Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 53
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 53
KIRKJUNEFND kvenna í Dóm-
kirkjunni er með basar og kaffisölu
laugardaginn 17. nóvember kl. 14 í
safnaðarheimili Dómkirkjunnar. Á
boðstólum eru kökur, margir góðir
munir, jólaskraut og vinsælu lukku-
pakkarnir.
Selt verður kaffi með vöfflum.
Kirkjunefndin lætur afrakst-
urinn renna til líknarstarfs, sem er
annar megintilgangur félagsins.
Verið velkomin að líta inn og
styrkja kirkjunefndina í góðu og
fórnfúsu starfi.
Kevin White heim-
sækir Krossinn
BANDARÍSKI predikarinn Kevin
White verður í heimsókn hjá Kross-
inum. Hann mun predika á sam-
komum á laugardagskvöldið kl.
20.30 og sunnudaginn kl. 16.30.
Kevin White er mikill Íslands-
vinur og er hann að koma hingað í
sjötta sinn. Þjónusta hans einkenn-
ist af táknum og undrum. Hann
mun einnig flytja tónlist af nýjasta
disknum sínum. Allir eru velkomnir
á samkomurnar og er aðgangur
frír.
Morgunblaðið/Jim Smart
Dómkirkjan í Reykjavík.
Basar og
kaffisala
Háteigskirkja. Samverustund eldri borg-
ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufull-
trúa.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-
7.05. Mömmumorgunn kl. 10-12 í
umsjá Eyglóar Bjarnadóttur meðhjálpara.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplifun fyrir
börn.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom-
ur alla laugardaga kl. 11-12.30. Lofgjörð,
barnasaga, prédikun og biblíufræðsla þar
sem ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og
svarað. Barna- og unglingadeildir á laug-
ardögum. Létt hressing eftir samkomuna.
Allir velkomnir.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíu-
fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður: Björgvin Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjón-
usta kl. 11. Ræðumaður: Brynjar Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðumaður: Styrmir
Ólafsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður: Einar V. Arason.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
Ég hlakka til að sjá ömmu aftur,
þá get ég kennt henni að fara flikk-
flakk.
Andri Rafn, Birkir og Mikael.
Kæra Dísa mín, ég kveð með
blendnum huga, sorgmæddur yfir
því að þú sért farinn frá okkur, en
ánægður að þínum þjáningum er lok-
ið. Einnig að nú, eftir margra ára
veru í myrkri, sérð þú alla liti himn-
anna.
Fyrstu kynni mín af Dísu voru frá
Þórshöfn á Langanesi. Árlega var
farið í ferðalag til Þórshafnar og gist
í Bræðraborg yfir sumarið. Þar
bjuggu systkinin Nonni, Ingimar
(nafni minn) og Dísa. Fyrir lítinn
dreng voru þetta ævintýraferðir því
alltaf var ánægja, hressleiki, sögur
sagðar, o.s.frv. Einnig fékk maður að
fara niður í fjöru, skoða skeljar, leika
sér frjáls eins og fuglinn á nokkurar
íhlutunar, svo fannst manni allavega.
Einn daginn sat ég á eldhúsbekkn-
um í Bræðraborg, líklega 4–5 ára
gamall, þegar ég fann prjóna sem
voru á bekknum, og viti menn ég
sting þeim í innstunguna, og það er
ekki að sökum að spyrja, það var
eins og það hefði kviknað á mér. Ég
sit fastur með prjónana í innstung-
unni og það er Dísa frænka sem
henti sér á mig til að losa mig frá inn-
stungunni, segið svo að það hafi ekki
verið stuð í Bræðraborg. Eftir þetta
sagði Dísa, sem satt er, að hún ætti
lífið í mér. Samband mitt og Dísu
hefur alltaf verið mjög náið og við oft
rætt málin yfir kaffibolla.
Dísa var bústýran í Bræðraborg
og stjórnaði málum í eldhúsinu sem
og almennum húsverkum. Dísa sendi
mig margar ferðir í Mjólkurstöðina
með brúsa til að sækja mjólk. Fyrir
5–7 ára dreng var ansi langt í Mjólk-
urstöðina svo ekki sé talað um að
mikið skemmtilegra var að leika sér
með krökkunum. En ekki varð hjá
því komist að fara í ferðina, og var
maður ekki alltaf hress með Dísu
frænku að senda mann í þessar ferð-
ir. En það var sama hvað ég tautaði
og raulaði, ekki komst ég upp með
neitt múður og höfum við oft hlegið
að þessari sögu.
Lífið í Bræðraborg er umvafið æv-
intýraljóma hjá mér enn þann dag í
dag og minnist ég oft þeirra daga
þegar húsið var fullt af fólki, gestum
og frændfólki allstaðar af landinu.
Umræðan var alltaf skemmtileg og
hress, sögur sagðar af gömlum tím-
um og mikið hlegið og mikið gaman,
langt fram eftir morgni. Farið var í
reglulegar ferðir út í Heiði og Dísa
stjórnaði lummukaffinu sem og nest-
ismálum, og þar var ekkert til spar-
að. Síðustu 15 árin eða svo hefur
Dísa verið í Reykjavík, lengst af í
Norðurbrún. Það sama má segja um
heimsóknir þangað sem og í Bræðra-
borg, hressleikinn, ánægjan, og hlýj-
an var ávallt til staðar. Sjónin var
orðin lítil sem engin og þekkti hún
mann af röddinni þegar hún kom til
dyra. Þó heilsan væri orðin lítil
breyttist lífsviðhorfið ekkert, og
aldrei var kvartað. Lífsánægjan til
staðar, ennþá fullt af sögum og frá-
sögnum, Dísa lifði lífinu lifandi fram
á síðustu stund.
Nú eru einungis tvö af þessum
stóra systkinahóp eftir, móðir mín
Bára og Einar, börn Lárusar og
Arnþrúðar frá Heiði á Langanesi.
Farin eru Guðlaug, Sæmundur,
Lára, Anna, Ari, Jón Trausti, Ingi-
mar, Þorgerður, Margrét, Aðal-
björg, Snorri, Bergþóra og nú Þór-
dís. Kærleikur, hlýja, og traust
þessara systkina hefur snert margan
manninn og er mikill söknuður í
slíku fólki. Lífs-hamingja, lífs-vilji,
og lífs-þróttur Dísu var einstakur, og
slíkt hið sama má segja um öll systk-
inin. Ég vildi svo sannarlega að mín
börn hefðu notið þess að vera með og
að kynnast þessum systkinum því
erfitt er að lýsa þeim áhrifum sem
þau hafa haft á mitt líf. En eitt er víst
að maður er betri manneskja fyrir
tilstilli Þórdísar og hennar systkina-
hóps.
Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl-
skyldu Dísu í sinni sorg og sendi
mína dýpstu samúð og vona að það
sé einhver styrkur í því að nú er Dísa
komin heim.
Kveðja,
Ingimar Örn Pétursson.
Þó ár og fjarlægð skilji okkur að
og engin geti komið í þinn stað
mun samt minning þín lifa
á meðan lifi ég,
á meðan lifi ég.
Og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lífið leit til mín
og leiddi mig til þín.
En ár og eilífð skilja okkur að
og engin getur komið í þinn stað,
þó skal minning þín lifa
á meðan lifi ég,
á meðan lifi ég.
Og ég þakka vil
þá dýru gjöf
að lífið leit til mín
og leiddi mig til þín.
(Friðrik Erlingsson.)
Mig langar að kveðja hana Dísu
með þessum orðum og þakka henni
hlýju og vinarþel í gegnum árin.
Blessuð sé minning hennar.
Lára Óskarsdóttir.
Í dag kveð ég hana Dísu með
söknuði, en minningin lifir um heil-
steypta konu. Hún hafði stórt og
hlýtt hjarta, frábæra kímnigáfu og
áleit að allar manneskjur væru innst
inni bestu sálir. Hún var fordóma-
laus á garð annarra og aldrei heyrði
ég hana tala illa um nokkurn mann.
Að hennar mati voru mistökin til að
læra af og leið til að bæta eigið líf.
Hún var afar trúuð kona og iðu-
lega leitaði hún styrks í bæninni til
guðs að kveldi dags og oft fengum
við vinir og skyldmenni, að fljóta
með ef hún vissi að erfiðleikar dundu
á í lífi okkar.
Dísu kynntist ég fyrir 26 árum,
þegar ég kom inn í fjölskyldu manns-
ins míns, en þá voru tvö systkinin frá
Heiði á Langanesi látin, en talan er
öfug í dag, 12 látin og aðeins Bára og
Einar lifa.
Fyrir mig sem kem úr lítill fjöl-
skyldu var þetta óskaplega mikið að
meðtaka í fyrstu, en þetta fólk tók
mér vel og þar bar Dísa strax af.
Árum saman hélt hún heimili með
Jóni bróður sínum og Heiðu dóttur
sinni norður á Þórshöfn. Og hvert
sumar var heldur betur setinn bekk-
urinn í Bræðraborg, því brottfluttir
ættingjar komu ár hvert og allir
gistu í Bræðraborg. Margar næturn-
ar var vakað og spjallað og þegar
Dísa var spurð að því hvort hún ætl-
aði ekki að leggja sig var viðkvæðið
að sumarið væri til þess að vaka, en
veturinn til þess að sofa.
Gott dæmi um gestaganginn er
sagan af því, þegar systurnar Bára
og Tóta ætluðu að sofna seint um
nótt eitt sinn, þá fannst ekki lófastór
blettur til að leggja sig, svo þær end-
uðu inni í „mömmuherbergi“, þar
sem Nonni geymdi net og í neta-
hrúgunni sofnuðu þær.
Þarna ríkti Dísa og sá um að vel
færi um alla. Minnisstæð er mér
kjötkássan, sem hún bjó til fyrsta
kvöldið, betri kjötkássu hef ég ekki
bragðað síðan. Þar sem Dísa sá ekki
bara um að allir fengju nóg að borða,
þá sá hún líka um að hafa ofan af fyr-
ir gestunum. Þetta sama kvöld fyrir
26 árum var ball í félagsheimilinu og
ekki um annað talandi, en Reykja-
víkurdaman færi á ballið. Mig lang-
aði svo sem ekkert, því mér leið
ósköp vel þarna, en engu tauti varð
komið við Dísu og við tvær gengum
út að félagsheimili til að kíkja á ball-
ið. Þarna stóð Dísa með svuntuna á
sér og áður en ég vissi af var hún allt
í einu umlukin fólki, sem hún þekkti
ekki, og þá varð mér ljóst, að þessi
kona bjó yfir þvílíkum þokka, hlýrri
framkomu og virðingu fyrir öðrum,
að ókunnugir gáfu sig strax á tal við
hana. Mig minnir að þarna á tröpp-
unum á félagsheimilinu hafi Dísa
fengið bónorð frá 54 ára gömlum
manni frá Bakkafirði, sem hún tók
nú að vísu ekki.
Þarna dvöldum við hjónin í viku og
í minningunni stendur tvennt upp úr,
þokan og sögurnar hennar Dísu, af
mönnum og málefnum, þegar
Langanesið var enn í byggð.
Svona liðu árin og Dísa og Heiða
fluttu til Reykjavíkur. Heiða flutti
inn á sambýli, en Dísa bjó sér heimili
í Mjóuhlíð og síðar í Norðurbrún. Þá
var oft kíkt í kaffi til Dísu til að
spjalla og fá fréttir, því gestagang-
urinn hélt áfram hjá Dísu, þótt hún
væri flutt á annað landshorn, þannig
varð hún miðja Heiðarættarinnar í
Reykjavík.
Ég og fjölskylda mín eigum henni
svo margt að þakka og sérstaklega
er stráknum mínum, honum Jóni
Halldóri, minnisstæð öll þau ævin-
týri, sem hún sagði honum og þar
stendur upp úr sagan af Signýju,
Helgu og Loðinbarða, sem Dísa
þurfti að segja honum aftur og aftur
og á meðan sat strákur grafkyrr,
sem að öðru jöfnu var aldrei kyrr.
Þessi kona gat gefið endalaust af
sér með glaðsinni sínu og alltaf
fylgdu manni blessunarorð, ef maður
færði henni eitthvað smáræði.
Nú verða jólin í ár ekki söm, því á
aðfangadag fórum við fjölskyldan
alltaf til Dísu til að hlægja, borða
smákökur, trekkja upp jólabjölluna
og óska gleðilegra jóla. Í ár verður
það kerti á leiðið og við verðum að
bíða með smákökurnar og endur-
fundina til síðari tíma.
Síðustu dagarnir fyrir andlátið
voru Dísu erfiðir, en þrátt fyrir það
hélt hún áfram að gefa. Allir sem
heimsóttu hana fengu í nestið bless-
unarorð og beiðni um að hafa ekki
áhyggjur af sér. Hún væri sátt við
orðinn hlut og það yrði gott að fara.
Lítill frændi Dísu, hann Ingi Páll,
á sama afmælisdag og hún og síðast-
liðið sumar fór hann í heimsókn til
Dísu á afmælisdaginn þeirra, þegar
hún varð níu-núll, eins og hann orð-
aði það. Þegar hann frétti að hún
væri dáin vildi hann koma því á
framfæri, að hann saknaði hennar og
hann myndi alltaf hugsa til hennar 7.
júní ár hvert.
Við Þráinn, Jón Halldór og
Hrefna sendum ykkur Dúdda,
Heiðu, Helen, Hrund, Heiðdísi og
fjölskyldum ykkar samúðarkveðjur.
Eftir sitjum við með minningu af
góðri konu, sem sýndi okkur fram á
að ef maður deilir gleðinni í hjarta
sínu með öðrum fær maður það
margfalt til baka.
Guðrún.
Dísa var merkiskona og einstök á
sinn hátt. Hún hafði heilmikla spá-
dómsgáfu og næmi fyrir einstakling-
um. Minnugri konu hef ég aldrei
kynnst. Frásagnargáfa hennar var
þvílík að sögurnar sem hún sagði
urðu ljóslifandi, þannig að börnin
mín horfðu á hana agndofa og það
heyrðist ekki múkk í þeim á meðan
hún sagði frá, svo hugfangn voru
þau.
Þú hafðir fagnað með gróandi grösum
og grátið hvert blóm sem dó.
Og þér hafði lærzt að hlusta unz hjarta
í hverjum steini sló.
Og hvernig sem syrti, í sálu þinni
lék sumarið öll sín ljóð,
og þér fannst vorið þitt vera svo fagurt
og veröldin ljúf og góð.
Samt vissirðu að Dauðinn við dyrnar beið.
Þig dreymdi að hann kæmi hljótt
og legði þig brosandi hönd á hjarta.
Svo hvarf hann, en ljúft og rótt
heyrðurðu berast að eyrum þér óm
að undursamlegum nið.
Það var eins og færi þar fjallasvanir
úr fjarlægð með söngvaklið.
Og dagurinn leið í djúpið vestur,
og Dauðinn kom til þín.
Þú lokaðir augunum – andartak
sem ofbirta glepti þér sýn.
Og um varir þér brá fyrir brosi þeirra,
sem bíða í myrkrinu og þrá
daginn, – og sólina allt í einu
í austrinu rísa sjá.
Og Dauðinn þig leiddi í höll sína heim
þar sem hvelfingin víða og blá
reis úr húmi hnígandi nætur
með hækkandi dag yfir brá.
Þar stigu draumar þíns liðna lífs
Í loftinu mjúkan dans.
Og Drottinn brosti, hver bæn þín var orðin
að blómum við fótskör hans.
Hann tók þig í fang sér og himnarnir hófu
í hjarta þér fagnandi söng.
Og sólarkerfi dagana svifu þar
um sál þína í tónana þröng.
En þú varst sem barnið, er beygir kné
til bænar í fyrsta sinn.
Það á enginn orð nógu auðmjúk til,
en ávarpar: Faðir minn!
(Tómas Guðmundsson.)
Engin kona var þér lík, elsku Dísa
okkar. Minningin lifir í hjörtum okk-
ar um alla eilífð.
Sæmundur, Sigríður og börn.
Kæra Dísa mín, ég kveð með
blendnum huga, sorgmæddur yfir
því að þú sért farinn frá okkur, en
ánægður að þínum þjáningum er lok-
ið. Einnig að nú, eftir margra ára
veru í myrkri, sérð þú alla liti himn-
anna.
Fyrstu kynni mín af Dísu voru frá
Þórshöfn á Langanesi. Árlega var
farið í ferðalag til Þórshafnar og gist
í Bræðraborg yfir sumarið. Þar
bjuggu systkinin Nonni, Ingimar
(nafni minn) og Dísa. Fyrir lítinn
dreng voru þetta ævintýraferðir því
alltaf var ánægja, hressleiki, sögur
sagðar, o.s.frv. Einnig fékk maður að
fara niður í fjöru, skoða skeljar, leika
sér frjáls eins og fuglinn án nokk-
urrar íhlutunar, svo fannst manni
a.m.k. Einn daginn sat ég á eldhús-
bekknum í Bræðraborg, líklega fjög-
urra til fimm ára gamall, þegar ég
fann prjóna sem voru á bekknum og
viti menn, ég sting þeim í innstung-
una og það er ekki að sökum að
spyrja, það var eins og það hafi
kviknað í mér. Ég sit fastur með
prjónana í innstungunni og það er
Dísa frænka sem hendir sér á mig til
að losa mig frá innstungunni. Segið
svo að það hafi ekki verið stuð í
Bræðraborg. Eftir þetta sagði Dísa,
sem satt er, að hún ætti lífið í mér.
Samband mitt og Dísu hefur alltaf
verið mjög náið og við oft rætt málin
yfir kaffibolla.
Dísa var bústýran í Bræðraborg
og stjórnaði málum í eldhúsinu sem
og almennum húsverkum. Dísa sendi
mig margar ferðir í Mjólkurstöðina
með brúsa til að sækja mjólk. Fyrir
fimm til sjö ára dreng var annsi langt
í Mjólkurstöðina svo ekki sé talað
um að miklu skemmtilegra var að
leika sér með krökkunum. En ekki
varð hjá því komist að fara í ferðina
og var maður ekki alltaf hress með
Dísu frænku að senda mann í þessar
ferðir. Það var sama hvað ég tautaði
og raulaði, ekki komst ég upp með
neitt múður og höfum við oft hlegið
að þessari sögu.
Lífið í Bræðraborg er umvafið æv-
intýraljóma hjá mér enn þann dag í
dag og minnist ég oft þeirra daga
þegar húsið var fullt af fólki, gestum
og frændfólki alls staðar af landinu.
Umræðan var alltaf skemmtileg og
hress, sögur sagðar af gömlum tím-
um og mikið hlegið og mikið gaman,
langt fram eftir morgni. Farið var í
reglulegar ferðir út í Heiði og Dísa
stjórnaði lummukaffinu sem og nest-
ismálum og þar var ekkert til sparað.
Síðustu 15 árin eða svo hefur Dísa
verið í Reykjavík, lengst af í Norð-
urbrún. Það sama má segja um
heimsóknir þangað sem og í Bræðra-
borg, hressleikinn, ánægjan og hlýj-
an var ávallt til staðar. Sjónin var
orðin lítil sem engin og þekkti hún
mann af röddini þegar hún kom til
dyra. Þótt heilsan væri orðin léleg
breyttist lífsviðhorfið ekkert og aldr-
ei var kvartað. Lífsánægjan til stað-
ar, ennþá fullt af sögum og frásögn-
um, Dísa lifði lífinu lifandi fram á
síðustu stund.
Nú eru einungis tvö af þessum
stóra systkinahópi eftir, móðir mín
Bára og Einar, börn Lárusar og
Arnþrúðar frá Heiði á Langanesi.
Farin eru Guðlaug, Sæmundur,
Lára, Anna, Ari, Jón Trausti, Ingi-
mar, Þorgerður, Margrét, Aðal-
björg, Snorri, Bergþóra og nú Þór-
dís. Kærleikur, hlýja og traust
þessara systkina hefur snert margan
manninn og er mikill eftirsjá að slíku
fólki. Lífshamingja, lífsvilji og lífs-
þróttur Dísu var einstakur og slíkt
hið sama má segja um öll systkinin.
Ég vildi svo sannarlega að mín
börn hefðu notið þess að vera með og
kynnast þessum systkinum því erfitt
er að lýsa þeim áhrifum sem þau
hafa haft á mitt líf. Eitt er víst að
maður er betri manneskja fyrir til-
stilli Þórdísar og hennar systkina-
hóps.
Ég bið góðan Guð að styrkja fjöl-
skyldu Dísu í sorginni og sendi mína
innilegustu samúðarkveðju og vona
að það sé einhver styrkur í því að nú
er Dísa komin heim.
Ingimar Örn Pétursson.
Fullkomnaðu
verkið
með
þakrennukerfi
þakrennukerfi
BLIKKÁS EHF.
SKEMMUVEGUR 36
200 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111
Fagm
enns
ka
í
fyrir
rúmi
Söluaðilar um land allt