Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 56

Morgunblaðið - 16.11.2001, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. VAXTALÆKKANIR eru nú á margra vörum, ekki hvað síst spá- manna á því sviði. Og þá þykir enginn gáfulegur nema hann tali um vaxta- breytingar uppá svo og svo marga „punkta“. Þetta er ómerkileg og óþörf amerísk sletta, sem eykur ekki tiltrú á spekingana. „Punktarnir“ vísa til þess hvernig tugabrot eru skráð í hinum ensku- mælandi heimi. Þar eru skilin milli heiltölu og tugabrots auðkennd með punkti en við, og margir aðrir, notum kommu í sama skyni. Punktatalið þeirra amerísku tekur mið af tuga- brotsskráningu á vöxtum með tveim- ur aukastöfum; tveimur vegna þess að þannig eru flestar viðskiptalegar reiknivélar og reikniforrit stillt enda svarar það til senta sem hundraðs- hluta úr dali. Þeir sem vilja apa allt eftir Ameríkönum ættu þannig að minnsta kosti að tala um „vaxta- kommur“ fremur en „vaxtapunkta“ allt eins og foreldrar hér á landi segja börn sín vera með svo og svo margra „kommu“ hita og er þá átt við tíund úr celsíusstigi umfram 37̊ C. En skýrast og best er að tala hvorki um „vaxtakommur“ og enn síður um „vaxtapunkta“ heldur segja skýrt það sem um er að ræða. Þegar fjármálavitringarnir segja að vextir eigi að lækka um 100 punkta þá meina þeir ekkert annað en að vext- irnir eigi að lækka um 1 prósent, t.d. úr 10% í 9%. Sumum þykir skýrara að tala um vexti í „prósentustigum“ og tala þá um lækkun um 1 prósentu- stig. Hvort tveggja finnst mér skýrt og skiljanlegt. Sem sagt, spekingar í bönkum og öðrum fjármálastofnunum, segið okkur berum orðum að vextir lækki um tilgreindar prósentur eða pró- sentustig en jagist ekki í ruglinu um punktana. ÞORKELL HELGASON Strönd, Bessastaðahreppi. Punktur, punktur, komma – stig Frá Þorkeli Helgasyni: SVO virðist sem flest óbyggð svæði í landi Garðabæjar séu að verða eitt allsherjar sílamávs- og silfurmávs- varpsvæði. Það er Garðaholt, Gálga- hraun, landið hans Jóns Ólafssonar og í Vífilsstaðalandi svo eitthvað sé nefnt. Mig undrar að heilbrigðisyfirvöld og umhverfisnefnd Garðabæjar skuli sitja aðgerðarlaus yfir þessum ófögnuði sem nærist á óhreinsuðu skolpi meðal annars. Fyrir svo utan sóðaskapinn að hafa þennan salmonellubera flögr- andi yfir byggðinni þá ber ég hag mófuglanna fyrir brjósti því eins og flestir vita étur sílamávur unga og egg mófugla og finnst mér nú taka steininn úr hjá umhverfisnefnd Garðabæjar að setja skilti a.m.k. á tveimur stöðum um að varpsvæðið sé friðlýst og öll eggjataka bönnuð, ég held að nær hefði verið að biðja fólk um að setja göt á sílamávsegg en að mófuglahreiðrin væru friðlýst ef ein- hver eru þá eftir innan um varginn. Heilbrigðiseftirlitið heldur að sér höndum því Náttúrufræðistofnun er ekki hlynnt miklum aðgerðum gegn hinum sístækkandi sílamávsstofni. Það gat nú verið að þeir þar á bæ væru með þann fugl undir sínum verndarvæng, vargdýrafriðun virð- ist þeirri stofnun hvað hugleiknust í dag, það er einsog þeir hafi ekki gert sér grein fyrir hvað maðurinn er bú- inn að grípa gífurlega inn í gang náttúrunnar. Sílamávur og starri námu ekki land hér fyrr en með auk- inni mengun á síðustu öld og dýrum, sem þrífast á úrgangi frá manninum, fjölgar óeðlilega mikið. Ef viðhalda á jafnvægi og fjölskrúðugu dýralífi verður að halda þessum tegundum niðri með skipulögðum veiðum. Þessu hafa t.d. æðarvarpsbændur gert sér grein fyrir fyrir löngu og það er þeim að þakka en ekki fugla- fræðingum að æðarfuglinn er ekki í útrýmingarhættu hérna eins og á hinum Norðurlöndunum. Það er ekki Náttúrufræðistofnun að þakka að fuglalífið við Mývatn er í þokkalegu ástandi heldur bændunum sem þar búa og þó einkum og sér í lagi mein- dýraeyði svæðisins sem er hugsjóna- maður sem vinnur vinnuna sína og er afburðaskytta. Þetta er maður sem alinn er upp við Mývatn og veit hvað heilbrigt fuglalíf er. En það er einsog náttúrufræðingarnir séu komnir úr tengslum við heilbrigða náttúru og dýralíf, enda með Tjörnina í miðborg Reykjavíkur sem sína helstu nátt- úruperlu en þar er fuglalífið um þessar mundir eins og á opnum sorp- haug í þriðjaheimsríki. Þokkaleg ímynd hinnar hreinu borgar. Á Þingvöllum fer mófuglum og rjúpum ört fækkandi. Það þarf ekk- ert að leggjast í flóknar rannsóknir til að gera sér grein fyrir því. Ég bara spyr hvernig má það vera að meindýraeyðing skuli ekki vera bróðurparturinn af starfi heilsárs- landvarða á svæðinu? Hvað eru þessir landverðir að sýsla þarna á launum allan ársins hring? Það er eftir öðru með þessa Nátt- úrufræðistofnun að tillaga um að banna sölu á rjúpu til þess að koma í veg fyrir að hún sé skotin í atvinnu- skyni skuli hafa komið frá Skotveiði- félagi Íslands, en ekki henni. Fugla- fræðingar hafa engar áhyggjur af fækkun rjúpunnar, hún er bara í þessari yfirnáttúrulegu 10 ára lægð, veiðar skipta engu máli, sama og út- gerðarmenn héldu lengi fram með þorskinn. ÁSDÍS ARTHÚRSDÓTTIR, Ægisgrund 10, Garðabæ. Garðabær – útungunarstöð fyrir sílamáv? Frá Ásdísi Arthúrsdóttur:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.