Morgunblaðið - 16.11.2001, Síða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 55
LIONSKLÚBBURINN Kaldá í
Hafnarfirði er að hefja sína árlegu
jólakortasölu, og mun allur ágóði
renna til líknarmála.
Rebekka Gunnarsdóttir, mynd-
listarkona, sem er ein félagskvenna
Kaldár, hefur teiknað kortið.
Jólakort Kaldár
komið út
SALA er haf-
in á jóla-
kortum
Styrktarfé-
lags vangef-
inna. Um eina
mynd er að
ræða, „Jól“
eftir Ellu
Halldórsdótt-
ur, starfs-
mann í Bjark-
arási og nemanda í Fjölbraut í
Breiðholti.
Kortin fást stök, bæði með og án
texta á kr. 85 stk. og einnig 6 í
pakka á kr. 500. Kortin verða til
sölu á skrifstofu félagsins í Skip-
holti 50c, 3. hæð, í Bjarkarási,
Lyngási, Ási, Þroskahjálp, Öryrkja-
bandalagi Íslands, Styrktarfélagi
lamaðra og fatlaðra, Blómálfinum,
Blómabúðinni Kringlunni, Nesapó-
teki, Efnalauginni Björg og Skip-
holtsapóteki.
Jólakort
Styrktarfélags
vangefinna
Tillaga um nýtt nafn
Samfylkingarinnar
Ranglega var sagt í blaðinu í gær
að Ásta R. Jóhannesdóttir alþingis-
maður legði til á landsfundi Samfylk-
ingarinnar að nafni flokksins verði
breytt í Samfylkingin – Jafnaðar-
flokkur Íslands. Tillaga Ástu Ragn-
heiðar er að nafninu verði breytt í
Samfylkingin – Jafnaðarflokkurinn.
Leiðréttist þetta hér með.
LEIÐRÉTT
ELSA E. Guðjónsson, textíl- og bún-
ingafræðingur, flytur fyrirlestur
með litskyggnum laugardaginn 17.
nóvember kl.14 á vegum Heimilis-
iðnaðarskólans í húsnæði Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands, Laufásvegi 2.
Elsa fjallar, í máli og myndum, um
faldbúning íslenskra kvenna eins og
hann tíðkaðist á seinni hluta 18. og
fyrri hluta 19. aldar. Heimildir eru
fengnar víða að. Aðalhlutar faldbún-
ingsins voru faldur, kragi, treyja,
upphlutur, skyrta, pils og svunta
(síðar ein flík: samfella), nærpils og
síðar einnig millipils; auk þess belti
og ýmsir klútar: hálsklútur, handlín
og höfuðklútur.
Í erindinu verður gerð nánari
grein fyrir hinum ýmsu flíkum, heit-
um þeirra, gerð og efni og þeim
breytingum sem urðu á þeim og fald-
búningnum í heild á þessu tímabili.
Aðgangseyrir kr. 1.000, kaffi og
kleinur innifalið. Allir velkomnir.
Íslenski fald-
búningurinn
um 1800
OPIÐ hús verður í höfuðstöðvum
AcoTæknivals, Skeifunni 17, föstu-
daginn 16. nóvember, kl. 13-18. Til-
efnið er tvíþætt, annars vegar að
bjóða viðskiptavinum Aco og Tækni-
vals í heimsókn í nýja sameinaða fyr-
irtækið og hins vegar að kynna
tölvubúnað af ýmsu tagi og lausnir
sem fyrirtækið hefur á boðstólum.
Fyrirlestrar og kynningar verða á
átta stöðum í húsakynnum Aco-
Tæknivals og m.a. verður vakin sér-
stök athygli á Sony fjarfundabúnaði,
nýju Evo línunni frá Compaq, þráð-
lausum lausnum fyrir fartölvur,
„Thin Client“ netlausn, íslenskuðu
iDVD forriti frá Apple, nútímaskrif-
stofunni í Office 1, stafrænum prent-
lausnum frá Ricoh, HP og Xerox, ör-
yggislausnum með Cisco VPN,
heildarlausnum í verslunarkerfum,
Veritas afritunarbúnaði og Compaq
Proliant Intel netþjónum, segir í
fréttatilkynningu.
Opið hús
í AcoTæknivali
OPINN afmælis- og kynningarfund-
ur AL-ANON-samtakanna verður í
dag, föstudaginn 16. nóvember, í Bú-
staðakirkju og hefst kl. 20.30. Sam-
tökin voru stofnuð á Íslandi 18. nóv-
ember 1972, og eru því 29 ára.
Á fundinum segja fjórir AL-
ANON-félagar og einn félagi í AA-
samtökunum sögur sínar. AL-
ANON-samtökin hafa aðeins einn
tilgang, að hjálpa aðstandendum
alkóhólista. Kaffi að fundi loknum,
segir í fréttatilkynningu.
Afmælis- og
kynningarfundur
AL-ANON
MÁLÞING um framtíð þjóðminja-
vörslu verður haldið í Odda, stofu
101, laugardaginn 17. nóvember, kl.
14, á vegum Félags íslenskra forn-
leifafræðinga.
Síðastliðið vor voru samþykkt á
Alþingi ný þjóðminjalög sem boða
grundvallarbreytingar á skipan
þjóðminjavörslunnar, segir í frétta-
tilkynningu. Erindi halda: Karitas
H. Gunnarsdóttir, Kristín Huld Sig-
urðardóttir, Margét Hallgrímsdótt-
ir, Magnús Skúlason. Að erindunum
loknum verða almennar umræður.
Málþing um
framtíð
þjóðminjavörslu
RANDALÍN á Egilsstöðum býður
til sýningar á nýstárlegri hönnun
nytjahluta. Má þar nefna lampa, ljós-
ker, gestabækur, hirslur undir jóla-
póst og skjöl, sem og albúm.
Sýningin verður í húsnæði Hand-
verks og hönnunar í Aðalstræti 12,
Reykjavík, föstudag 16. nóvember
kl. 18-22 og laugardag 17. nóvember
kl. 10-16. Allir velkomnir.
Sýning hjá Randalín
DR. DAVID Julian við Tiburon mið-
stöðina fyrir umhverfisrannsóknir við
ríkisháskólann í San Francisco heldur
fyrirlestur á vegum Líffræðistofnun-
ar Háskólans í dag, föstudaginn 16.
nóvember, kl. 12.20, í stofu G-6 á
Grensásvegi 12. Allir velkomnir.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og ber heitið: „Sulphide De-
toxification in Marine Invertebrates:
A New Perspective“.
Fyrirlestur í Líf-
fræðistofnun HÍ
FUNDUR vegna sameiningar Fé-
lags ræstingastjóra og Félags fag-
fólks í ræstingum verður haldinn að
Hallveigarstöðum við Túngötu í dag,
föstudaginn 16. nóvember, kl. 20.
Á dagskrá fundarins verður m.a.
sameining Félags ræstingastjóra og
Félags fagfólks í ræstingum. Kosn-
ing stjórnar hins sameinaða félags.
Fundinn sækir fulltrúi Norræna
ræstitækniráðsins, hr. Poul Vistoft.
Léttar veitingar í boði.
Stofnfundur
ræstingafólks
GANGA og útifundur verður laug-
ardaginn 17. nóvember kl. 14 undir
yfirskriftinni Gegn stríði og ofbeldi.
Safnast verður saman á Skólavörðu-
holti (við Hallgrímskirkju) og geng-
ið niður Skólavörðustíg á Lækjar-
torg þar sem haldinn verður
útifundur.
Föstudaginn 19. október sl. stóð
hópur einstaklinga og samtaka fyrir
göngu og útifundi á Lækjartorgi
undir yfirskriftinni Gegn stríði og
ofbeldi. Á þeim tæpa mánuði sem
liðinn er hefur ástandið versnað og
loftárásir Bandaríkjamanna á Afg-
anistan hafa nú þegar drepið fjölda
óbreyttra borgara og milljónir eru á
flótta frá heimilum sínum af þeirra
völdum og ofbeldismanna í landinu
sjálfu, segir í fréttatilkynningu.
Útifundur gegn
stríði og ofbeldi
Listskautar:Vinil
Hvítir: 28-44. Svartir: 33-46
Stærðir 28-36
kr. 4.201.
Stærðir 37-46
kr. 4.689
Hokkískautar:
Reimaðir
Stærðir 37-46
Verð aðeins
kr. 9.338
Smelluskautar:
Stærðir 29-41
Verð aðeins
kr. 4.989
Hokkískautar:
Smelltir
Stærðir 36-46
Verð aðeins
kr. 5.990
Barnaskautar
(Smelluskautar)
Stærðir 29-36
Verð aðeins
kr. 3.989
Listskautar:
Leður
Hvítir:
Stærðir 31-41
Verð aðeins
kr. 6.247.
Svartir:
Stærðir 36-45
kr. 6.474
Nýjung:
Skautar undir HYPNO
línuskautaskó
kr. 4.823
Skeifunni 11, sími 588 9890
Opið laugardaga frá kl. 10-14
KRINGLUNNI - SMÁRALIND - AKUREYRI
ABBAS
www.lloyd-shoes.de
NÝ SENDING
FJÖLSKYLDUDAGUR verður í fé-
lagsheimilinu Gullsmára laugardag-
inn 17. nóvember kl. 14.
Samstarf hefur verið við Smára-
skóla og munu nemendur þaðan
ásamt foreldrum sínum og ættingj-
um vera á hátíðinni. Ágústa Sigrún
Ágústsdóttir syngur, kór Hjalla-
skóla syngur undir stjórn Guðrúnar
Magnúsdóttur og dansarar frá
Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar
sýna dans. Aðstaða verður fyrir
yngri börnin að teikna og lita. Boðið
upp á vöffluhlaðborð, kr. 500 fyrir
fullorðna, kr. 300 fyrir 6–12, frítt fyr-
ir 5 ára og yngri.
Dagskráin endar á dagskrárlið
sem nefnist hláturinn lengir lífið,
segir í fréttatilkynningu. Allir vel-
komnir.
Fjölskyldudagur
í Gullsmára
JSB heldur danshæfileikakeppni
laugardaginn 17. nóvember kl. 19.30
í Íþróttahúsinu Digranesi.
Keppt verður með sama sniði og á
Íslandsmótinu í Freestyle. 16 ein-
staklingar og 17 hópar eru skráðir til
leiks, samtals 73 keppendur, allt
nemendur við Jassballettskóla Báru.
Í aldurshópi 10-13 ára verður
keppt um JSB-bikarinn sem er far-
andbikar og í aldurshópi 14-17 ára
verður keppt um dansbikarinn, sem
einnig er farandbikar. Jassballett-
skóli Báru mun í framhaldi gera
danshæfileikakeppni í skólanum að
árlegum viðburði og verður hún
nefnd eftir bikarnum í eldri keppn-
inni, Dansbikarnum, segir í frétta-
tilkynningu.
Allir velkomnir. Verð kr. 500.
Danshæfileika-
keppni hjá JSB