Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 13
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 13 Langt - fyrir lítið út í heim 30. jan. 17 d. Stóra-Thailandsferðin Allt landið í fegursta skrúða: Bangkok, River Kwai, Pitsanulok, Sukuthai, CHIANG MAI- blómahátíð, Chiang Rai, og í lokin JOMTIEN með frábæru NEW WING PALM BEACH. Janúarferðir nær uppseldar. Laus sæti í mars. Munið gjafakort Heimsklúbbsins - fögur gjöf - varanleg gleði! Frábærar Thailandsferðir með ísl. farastjóra: Steindór og Hulda endur- taka snilldarferð sína 9. jan. Undra Thailand - 17 d. frá kr. 129.900.- fá sæti. Heimsklúbbsins - Príma Thailandsferðir Alveg ótrúlegar nýjar FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST. PÖNTUNAR- SÍMI: 56 20 400 Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Dagskrá 10:00 Inngangur Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri RANNÍS 10:10 Lokafrestur í Félags- og hagfræðiáætlun 5. rammaáætlunar ESB Peter Fisch, Evrópusambandinu 11:10 Tækifæri í 6. rammáætlun ESB Peter Fisch, Evrópusambandinu 11:55 Stuðningur RANNÍS við umsækjendur í Félags- og hagfræðiáætlun ESB Hjördís Hendriksdóttir, forstöðumaður alþjóðasviðs RANNÍS 12:05 Hádegishlé 12:15 Umræður Aðkoma Íslands að félags-og hagfræðiáætlunum ESB - hvernig er hægt að auka þátttöku íslenskra vísindamanna? Einkaviðtöl við Peter Fisch hjá Evrópusambandinu Hægt er að panta fyrirfram einkaviðtöl við Peter Fisch um hugsanlegar verkefnahugmyndir íslenskra vísindamanna. Viðtölin fara fram eftir hádegi mánudaginn 26. nóvember. Viðtöl skal panta eigi síðar en fimmtudaginn 22. nóv. í síma 515 5800. Félagsfræðingar Hagfræðingar Kennslufræðingar Mannfræðingar Sálfræðingar Siðfræðingar Stjórnmálafræðingar Stjórnunarfræðingar Uppeldisfræðingar Upplýsingafræðingar Viðskiptafræðingar Þjóðfræðingar Styrkir Félags-og hagfræðiáætlunar Evrópusambandsins Kynningarfundur, Norræna húsinu, mánudaginn 26. nóvember kl. 10-13:30 5. rammaáætlun ESB Síðasti frestur 15. janúar 2002. Umsóknargögn er að finna á http://www.cordis.lu/improving/socio-economic/home.htm 6. rammaáætlun ESB er nú í undirbúningi og er áætlað að hún taki gildi í lok árs 2002. Í hinni nýju áætlun er gert ráð fyrir auknu umfangi félags- og hagvísinda í sérstakri undiráætlun Citizens and governance in the European knowledge socitey. Landstengiliðir við Félags- og hagfræðiáætlun ESB á Íslandi veita upplýsingar um áætlunina og aðstoða umsækjendur. Landstengiliðir eru: Hjördís Hendriksdóttir, forstöðumaður alþjóðsviðs RANNÍS, sími: 515 5809, netfang: hjordis@rannis.is Ásta Sif Erlingsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaþjónustu H.Í., sími: 5254900, netfang: astasif@hi.is Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram með tölvupósti rannis@rannis.is eða í síma 515 5800 fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 22. nóvember n.k. H N O T S K Ó G U R R Í 4 1 3 -0 1 HEIÐURSGESTUR á landsfundi Samfylkingarinnar í vikunni er dr. Mustafa Barghouthi sem er palest- ínskur læknir og forseti UPMRC, sambands læknishjálparnefnda á svæðum Palestínumanna. Sam- bandið veitir um þriðjungi Palest- ínumanna, um milljón manna, heil- brigðisþjónustu við mjög erfiðar aðstæður, einkum í sveitahéruðum, og er starfið unnið endurgjaldslaust að miklu leyti. Alþjóðastofnanir ann- ast að hluta kostnaðinn en einnig sjá þær um þjónustu við aðra íbúa svæðanna sem margir búa í flótta- mannabúðum. Hlaut sambandið í vor sérstök verðlaun Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar, WHO, fyrir starf í þágu heilbrigðis og frið- ar. Barghouthi hefur verið virkur í stjórnmálum, sat meðal annars í nefnd sem undirbjó stofnun ráðu- neyta Palestínustjórnar Yassers Arafats. Hann segir að vegna vax- andi atvinnuleysis á svæðunum og minnkandi þjóðarframleiðslu sé orð- ið erfiðara en áður að fjármagna rekstur heilbrigðisþjónustunnar. Rúmlega 60% Palestínumanna lifi nú undir skilgreindum fátækt- armörkum. Starf sjálfboðaliða Fátækt og vanþróun eigi sök á hárri dánartíðni ungbarna og tíðni smitsjúkdóma. En margt valdi erf- iðleikum við að halda uppi heilbrigð- isþjónustu eftir að átakahrinan hófst í fyrra með uppreisn Palestínu- manna, intifada. „Um 840 Palestínumenn hafa fall- ið á rúmu ári og um 24.000 slasast. Þetta svarar hlutfallslega til þess að um 70.000 Bandaríkjamenn hefðu fallið og um 200 þúsund særst. Þetta er því mikið álag og við þurfum oft að beita nýstárlegum aðferðum vegna þess að við höfum hvorki mik- ið fé, mannafla né tæki. Við reiðum okkur því mikið á starf sjálfboðaliða. UPMRC hefur þjálfað um 18.000 manns í skyndihjálp síðan í fyrra. Í öðru lagi verður að hafa í huga samgönguerfiðleika. Ísraelsher hef- ur hlutað svæði okkar niður í alls rúmlega 220 þyrpingar með minni byggðum, þorpin og bæirnir eru síð- an að verulegu leyti einangruð og samgöngur á milli þeirra takmark- aðar. Um 70% Pal- estínumanna búa í dreifbýli, þar eru ekki sjúkrahús eða viðunandi heilsu- gæslustöðvar. Þess vegna skipta samgöngur miklu fyrir heilbrigðisþjónustuna; samgöngubann ísraelskra stjórn- valda veldur stöðugt vanda. Ferð sem venjulega tæki aðeins stund- arfjórðung tekur nú þrjár og hálfa klukkustund, ef það er þá hægt að fara milli staðanna. Skipta verður um bíl nokkrum sinnum á leiðinni, oft þarf að ganga og það getur veikt fólk ekki alltaf.“ Barghouthi er spurður hvort Pal- estínumenn njóti þjónustu á ísr- aelskum sjúkrahúsum en hann svar- ar því að sú þjónusta sé of dýr fyrir landa hans. Gjaldið sé eins og um er- lenda ferðamenn sé að ræða, nótt á sjúkrahúsi kosti um 400 dollara eða rúmlega 40.000 krónur. „Samið var um það í Óslóar- viðræðunum að Ísraelar myndu láta stjórn Arafats fá skattfé sem inn- heimt er af íbúum hernumdu svæð- anna en það hafa þeir ekki gert held- ur haldið peningunum, segjast gera það til að refsa Palestínumönnum. Þetta eru nú orðnar um 750 milljónir dollara [nær 80 milljarða króna] þetta er hreinn þjófnaður og enn eitt dæmið um brot Ísraela á alþjóða- samningum.“ Sjúkdómar og einkenni En hvað með alræmda spillingu í stjórn Palestínumanna, er hún ekki hemill á að stjórnin geti orðið starf- hæf? „Það er rétt að spilling hefur ríkt en vandinn er fyrst og fremst að Ísraelar ýttu með óbilgirni sinni undir einræðisstjórnarfar og með þeirri stefnu efldu þeir málstað bók- stafstrúarmanna. En það er samt ekki sanngjarnt að skella skuldinni á Ísraela fyrir allt sem er að hjá okkur sjálfum. Við vinnum að því að gera stjórnkerfi okkar lýðræðislegra og efla mannréttindi. En Ísraelar heimta að menn séu handteknir með ólöglegum hætti vegna baráttunnar gegn hryðjuverk- um. Samtímis segja þeir um- heiminum að Pal- estínustjórn sé ólýðræðisleg og ekki sé hægt að semja við slíka stjórn! Palestínustjórn ræður yfir innan við 18% af Vesturbakkanum og Gaza og umráðasvæði hennar er þar að auki klofið í margar litlar einingar. Hún má ekki láta lögreglumann fara frá einu smásvæðinu til annars, ræð- ur ekki yfir vegunum, ekki loftrým- inu eða fjarskiptum. Samt ætlast þeir til að þessi stjórn tryggi öryggi Ísraela. Arafat verður að geta í reynd stjórnað á svæðunum og leiðin til aukins öryggis er einfaldlega sú að leyfa okkur að stofna eigin ríki. Sem læknir segi ég að menn eigi ekki að meðhöndla sjúkdómseinkennin held- ur finna orsökina. Ofbeldið og ör- yggisleysið eru einkennin en her- námið er orsökin. Hernámið er að verða að krabbameini sem getur orðið báðum þjóðunum að bana og breiðst út til annara landa,“ segir Mustafa Barghouthi. Ofbeldið og öryggisleysið einkenni en ekki orsök Palestínskur læknir segir að stjórn Arafats geti ekki stjórnað nema sjálfstætt ríki verði að veruleika Morgunblaðið/Árni Sæberg Dr. Mustafa Barghouthi er læknir og býr í Ramallah þar sem hann rekur öfluga heil- brigðisrannsóknastofnun. ’ Ísrael ýtir meðóbilgirni undir ein- ræði í Palestínu ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.