Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 40
UMRÆÐAN
40 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Á LANDSFUNDI
Samfylkingarinnar um
helgina verður fjallað
um skyldur Íslands í
umhverfismálum í
miklu víðara samhengi
en stjórnvöld hafa gefið
gaum að. Meginverk
umhverfisráðherra
hefur falist í að tryggja
Íslendingum aukinn
rétt til að losa gróður-
húsalofttegundir á
þeim forsendum að við
mengum minna en aðr-
ir með stóriðju. Þannig
hafa ,,skyldur Íslands“
við umhverfið í alþjóð-
legu samhengi verið
skilgreindar eins þröngt og mögu-
legt er, með skammtímahagsmuni í
efnahagsmálum að leiðarljósi.
Áherslan er á leyfi til stóriðju, við
höfum enga stefnu um hvernig við
ætlum að leggja okkar
af mörkum svo útblást-
ur gróðurhúsaloftteg-
unda minnki. Þetta
þýðir að búið er að gefa
orkuiðnaðinum veiði-
leyfi á alla náttúru Ís-
lands.
Krafan um stórsókn-
arfórn á hálendi Ís-
lands norðan Vatnajök-
uls fyrir risaálver í
Reyðarfirði hefur leitt í
ljós frumstæða hugsun
og nálgun stjórnvalda.
Bent hefur verið á að
engin heildarstefna er
til um röð virkjana í
landinu. Þeirri vinnu er
ólokið, en þar er meðal annars leitast
við að meta kosti til orkuvinnslu með
tilliti til umhverfissjónarmiða. Á
sama tíma kemur bersýnilega í ljós
að áætlun um náttúruverndarkosti á
hálendinu og annars staðar er engin.
Hverju skynsömum manni má ljóst
vera að þetta tvennt verður að fara
saman. Meðan grunngagna er ekki
aflað um náttúrufar og auðlindir og
heildarstefna er ómótuð um nýtingu,
má ljóst vera að ákvörðun um Kára-
hnjúkavirkjun er byggð á fáfræði.
Enn einu sinni á hið meinta ,,brjóst-
vit“ hagsmunapotara að ráða ferð
með afleiðingum sem aldrei verða
afturkræfar í náttúru landsins.
Krafa Samfylkingar
Í drögum að ályktun Samfylking-
arinnar fyrir komandi landsfundi
segir að hún vilji að ,,náttúruvernd
og umhverfismál séu samþætt öllum
mikilvægum stjórnvaldsaðgerðum í
efnahags- og atvinnumálum.“ Þetta
kallar á róttækar umbætur í hugsun
og stefnumótum stjórnvalda hverju
sinni og krefst agaðra vinnubragða.
Krafan er um að fyrir liggi heild-
stætt mat á náttúruauðæfum lands-
ins og framsýn stefna um vernd og
nýtingu þeirra. Ákvarðanir um stór
ný iðjuver og virkjanir þeim tengdar
eiga að skoðast með hliðsjón af heild-
arstefnu um lífríki Íslands. Þetta er
krafa Samfylkingarinnar á komandi
landsfundi.
Lágmarkskrafa
Þessi krafa er lágmarkskrafa og
byggð á sjálfsögðum varúðarsjónar-
miðum. Hún er líka byggð á lýðræð-
issjónarmiðum. Að landsmenn allir
fái að koma að mikilvægum ákvörð-
unum og afleiðingar þeirra séu ljós-
ar. Þetta þýðir að við allar stórfram-
kvæmdir sem hafa í för með sér rask
á náttúru landsins sé jafnframt met-
ið verndargildi þeirrar náttúru sem
fórna á, auk annarra nýtingarkosta
sem til greina koma.
Á mannamáli þýðir þetta að
ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun er
ótímabær. Hún er óskiljanleg nema í
miklu víðara samhengi en boðið er
uppá og í ljósi stefnu um það hvernig
við viljum vernda náttúru og nýta
landið. Stærsta ósnortna villta nátt-
úrusvæði í Evrópu er í húfi. Á sama
tíma kemur fram krafa um að sökkva
hluta Þjórsárvera, sem eru varin í
bak og fyrir með sáttargjörð innan-
lands og utan. Orkufrekjan er komin
út yfir allt velsæmi. Á móti verðum
við að tefla fram kröfum fyrir hönd
náttúru landsins. Um frátekin
vernduð svæði, fyrir fólkið í landinu
og lífríkið sjálft.
Skyldur í umhverfismálum
Stefán Jón
Hafstein
Samfylking
Orkufrekjan, segir
Stefán Jón Hafstein,
er komin út yfir allt
velsæmi.
Höfundur er útgáfustjóri tímarita og
nýmiðlunar hjá Eddu.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Laugardalslaug
Afgreiðsla — baðvarsla
Starfsfólk vantar í 100% starf á kvennabað og
í afgreiðslu Laugardalslaugar. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Unnið er á vöktum samkvæmt vaktaskrá laug-
arinnar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamn-
ingi Reykjavíkurborgar og Starfsmannafélags
Reykjavíkur.
Umsóknareyðublöð verða afhent í Laugardals-
laug og hjá ÍTR, Fríkirkjuvegi 11, 101 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 29. nóvember nk. og
skal umsóknum skilað til forstöðumanns.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður á
staðnum og í símum 553 4039 og 695 5110 og
verkefnisstjóri í síma 553 4039.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Sjálfstæðisflokkurinn
Aðalfundur
kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurkjördæmi
verður haldinn laugardaginn 17. nóvember í
Þorlákshöfn, ráðhúsinu, kl. 15.00.
Gestur fundarins verður Sólveig Pétursdóttir,
dómsmálaráðherra.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar, stjórnarkjör, önnur mál.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
ALPAN HF.
Fundarboð
Hluthafafundur í Alpan hf. verður haldinn í
samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka 30. nóvem-
ber nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Fellt verði úr gildi umboð sitjandi stjórnar.
2. Kosning nýrrar stjórnar.
Stjórn Alpan hf.
Hluthafafundur
Vesturgötu 3 ehf.
verður haldinn í sal Hlaðvarpans fimmtudaginn
6. desember kl. 17.00.
Fundarefni: Breyting á húsnæði félagsins.
Stjórnin.
MG-félag Íslands
MG-félag Íslands heldur fund í kaffisal ÖBÍ í
Hátúni 10, Reykjavík, laugardaginn 24. nóvem-
ber kl. 14.00.
Djákni ÖBÍ, Guðrún K. Þórsdóttir, mætir á fund-
inn. Ólafur Stephensen og Vigdís Sif Hrafnk-
elsdóttir segja frá norrænum fundi NRMG.
Kynnt verður nýja danska bókin „Det myasten-
iske puslespil“, útg. MG-félag Danmerkur.
MG-félag Íslands er félag sjúklinga með Myasthenia gravis (vöðva-
slensfár) sjúkdóminn svo og þeirra, sem vilja leggja málefninu lið.
Stjórnin.
Aðalfundur — jólafundur
Félag sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi held-
ur aðalfund og jólafund í Valhöll fimmtudaginn
22. nóv. kl. 19.30.
Dagskrá
Kl. 19.30 Aðalfundur
Kl. 20.00 Sameiginlegur jólafundur með Lang-
holtshverfi. Boðið verður upp á léttar veitingar,
jólaglögg, kaffi og kökur. Gestur félaganna er
Inga Jóna Þórðardóttir, borgarfulltrúi.
Kl. 22.30 Samkomunni slitið.
Félagsmenn fjölmennið!
Stjórnin.
Aðalfundur — jólafundur
Félag sjálfstæðismanna í Langholtshverfi held-
ur aðalfund og jólafund í Valhöll fimmtudaginn
22. nóv. kl. 19.30.
Fundarstjóri:
Ásgeir Pétursson, fyrrv. sýslumaður.
Dagskrá
Kl. 19.30 Aðalfundur
Kl. 20.00 Sameiginlegur jólafundur með
Laugarneshverfi. Boðið verður upp á léttar veit-
ingar, jólaglögg, kaffi og kökur.
Gestur félaganna er Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrúi.
Kl. 22.30 Samkomunni slitið.
Félagsmenn, fjölmennið
Stjórnin.
Aðalfundur
Aðalfundur Vinnslustöðvarinnar hf., fyrir reikn-
ingsárið sem lauk 31. ágúst 2001, verður hald-
inn í Akógeshúsinu í Vestmannaeyjum föstu-
daginn 30. nóvember 2001 og hefst hann
kl. 16.00.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Heimild til stjórnar til kaupa á hlutum í
Vinnslustöðinni hf. á næstu átján mánuðum
skv. 55. grein hlutafélagalaga nr. 2/1995.
3. Tillaga stjórnar um breytingu á reikningsári
félagsins yfir í almanaksárið og viðeigandi
breytingar á samþykktum félagsins vegna
þessa.
4. Önnur mál
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf.
TILKYNNINGAR
Handverksfólk athugið!
Handverksmarkaður verður á Garða-
torgi laugardaginn 17. nóvember.
Vinsamlega staðfestið básapantanir í
síma 692 6673 eða 861 4950.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 18211168 Sk.
I.O.O.F. 12 18211168½ Fl.
Samkomur með Tony Fitzgerald
föstudag kl. 20.00,
laugardag kl. 20.00,
sunnudag kl. 11.00.
Hvítasunnukirkjan Kletturinn,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
www.islandia.is/~kletturinn.
Í kvöld kl. 21 heldur Geir Gígja
erindi „Lyklar Péturs” í húsi fél-
agsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Karls Þor-
steinssonar, sem fjallar um Nei-
kvæða egóið.
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning. Hug-
ræktarnámskeið Guðspekifé-
lagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 22. nóvember kl.
20.30 í umsjá Jóns L. Arnalds:
„Hugur er heimur II”.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta. Guðspekifélagið hvetur
til samanburðar trúarbragða,
heimspeki og náttúruvísinda.
Félagar njóta algers skoðana-
frelsis.
www.gudspekifelagid.is
mbl.is
FRÉTTIR