Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 43
þarf sterkt aðhald í umhverfismál-
um. Með því að byggja á útivistar-
svæðinu dýrmæta við Nesstofu væri
verið að fórna meiri hagsmunum fyr-
ir minni. Ég vil sjá hjúkrunaheimili
rísa á Hrólfsskálamelum í tengslum
við íbúðir aldraðra og heilsugæslu-
stöðina en ekki við Nesstofu.
Tryggjum lágt útsvar
og lágar álögur
Goðsögnin um að lægsta útsvarið
sé á Seltjarnarnesi á ekki við rök að
styðjast. Seltjarnarnesbær hefur
undanfarin ár nýtt lágmarksútsvar-
sprósentu, en gerir það ekki lengur.
Ég vil tryggja lágt útsvar og lágar
álögur á íbúa. Skatttekjur bæjarins
af hverjum íbúa eru nú þær hæstu á
öllu landinu. Það er hins vegar alls
ekki sjálfgefið að skatttekjur af
hverjum íbúa verði áfram þær
hæstu. Ef ekkert er að gert til að
halda ungu og dugmiklu fólki eða
laða það til bæjarins breytast þessar
forsendur smám saman. Háar skatt-
tekjur bæjarins byggjast á því að
launatekjur bæjarbúa haldist
óbreyttar.
Löðum ungt fólk til
Seltjarnarness
Unga fólkið flýr Seltjarnarnesið
og skilar sér sjaldnast aftur. Lítið
framboð er af heppilegu húsnæði
fyrir þennan hóp. Bygging stúdenta-
garða er að mínu mati góður kostur
til að bæta úr þessu, enda er Sel-
tjarnarnesið mjög nálægt Háskóla
Íslands. Leikskólagjöld eru með
þeim hæstu á landinu. Seltjarnarnes
hefur alla burði til að gera miklu bet-
ur við unga fólkið og vera í forystu í
þessum málaflokki og á að hafa það
markmið að bjóða íbúum sínum
bestu þjónustu fyrir lágmarksgjald.
Nútíma stjórnsýsluhættir
Seltirningar hafa búið við meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins í hartnær
fjörutíu ár. Það er einfaldlega of
langur tími. Það hefur oft sýnt sig að
of mikið vald grefur undan lýðræð-
inu. Ég tel það forsendu framfara í
bæjarfélaginu okkar að Sjálfstæðis-
flokknum sé a.m.k. veitt kröftugt
málefnalegt aðhald við ákvarðanir
um framtíð Seltjarnarness. Best
væri þó að nýr meirihluti yrði til. Ég
mun leggja ríka áherslu á að samráð
verði haft við bæjarbúa og að stærri
ákvarðanir verði lagðar undir at-
kvæði kjósenda.
Höfundur sækist eftir stuðningi Sel-
tirninga í 1.–2. sæti í prófkjöri Bæj-
armálafélagsins á laugardag.
Prófkjör
Ég mun leggja ríka
áherslu á, segir Guðrún
Helga Brynleifsdóttir,
að samráð verði haft
við bæjarbúa.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 43
Sérblað alla
sunnudag
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face
Ungbarnafatnaður
Komdu í bæinn og skoðaðu úrvalið og
verðið. Allt fyrir mömmu.
Þumalína, Pósthússtr. 13, s. 551 2136.
Skrifstofur Happdrættis SÍBS
og aðalumboðs, Suðurgötu 10,
verða lokaðar frá kl. 12 í dag
vegna umboðsmannafundar
á Reykjalundi
Við biðjumst afsökunar vegna óþæginda
sem þetta kann að valda.
Starfsfólk Happdrættis SÍBS.