Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 22

Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 22
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 22 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ LANDSBANKI Íslands hagnaðist um 677 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins en hagnaður fyrir sama tímabil í fyrra var 828 milljónir króna. Gengistap af hlutabréfum nam 1.610 milljónum króna og eru umskiptin frá fyrra ári um tveir millj- arðar króna, en á sama tímabili í fyrra nam gengishagnaður af hluta- bréfum 424 milljónum króna. Vaxta- tekjur jukust u.þ.b. sem samsvarar aukningu á gengistapi af hlutabréfum og koma þar til áhrif aukinnar verð- bólgu, að því er fram kemur í frétta- tilkynningu frá Landsbankanum. Landsbankinn hefur nú selt 5% hlut í Búnaðarbankanum sem hann eignaðist í skiptum fyrir 40% eign- arhlut sinn í Lýsingu hf. vegna samruna Lýsingar og Búnaðarbank- ans. Landsbankinn hefur nú innleyst um 500 milljóna króna söluhagnað sem kemur til tekna á fjórða ársfjórð- ungi. Landsbankinn mun ekki endur- skoða arðsemismarkmið fyrir árið 2001 með hliðsjón af góðri afkomu á 3. ársfjórðungi. Áfram er gert ráð fyrir 8–11% arðsemi eigin fjár eftir skatta. Að teknu tilliti til söluhagn- aðar af eignarhlut í Lýsingu hf. mun arðsemi bankans verða vel innan arð- semismarkmiða ársins 2001, að því er fram kemur í tilkynningunni. Aukinn vaxtamunur vegna verðbólgu Hreinar rekstrartekjur Lands- bankasamstæðunnar á tímabilinu námu 8.169 milljónum króna en rekstrargjöld 5.719 milljónum. Framlag í afskriftareikning útlána jókst um 85,9% frá sama tímabil í fyrra og nam nú 1.534 milljónum króna og í fréttatilkynningunni kem- ur fram að breyttar aðstæður í efna- hagsumhverfi skýri aukin framlög í afskriftasjóð útlána, m.a. vegna geng- isþróunar, verðbólgu og þróunar verðbréfamarkaðar. Hagnaður fyrir skatta og hlutdeild minnihluta nam 927 milljónum króna á tímabilinu. Í fréttatilkynningu frá Lands- banka Íslands kemur fram að fjár- hæðir rekstrarreiknings frá fyrra ári séu ekki að fullu samanburðarhæfar, þar sem bankinn eignaðist 70% hlut í Heritable Bank Ltd. hinn 1. júlí á síð- asta ári. Einnig kemur þar fram að afkomubati varð á þriðja ársfjórðungi þegar hagnaður samstæðunnar nam 655 milljónum króna fyrir skatta, en var 272 milljónir króna á sex mánaða tímabilinu frá janúar til júní á þessu ári. Afkomubata megi rekja til marg- háttaðra hagræðingar- og samþætt- ingaraðgerða samstæðunnar. Hreinar vaxtatekjur Landsbank- ans jukust um 44% eða 1.892 milljónir frá sama tímabili í fyrra og námu 6.227 milljónum í lok tímabilsins. „Að sama skapi hækkaði vaxtamunur af meðalstöðu heildarfjármagns um 0,6 prósentustig eða úr 2,7% í 3,3%. Skýringin liggur fyrst og fremst í áhrifum aukinnar verðbólgu á ver- tryggingarjöfnuð samstæðunnar,“ segir í tilkynningunni. Aðrar rekstrartekjur lækkuðu um 888 milljónir króna eða 31% frá sama tímabili í fyrra og námu 1.942 millj- ónum króna í lok tímabilsins. Þar af nam gengistap af hlutabréfum 1.610 milljónum króna samanborið við 424 milljóna króna hagnað á sama tíma- bili í fyrra. Gengistap af hlutabréfum skýrist af eignarhlutum Landsbanka- samstæðunnar í félögum í upplýs- ingatækni, fjarskiptum og líftækni en Landsbankinn á m.a. hlutabréf í Ís- landssíma og deCODE. „Landsbank- inn hefur trú á vexti þessara greina til lengri tíma og að fjárfestingar í þeim muni skila arði þegar fram í sækir,“ segir í tilkynningunni. Útlán námu 190,9 milljónum Rekstrarkostnaður Landsbanka- samstæðunnar sem hlutfall af rekstr- artekjum, þ.e. svonefnt kostnaðar- hlutfall var 70% á tímabilinu en 70,4% á sama tímabili í fyrra. Hlutfallið var komið í 74,8% eftir fyrstu sex mánuði þessa árs en hefur lækkað á þriðja ársfjórðungi. Heildareignir Landsbankasam- stæðunnar námu 267,2 milljörðum króna í lok september sl. Útlán námu þar af 190,9 milljörðum króna. Innlán samstæðunnar rufu 100 milljarða múrinn í fyrsta skipti á tímabilinu og námu 100,5 milljörðum króna í lok september sl. og höfðu vaxið um 22% eða 17,8 milljarða frá árslokum 2000. Lántaka Landsbankans nam 116,8 milljörðum króna í lok september sl., sem er aukning um 20% frá sama tímabili í fyrra. Víkjandi lán námu 8,5 milljörðum og jukust um 56,9% frá sama tímabili í fyrra. Eigið fé sam- stæðunnar var 14.582 milljónir króna í lok september sl. Arðsemi eigin fjár nam 9,1% fyrir skatta á tímabilinu en 6,6% eftir skatta. Eiginfjárhlutfall var 9,7% í lok september. Hagnaður Lands- bankans 677 milljónir Vaxtatekjur vega upp gengistap af hlutabréfum EINAR Kristinn Guðfinnsson, al- þingismaður og formaður sjávarút- vegsnefndar Alþingis, segir að leita verði leiða innan fiskveiðistjórnunar- kerfisins til að draga úr brottkasti á fiski. Hann bendir á að með virkri veiðarfærastýringu megi draga verulega úr brottkasti. „Ég er sannfærður um að með markvissari veiðarfærastýringu er hægt að vinna á brottkasti með mun áhrifaríkari hætti. Menn mega hins- vegar ekki vænta þess að brottkasts- vandinn verði algerlega leystur með þessum hætti. Kjörhæfni veiðarfær- anna er ekki það mikil, að bókstaf- lega sé hægt að velja fiskinn sem í þau kemur. Það er engu að síður hægt í ýmsum tilvikum.“ Einar bendir á að í skýrslu sem gerð var um brottkast og byggð var á skoð- anakönnun meðal sjómanna, hafi komið fram að töluvert væri um brottkast á dragnótabátum. Möskvar stækkaðir „Mér er kunnugt um það að út- gerðir dragnótabáta hafa gripið til þess ráðs að breyta veiðarfærum sínum, til dæmis með því að stækka möskva, til þess að sleppa við smá- fisk sem þeir annars myndu veiða ef farið væri að þeim reglum sem nú er kveðið á um. Slíkar breytingar hafa gefið góða raun. Þetta er að mínu mati gott dæmi um hvernig breyta má reglum til að forðast brottkast.“ Einar segir það mjög ámælisvert og í raun óþolandi hve litlum fjár- munum er varið til veiðarfærarann- sókna og rannsókna á möguleikum sem þessum. „Ef draga á einhvern lærdóm af umræðunni síðustu daga, þá er hann sá að það er okkur til skammar sem fiskveiðiþjóð að hafa ekki sinnt veiðarfærarannsóknum betur. Það verður hinsvegar ekki gert nema í samvinnu við útvegs- menn, sjómenn og fyrirtæki í veið- arfæragerð og veiðarfærarannsókn- um, fyrirtæki á borð við Háskólann á Akureyri, Netagerð Vestfjarða, Hampiðjuna og fleiri slíka aðila,“ segir Einar. Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson Með breytingum á veiðarfærum má draga úr brottkasti á smáfiski, að mati Einars Kristins Guðfinnssonar, formanns sjávarútvegsnefndar Alþingis. Virkari veiðarfærastýring dregur mjög úr brottkasti Reiknað með að tekjumarkmið deCODE náist NIÐURSTÖÐUR úr rannsóknum og tilraunum vísindamanna Ís- lenskrar erfðagreiningar, dóttur- félags deCODE Genetics, á umliðn- um mánuðum sýna að aðferðir þess eru einstakar, að sögn Kára Stefáns- sonar, forstjóra fyrirtækisins. Hann sagði á símafundi deCODE í gær, sem haldinn var í tilefni af níu mán- aða uppgjöri fyrirtækisins, að rann- sóknirnar legðu grunn að fram- leiðsluvörum sem mundi skila sér til hlutafa. Hannes Smárason, aðstoðarfor- stjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði á fundinum að nýlegir samn- ingar fyrirtækisins renndu styrkari stoðum undir rekstur þess. Auknar tekjur endurspegluðu undirritun nýrra og mikilvægra samninga og athyglisverðar niðurstöður rann- sókna. Þá sagðist hann reikna fast- lega með að áætlanir um að tekju- markmið fyrir árið 2001 í heild mundi nást. Bókfærðar tekjur fyrstu níu mánuði ársins upp á rúmar 30 milljónir dala væru besti vitnisburð- urinn um góðan árangur fyrirtæk- isins á árinu. Handbært fé 143,8 milljónir dala Hannes sagði að deCODE hefði aðeins notað 12,2 milljónir Banda- ríkjadala af handbæru fé í almennan rekstur og 37,2 milljónir til kaupa á fasteignum og tækjum. Í lok þriðja ársfjórðungs þessa árs hafði de- CODE genetics 143,8 milljónir Bandaríkjadala til ráðstöfunar í handbæru fé. Handbært fé fyrirtæk- isins á sama tíma árið áður nam sam- tals 210,4 milljónum dala. Tap deCODE fyrstu níu mánuði ársins nam 37,3 milljónum dala eða um fjórum milljörðum íslenskra króna en var 2,7 milljarðar á sama tímabili í fyrra. Auknar eigin rannsóknir Kári fór á símafundinum yfir helstu niðurstöður úr rannsóknum Íslenskrar erfðagreiningar á umliðn- um mánuðum, sem greint hefur ver- ið frá. Hann sagði fyrirtækið nota bestu mögulegu aðferðir til að skrá gögn og upplýsingar úr tilraunum sínum, aðferðir sem svo vildi til að fyrirtækið hefði sjálft þróað. Hann lagði sérstaka áherslu á hve mikilvægt það væri fyrir fyrirtækið að vísindamönnum þess hefði nýlega tekist að uppgötva 350 erfðavísa, sem hefðu að geyma upplýsingar um byggingu próteina í flokkum þekktra lyfjamarka. Þetta hefði verið gert með lífupplýsingatækni fyrirtækis- ins. Lyfjamörkin hefðu verið sett í samhengi við niðurstöður úr erfða- fræðirannsóknum á yfir 40 sjúkdóm- um. Íslensk erfðagreining hefði lagt inn umsókn um einkaleyfi á öllum þessum lyfjamörkum þar sem gerð væri grein fyrir tengslum þeirra við algenga sjúkdóma. Hann sagði þess- ar uppgötvanir styrkja stöðu Ís- lenskrar erfðagreiningar og að þær mundu nýtast sívaxandi lyfjaþróun- arsviði fyrirtækisins. Unnið yrði að frekari þróun þessara uppgötvana, sem og annarra sem vísindamenn Ís- lenskrar erfðagreiningar hefðu gert, hjá fyrirtækinu sjálfu, eins og frek- ast væri unnt, þannig að hagur þess af þeim verði sem mestur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.