Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 32

Morgunblaðið - 16.11.2001, Page 32
LISTIR 32 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÁNÆGJULEGT til þess að vita að Sean Penn lætur ekki deigan síga en fer mikinn á móti stríðum straumi meðalmennskunar. Auðvelt að falla fyrir freistingunni og afgreiða kvik- myndagerð Skuldbindingar Dürren- matts á nótum hefðbundinnar löggu- myndar. Myndin er óþægileg, enda byggð á ónotalegri sögu um lög- reglumann (Jack Nicholson), sem verður heltekinn af leit sinni að morðingja lítillrar stúlku. Skuld- bindur sig að komast til botns í gruggugu máli. Trúir ekki á lausnina sem yfirvöldin sættast á og heldur áfram rannsókninni eftir að starfs- ferli hans lýkur í lögregluliði Reno- borgar í Nevada. Nicholson hefur ekki verið betri í háa herrans tíð en löggan með þrá- hyggjuna, áhorfandinn finnur að undir niðri er kengur í hegðun þessa góða manns, sem loks virðist búinn að finna tilgang og hamingju í heldur aumu lífi, en hættir öllu, heilsu og fjölskyldu, fyrir lausnina. Penn firrir okkur hinum nánast ófrávíkjanlega, hamingjusamlega endi, hrindir okk- ur þess í stað útá eyðimörk geðveiki og rústaðra persóna. Athyglisverð, afar vel gerð persónuskoðun, borin uppi af stórleikaranum, sem nýtur góðs af her magnaðra gestaleikara, einsog Benicio Del Toro og Vanessu Redgrave. Sæbjörn Valdimarsson H á s k ó l a b í ó Leikstjóri: Sean Penn. Handritshöf- undar: Jerzy og Mary-Olson Krom- olowski. Aðalleikendur: Jack Nich- olson, Robin Wright Penn, Aaron Eckhart, Sam Shepard, Benicio Del Toro. Bandarísk. 2001. SKULDBINDINGIN (THE PLEDGE)  MIRA Nair er sérlega mannlegur leikstjóri, sem þessi mynd ber vitni um. Félagslegar aðstæður fólks eru henni mjög umhugaðar og ekki síður hvað bærist innst inni í hjarta þess fólks sem hún fjallar um. Það gerir myndir hennar sterkar, fræðandi og áhrifaríkar. Monsoon Wedding gerist í heima- landi leikstjórans, Indlandi, og fjallar um brúðkaup einkadóttur í miðstétt. Hún hefur samþykkt að giftast manni sem foreldrar hennar fundu fyrir hana, þar sem hún vill losna úr vonlausu ástarsambandi sem hún hefur átt í við frægan sjónvarps- mann. Myndin gerist á nokkrum dögum fyrir brúðkaupið og snýst um undirbúning þess og trúlofunina. Gestir flykkjast að og áhorfandi kynnist Verma-stórfjölskyldunni, þar er misjafn sauður í mörgu fé. Mira Nair fjallar hér um ástina í mörgum myndum. Ástir unga fólks- ins, eldra fólksins, heldra fólksins og þjónustufólksins, misjafnar kynhvat- ir, og hvernig fólk tekur ástinni, bregst við henni, eða jafnvel notfærir sér hana. Myndin er frábært samspil margra sagna, þar sem höfundi og leikstjóra tekst að gera hverjum og einum skil á innilegan og áhrifaríkan hátt. Litir indverska brúðkaupsins og tónlistin gera myndina veislu fyrir skynfærin allan tímann, auk þess sem ljóðrænan plokkar í hjarta- strengina svo ómar í sálinni lengi á eftir. Myndin er þó ekki síst bráð- fyndin og skemmtileg. Visst uppgjör á sér þó stað innan fjölskyldunnar, þar sem einn meðlimur hefur brotið illa á öðrum. Ég finn myndinni það helst til foráttu hversu snögglega og léttilega það var í rauninni afgreitt. Það tekst ekki alveg nógu vel að skapa spennu hjá fórnarlambinu, og viðbrögð annarra fjölskyldumeðlima við atburðinum eru heldur lág- stemmd fyrir minn smekk. Indverjar hafa kannski lært að sýna fullkomna stillingu og hella ekki úr skálum reiði sinnar og örvæntingar, en það hefði líka mátt sýna meiri innri örvænt- ingu þeirra sem hlut eiga að máli. Mira Nair getur ekki staðist freist- inguna að sýna myndir frá götulífinu í Delhi og gefa áhorfendum innsýn í indverskt götumannlíf, enda undir- strikar það það mikla og fjölbreytta mannlíf sem Indland býr yfir og sem Verma-fjölskyldan er bara einn pinkulítill hluti af. Leikararnir eru frábærir. Mira hefur einnig sýnt í fyrri myndum sín- um að hún kann svo sannarlega að stjórna leikurum, nýjum sem reynd- ari, og hér sannast það eina ferðina enn. Naseeruddin Shah sem leikur fjölskylduföðurinn er hreint út sagt stórkostlegur karakter og sérlega sannfærandi. Hann er leikari sem á 60 myndir að baki. Shefali Shetty, sem leikur fósturdóttur hans Riu, og Af góðu ind- versku fólki KVIK- MYNDAHÁTÍÐ L a u g a r á s b í ó STORMASAMT BRÚÐ- KAUP (MONSOON WEDD- ING) Leikstj.: Mira Nair. 114 mín. Indland 2001. Viljay Raaz, sem leikur brúðkaups- skipuleggjandann Dubey, eru bæði að leika í sinni fyrstu mynd, og eru líka frábær. Öll leikstjórnin er svo skemmtilega eðlileg. Atriði einsog þegar faðirinn brestur í grát og fellur í faðm eiginkonu sinnar hefði svo auðveldlega getað orðið væmið og neyðarlegt í höndum annars leik- stjóra, en þetta atriði og fleiri við- kvæm voru innilega eðlileg, átakan- leg og falleg. Litrík, fyndin, sorgleg, falleg, ljóð- ræn saga úr Indlandi nútímans, þar sem gamli og nýi tíminn rekast á á skemmtilegan hátt í brúðkaupssiðum og öðrum venjum daglegs lífs. Þetta er angurvær kvikmynd sem skilur alla eftir með bros í hjarta sínu. Hildur Loftsdótt ir NÝLIÐINN Jake Hoyt (Ethan Hawke) hugsar sér gott til glóðar- innar. Hefur fengið einn dag til reynslu að sanna sig í augum Alonzo Harris (Denzel Washington), marg- heiðraðrar og sögufrægrar hetju í eiturlyfjadeild Los Angeles-lögregl- unnar. Græninginn verður að standa sig til að komast af götunni í þetta eftirsótta starf, en kemst að því fullkeyptu að ekki er allt sem sýnist hvað snertir Harris, sjálft átrúnaðargoðið hans. Strax í upp- hafi uppgötvar hann, sér til skelf- ingar, að Harris notar óhefðbundn- ar aðferðir við að klekkja á úrþvættum borgarinnar og eftir því sem líða tekur á daginn er Hoyt full- komlega ljóst að Harris dansar á ör- mjórri línu glæpa og réttar, oftar en ekki röngu megin. Undir kvöld er Hoyt kominn í megnustu lífshættu: Ef hann semur sig ekki að ógeð- felldum vinnubrögðum Harris og harðjaxlanna, sem hann hefur valið með sér í öfluga valdaklíku í lögg- unni, er honum voðinn vís. Training Day er gallhörð spennu- mynd sem færir áhorfendum sann- inn um hversu baráttan við eitur- lyfjavágestinn er margflókin og erfið og borgarlandslagið, þar sem iðjan og salan er stunduð, er geig- vænlegt. Myndin fjallar jafnframt um málefni sem eru ofarlega á baugi í umræðunni, um heiðarleika lögreglunnar í stórborgunum vestra og reyndar um allan heim. Þar eru fleiri veikir hlekkir en margan grun- ar, óskammfeilnir eiginhagsmuna- seggir sem svífast einskis til að maka krókinn. Stórleikarinn Denzel Washington víkkar og breikkar góðmennskulega ímynd sína með því að taka að sér hlutverk gjörspilltrar löggunnar og á vafalaust eftir að gera meira af slíku í framtíðinni. Alonzo Harris er það fær í sínu starfi að það er farið að plaga sálina. Washington heldur honum á gráu svæði laga og lög- leysu. Hawke fæst við algjöra and- stæðu hans, bláeygan græningja sem mælt hefur göturnar í friðsömu úthverfi og sér í hillingum frægð- arljóma miðbæjarlöggunnar. Sem samsamast í Harris, sem hann ímyndaði sér að engu lögbroti eirði, væri sannkallaður gjöreyðandi glæpa og undirheimastarfsemi. En kemst að hinu gagnstæða. Munu dagar hans verða fleiri í eiturlyfja- lögreglunni? Leikarar: Denzel Washington (Glory, Cry Freedom, Malcolm X, Hurricane). Ethan Hawke (Dead Poet’s Society, Reality Bites, Hamlet); Scott Glen (Urb- an Cowboy, Silence of the Lambs, Hunt for Red October). Leikstjóri: Antoine Fuqua (The Replacement Killers). Atriði úr myndinni Training Day. Ethan Hawke og Denzel Washington í hlutverkum sínum. Lífshættulegur reynsludagur Sambíóin í Reykjavík og Akureyri frum- sýna Training Day, með Denzel Wash- ington, Ethan Hawke, Scott Glen og Cliff Curtis. ÁHORFANDINN hverfur aftur í órætt miðaldamyrkur Loðvíks XV, nánar tiltekið ársins 1766. Um það leyti sem Arnes Pálsson útileguþjóf- ur og landhlaupari á Íslandi er dæmdur í ævilanga þrælkun á Brim- arhólmi, auk kaghýðingar og brenni- merkingar, myrðir „Skepnan Gév- audan“ á annað hundrað saklausra borgara í afskekktu sveitahéraði í Suður-Frakklandi. Flest eru fórnar- lömbin konur og börn. Bylgja ótta og óhugnaðar fer um dauðskelfda íbúana, konungur sendir því val- menni til að ganga á milli bols og höf- uðs á skepnu þessari hinni ægilegu. Til ferðarinnar velur Loðvík kóng- ur Grégoire de Fronsac (Samuel Le Bihan), ungan, bráðefnilegan vís- indamann, og Mani (Mark Dacasc- os), eirrauðann fóstbróður hans af ættum Íronindjána, sem hann bast tryggðaböndum á sléttunum miklu í vesturheimi. Hyggst njóta góðs af meðfæddum hæfileikum náttúru- barnsins við að nasa uppi óvættinn, þar sem óvígur her konungs hefur orðið frá að hverfa. Markgreifinn í héraði, Thomas d’Apcher (Jéremie Renier), býður Fronsac liðveislu sína og heldur honum veislu góða. Þar kynnist Fronsac aðalsmeyjunni Maríönnu, hinum fagra kvenna- blóma Gévaudan-sýslu, og fella þau hugi saman. Á meðan heldur meinvætturinn ótrauður áfram að hlaða upp valkesti og telja íbúarnir að hér sé um að ræða verk sjálfs djöfulsins. Slíkur er bakgrunnur Bræðralags úlfanna, nýrrar og vinsællar, franskrar myndar, sem sögð er vönduð í alla staði og naut mikilla vinsælda í heimalandinu í sumar og annars staðar þar sem hún hefur verið sýnd. Myndin snýst fyrst og fremst um baráttuna við hinn hroða- lega, óþekkta vágest, en jafnframt fjallað um þá tvísýnu, stórpólitísku tíma valdabaráttu og trúarofstækis sem réðu ríkjum í Frakklandi á of- anverðri 18. öld. Leikarar: Samuel Le Bihan (Le Cousin, Þrír litir: Rautt). Vincent Cassell (Eliza- beth, Jeanne d’Arc, La Haine). Monica Bellucci (Maléna)). Leikstjóri: Christ- ope Gans (Crying Freeman). Prinsessa í álögum Háskólabíó frumsýnir Bræðralag úlf- anna – Les Pacte des loups/The Broth- erhood of the Wolf, með Samuel Le Biha, Vincent Cassell, Emilie Dequenne. Samuel Le Biha og Monica Bell- ucci í frönsku myndinni Les Pacte des loups, Bræðralag. LJÓSKUR eru vel þekkt bitbein brandarasmiða, sem tengja þær gjarnan sauðheimsku og fávisku undir fögru skinni. Oftast eru slíkar aulabrandarapersónur með litað hár, en Elle Woods (Reese With- erspoon), er fædd með sína gló- björtu lokka og telst fullkomlega löglegt eintak af tegundinni. Hún er einnig ofurvinsæl meðal félaganna, formaður bekkjarfélagsins, keppi- nautur um ungfrú Hawaiian Tropic sólarolíu, hefur leikið í tónlistar- myndbandi með goðinu Ricky Mart- in. Er hægt að hafa það betra? Það sem mestu máli skiptir, þá lætur hún velgengnina ekkert á sig fá. Elle með hjarta gullið sem hárið, og það tilheyrir aðeins þeim út- valda, kærastanum Warner (Matth- ew Davis). Það kemur því Elle á óvart er hann segir henni upp á for- sendum háralitarins og þroskaleys- is, þegar hún heldur að gaurinn ætli að draga henni hringur á fingur. Elle sannar að hún er vel af guði gerð undir lokkaflóðinu og ákveður að sanna sig á þeirri erfiðu og kröfuhörðu braut sem Warner hefur valið sér – lagadeild hins virta og eftirsótta Harvard háskóla. Elle passar ekki inn í blaser-jakka- klæddan nemendahópinn og er lengi að vinna sig í álit og skipa sér sess meðal bekkjarsystkinanna. Allt hefst ef áhuginn er fyrir hendi og seint og um síðir verður Warner að kyngja því að hann hefur á röngu að standa um persónuleika og getu Elle Woods. Witherspoon er komin í hóp eft- irsóttustu leikara Hollywood af yngri kynslóðinni. Þessi 25 ára stúlka hefur verið að vinna sig upp, hægt og bítandi, frá því hún vakti athygli í sinni fyrstu mynd, The Man on the Moon, undir stjórn Ro- berts Mulligan. Þá þótti hún vinna eftirminnilegan leiksigur í Election. Þeir sem muna svellandi barm Raq- uel Welch, geta hugsað sér gott til glóðarinnar, því þessi goðsagna- kennda kynbomba frá sjöunda og áttunda áratugnum lætur sjá sig hér í fyrsta sinn í mörg ár í kvik- mynd. Leikarar: Reese Witherspoon (Pleas- antville, Cruel Intentions, American Psycho, S.F.W.); Luke Wilson (Charlie’s Angels, Blue Streak); Selma Blair (Cru- el Intentions); Matthew Davis (Tiger- land, Urban Legends: The Final Cuts) Raquel Welch (One Millon Years B.C., Fantastic Voyage, Bedazzled, Three Musketeers). Leikstjóri: Robert Luketic (frumraun). Handrit; Karen McKullah Lutz og Kirsten Smith (10 Things I Hate About You). Lög(u)- leg ljóska Reese Witherspoon og Luke Wilson í kvikmyndinni Legally blonde. Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó og Borgarbíó frumsýna Legally Blonde, með Reese Witherspoon, Luke Wilson, Selmu Blair og Raquel Welch.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.