Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 26

Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 26
UNGUR betlari og blaðasali í Kalkútta á Indlandi reyndi í gær að vekja athygli bílstjóra sem numið hafði staðar á gatnamótum. Helstu blöð og tímarit landsins hafa verið með myndir af Osama bin Laden á forsíðu undanfarnar vikur og eitt ritið fullyrðir að hann sé far- inn frá Afganistan til Kasmír-héraðs. Reuters Hvar heldur hryðjuverkaleiðtoginn sig? ERLENT 26 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍKJAMENN leita nú dyrum og dyngj- um að Osama bin Laden, sem talinn er ábyrgur fyrir hryðjuverkunum 11. september, og múllan- um Mohammed Omar, andlegum leiðtoga talib- anastjórnarinnar í Afganistan. Talið er að þeir séu á ferli í þeim sífellt minnkandi hluta Afganistans sem herir þeirra hafa á valdi sínu. Bandarískar sérsveitir yfirheyra liðhlaupa og fanga úr sveitum talibana, freista manna með því að veifa framan í þá milljónum dollara sem lofað er í verðlaun fyrir upplýsingar, og vona að einhver tali af sér. Herflugvélum er sérstaklega beitt til árása á felustaði, hella og jarðgöng uppi í fjöllum þar sem Omar eða bin Laden kunna að vera í fel- um. Þeir kumpánar eru sérfræðingar í skæruhern- aði og hafa úr mörgum slíkum felustöðum að velja – og eiga marga vini og birgðastöðvar meðfram landamærunum að Pakistan. Þetta torveldar enn leitina að þeim. „Við eigum enn nokkuð í land,“ sagði Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, um leitina að bin Laden og Omar. Rumsfeld lagði áherslu á að það væri nú meginverkefni varnarmálaráðuneytisins að finna bin Laden, Omar og aðra helstu leiðtoga talibana og al- Qaeda-hryðjuverkasamtak- anna, en sagði að enn lægju ekki fyrir ótvíræðar upplýsingar um hversu marg- ir hefðu fundist. „Sumir hafa verið drepnir,“ sagði Rumsfeld. „Aðrir eru í felum. Og það hafa engar tilteknar fregnir borist um að háttsettir leiðtogar hafi fundist.“ Árás á meintan fundarstað leiðtoga al-Qaeda Fulltrúar í varnarmálaráðuneytinu greindu frá því að bandarískar herflugvélar hefðu varpað sprengjum á nokkrar byggingar í Kabúl sl. þriðju- dag, nokkrum klukkustundum áður en hermenn Norðurbandalagsins fóru inn í borgina. Talið hafi verið að umræddar byggingar hafi verið fundar- staðir al-Qaeda-leiðtoga. Kváðust fulltrúarnir telja að einhverjir leiðtoga samtakanna kunni að hafa verið felldir í árásunum, en vissu ekki hverjir það væru eða hvort bin Laden hefði verið staddur í ein- hverju þessara húsa. „Þær upplýsingar sem við teljum okkur búa yfir hafa fengist með því að hlera farsíma – hástemmd eða reiðiþrungin samtöl talibana og al-Qaeda-liða,“ sagði háttsettur fulltrúi í bandaríska hernum. Rumsfeld nefndi að menn hefðu áhyggjur af því að bin Laden myndi reyna að fara frá Afganistan, nú þegar hersveitir talibana væru þar á hröðu und- anhaldi. Pakistanar hafa hert gæsluna við landa- mæri sín, ef bin Laden myndi reyna að komast þangað í leit að felustað. En talsmaður talibana, Mullah Abdullah, sagði: „Bandaríkjamenn munu aldrei ná Osama bin Lad- en lifandi,“ að því er fréttastofan Afghan Islamic Press í Pakistan hafði eftir honum. „Osama hefur ákveðið að dauðinn sé betri kostur en að lenda í höndum Bandaríkjamanna. Hann kýs dauðann,“ sagði talsmaðurinn. Abdullah vísaði til föðurhúsanna sögusögnum, sem hann sagði komnar frá Bandaríkjunum, um að bin Laden hefði verið handtekinn. „Í morgun klukkan níu hafði ég samband við höfuðstöðvar mínar í Kandahar og þangað hafa engar fregnir borist um Osama bin Laden, og þeir þvertóku fyrir að nokkuð væri hæft í þessum sögusögnum.“ Pakistanar hafa gefið út „Osama-aðvörun“ við landa- mæri sín. „Stjórnvöld gera sér grein fyrir öllum möguleikum, og taka þá með í reikninginn,“ sagði háttsettur embættismað- ur, sem ekki vildi láta nafns síns getið, við fréttastofuna AFP. Hefði þjóðvarð- lið við vesturlandamærin í norðvesturhluta lands- ins verið sett í viðbragðsstöðu ef bin Laden myndi reyna að komast til Pakistan, sagði embættismað- urinn. Bandarískar sérsveitir eru í suðurhluta Afgan- istans á höttunum eftir liðsmönnum al-Qaeda. Rumsfeld sagði í viðtali við New York Times, er birtist í gær, að hann teldi líklegt að bin Laden myndi reyna að beita brögðum til að komast und- an. „Mér dettur í hug að hann muni sennilega reyna að fara í þyrlu niður einhvern dalinn sem okkur hefur yfirsést og hoppa yfir í einhvern landshluta þar sem er flugvöllur og hafa þar flug- vél sem bíður eftir honum.“ Rumsfeld bætti því við að Bandaríkjamenn legðu sig fram um að gera bin Laden erfitt um vik að aðhafast nokkuð. „Og við verjum miklum tíma í að leita að forsprökkum al-Qaeda og talibana- hreyfingarinnar, og þegar við finnum þá munum við reyna að útrýma þeim.“ Talibanar hafa sagt að bin Laden sé „gestur“ þeirra og hafa heitið því að framselja hann aldrei í hendur Bandaríkjamönnum, sem hófu loftárásir á skotmörk í Afganistan 7. október. Þrýstingur á tal- ibana hefur sífellt aukist, og fregnir hafa borist um að borgin Kandahar í suðurhluta Afganistans, sé við það að falla í hendur andstæðinga talibana, Norðurbandalagsins. Kandahar er uppspretta tal- ibanahreyfingarinnar og aðsetur Mohammads Omars. Frá einum helli til annars Sagt er, að bin Laden búi aldrei lengi á sama stað, heldur flytji sig frá einum helli til annars til þess að forðast handtöku. Hann mun oft hafa látið þau orð falla, að hann sé reiðubúinn að láta lífið fyrir málstað sinn og baráttuna gegn Bandaríkj- unum. Að sögn Hamids Mirs, pakistansks blaðamanns sem tók viðtal við bin Laden í síðustu viku, er bin Laden sannfærður um að Bandaríkjamenn muni á endanum drepa sig. „Hann sagði við mig, ég er reiðubúinn að deyja. Hann sagði, ég veit að þeir gætu sprengt þennan stað í loft upp líka. Þeir vita ekki að ég er hérna núna. En þeir eru að varpa sprengjum út um allt í blindni. Þannig að ég gæti þess vegna fallið hér og nú ásamt þér.“ Mir hafði ennfremur eftir bin Laden: „Málstað- ur minn mun lifa eftir minn dag. Þeir telja sig geta leyst vandann með því að drepa mig. Það er ekki svo einfalt að leysa þennan vanda. Þetta stríð hef- ur breiðst út um allan heim.“ Bandaríkjamenn herða leitina að Osama bin Laden og Mohammed Omar Bin Laden kveðst fremur kjósa dauð- ann en handtöku Reuters Osama bin Laden ræðir við pakistanska blaðamanninn Hamid Mir, sem sagði viðtalið hafa farið fram 8. nóvember. Washington, Kabúl. AP, AFP, Washington Post. ’ Bandaríkjamennhlera símtöl talibana og yfirheyra fanga ‘ MUHAMMED Omar, leiðtogi talib- ana í Afganistan, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC, á mið- vikudagskvöld að „miklar“ áætlanir séu til um eyðingu Bandaríkjanna. Hann hafnaði því að taka þátt í mynd- un nýrrar ríkisstjórnar í landinu kvaðst heldur kjósa dauðann og full- yrti að hersveitir talibana myndu snúa vörn í sókn. Þetta er eitt af örfá- um viðtölum sem Omar hefur veitt frá því talibanar komust til valda í Afganistan árið 1996. BBC sagði að viðtalið hefði verið tekið á miðvikudagskvöld eftir að fulltrúi Omars hringdi gegnum gervi- hnattasíma frá Kandahar í suður- hluta Afganistans. Fréttamenn BBC báru upp spurningarnar og milliliður kom spurningunum og svörum Om- ars til skila gegnum talstöð. „Verðugur málstaður“ „Ástandið í Afganistan nú tengist verðugum málstað – eyðingu Banda- ríkjanna,“ sagði Omar. „Þessari áætl- un verður framfylgt og það er vilji guðs að henni verði framfylgt en þetta er mikið verk sem er ofar mannlegum skilningi og vilja,“ sagði hann. „Ef guð hjálpar okkur mun þetta gerast innan skamms tíma. Þið skuluð hafa þennan spádóm minn í huga.“ Þegar Omar var spurður hvort hann ætti við að hugsanlega yrði beitt kjarnavopnum eða efnavopnum sagði hann að þetta snerist ekki um vopn. „Það sem máli skiptir er eyðing Bandaríkjanna. Og ef guð lofar, munu þau hrynja til grunna.“ Veldi talibana hefur hrunið saman í Afganistan á síðustu dögum. Omar sagði að þeir héldu enn fjórum eða fimm héruðum í landinu en það skipti engu máli hvað mörg héruð þeir misstu því hægt væri að vinna það allt til baka. „Einu sinni réðum við engu landi en síðan réðum við öllum þeim hér- uðum sem við höfum nú misst á einni viku.“ „Ef Guð lofar, hrynja Bandaríkin“ Skjalafundur í al-Qaeda-húsum í Kabúl Unnið að smíði kjarna- sprengju UPPDRÆTTIR og teikningar af eldflaugum, sprengjum og kjarnorkuvopnum hafa fundist í húsum í Kabúl, sem notuð voru af liðsmönnum al-Qaeda, samtaka Osama bin Ladens. Það voru fréttamenn á dag- blaðinu The Times, sem fundu skjölin, að hluta til brunnin, í húsum í Karta Parwan-hverf- inu í Kabúl. Í þeim er því lýst hvernig unnt er að koma af stað keðjuverkun í plútóni með hjálp sprengiefnisins TNT. Skjölin voru í tveimur af fjórum húsum, sem al-Qaeda notaði fyrir arabíska og pakist- anska liðsmenn sína, og sagt er, að bin Laden hafi sjálfur dvalist í þeim. Í þeim er fjallað um smíði byssu, sem nota megi til að skjóta efna- og kjarna- oddum, um eldflaugar og um rannsóknir á tæki til að koma af stað kjarnasamruna. Þar fyrir utan var mikið af upplýs- ingum um smíði annarra sprengna. Hugðu á aðrar og skelfilegri árásir Fundur þessara skjala, sem rituð voru á arabísku, urdu og ensku, þykir staðfesta grun- semdir um, að hryðjuverka- mennirnir hafi haft hug á öðr- um árásum og miklu skelfilegri en þeim, sem gerðar voru 11. september. Kjarnorkusérfræðingar segja, að skjölin gefi til kynna, að bin Laden hafi unnið að smíði kjarnorkusprengju í lík- ingu við Feita karlinn, sem varpað var á Nagasaki 1945, en þeir taka fram, að það sé mjög erfitt. Tugir þúsunda mann fórust af völdum sprengjunnar í Nagasaki og yfir 100.000 af völdum þeirrar sem var varpað nokkrum dög- um fyrr á Hiroshima.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.