Morgunblaðið - 18.11.2001, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 18.11.2001, Qupperneq 19
an til annarra heimilismanna og fékk hjálp. Loks sagði hún hlæjandi: „Ég er ekki að kveðast á við þig heldur allt heimilið.“ Ég var tvö sumur í Fjósatungu og lærði margt sem nýttist mér. Leyndarmál Henrys Á hernámsárunum kynntist Adda eiginmanni sínum, bandaríska her- manninum Henry Schneider. Sam- bönd erlendra hermanna og íslenskra kvenna voru gjarnan litin hornauga og því hélt Adda sambandi þeirra lengi leyndu. Á götum Reykjavíkur voru á stundum fleiri hermenn en borgarar. Þeir heilsuðu íslenskum stúlkum á báðar hendur og spurðu hvernig þær hefðu það. Jafnt morgna sem miðjan daga eða kvöld göntuðust hermenn við stúlkur og mörg ástarsambönd mynduðust þrátt fyrir að almanna- rómur dæmdi hart þær konur sem lögðu lag sitt við dátana. Henry og Adda hittust á laun en hún var ekki örugg. Hann var svo leyndardóms- fullur. Svo kom áfallið. Henry átti sér aðra sögu en Adda reiknaði með. Ég heimsótti Bíbí, vinkonu mína, á Vífilsstaði eins oft og ég gat. Við Henry hittumst reglulega á laun og ást okkar virtist blómstra. Eitt sinn var ég í strætisvagni á leið til Vífils- staða þegar stúlka sem verið hafði með manni í Camp Gibraltar settist við hlið mér og við tókum tal saman. Þá spurði hún mig af hverju ég væri með Henry þegar ég gæti valið úr mönnum. „Veistu ekki að hann er kvæntur í Bandaríkjunum?“ spurði hún. Mér sortnaði fyrir augum og ég sagði henni að ég tryði þessu ekki en hún var viss í sinni sök og sagði mér að spyrja hann. „Fáðu hann til að taka af sér hring- inn með bláa steininum,“ sagði hún. Þegar heim kom hringdi ég í Henry og bað hann að hitta mig í til- tekinni skrifstofubyggingu sem ég vissi að var opin. „Komdu inn í ganginn og ég verð þar,“ sagði ég og barðist við grátinn. Hann kom að vörmu spori og ég spurði hann vafninga- laust: „Ertu kvæntur?“ Ég sá að honum brá en hann byrjaði að þræta. „Má ég sjá þennan hring?“ spurði ég og benti á bláa hringinn. Hann kreppti fingurinn og virtist vera að upphugsa leið út úr ógöngunum. „Ég næ honum ekki af mér,“ sagði hann en ég gaf mig ekki og spurði hvort ég mætti reyna. Hann þráaðist við og ég fór að gráta. Hann leit á mig. „Treystu mér. Ég er orð- inn svo hrifinn af þér að ég vil að við giftumst,“ sagði hann. En ég treysti honum ekki lengur. Hann spurði hvort hann mætti hringja til mín daginn eftir en ég sagði nei og fór niðurbrotin heim þar sem ég grét örlög mín. Viku seinna hringdi hann og vildi enn hitta mig. Ég samþykkti það og enn bað hann mig að treysta sér. „Ég mun giftast þér,“ endurtók hann hvað eftir annað. Ég var alveg vængbrotin en þegar hann lýsti því að ég væri sú sem hann elskaði og vildi eiga gafst ég upp og við tókum upp þráðinn aftur. Þetta vor var ég á nokkurra mán- aða námskeiði í Húsmæðraskólanum á Skólavörðustíg. Þarna voru stúlkur sem undirbjuggu sig fyrir giftingu. Ég lærði að sauma og elda. En ég var óörugg með leyndarmál mitt og brosti, söng og flautaði til að dylja áhyggjurnar. Ertu komin í bransann? Við Henry hittumst tvisvar í viku. Sigga systir og ég vorum saman í herbergi og ég sagði henni að ég færi út til að hitta vinkonur mínar, rétt eins og hún. Eitt sinn sagði ég Helgu systur að ég ætlaði að hitta Henry og bað hana að segja að ég væri farin í sauma- klúbb. Síðan hélt ég til móts við Henry með saumadótið mitt í hend- inni. Þegar ég kom heim um kvöldið beið Sigríður systir mín eftir mér og henni var mikið niðri fyrir. „Að þú skulir ekki skammast þín fyrir að vera komin í bransann,“ sagði hún og augu hennar gneistuðu af reiði og hneykslan.„Og að þú skulir gera fjölskyldunni þetta,“ bætti hún við. Mér brá og ég spurði hvort hún væri búin að segja mömmu og pabba frá þessu. „Nei, en ég ætla að gera það,“ sagði hún. Ég beið örlaga minna dag- inn eftir en um morguninn var hún rólegri og hún þagði. Pabbi og mamma spiluðu bridds einu sinni í viku á fimmtudagskvöld- um. Ég trúði Helgu, yngri systur minni, fyrir því að ég væri farin að vera með Ameríkana. Samband okkar Henrys var orðið mjög náið á þessum tíma og hann var farinn að spyrja hvar ég byggi og vildi kynnast fjölskyldunni. Ég sá ekki hvernig af því gæti orðið en ákvað svo að bjóða honum heim. Ég talaði við Helgu, sem reyndar var kölluð Lissa, um þetta og sagðist ætla að bjóða Henry heim næsta fimmtudagskvöld þegar pabbi og mamma færu að spila. Ég ætlaði að gefa honum kaffi í borðstofunni og bað hana að vera heima og fylgjast með mannaferðum. Henni fannst þetta spennandi. Klukkan hálfníu mætti Henry. Hann var í hermannabúningi enda var þeim bannað að vera borgaralega klæddir. Ég tók af honum yfirhöfnina og hengdi upp í fataskáp og við geng- um til borðstofu. Síðan bar ég fram bakka með því sem mér fannst best. Ég var auðvitað á nálum enda ekki æskilegt að upp kæmist að ég væri með Ameríkana heima. Ekki var lið- inn langur tími þegar Lissa hrópaði skelfingu lostin: „Pabbi og mamma eru að koma!“ Ég varð að vera fljót að hugsa en sá ekki aðra undankomuleið en fela Henry í herberginu mínu. Ég sagði honum að fara upp í einum hvelli og hljóp fram og sótti húfuna hans og jakkann. Þetta gerðist á örskots- stundu og pabbi og mamma komu inn. Þau lýstu því að ástæðan fyrir endasleppu briddskvöldi hefði verið sú að félagi þeirra fékk hjartaslag. Hjartað barðist í brjósti mínu en ég reyndi að láta ekki bera á ótta mínum. Henry var í herberginu mínu og eina leið hans út var að fara niður þar sem foreldrar mínir voru. Fljótlega eftir að þau komu inn þurfti pabbi að fara á salernið og hann lagði af stað upp stigann. Ég hafði lokað dyrunum á herberginu mínu en það var óvenjulegt því dyr voru ævinlega opnar ef enginn var í herbergjunum. Þetta vakti athygli pabba og hann opnaði herbergið. Ég fölnaði upp enda ljóst að upp um okk- ur kæmist. Þegar hann sá Henry sitja á rúminu mínu greip hann um brjóst sér og hann blánaði í framan. „Pabbi, pabbi …!“ sagði ég en hann svaraði engu en snerist á hæli og fór inn í sitt herbergi án þess að segja orð. Hann lagðist fyrir og næstu klukkustundirnar starði hann út í loftið með samanbitnar varir og þagði. Henry fór auðvitað strax og mér leið hörmulega enda þótti mér svo vænt um pabba. Um nóttina svaf ég illa og daginn eftir yrti pabbi ekki á mig. Um kvöld- ið kom hann loks inn í herbergi til mín alvarlegur í bragði. Hann gerði mér grein fyrir alvöru þessa máls. Vildi ég flytja til útlanda, fjarri öllu sem ég þekkti? „Hvað veistu um þennan mann?“ spurði hann og ég viðurkenndi að það væri fátt. „Muntu geta talað við hann um þau mál sem þér eru hugstæðust? Getur hann lesið með þér kvæðin sem þér þykir vænt um? Mun hann skilja þig? Hugsaðu þig um í mánuð áður en þú tekur ákvörðun,“ sagði hann. Þegar Henry hringdi sagði ég hon- um frá áfalli pabba og að ég ætlaði að hugsa mig um. „Ekki hringja í mig fyrr en eftir mánuð,“ sagði ég og hann skildi það. Ég gat varla beðið þess að mán- uðurinn liði svo við gætum hist aftur. Þegar umhugsunartíminn var lið- inn sagði ég foreldrum mínum að ég vildi halda sambandinu áfram. Henry væri orðinn mér svo hjartfólginn. Þau hristu bæði höfuðið en virtu ákvörðun mína og Henry kom nú oft- ar. Við hættum að sækja reglulega skemmtanirnar í klúbbnum en áttum þess í stað róleg kvöld heima. Henry kunni því betur og bauð mér út að borða og í leikhús. Skemmtikraftar frá Ameríku komu og hann bauð mér á skemmtanir þeirra en það var sjaldnast í hans kampi. En þar hafði mér þótt gaman að dansa. Eitt sinn bauð Henry mér á skemmtun þar sem leik- og söngkon- an Marlene Dietrich kom fram. Ég þurfti að bregða mér á kvennasalern- ið og þar var söngkonan heimsþekkta að tosa gúmmímagabelti sitt undir mjaðmirnar. Hún leit snöggt á mig. „Ó, þú átt svo gott, fallega íslenska stúlka. Þú þarft ekki einu sinni að nota maga- belti,“ sagði hún. „Þú kastaðir þínum súlum“ Adda og Henry giftu sig og starfaði hann hjá bandaríska sendiráðinu á Ís- landi um tíma, en fyrstu þrjú hjúskap- arár sín bjuggu þau í íbúð á Laufás- veginum. Í júlí 1948 fluttum við alfarin til Bandaríkjanna þegar Henry bauðst staða hjá bandaríska utanríkisráðu- neytinu í Nicaragua. Ég gat ekki far- ið með honum þangað fyrr en ég væri orðin bandarískur ríkisborgari. Ég kveið því óskaplega að fara frá Íslandi og öllum ættingjum og vinum. Skömmu áður en við fórum minnti ég mömmu á málverk sem Kjarval hafði gefið henni þegar hann kom heim eftir dvöl í Frakklandi. Þetta var yndisleg vatnslitamynd af skógi. Mamma hafði sagt að ég fengi mál- verkið eftir sinn dag. Ég varð himin- lifandi. En eftir að ég gifti mig og minnti hana á þetta sagði hún: „Nú færðu ekki myndina. Hún fer ekki úr landinu.“ „Æ, af hverju er ég að flytja?“ voru viðbrögð mín. „Þú kastaðir þínum súlum,“ svar- aði mamma að bragði. Kjarval kom sjálfur til okkar fær- andi hendi. Hann gaf okkur mynd sem hann hafði málað af dæmigerðu íslensku felli. Sú mynd fylgdi okkur síðan. Áður hafði ég keypt mynd eftir Kjarval á 60 krónur. Ég gaf Henry hana í afmælisgjöf af því mig langaði sjálfa í hana. Hann hafði ekki alist upp við myndlist og kunni lítið að meta myndina þá og hengdi hana upp á bak við hurð en ég færði hana fljótt. Ég hafði lagt fyrir í vinnu minni en Henry hafði látið konu sína hafa allt við skilnaðinn, þar með talið ríkis- skuldabréf sem hann hafði keypt mánaðarlega í nafni beggja. Ég gift- ist því manni sem átti sama og ekk- ert. Sigríður, systir mín, var búsett í Bandaríkjunum á þessum tíma. Mað- ur hennar, Björn Guðbrandsson, hafði lokið læknisnámi, með barna- lækningar sem sérgrein en var að ljúka starfsþjálfun á barnaspítalan- um í Washington. Alfarin til Ameríku Tími var kominn til að kveðja. Eft- ir grát og faðmlög flugum við í burtu. Strax fann ég að þaðan í frá myndi Henry ráða. Þegar við lentum á La Guardia- flugvelli í New York var hitinn 38 stig á Celsius. Þar tóku systur Henrys, Caroline og Helen, fallegar skrif- stofustúlkur, á móti okkur ásamt bróður hans, Harold. Öll voru systk- inin alin upp í fátækt en komu sér áfram í lífinu með dugnaði sínum og gáfum. Í gegnum vinskap hafði Caroline útvegað okkur herbergi í Essex House við Central Park en þau bjuggu öll í New Jersey, hinum meg- in við Hudsonfljót. Útsýnið úr litla herberginu var fagurt. Þaðan sást yf- ir garðinn og háu byggingarnar. Við vorum 10 daga í New York þar sem ég undraðist hitann, fólksfjöld- ann og glæpina. Um tíma dvöldum við nálægt systkinum Henrys í New Jersey sem öll tóku mér vel. Þá keyptum við bíl og ókum til höfuð- borgarinnar, Washington D.C. Þar var áformað að við dveldum í mánuð og við leigðum íbúð með húsgögnum nálægt Sigríði og Birni. En mér leist ekki á blikuna því íbúðin var morandi af kakkalökkum og flóm. Kvikindin voru jafnvel í rúminu. Við systurnar hittumst eins oft og mögulegt var en samt leiddist mér framan af og ég saknaði Íslands. Þá skruppum við í heimsókn til Arts og Lídu sem voru búin að eignast son. Þau bjuggu hjá móður hans og ég vorkenndi Lídu að þurfa að búa inni á tengdamóður sinni. Art starfaði sem ráðgjafi fyrr- verandi hermanna við að kenna þeim landbúnaðarstörf. Henry þurfti að kynna sér allt um Nicaragua og ég las sögu Bandaríkj- anna í því skyni að standast skilyrði til að verða ríkisborgari. Einhvern tíma var ég að kvarta yf- ir vondu lofti, vatni, pöddum, hita, raka, of mörgum trjám og kynþátta- hatri. Kona sem ég var að tala við spurði af hverju ég færi þá ekki bara heim til míns lands. Mér leið illa yfir því að sitja fremst í strætisvagni og horfa á svarta fólkið sem varð að vera aftur í vagninum. Ég skildi ekki ástæður þess að skilti voru hingað og þangað sem vísuðu svörtu fólki frá. „Aðeins fyrir hvíta“ eða „Enga negra“ voru algengar áletranir. Ég spurði Henry hvar blessað fólkið borðaði og athafnaði sig eiginlega. Hann bað mig að vera ekki að dæma um kynþáttahatur því ég bæri lítið skynbragð á pólítík og trúmál í þessu landi. Ég fór eitthvað að væla við mömmu yfir að ég vildi að ég væri heima á Íslandi, svaraði hún sem fyrr ákveðin: „Þú kastaðir þínum súlum.“ Svo ég kvartaði ekki meir og ég ákvað að standa mig og hætta allri sjálfsvorkunn. Enda vissi ég sem var að frá Henry færi ég aldrei. Jóhannes Kjarval listmálari hafði mikið dálæti á Hallfríði Guðbrandsdóttur sem hann kallaði bússírollu. Hann var tíður gestur á heimili foreldra hennar og lék þá við börnin. Kjarval málaði Hallfríði þegar hún var fjögurra ára. Hér er Hallfríður Schneider með portrettið sem fylgt hefur henni alla tíð. Kaupfélagsstjóradóttirin Hallfríður Guð- brandsdóttir á æskuárum. Bókin Ameríski draumurinn, Íslend- ingar í landi tækifæranna, er gefin út af Nýja bókafélaginu og segir hún sögu nokkurra Íslendinga sem flutt hafa bú- ferlum vestur um haf. Höfundur er Reyn- ir Traustason. Bókin er 248 bls. að lengd. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 19 Öðruvísi aðventukransar Sjón er sögu ríkari Jól 2001 Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.