
síðustu tveimur árum.
Eftir ríkulegar kaffiveitingar
Kvenfélags Hrunamanna afhenti
Níels Árni Lund fjölmörgum aðilum,
búnaðarsamböndum, búgreinafélög-
um, sveitarfélögum og fyritækjum
viðurkenningu fyrir þátttöku í átaks-
verkefninu.
Árangursríkt átak um fegurri sveitir
Glæsileg uppskeru-
hátíð haldin á Flúðum
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Frá uppskeruhátíð Fegurri sveita, Ragnhildur Sigurðardóttir verk-
efnastjóri í ræðustól, Sigríður Sigurðardóttir, fulltrúi umhverfisráðu-
neytisins, Guðrún Þóra Hjaltadóttir, fulltrúi Kvenfélagasambands Ís-
lands, og Sigríður Jónsdóttir, fulltrúi Bændasamtakanna.
Hrunamannahreppur
HELGINA 19.–20. október var
fermingarbarnamót Snæfellsness-
og Dalaprófastsdæmis haldið á
hótelinu í Sælingsdal. Tilvonandi
fermingarbörn hittust þá og höfðu
bæði gagn og gaman af. Að sjálf-
sögðu sátu þau í fermingarfræðslu
og kenndu þeir 6 prestar þeim
sem nú starfa í prófastsdæminu.
Hópurinn samanstóð af u.þ.b. 90
börnum og þar var mikið líf og
fjör.
Kvöldvaka og
körfuboltakeppni
Þetta er í annað skipti sem
þetta mót er haldið hér á Laugum
í Sælingsdal og hefur tekist vel.
Allir virðast vera mjög ánægðir,
bæði prestar og börn. Foreldri
fylgdi með hverjum hóp og að-
stoðaði við mótið.
Á föstudagskvöldið var körfu-
boltakeppni á milli leiðtoga og
liðsins sem vann í keppni milli
krakkana. Leiðtogarnir unnu yf-
irburðasigur en það má reyndar
deila um sanngirni þess sigurs því
sumir í sigurliðinu höfðu aldrei
komið nálægt körfubolta og
bjuggu til sínar eigin reglur sem
stangast vægast sagt mikið á við
hinar löglegu reglur. En það var
látið gott heita og voru þeir að
vonum mjög ánægðir með sig-
urinn.
Eftir keppnina var haldin kvöld-
vaka sem sr. Óskar Hafsteinn
Óskarsson í Ólafsvík og sr. Lilja
Kristín Þorsteinsdóttir á Hellis-
sandi sáu um. Þar var t.d. sungið
og keppt í stóladansi og limbó.
Á laugardeginum eftir kennslu
var farið í íþróttir og sund og það
voru glaðir og ánægðir krakkar
sem héldu hver til síns heima eftir
vel heppnað fermingarbarnamót í
Dölunum.
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Hópurinn fyrir utan Hjarðarholtskirkju eftir guðsþjónustu sem var í
umsjá sr. Óskars Inga Ingasonar sóknarprests.
Morgunblaðið/Guðrún Kristinsdóttir
Limbóið var skemmtilegt og allir tóku þátt í því.
Fjölmennt á ferm-
ingarbarnamóti
Búðardalur