Morgunblaðið - 18.11.2001, Blaðsíða 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BETRI heilsa –
Betra líf er eftir
dr. John Briffa.
Helga Þórarins-
dóttir íslenskaði.
Í bókinni er að
finna upplýsingar
um ólíkustu sjúk-
dóma og kvilla,
einkenni þeirra
og orsakir. Þá er
gerð grein fyrir hvers konar fæði
hentar best til að verjast sjúkdóm-
unum, hvaða fæði ber að varast og
rækilega fjallað um þau vítamín,
steinefni og önnur bætiefni sem
hafa skilað góðum árangri í barátt-
unni við þá. Auk þess er í bókinni
að finna töflur þar sem gerð er
grein fyrir virkni og notkun bætiefn-
anna, svo og hvað beri að varast.
Einnig eru í bókinni töflur um hvern-
ig bætiefnin henta ólíkum aldurs-
skeiðum.
Útgefandi er Almenna bóka-
félagið. Bókin er 112. bls. prentuð
í Portúgal. Helgi Ólafsson gerði
kápu. Verð: 2.490 kr.
Heilsa
LITRÓF lífsins
er eftir Önnu
Kristine Magn-
úsdóttur.
Fimm konur
segja Önnu Krist-
ine frá atburðum
sem settu mark
sitt á þær og
breyttu sýn þeirra
á tilveruna.
Í kynningu segir m.a.: „Allar eiga
konurnar mikla lífsreynslu að baki en
eiga það sameiginlegt að hafa ekki
látið bugast við erfiðleikana heldur
standa þær eftir sterkari en áður.“
Anna Kristine er kunn fyrir viðtöl
sín í útvarpi. Viðmælendur hennar í
þessari bók eru Anna Margrét Jóns-
dóttir, Sigríður Geirsdóttir, Þuríður
Billich, Sigurjóna Marsibil Lúth-
ersdóttir og Margrét J. Pálmadóttir.
Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin
er 154 bls., prentuð í Odda.Jim
Smart og Páll Stefánsson tóku
myndir á kápu. Kápu hannaði Loftur
Ó. Leifsson. Verð: 4.280 kr.
Lífsreynsla
BÓKIN Ljós-
myndarar á
Íslandi
1845-1945
er eftir Ingu
Láru Bald-
vinsdóttur.
Höfundur
leiðir les-
endur gegn-
um fyrstu öld ljósmyndunar á Ís-
landi. Saga ljósmyndunar er sögð
frá frumskeiði hennar um miðja 19.
öld og fram til stríðsloka. Til hag-
ræðis fyrir erlenda lesendur hefur
þessi bókarhluti verið þýddur á
ensku. Í sérstöku ljósmyndaratali
er gefin mynd af öllum sjálfstætt
starfandi ljósmyndurum á tíma-
bilinu og birt sýnishorn ljósmynda
eftir hvern og einn þeirra.
Bókina prýða hátt á fimmta
hundrað ljósmyndir sem sýna þróun
ljósmyndunar og veita jafnframt sýn
á þjóðina og sögu hennar. Allar
myndir ljósmyndaranna eru birtar
óbreyttar og í upprunalegum lit og
margar þeirra hafa ekki áður birst á
prenti.
Inga Lára lauk BA-prófi í sagn-
fræði og fornleifafræði frá Univers-
ity College í Dublin árið 1979 og
cand. mag. prófi í sagnfræði frá Há-
skóla Íslands árið 1984. Hún er nú
deildarstjóri myndadeildar Þjóð-
minjasafns Íslands.
Útgefandi JPV útgáfa í samvinnu
við Þjóðminjasafn Íslands. Bókin er
519 bls., í stóru broti, prentuð í
Odda hf. Inga Lára Baldvinsdóttir
og Ívar Brynjólfsson önnuðust
myndaval. Anna Yates og Helen S.
MacLean sáu um enska þýðingu.
Verð: 12.980 kr.
Ljósmyndarabók
FERJUÞULUR,
rím við bláa
strönd er heiti
hljóðbókar sem
Valgarður Eg-
ilsson hefur sent
frá sér. Auk
ljóðalesturs höf-
undar er einnig
að finna lestur
hans á Sögunni af Hakanum Hegg.
Í tilkynningu frá útgefanda segir:
„Valgarður Egilsson flytur okkur
sögu – með músíkalskri hrynjandi,
óreglulegri – af för sinni með ferj-
unni upp á Skaga. Farþeginn horfir
til allra átta og hugmyndaflugið er
óhamið. Þulur voru vinsælt form áð-
ur – eins konar frásöguljóð; hljóm-
fallið stundum breytilegt. Þær
höfðu á sér blæ ævintýrisins.“
Hljóðbókin er á geislaplötu í
vandaðri öskju og fylgir texti bæði
þulu og sögu í innbundnu hefti.
Dreifingu annast Japis.
Ljóð
ÞAÐ telst ávallt til viðburða þegar
meistarastykki Oliviers Messiaens,
Kvartett um endalok tímans, er flutt
á tónleikum. Svo var einnig um tón-
leikana í Bústaðakirkju fyrir réttu
ári. Tónleikagestir voru þar augljós-
lega djúpt snortnir og var undirrit-
aður ekki undanskilinn enda kvart-
ett þessi einstaklega áhrifaríkur og
hljóðfæraleikaranir fjórir virtust
vera eitt með verkinu. En hljóðnem-
inn er miskunnarlaus og nemur allt,
líka minnstu mistök sem hefðu
örugglega verið lagfærð í hefðbund-
inni stúdíóupptöku. Hljóðritanir á
tónleikum hafa óneitanlega marga
kosti og þá fyrst og fremst þá að þar
er augnablikið fangað og þar er tón-
listin hrein og ómenguð. Ekkert
svindl í gangi. En ókostirnir eru hins
vegar að þar verður engu leynt.
Kvartett um endalok tímans kann
að vera aðgengilegt verk fyrir hlust-
endur en gerir miklar kröfur til flytj-
enda hvað varðar rytmíska ná-
kvæmni, snerpu og samspil yfirleitt.
Og auk þessa hafa fiðlan, sellóið og
klarínettan hvert um sig afar erfið
einleikshlutverk. Af klarínettuleik-
aranum er krafist mikillar tækni-
legrar leikni sem Einar Jóhannesson
rís fullkomlega undir. Og ætti reynd-
ar ekki að koma neinum á óvart. Af
mörgu er að taka ef tíunda á snilld-
arleik Einars en hér verður aðeins
nefndur þriðji kaflinn, Hyldýpi
fuglanna sem er saminn fyrir klarín-
ettuna eina. Leikur Einars er hér í
einu orði sagt óviðjafnanlegur.
Tæknilegt öryggi hans er slíkt að
undrum sætir og sjaldan hefur mað-
ur heyrt aðra eins dýnamík (hlustið
t.d. á 2:36–3:30 í þriðja kafla). Fiðlu-
leikarinn, Sigrún Eðvaldsdóttir, á
líka eftirminnilega og fallega ein-
leikstakta í lokakaflanum, Lofsöng
um ódauðleika Jesú. Hlutverk fiðlu-
leikarans er geysilega krefjandi í
þessari löturhægu tónlist – þessir
löngu, liggjandi og brothættu tónar
eru aðeins á færi snjöllustu hljóð-
færaleikara. Hér sannast svo ekki
verður um villst að það er fleira en
tæknisýningar og hraðir skalar sem
eru vandasamir í hljóðfæraleik.
Fimmti kaflinn, Lofsöngur til eilífð-
ar Jesú, er einnig mjög hægur og
reynir mikið á sellóleikarann. Leikur
Richards Talkowsky er innilegur og
oft fallega mótaður en á köflum er
inntónun ekki alveg örugg. En að
sjálfsögðu ber að hafa í huga að hér
er um tónleikaupptöku að ræða og
því verður ekkert aftur tekið. Píanó-
leikarinn Folke Gräsbeck er öryggið
uppmálað en leikur hans í þessum
kafla er þó óþarflega þungstígur á
köflum. Samleikur fjórmenninganna
er yfirleitt prýðilegur, rytmískt lif-
andi og snarpur eins og glöggt má
heyra í fjórða kafla, Millispili, og
ekki síður í þeim sjötta, Ofsafengn-
um dansi fyrir lúðrana sjö, þar sem
hljóðfæraleikararnir spila einradda
og líkja eftir lúðrum, málmgjöllum
og öðru slagverki. Þetta er tónlist
sem meitluð er í grjót.
Hljóðritanir á æskuverki Shost-
akovich, Píanótríói nr. 1 frá 1923,
liggja ekki á lausu og því er veruleg-
ur fengur í flutningi þeirra Sigrúnar
Eðvaldsdóttur, Richards Talkowsky
og Folke Gräsbeck. Tríóið er frum-
raun tónskáldsins á sviði kammer-
tónlistar og er það skemmtilega óör-
uggt í stíl – þar má heyra dæmi-
gerðan Shostakovich (0:00–3:13 og
þá sérstaklega kaflinn frá 1:17–2:00),
og einnig ósvikna síðrómantík (t.d.
5:08–7:19) sem hæglega gæti hafa
komið úr handraða tónskálda eins og
Gabriel Fauré. Þótt flutningur
þeirra félaga sé ekki alveg hnökra-
laus er heildaryfirbragðið afar sann-
færandi og seint verða þau sökuð um
að lifa sig ekki inn í viðfangsefnið.
Nægir í þessu sambandi að benda á
rafmagnað niðurlag verksins (nr. 9
frá 12:24 til enda).
Þessi nýi diskur hefur sína kosti
og galla en ég er ekki í vafa um að
kostirnir vega gallana upp. Og hvað
sem öðru líður er hann heimild um
merkilega tónleika.
TÓNLIST
G e i s l a p l ö t u r
Olivier Messiaen: Kvartett um
endalok tímans (1941). Dmitri
Shostakovich: Píanótríó nr. 1
(1923). Flytjendur: Einar Jóhann-
esson (klarínett), Folke Gräsbeck
(píanó), Richard Talkowsky (selló)
og Sigrún Eðvaldsdóttir (fiðla).
Upptaka og hljóðvinnsla: Halldór
Víkingsson. Tekið upp á tónleikum
Kammermúsíkklúbbsins 1. október
2000. Heildartími: 65:13.
Útgefandi: Edda, miðlun og
útgáfa – ÓMI klassík 002.
UM ENDALOK TÍMANS
Heimild um
merkilega tónleika
Valdemar Pálsson
MYNDLISTARSÝNINGIN Af ljósi
stendur nú yfir í Safnahúsi Borg-
arfjarðar og stendur til 30. nóv-
ember. Listamaðurinn Björk Jó-
hannsdóttir er fædd og uppalin á
Hólmavík en er nú búsett í Borg-
arnesi. Þetta er fjórða einkasýning
Bjarkar og hún hefur tekið þátt í
einni samsýningu. Verkin á sýning-
unni eru vatnslitamyndir sem allar
eru trúarlegs eðlis. Um tuttugu verk
eru englamyndir, en eins og segir í
kynningu eru englar „boðberar
ljóssins, Guðs almáttugs“. Tólf
myndir eru í þemanu Maður í ljósi
náttúru en þær eru þakkargjörð til
skapara jarðarinnar. Stærstu tvö
verkin heita Meistarinn og Móðir.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Björk Jóhannsdóttir stendur á milli verkanna Meistarinn og Móðir.
Englamyndir í Safnahúsi
Borgarnesi. Morgunblaðið.
ÞEIR eru yndislegir félagarnir
Elling og Kjell Bjarne. Ekki alveg
einsog fólk gerist flest, eiginlega
einsog krakkar eða unglingar. Enda
hittast þeir á sérstöku heimili fyrir
geðfatlaða, og verða bestu vinir. Þeir
fá síðan sína eigin í búð í Osló þar
sem þeir hefja lífið, læra að vera full-
orðnir og það gengur á ýmsu.
Flestar myndir sem gerðar eru
um geðfatlaða eru dramatískar og
átakanlegar, Englar alheims, Some
Voices, Girl Interupted, enda um
sorglegan og erfiðan sjúkdóm að
ræða. Það er gaman að sjá hversu
skemmtilega og fyndna mynd Peter
Næss hefur tekist að gera með fullri
virðingu fyrir persónum sínum.
Enda eru þeir félagarnir alveg
dásamlegir, sérlega vel leiknir, trú-
verðugir og lausir við allar klisjur.
Eiginlega fannst mér Kjell Bjarne
trúlegri týpa, sem léttheimskur bel-
jaki með stórt hjarta og mikla kyn-
hvöt. Elling er meiri sérviskupúki og
tilfinningavera, sem býr yfir mikilli
þekkingu á ótrúlegustu hlutum en
vinnur úr henni á sinn einstaka máta.
Um leið og Elling er bráðfyndin
mynd er hún falleg mynd um ein-
mana og öðruvísi fólk sem finnur
hvort annað.
Súrkáls-
skáldið
og vinir
þess
KVIK-
MYNDAHÁTÍÐ
H á s k ó l a b í ó
ELLING Leikstj: Peter Næss.
89 mín. Noregur 2001.
Hildur Loftsdótt ir
VIÐ fótskör
meistarans er
skáldsaga eftir
Þorvald Þor-
steinsson.
Þorvaldur er
kunnastur fyrir
barnabækur sín-
ar um Blíðfinn.
Í kynningu seg-
ir m.a.: „Sagan er um allt þetta ein-
staka fólk sem aldrei er í frétt-
unum. Aldrei birtist í Séð og heyrt.
Fólk sem ætti kannski með réttu
að vera í brennidepli umræðunnar
alla daga. Hún fjallar um Harald,
sem stöðugt gefur í skyn að hann
standi á bak við uggvænlegar fréttir
í blöðunum, handrukkarann Snata,
sem leggur drög að hverju handrit-
inu á fætur öðru í þeim tilgangi að
bjarga íslenskri kvikmyndagerð, en
þó einkum um hinn fjölhæfa Þráin,
sem gengur um með frjórri skáld-
skap en orð fá lýst í blautum plast-
poka.“
Útgefandi er Bjartur. Bókin er
160 bls., prentuð í Odda hf. Kápu-
gerð annaðist Þráinn Valgeirsson.
Verð: 3.980.
Skáldsaga
JÖKLALEIKHÚSIÐ
er skáldsaga eftir
Steinunni Sigurð-
ardóttur.
Þar segir frá
leikfélagi á Pap-
eyri sem ræðst í
að setja upp
Kirsuberjagarð
Tsjekovs með
karlmenn í öllum hlutverkum. Bæj-
arhöfðinginn verður svo hugfanginn
af leikritinu að hann byggir heilt leik-
hús því til dýrðar. Að sunnan kemur
framsækinn leikstjóri með nýjar hug-
myndir og karlarnir keppa um hlut-
verkin, þótt það kosti afkynjunar-
æfingar og ýmsar atlögur að
karlmennskunni. Bygging leikhúss-
ins og uppfærslan á Kirsuberjagarð-
inum kemur róti á bæjarbúa, hjörtun
slá örar og þá er hvorki spurt um kyn,
þjóðerni, aldur né hjónabandsstöðu.
Útgefandi er Mál og menning. Bók-
in er 280 bls., prentuð í Odda. Kápu
hannaði Ragnar Helgi Ólafsson.
Verð: 4.490 kr.
Skáldsaga
KVIKMYNDIN Angel Eyes
(Vökul augu) kemur dálítið skemmti-
lega á óvart, að minnsta kosti ef
maður hefur búist við að þar væri
enn ein Hollywood-spennumyndin á
ferðinni. Myndin hefur reyndar um-
gjörð harðsnúinnar löggumyndar,
þar sem aðalpersónan, Sharon
(Jennifer Lopez), er lögreglukona í
glæpaborginni Chicago. Sjálf er hún
alin upp í lakari hluta borgarinnar og
ber innra með sér þungar byrðar
þess heimilisofbeldis sem hún bjó við
í æsku. Og þótt brugðið sé upp mynd
af hörðum veruleika löggæslustarfs-
ins snýst atburðarásin fyrst og
fremst um innri átök sögupersón-
annna. Sagan fer áhugaverða leið í
þessari könnun sálardjúpa fólks sem
hefur upplifað óbærilegar sorgir.
Þannig kynnist Sharon dularfullum
manni, sem kallar sig Catch (Jim
Caviezel) og virðist enga fortíð eiga
sér. Raunin er hins vegar sú að
Catch er í nokkurs konar afneitunar-
ástandi eftir skelfilegt áfall.
Það sem er tvímælalaust athygl-
isvert við þessa kvikmynd er hvernig
hún smám saman bregður birtu á
persónur sögunnar. Í fyrstu kynn-
umst við þeirri hlið sem þær hafa
komið sér upp til að takast á við hið
daglega líf, en smám saman kemur
undirlagið í ljós. Þetta tekst mjög vel
með Sharon, sem Jennifer Lopez
túlkar á traustan og sannfærandi
hátt. Jim Caviezel er öllu minna
sannfærandi í hlutverki sínu sem
Catch, kannski er bara um óheppni
að ræða, en stóran hluta myndarinn-
ar lítur hann fremur út fyrir að vera
perralegur en harmþrunginn. Hin
dramatísku átök myndarinnar, þótt
áhrifarík séu á köflum, eru jafnframt
teygð fullmikið á langinn. Þróun
sambandsins milli Sharon og Catch
er uppistaða atburðarásarinnar, og
eru þau samskipti oft stirð og lang-
dregin. Engu að síður er myndin í
heild sterk og einlæg og ber vott um
talsvert tilfinningalegt innsæi.
Þungar
byrðar
KVIKMYNDIR
S a m - b í ó i n
Leikstjóri: Luis Mandoki. Handrit
Gerald Di Pego. Kvikmyndataka:
Piotr Sobicinski. Aðalhlutverk:
Jennifer Lopez og James Caviezel.
Sýningartími 102 mín. Bandaríkin.
Warner Brothers, 2001.
ANGEL EYES (VÖKUL
AUGU) Heiða Jóhannsdótt ir