Morgunblaðið - 18.11.2001, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.11.2001, Qupperneq 26
ÞAÐ er ekki algengt að sjá mál- verkasýningu með svo nýlega mál- uðum myndum að líkja megi við fréttamyndir. Þetta má þó sjá á myndlistarsýningu Guðmundar Björgvinssonar en í það minnsta 2 myndir á sýningu hans kallast á við aðrar myndlistarsýningar sem eru í gangi á sama tíma eða er nýlokið. Þetta eru myndirnar „Spáð í grjót- hrúgur á gólfi Kjarvalsstaða“ og „Tveir menn drepast úr leiðindum í Listasafninu“. Fyrrnefnda myndin er greinilega af verki Kristjáns Guð- mundssonar á Kjarvalsstöðum sem nú stendur yfir, auk þess sem mann- verurnar á myndinni eru tilvísun í ljósmyndaverk Sigurðar Guðmunds- sonar, bróður Kristjáns, en báðir njóta þeir viðurkenningar fyrir verk sín á sviði nútímamyndlistar. Sögu- svið síðarnefndu myndarinnar er Listasafn Íslands eins og titillinn ber með sér, og sýnir menn liggj- andi á gólfinu, „dauða úr leiðind- um“, á sýningunni Naumhyggja, sem er nýlokið. Af titlinum að dæma er hægt að álykta sem svo að sú sýning hafi ekki verið Guðmundi að skapi, enda er mörgum í nöp við naumhyggjuna. Ég veit ekki hvað þessi „samtímaspegilsstíll“ segir um list Guðmundar, alltént er hann fljótur að bregðast við þegar honum finnst þörf á og málar í einu snar- hasti og hengir upp á sýningu. Þetta eru athyglisverð vinnubrögð, en hættan við myndir sem vísa jafn sterkt í ákveðnar tímabundnar uppákomur er að gildi þeirra þegar fram í sækir verði lítið sem ekkert, líkt og er með skopteikningar í blöð- um sem birtast í hita þeirra atburða sem efst eru á baugi á hverjum tíma. Líkingin við skopteikninguna er heldur ekki fráleit þar sem húm- or og létt háð einkennir þessi verk, og reyndar fleiri myndir á sýning- unni. Eitt meginstíleinkenni í verkum Guðmundar er einhæf og oft þreyt- andi notkun hans á fjarvídd og mætti hann fara sparlegar með þessi áhrif. Guðmundur nær oft að skapa fallega birtu í myndum sínum en stundum er eins og hann fari yfir strikið og litanotkunin verður þá heldur glannaleg. Myndirnar skiptast í stílfærðar samtímasögur og skáldskap og fant- asíu, alls 18 að tölu og misjafnar að gæðum. Sumar eru mjög áhuga- verðar og búa yfir einhverri sagna- gáfu á meðan aðrar eru innantómar og persónuleikalausar. Þegar lista- manninum tekst best upp er brodd- ur, ádeila, háð eða sérstök stemning í myndunum og á það við um verkin „Spáð í grjóthrúgur á Kjarvalsstöð- um“, „Tveir menn drepast úr leið- indum í Listasafninu“, „Skrautlegar umbúðir utan um ekkert“, „Maður fellur í trans á heimili sínu“ og „Bóklestur“. Fréttamyndlist MYNDLIST G a l l e r í R e y k j a v í k Opið virka daga kl. 13–18, laugardaga kl. 11–18, sunnudaga kl. 13–16. Til 21. nóvember. MÁLVERK GUÐMUNDUR BJÖRNSSON Þóroddur Bjarnason Tveir menn drepast úr leiðindum í Listasafninu. LISTIR 26 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KAU PBÆTIR Gljái á varir allra kvenna Kaupir þú tvennt frá Oroblu, fylgir Varagljái frá ROSE CHANDAL Tilboð í öllum verslunum LYFJU Kynning í dag, sunnud. 18. nóv. kl. 12-16 í LYFJU Smáralind Á morgun, mánud. 19. nóv. kl. 14-18 Í LYFJU Smáralind Þriðjud. 20. nóv. kl. 14-18 Í LYFJU Lágmúla Miðvikud. 21. nóv. kl. 14-18 Í LYFJU Smáratorgi EITTHVAÐ stórkostlegt en þó um leið svo einfalt og látlaust einkennir myndröðina Still Water (The River Thames for Example), eftir banda- rísku listakonuna Roni Horn. Mynd- röðin sem nú prýðir veggi Gallerís i8 er einstæð tilraun til að flétta saman mynd og máli í eina órofa heild. Með þessum myndum kallast listakonan á við höfunda miðaldahandritanna; hina miklu lýsingameistara klaustr- anna sem leituðust við að bregða upp samnefnara texta og teikninga á síð- um skinnhandritanna. Með númeruðum neðanmálsgrein- um, offsettprentuðum undir ljós- myndum af vatnsfleti Thames-árinn- ar í Lundúnum tekst Horn á við lýsingar í eiginlegri, nútímalegri merkingu, um leið og hún vísar til hins forna skilnings á hugtakinu. Númerum neðanmálsgreinanna er haganlega fyrir komið í ljósmyndun- um þar sem þau fljóta illgreinanlega í yfirborðinu líkt og staðfesting á hug- renningum og myndlestri listakon- unnar. Hvað er það sem flýgur gegn- um hugann þegar horft er í hringiðu, straumfarir og ýfingar fljótsins á veg- ferð þess um borgarland höfuðstaðar hins gamalgróna konungs- og heims- veldis? Upp koma allar þær margbreyti- legu hugrenningar sem tengjast slíku vatnsfalli; aldagamalli sögu þess; leyndardómum rennslisins; fegurð og ljótleika; harmsögulegum atburðum tengdum drukknun og drekkingum; hreinleik og mengun; og spurningum um mikilvægi vatnsbúskaps og sam- gangna. Thames leiðir hugann að öðr- um þekktum vatnsföllum; Nílarfljóti; Amazon; Ganges og Missisippi; jafn- vel að íslenskum ám, einkum jökul- móðum, sem einnig eru ógagnsæjar, hálfgagnsæjar og gruggugar, án þess þó að mengun komi upp í hugann. Og Roni Horn spyr sig áleitinna spurninga um Ísland og fallvötn þess, um leið og hún bregður upp ljós- myndum af hinni þekktu lífæð Lund- únaborgar. Á frábæru upplestrar- kvöldi í fyrirlestrasal Listaháskóla Íslands í Laugarnesi, þar sem hún sannaði hvílík skáldkona og upplesari hún er, tengdi Horn Still Water- syrpu sína áhyggjum af fyrirhuguð- um áætlunum um stórfellda umbylt- ingu íslenskra vatnsfalla á hálendinu og spurði sig um nauðsyn þess að raska þannig ósnortinni náttúru með óafturkræfum hætti. Sumar myndirnar af Thames eru dökkar líkt og harmsögurnar sem fljótið geymir. Með ljóðrænum og al- vöruþrungnum hætti færir Horn okkur heim þau tíðindi að áin sé kjör- lendi sjálfsvíga og fórnarlömbin komi oft langt að til að fleygja sér í dimman strauminn. Aðrar myndir bera með sér birtu líkt og vonarglætu. Sem slíkar minna þær óneitanlega á im- pressiónískan leik með glaðlega sól- stafi og speglun á vatnsfletinum. Þannig eru þessar myndir eins og hugur manns. Þær undirstrika að við erum að mestum hluta einnig búin til úr vökvum sem flæða um okkur eins og fljót. Þegar öll kurl koma til grafar minna þessi Kyrru vötn Roni Horn okkur á summu verka hennar, en stór hluti þeirra snýst um vatn, vötn og flæði. Rennandi uppsprettur er nán- ast hægt að lesa sem leiðarstef úr lífs- starfi hennar. Um leið skilst áhorf- andanum hve nátengt flæðið er upplestrinum – resitatífinu – og text- anum. Áin myndar hvikult mynstur á yfirborðinu líkt og prentletur á hvítu blaði. Hægt er að rekja sig eftir hin- um ýmsu leiðum frá einum hluta til annars, ekki ósvipað og þegar lína er dregin eftir númerum frá einum til hæstu tölu svo úr verður kerfi. En það kerfi verður aldrei höndlað sem eitt og óbreytanlegt, ekki frekar en hugurinn og gárað yfirborð hins grugguga vatns. Með sínum Kyrru vötnum hefur Roni Horn – þessum formsækna listamanni – tekist að leysa upp landamærin milli tveggja ósættan- legra listgreina, sjónlistarinnar og bókmenntanna, og skapa úr þeim eitt órofa sístreymi. Orðin í ánniMYNDLISTG a l l e r í i 8 ,K l a p p a r s t í g Til 12. janúar. Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13–17. LJÓSMYNDAVERK RONI HORN Frá sýningu Gallerís i8 á myndröðinni Still Water, eftir bandarísku listakonuna Roni Horn. Halldór Björn Runólfsson M O N S O O N M A K E U P litir sem lífga Fyrirlestur og námskeið í LHÍ TILRAUNAELDHÚSIÐ kynnir starfsemi sína í Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91 nk. mánudag, kl. 12.30. Félagar í Tilraunaeldhúsinu eru meðal annars þekkt fyrir að tefla saman listamönnum úr ólíkum list- greinum. Valgerður Tinna Gunnarsdóttir iðnhönnuður og kennari við LHÍ fjallar um sýninguna „Kollur í kass- anum“ í Skipholti 1 nk. miðvikudag, kl. 12.30. Sýninguna vann hún í sam- starfi við Karen Chekerdjian kollega sinn í Beirut og um þátttöku þeirra í hinni árlegu húsgagnasýningu Salone Del Mombile í Mílano í apríl 2001. Námskeið Á námskeiði sem nefnist „Form- líming“ verða kennd undirstöðuatriði í gerð húsgagna þar sem notuð er formlíming. Námskeiðið hefst nk. miðvikudag. Kennar er Daníel Þ. Magnússon myndlistarmaður. Leikstjórn – sögulegt ágrip nefnist námskeið þar sem Sveinn Einarsson leikstjóri mun gefa innsýn í starf og hlutverk leikstjóra. Námskeiðið hefst 26. feb. Kennt verður í Skipholti 1. Lesið úr bókum UPPLESTRARKVÖLD verður á vegum bókaforlagins Bjarts í kvöld kl. 20.30 í Húsi Málarans. Þeir sem koma fram eru: Rakel Pálsdóttir sem les úr bók sinni Kött- urinn í örbylgjuofninum, flökkusög- ur úr samtímanum, Bragi Ólafsson les úr skáldsögu sinni Gæludýrin, Jón Kalman Stefánsson les úr skáld- sögunni Ýmislegt um risafurur og tímann Steinar Bragi les úr ljóða- bókinni Ljúgðu gosi ljúgðu. Óskar Árni Óskarsson les úr prósasafninu Lakkrísgerðinni. Kynnir er Huldar Breiðfjörð. Aðgangur ókeypis. ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.