Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 14

Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 14
14 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SEX AF hverjum tíu starfs-mönnum þriggja afstærstu fyrirækjunum áverðbréfamörkuðum hér-lendis eru á aldrinum 21 til 30 ára og aðeins fjórir af hundraði hafa náð fertugu. Tæplega 60% starfsmanna á verðbréfamarkaðn- um hafa einungis unnið á þeim vett- vangi í tæp tvö ár. Margir kvarta undan streitu en langflestir eru engu að síður ánægðir í starfi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rannsókn Hildar Friðriks- dóttur, nema í félags- og atvinnulífs- fræði við Háskóla Íslands, en hún lagði spurningar fyrir starfsmenn þriggja stærstu fyrirtækjanna á þessu sviði. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og Vinnueftirliti ríkisins. Markmið rannsóknarinnar er að kortleggja andlegt og félagslegt álag starfsfólks, orsakir þess og af- leiðingar. Hildur segir það hafa ver- ið staðfest sem gengið var út frá, að mikil streita fylgi umræddum störf- um, að álagið sé mikið, vinnutími langur og oft sé unnið undir mikilli tímapressu. „Orðræðan hefur verið sú, að í þessari starfsgrein vinni menn undir miklu andlegu álagi, þar sem þeir eru ýmist ráðgefandi um ákvarðanir um fjármagn viðskipta- vina sinna eða eru með eigur þeirra í fjárvörslu og taka að einhverju leyti sjálfstæðar ákvarðanir um hvernig best sé að ávaxta fé þeirra. Ytri að- stæður, eins og þróun markaða – hvort sem er hlutabréfa- eða gjald- eyrismarkaða – hafa hins vegar þau áhrif að ekki er fyrirséð hvort ákvarðanirnar hafa verið réttar eða rangar fyrr en síðar og getur það valdið streitu og áhyggjum starfs- manna. Einnig hefur verið rætt um, að starfsgreinin sé uppfull af ungu vel menntuðu fólki en vegna mikils álags séu líkur á að starfsmennirnir brenni fljótt upp og að starfsmanna- velta fjármálafyrirtækjanna sér þar af leiðandi há,“ sagði Hildur þegar blaðamaður hitti þær að máli, hana og Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur, stundakennara við Háskólann og fé- lagsfræðing hjá Vinnueftirlitinu, sem er umsjónarmaður verk- efnisins. Spurningalistinn var lagður fyrir þann hluta starfsfólks fjármálafyr- irtækjanna sem vinnur annars vegar á mörkuðum/viðskiptastofu og hins vegar við eignastýringu. Heildar- fjöldi í þeim deildum var 132 og var spurningalistinn lagður fyrir 123. Níu voru fjarverandi. Svarhlutfall var 87% eða 107 manns. Vert er að fram komi að mánuðina áður en spurt var höfðu verið miklar sveiflur bæði á gjaldeyris- og hluta- bréfamörkuðum. Því má gera ráð fyrir, að álag á starfsfólk hafi verið nálægt hámarki miðað við það sem kalla mætti eðlilegar aðstæður á mörkuðum, að mati Hildar og Guð- bjargar. Meðal þess sem fram kom var eft- irfarandi:  34% starfsmanna hafa unnið sam- fellt í eitt ár en 19% starfsmanna í fimm ár eða lengur.  86% yfirmanna vinna 46 tíma á viku eða meira en 52% sérfræð- inga. Tæplega helmingur sér- fræðinga vinnur 45 tíma eða minna í hverri viku en 14% yf- irmanna.  80% karla vinna 46 tíma eða meira á viku að jafnaði en ein- ungis 28% kvenna. Í ljós kom að 6% starfsmanna, allt karlar, vinna 60 tíma eða meira á viku að jafn- aði, þar af helmingur yfirmenn og helmingur sérfræðingar.  62% yfirmanna taka með sér verkefni heim einu sinni í viku eða oftar á móti 30% sérfræðinga. 20% sérfræðinga taka aldrei með sér heimavinnu, en það gildir um engan yfirmann.  Karlar eru þrisvar sinnum lík- legri til að taka með sér heima- verkefni en konur. Tæplega 50% karla taka verkefni með sér heim einu sinni í viku eða oftar en rúm- lega 20% kvenna.  Um helmingur starfsmanna er að jafnaði líkamlega úrvinda eftir vinnudaginn, þar af 5% oftast. Hins vegar eru 11% starfsmanna aldrei líkamlega úrvinda eftir vinnudaginn.  65% telja starfið vera andlega erfitt. Þar af telja 9% starfið mjög andlega erfitt. Einungis 2% telja það mjög andlega auðvelt.  67% eru að jafnaði andlega úr- vinda eftir vinnudaginn, 25% sjaldan en 8% aldrei.  Langflestir eru ánægðir í starfi. 94% segjast fremur eða mjög ánægðir, þar af er þriðjungur mjög ánægður. Enginn starfs- maður sagðist óánægður í starfi.  97% telja sig að einhverju marki upplifa streitu í starfi, þar af telja 18% sig oftast upplifa streitu og einungis 3% aldrei.  88% þeirra sem upplifa streitu í starfi eru andlega úrvinda eftir vinnudaginn, 65% þeirra eru lík- amlega úrvinda og 83% upplifa starf sitt sem andlega erfitt.  Þeir sem finna í nokkrum mæli fyrir streitu eru tæplega fjórtán sinnum líklegri til að finnast starf sitt andlega erfitt og sjö sinnum líklegri til að vera líkamlega úr- vinda heldur en þeir sem finna sjaldan eða aldrei fyrir streitu. Í ljósi þessara upplýsinga má leiða rök að því að streita hafi bæði áhrif á andlegt og líkamlegt ástand manna, segja þær Guð- björg og Hildur.  40% starfsmanna segjast sjaldan eða aldrei fá hrós ef þeir vinna vel og einungis 10% telja sig oftast fá hrós. Sérfræðingar eru rúmlega þrisvar sinnum líklegri til að fá hrós en yfirmenn. Niðurstöður sýna að þeir sem fá oftast eða stundum hrós eru almennt sáttari við vinnu sína en hinir sem sjald- an eða aldrei fá hrós.  Þegar sállíkamlegir þættir eru Stór hluti starfsfólks íslenskra verðbréfafyrirtækja er undir þrítugu og með litla starfsreynslu Meðalstarfsaldur samfellt tæp þrjú ár Morgunblaðið/Þorkell Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, til vinstri, og Hildur Friðriksdóttir. Margir starfsmenn á verðbréfamarkaði hérlendis kvarta undan streitu en langflestir eru þó ánægðir í starfi. Skapti Hallgrímsson ræddi við Hildi Friðriksdóttur og Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur en í nýrri rannsókn kortleggja þær andlegt og fé- lagslegt álag starfsfólks, orsakir þess og afleiðingar.  ... tæplega ellefu sinnum líklegri til að finna fyrir háls- og herðaverk.  ... tæplega fimm sinnum líklegri til að finna fyrir þreytu eftir næt- ursvefn.  ... fjórum sinnum líklegri til að fá bakverk.  ... fjórum sinnum líklegri til að fá vöðva- og liðverki.  ... rúmlega þrisvar sinnum líklegri til að fá höfuðverk en þeir sem upp- lifa streitu sjaldan eða aldrei.  ... þá eru vísbendingar um, að þeir sem upplifa streitu oftast eða stundum finni fremur fyrir dap- urleika og finni oftar fyrir þreytu- tilfinningu en þeir sem upplifa streitu sjaldan eða aldrei. Þeir sem eru oft eða stundum andlega úrvinda eftir vinnudag ...  ... tæplega sex sinnum líklegri til að finna fyrir þreytutilfinningu en þeir sem eru aldrei andlega úrvinda.  ... rúmlega fimm sinnum líklegri að finna fyrir verk í hálsi og herðum.  Einnig virðist vera meiri tilhneig- ing hjá þeim sem eru andlega úr- vinda til að finna meira fyrir vöðva- og liðverkjum en þeir sem eru aldrei andlega úrvinda. Þannig finna 62% þeirra sem eru oft, stundum eða sjaldan andlega úrvinda fyrir lið- verkjum á móti 38% þeirra sem eru aldrei úrvinda. Þeir sem upplifa streitu oftast eða stundum eru ...

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.