Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 18

Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 18
18 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ HALLFRÍÐUR, gjarnankölluð Adda, fæddist íVestur-Landeyjum 1922.Listmálarinn Kjarvalvar góður vinur fjöl- skyldunnar og heimsótti fjölskylduna gjarnan í sveitina. Meðal þeirra gesta sem reglulega komu til okkar var Jóhannes Sveins- son Kjarval listmálari. Hann og pabbi voru góðir vinir og áttu ým- islegt sameiginlegt. Báðir fæddust þeir í Skaftafellssýslu. Frændfólk Kjarvals í Borgarfirði eystra hafði sótt hann suður og alið hann upp. Pabbi hafði verið smali í Loðmund- arfirði og Kjarval á næstu grösum þó þeir hittust aldrei á þeim tíma. Þeir höfðu báðir verið messaguttar á skip- um. Þeim leið afar vel saman og þegar Kjarval kom í heimsókn hlógu þeir svo hátt að undir tók í nágrenninu. Kjarval lék við okkur krakkana og átti það til að hlaupa með mig á há- hesti. Ég ætlaði aldrei að fást til að taka utan um háls hans en þetta var svo gaman að á endanum tók ég báð- um höndum utan um hálsinn á hon- um. Hann kallaði mig Bússírollu og stríddi mér gjarnan góðlátlega. „Hvaða kaka er í uppáhaldi hjá þér, Bússírolla?“ spurði hann mig oft og ég svaraði smámælt: „Hland- kaka.“ Eitt sinn fékk ég sendingu frá hon- um á afmælinu mínu. Það var sand- kaka með glassúr. Mér fannst þetta óskaplega gott og þetta var í fyrsta sinn sem ég bragðaði glassúr. Þegar ég var fjögurra ára málaði Kjarval mig. Þá mynd hef ég alltaf varðveitt. Hann var einstaklega barngóður og þó að hann hafi skilið við Tove, konu sína, saknaði hann alltaf barnanna sem voru í Dan- mörku með móður sinni. Úr sveitinni í höfuðstaðinn Er faðir Öddu, Guðbrandur Magn- ússon, fékk starf sem forstjóri Áfengis- verslunar ríkisins flutti fjölskyldan til Reykjavíkur. Adda var ekki sátt við flutninginn í fyrstu og heimsótti jafnan sveitina á sumrin en eignaðist einnig góða vini í borginni. Um tíma leigðum við íbúð í húsinu á Njálsgötu 65. Í næsta húsi, Njáls- götu 67, bjó einstaklega góð fjöl- skylda sem ég sótti mikið til. Þar var ég alltaf velkomin og Kristín hús- móðir bauð upp á rjómakökur og annað góðgæti. Þarna eignaðist ég eina mína bestu vinkonu, Bíbí. Hún hét fullu nafni Valgerður Sigurðar- dóttir og var þremur árum eldri en ég. Bíbí var svo hög að allt lék í hönd- um hennar. Hún og pabbi hennar, Sigurður Sigurþórsson, aðaljárn- smiður Landssmiðjunnar, smíðuðu dúkkuhús með alls konar mublum. Hún saumaði gardínurnar, dúkana og allt sem til þurfti. Þessi vinkona mín átti seinna eftir að hafa mest áhrif allra á líf mitt þegar hún kynnti mig fyrir mannsefni mínu. Seinna bjuggum við á Týsgötu 1 þar sem við krakkarnir lágum öll með dregið fyrir. Þar lærðum við að ganga á stultum. Eftir að við komum til Reykjavíkur varð Kjarval tíður gestur á heimilinu. Þegar Kjarval vildi halda utan til að læra myndlist gekkst pabbi ásamt fleiri fyrir því að safna peningum. Þá hjálpaði pabbi honum á alla lund. Jón Árnason bankastjóri sagði mér eitt sinn að pabbi hefði aldrei verið neinn bisnessmaður: „Því hann fór að láta ramma inn myndir Kjar- vals svo þær seldust betur. En fólk vildi ekki borga meira og hann sat uppi með kostnaðinn af römmunum.“ Hann sagði að fólk hefði viljað kaupa myndirnar óinnrammaðar fyr- ir lítinn pening og velja síðan ramm- ana sjálft. Þegar pabbi var að reyna að selja þessar myndir varð Thor Jensen hans besti kúnni. Thor kunni strax að meta Kjarval. Stóra bomban Jónas frá Hriflu var annar lands- þekktur vinur fjölskyldunnar, en Jónasi þakkar Adda meðal annars að hafa á unglingsárunum kynnst nýjum bók- menntaheimi. Mikil átök voru í íslenskum stjórn- málum árið 1930. Jónas Jónsson dómsmálaráðherra átti þá meðal annars í hörðum deilum við Lækna- félag Íslands vegna veitinga héraðs- læknisembætta. Deilurnar náðu há- marki eftir heimsókn Helga Tómas- sonar, yfirlæknis á Kleppi, til dómsmálaráðherrans sem lá heima með hita og kvef. Geðlæknirinn ýjaði að orðrómi um að ráðherrann væri ekki heill á geði. Ráðherrann skrifaði í framhaldinu grein í Tímann sem bar heitið Stóra bomban. Grein sú bar nafn með rentu því allt fór á annan endann og þjóðin skiptist í fylkingar vegna málsins. Helgi Tómasson skrifaði svargrein í Morgunblaðið þar sem hann lagði til að skipuð yrði nefnd erlendra sér- fræðinga til að rannsaka geðheilsu ráðherrans. Dómsmálaráðherrann vék þá Helga úr starfi yfirlæknis á Kleppi. Mikill vinskapur var milli Jónasar frá Hriflu og Guðbrands kaupfélagsstjóra. Þegar ég var komin undir ferm- ingu lauk veru minni í Landeyjum. Margt var breytt. Ég fann til í brjóst- unum á hestbaki. Gamli hundurinn minn var horfinn og komin lítil tík í staðinn. Mér fannst sonur bóndans horfa á mig með skrýtnu augnaráði og ég ákvað að tími væri kominn til að kveðja sveitina sem var mér svo kær. Pabbi hafði verið virkur í ung- mennafélagshreyfingunni og var áhugasamur framsóknarmaður og eignaðist þar vini fyrir lífstíð. Meðal þeirra voru Tryggvi Þór- hallsson og Ásgeir Ásgeirsson. Þeir voru á líkum aldri og voru um svipað leyti að koma sér upp fjölskyldum. Þá bjuggu þeir allir ásamt konum og börnum í Laufási við Laufásveg, áður heimili Þórhalls, föður Tryggva, og Dóru, konu Ásgeirs. Mamma og pabbi bjuggu í kjallaranum þar og mikill vinskapur var meðal alls þessa fólks. Við vorum ævinlega boðin til Tryggva um hver jól. Seinna varð hann forsætisráðherra og þá var okk- ur boðið í ráðherrabústaðinn. Eitt sinn veiktist pabbi af lungnabólgu eftir skíðaferð. Að læknisráði vorum við börnin send að heiman meðan hann var að jafna sig. Þá var ég hjá Ásgeiri og Dóru um vikutíma. Jónas Jónsson frá Hriflu og Guð- rún kona hans voru miklir heimilis- vinir. Þau voru mér alltaf góð og þau tóku mig gjarnan með í sumarbústað sinn í Hveragerði. Sungið með Jónasi frá Hriflu Pabbi talaði við Jónas um allt mögulegt og þar á meðal mál sem sneru að okkur börnunum. Hann sagði Jónasi að ég vildi fara eitthvað annað í sveit en í Landeyjar. „Ég veit um staðinn fyrir hana. Hún þarf að komast í menningu í Þingeyjarsýslu,“ sagði Jónas og hvatti pabba til að hafa samband við Ingólf Bjarnarson alþingismann í Fjósatungu. Þetta gekk eftir og ákveðið var að ég færi í Þingeyjar- sýslu til að kynnast menningu. Um þetta leyti var Jónas að fara í kosn- ingaferð norður og ég fékk að fara með. Með okkur í bílnum voru þrír aðrir framsóknarmenn. Meðal þeirra var Eysteinn Jónsson, seinna formaður Framsóknarflokksins, og við sungum mestalla leiðina. Hann bjó reyndar beint á móti okkur við Ásvallagötuna og var mikill heimilisvinur. Á leiðinni var stoppað hjá framsóknarmönnum og öðrum bændum í Borgarfirði og á Norðurlandi. Á Akureyri var komið við hjá Rannveigu Þórs, konu Vil- hjálms Þórs, og fengum við góðar móttökur. Ég beið hjá henni á meðan mennirnir fóru á framsóknarfund. Upp Vaðlaheiðina sungum við nýtt dægurlag sem ég kunni að hluta. Gallinn var sá að ég kunni aðeins tvær fyrstu hendingarnar. „Glow little glow warm, glimmer, zimmer, da, da, da,“ sungum við og trölluðum þar sem textann vantaði. Við stoppuðum víða hjá bændum í Borgarfirði og fyrir norðan. Þess á milli sungum við ættjarðarlög en með reglubundnu millibili var sungið há- stöfum „Glow little glow …“ Kynni af nýjum menningarheimi Í Fjósatungu var mér tekið opnum örmum og það fór eins og Jónas frá Hriflu sagði að ég kynntist nýjum menningarheimi. Á bænum var óvenjustórt bókasafn sem klæddi heila tvo veggi og þarna lærði ég að lesa bókmenntir. Ingólfur valdi bækur sem hann sagði mér að lesa. Fyrst lét hann mig hafa Sjómannalíf og bækur Kiplings. Síðan valdi hann Sögur herlæknisins. Nýr heimur opnaðist mér og ég bók- staflega gleypti í mig þessar bók- menntir. Pabbi átti gott bókasafn heima en ég hafði lítið lesið af þeim bókum og lá mest í þýddum skáld- sögum eftir Somerset Maugham og fleiri. Þarna las ég Pilt og stúlku og aðr- ar gamlar, góðar íslenskar bók- menntir eftir ráðgjöf Ingólfs. Ingibjörg, dóttir hans, kenndi mér margt um náttúruna. Ég fræddist um gróður og fékk að fara með heim- ilisfólkinu til grasa snemma um morgun. Þoka var þegar við lögðum af stað og landið sveipað dulúð. Mér fannst sem huldufólk gæti birst þá og þegar en allt í einu komum við upp úr þokunni. Á Vaðlaheiðinni blöstu við breiður þar sem dökk grösin lágu of- an á lyngi og mosa. Í Fjósatungu var mikið kveðist á og ég fór að kveðast á við Ingu sem var mér nokkru eldri. Ég hljóp gjarn- „Ó, þú átt svo gott, fallega íslenska stúlka“ Lífið fram undan. Hallfríður Guðbrandsdóttir í Reykjavík nokkrum árum áður en hún flutti til Bandaríkjanna. Hún hafði lent milli tanna fólks vegna ástarsam- bands við bandarískan hermann. Nýgift og hamingjusöm. Séra Bjarni Jónsson gaf Henry og Hallfríði saman í heilagt hjónaband. Vegna tungumálaerfiðleika sagði brúðguminn tvisvar já áður en presturinn bar upp spurninguna. Hallfríður Guðbrandsdóttir Schneider er aðeins ein fjöl- margra Íslendinga sem slit- ið hafa átthagafjötrana og reynt fyrir sér í Bandaríkj- unum, landi tækifæranna. Reynir Traustason rekur sögu Hallfríðar frá æskuár- unum á Íslandi til búferla- flutninganna til Ameríku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.