Morgunblaðið - 18.11.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 18.11.2001, Síða 16
16 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ DIDDÚ var á unglingsár-um sendill hjá Ritsím-anum – einkum til þessað fá pening til að kom-ast í bíó og hlusta á Ellý Vilhjálms syngja Sveitin milli sanda í myndinni Surtseyjargosið. Á þeim tíma lenti hún í heldur óskemmtilegri lífsreynslu – sem hún tókst á við með sínum hætti. En einn daginn tekur hún eftir því að það er fullorðinn maður farinn að veita henni eftirför. Hann tók að birt- ast fyrirvaralaust þar sem hún var. Hún varð stöðugt hræddari við hann og reyndi að hlaupa hann af sér; varð einu sinni svo hrædd að hún gleymdi störfum sínum og stökk upp í strætó til að losna við hann – en sá sér til hrellingar þegar vagninn stansaði á næstu stöð að hann var líka í vagn- inum. Þetta gekk svo langt að hann elti hana eitt sinn í bíó þar sem hún var að horfa á Surtseyjargosið. Það var í eina skiptið sem Diddú gekk út af þeirri góðu mynd og hljóp beina leið heim. Smám saman fór hún að leggja höfuðið í bleyti. Hún fann nokkurn veginn út hvar hann bjó, hvað hann gerði og hvenær hann væri líklegur til að vera á ferli. Það er að segja, hún notaði sömu aðferð og mann- garmurinn til þess að finna leiðir til að forðast hann. En svo gerðist það versta af öllu – eða kannski næstversta. Diddú sagði foreldrum sínum frá manninum og að henni stæði stuggur af honum. Á þeim tíma var hins vegar engin um- ræða um áreiti gagnvart einum né neinum, ekki heldur börnum. Einn daginn ákvað Diddú að fara niður í banka til pabba síns, eftir að hún hafði verið að rukka fyrir Vísi, og verða samferða honum heim í strætó sem stoppaði beint fyrir utan bank- ann. Það var líka svo gaman að vera samferða pabba vegna þess að hann þekkti svo marga í gegnum starfið og spjallaði við alla. Svo stóðu þau feðginin og biðu eft- ir strætó þegar Diddú sá karlinn koma. Hún fraus og sagði við pabba sinn: „Pabbi, þetta er hann.“ En það var eins og pabbi hennar hefði ekki heyrt í henni því það næsta sem hún heyrir er að hann heilsar manninum hressilega og segir fagnandi: „Nei, komdu sæll og blessaður.“ Veröldin hrundi. Svo fóru þau upp í vagninn og karlinn líka, þar sem hann settist í sjónmál við Diddú og horfði á hana hvössum augum, eins og hann væri að spyrja: „Jæja góða mín, ætlarðu að kjafta frá?“ Þegar Diddú og pabbi hennar fóru út úr vagninum sagði hún pabba sín- um að þetta væri karlinn sem væri alltaf að elta hana. Viðbrögðin sem hún fékk voru henni mikið áfall. Pabbi hennar sagði: „Nei, það getur ekki verið.“ Hún varð bara að bera þessa stað- reynd ein á sínum tólf ára öxlum og gerði sér grein fyrir að nú færu góð ráð að verða dýr. Hún ákvað að hún yrði að gera eitthvað til þess að láta karlinn vita svo ekki yrði um villst að hún kærði sig ekki um þessa ásókn. Í eitt skiptið sneri hún sér skyndilega við og spurði manninn: „Hvað ætl- arðu að halda þessu lengi áfram? Hvað meinarðu með þessu? Hvað stendur til?“ Kúadella við kvikmyndatökur Fyrstu kynni þjóðarinnar af Diddú voru þegar hún kom fram sem fröken Gúðmúnsen í kvikmyndinni Brekku- kotsannál í leikstjórn Rolf Hädrich en Sveinn Einarsson var textaleikstjóri. Diddú var valin til að leika í mynd- inni eftir miklar prufur og langa bið. „Ég man að ég sat í strætó, leið fjögur, á leiðinni í vinnuna á Klepps- spítala í síðasta sinn og hugsaði: „Fólkið hér í strætó veit ekki að ég er að fara að leika í kvikmynd. Það veit enginn neitt um það.“ Þetta var í eina skiptið sem örlaði á monti hjá mér þótt ég gerði mér enga grein fyrir því hversu stór viðburður þetta var og hvað þessi kvikmynd ætti eftir að fá mikla athygli. Fjölmiðlafárið var ótrúlegt og fljótlega var ég orðin þekkt. … Á meðan á textaæfingum stóð var reistur gamall Reykjavíkur- miðbær uppi í Gufunesi og þar var kvikmyndin að mestu tekin upp. Þetta gekk allt ágætlega, þar til kom að því að ég þurfti að gráta. Ég vissi ekkert hvernig ég ætti að fara að því eða undirbúa mig fyrir það. Leik- stjórinn reyndi að tala mig til og það var reynt að setja eitthvað í augun á mér til að framkalla tár en allt kom fyrir ekki. Það var ekki möguleiki á því að ég gæti framkallað eðlilegan grát sem kæmi heim og saman við atburða- rásina. Þarna sat ég og beið eftir að droparnir færu að virka. Það var ver- ið að laga ljósin í kringum mig og ég átti að setja mig í réttar tilfinninga- stellingar. Mér fannst þetta alveg vonlaust dæmi og velti því fyrir mér út í hvað ég væri komin, manneskja sem gat ekki einu sinni grátið eðli- lega. Vinnuferlið er þannig í kvikmynd- um að það er ekkert hægt að bíða eft- ir að rétta augnablikið komi. Allt varð að gerast þegar tæknin var tilbúin – og svo varð jafnvel að stoppa í miðjum klíðum, einmitt þeg- ar manni gekk svo vel, vegna þess að filman var búin. Nema hvað, þar sem ég sit og bíð á meðan verið er að laga ljósin og menn eru að velta því fyrir sér hvaða vinkil sé best að taka og hvaða sjón- arhorn best að nota fannst mér þetta allt í einu svo vonlaust. Mér fannst ég hafa brugðist leikstjóranum og öllum hinum með því að geta ekki grátið á réttum tíma. Ég varð svo miður mín að ég fór að hágráta. Og þá var hlaupið upp til handa og fóta. Það spruttu allir upp, fleygðu frá sér kaffibollunum og allt var sett í gang og viti menn, ég grét í alvöru. Það komu sem betur fer ekki mörg svona augnablik upp á meðan á tök- um stóð. En ég tók þetta nærri mér. Mér fannst ég vera með alveg gíf- urlega ábyrgð á herðunum; það höfðu margar verið um hituna en ég hafði fengið hlutverkið. Og auðvitað fór eitt og annað úr- skeiðis, ekki bara gráturinn. Einn daginn var verið að taka upp senu á milli Álfgríms og fröken Gúðmúnsen. Hún var skotin í honum en hann var bara sveitastrákur og ekki af réttri stétt. Samtal þeirra var tekið upp við Lágafellskirkju í Mosfellssveit. Fröken Gúðmúnsen og Álfgrímur voru úti að ganga. Við gengum sam- síða og það var búið að æfa þetta at- riði gaumgæfilega. Svo kom að tök- um og við gengum af stað. En á einum stað var heilmikil kúadella á jörðinni. Ein kýrin hafði skilað hressilega úr sér en ég hafði ekkert Söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt sem Diddú, á að baki bæði fjörlega æsku og viðburðarík ung- lingsár. Margir muna eflaust eftir henni með Spilverki þjóðanna og síðar náði hún að byggja upp glæstan feril sem óperusöngkona – þrátt fyrir að vera alvar- lega heyrnarskert. Súsanna Svavarsdóttir fjallar um líf söngkon- unnar og list. Diddú og Þorkell Jóelsson, Keli, eiginmaður hennar. „„Sest þú hér,“ sagði hann og lét mig setjast hjá sér. Hann var svona eins og frummennirnir þegar þeir náðu sér í konur.“ Diddú sem Gilda í Rigoletto eftir Verdi á sviði óperunnar í Gauta- borg. „Hér sjáum við Gildu af holdi og blóði, í stað þeirrar hefð- bundnu líflausu og undirgefnu,“ sagði gagnrýnandi Arbetet. Spilverk þjóðanna. „Ég var auðvitað meira en til í að syngja með þeim vegna þess að ég féll alveg fyrir þeim. Þeir voru svo skemmtilegir, vel gefnir og köfuðu „djúpt“ þegar þeir voru að semja og tjá sig.“ Diddú ásamt foreldrum sínum og Páli Óskari þegar hún útskrifaðist úr Guildhall School of Music and Drama. Eftir eyrna- aðgerð á fyrsta námsári var hún heyrnarlaus á öðru eyra og með 40% heyrn á hinu.         Þrjóskupúk- inn tók völdin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.