Morgunblaðið - 18.11.2001, Síða 35

Morgunblaðið - 18.11.2001, Síða 35
til jafnaðar í heiminum. Í B-tilvikinu er gert ráð fyrir að hún vaxi heldur hraðar, eða um 0,8% á ári til jafnaðar á 30 ára tímabilinu 1990–2020. Til að ná C-tilvikinu 2050 þyrfti orkuskil- virknin sð vaxa um 1% á ári til jafn- aðar 1990–2050, eða 43% hraðar en milli 1960 og 1990. Þótt ekki sé óhugsandi að því marki megi ná er samt talið miklum vafa undirorpið að það takist. Annað er þó enn vafasamara: Til þess að ná þeirri lágu losun gróð- urhúsalofttegunda 2050 sem C-til- vikið gerir ráð fyrir þarf kolkræfni frumorkunnar að vera komin niður í 8,5 kgC/GJ, úr 16,2 kgC/GJ sem hún var fyrir heiminn í heild 1998. Tvær leiðir eru að því marki: (1) Að minnka hlut eldsneytis í frumork- unni úr 79,3% 1998 í 41,5% 2050 eða (2) að „afkola“ eldsneytið áður en því er brennt. Með því orði er átt við að framleiða vetni eða vetnisrík efna- sambönd úr eldsneytinu og brenna þeim í stað sjálfs eldsneytisins. Við þá framleiðslu myndast koltvísýr- ingur sem þarf að koma í veg fyrir að sleppi út í andrúmsloftið með því að binda hann í jarðvegi, trjágróðri, efnasamböndum, tómum olíu- og gaslindum eða hafdjúpunum. Þar með væri jarðeldsneyti í reynd orðið kolefnislaus orkulind gagnvart and- rúmsloftinu. Nothæf tækni til að gera þetta er enn ekki til en rann- sóknir fara fram sem miða að því að skapa hana. Það er talið því nær útilokað að hlutur eldsneytis úr jörðu geti verið kominn niður í 41,5% 2050. Vænleg- asta leiðin til að ná C-tilvikinu þá væri afkolunin í bland við stórlega aukna notkun kjarnorku. Hvort það getur talist raunhæft er mikilli óvissu undirorpið í dag. Eru betri horfur á samstarfi iðnríkja og þróunarlanda? Eins og kunnugt er hefur gengið erfiðlega að fá Kyoto-bókunina frá desember 1997 staðfesta. Og þróun- arlöndin eiga í raun alls ekki aðild að henni þar eð þau taka engar skuld- bindingar á sig. Það er langsamlega alvarlegasti ágalli hennar. Hér að framan var á það bent að einmitt þróunarlöndin skipta öllu máli fyrir vöxtinn í orkutengdri losun á gróð- urhúsalofttegundum í heiminum. Losun þeirra verður orðin meiri en iðnríkjanna fljótlega eftir 2020 og það dregur sundur með þessum ríkjahópum eftir það. Það getur því ekki talist vænlegt til árangurs í við- leitninni til að hemja gróðurhúsa- áhrifin að þróunarlöndin séu óvirk. Aðeins með virku samstarfi iðnríkja og þróunarlanda, þar sem fullt tillit er tekið til nauðsynjar síðarnefnda ríkjahópsins á að iðnvæðast, er von á raunverulegum árangri. Það var líka á það bent að margt bendir til að meiri árangurs sé að vænta af því að iðnríkin hjálpi þróunarlöndunum til að iðnvæðast á orkuskilvirkan hátt með bestu aðgengilegu tækni (BAT) en að iðnríkin rembist við að draga úr sinni eigin losun, þótt hvort- tveggja komi vissulega til greina. Enda þótt þróunarlöndin taki ekki á sig skuldbindingar í Kyoto-bókun- inni er vikið að samstarfi af þessu tagi í ákvæðinu um svonefndar „hreinar þróunarleiðir“ (Clean Development Mechanism, CDM), þar sem gert er ráð fyrir að iðnríki aðstoði þróunarland við að hemja vöxtinn í losun í tengslum við iðn- væðingu þess síðarnefnda. Allt fram til þessa hefur það ákvæði verið lítt virkt. Eftir 6. fund aðildarríkja Loftslagssáttmálans í Bonn nú í sumar eru vonandi betri horfur en áður á að það verði virkara. Á því er sannarlega ekki vanþörf. Heimildir: 1. Nakicenovic, Nebojsa; Grübler, Arnulf; McDonald, Alan (ritstjórar) 1998: Global Energy Perspectives. International Institute for Applied Systems Analysis (IIASA) & World Energy Council (WEC). Cambridge University Press. 2. Bjornsson, Jakob et al. 1998: The Po- tential Role of Geothermal Energy and Hydropower in the World Energy Scen- ario in Year 2020. Erindi 3.1.07, lagt fram á 17. þingi Alþjóðaorkuráðsins í Houston, Texas 13.–18. september 1998. World Energy Council. Höfundur er fyrrverandi orkumálastjóri. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 35 HVERNIG er hægt að koma í veg fyrir þann vanda sem upp hefur kom- ið varðandi umgengni og nýtingu út- gerðarmanna á hinni íslensku fisk- veiðilögsögu? Í fyrsta lagi: Sjávarútvegsráðherra VERÐUR að taka af skarið og taka ábyrgð á og stjórna veiðum skipa í íslenskri fisk- veiðilögsögu. Í dag ráða alltof margir því hvernig er veitt, hverjir eiga að veiða, hvað á að veiða, hvenær er veitt o.s.frv. Gífurleg blokk útgerð- armanna hefur risið upp sem ræður ótrúlega miklu um það hvernig því er stýrt sem kallað er sameign þjóðar- innar. Blokkin teygir anga sína eins og krabbamein um allt stjórnkerfið þannig að hagsmunir einstakra út- gerðarmanna á Íslandi verða skyndi- lega hagsmunir allrar þjóðarinnar og sjávarútvegsráðherra virðist standa ráðþrota og varnarlaus sem viljalaust verkfæri í höndum þessara hags- munaaðila. Ljóst er að sjávarútvegs- ráðherra VERÐUR að reka af sér slyðruorðið og sópa út úr hornunum. Í öðru lagi: Sjávarútvegsráðherra VERÐUR einnig að breyta algjörlega um að- ferðir við fiskveiðistýringuna. Menn verða að fara að umgangast lögsög- una sem LÍFRÍKI en ekki sem dauð- an hlut. Sjávarlífríkið er viðkvæmt sem umgangast verður með varúð ef ekki á illa að fara eins og dæmin sýna allt í kringum okkur. Margoft höfum við séð með djúpsjávarmyndatökum hvernig botnvörpur rústa sjávar- botninum. Nánast engar reglur eru um það hvar, hvernig og hvenær út- gerðarmenn geta ruðst um á skipum sínum með botntrollin í lögsögunni. Ein aflasælustu þorskveiðimið heims, Halamið við Vestfirði, eru nú ekki svipur hjá sjón enda sem eyðimörk eftir hamslaust lamstur botnveiðar- færa í áratugi. Það hlýtur að vera helsta markmið hver Íslendings (óháð stjórnmála- skoðunum) að sem mestum verðmæt- um sé náð upp úr íslensku fiskveiði- lögsögunni og um lögsöguna verði gengið sem best þannig að hún við- haldi sjálfbærri endurnýjun sinni. Það skiptir engu máli hvort út- gerðarmenn leigi eða hafi keypt til sín varanlegar aflaheimildir. Kvótinn er mjög dýr og nánast allir útgerð- armenn á Íslandi skulda mikið. Rembast þeir, eins og rjúpan við staurinn, að ná sem mestum verð- mætum úr hverju kílói afla og stunda miskunnarlaust brottkast á verð- minni fiski til þess að ná þeim mark- miðum sínum. Hið háa verð á veiði- heimildunum beinlínis knýr útgerð- armenn áfram við iðju sína. Sífellt stærri skip eru smíðuð því engar tak- markanir eru á stærð skipa eða hverslags óskapnað menn draga á eftir sér við veiðarnar. Útgerðar- menn þjösnast um allan sjó í leit að ákveðnum fiskistærðum í vinnslulín- ur um borð og skeyta engu um hversu mikið magn þarf að veiða og henda til þess verkefnis. Fiskistofnar virðast minnka jafnt og þétt og eng- inn hefur minnstu hugmynd um það hversu mikill sóknarþunginn er í raun í stofnana. Hugsanlega liggur meirihluti stofnanna á ári hverju dauður á hafsbotninum eftir brott- kast. Hvernig skyldi t.d. standa á því að magn hrogna úr þorski sem landað er hefur margfaldast á milli ára á meðan færri þorskar koma í land. Ekki verður annað séð en kvótakerfið núverandi verndi ekki lengur fiski- stofnana heldur verndi aðeins hags- muni einstakra útgerðarmanna. Haf- rannsóknastofnun reynir af veikum mætti að giska á það hversu margir fiskar synda um í sjónum en þeirra ágiskun virðist ekki gáfulegri en hjá hverjum og einum. Enda er samvinna Hafró og útgerðarmanna lítil sem engin. Því skyldu útgerðarmenn gefa upplýsingar um það hversu mikið þeir veiða, hvar og hvernig þegar ekkert virðist skipta máli varðandi um- gengni um lögsöguna og þær þó fáu ábend- ingar sem komið hafa frá útgerðarmönnum og sjómönnum jafnóð- um hundsaðar. – Í fljótu bragði virð- ist að einu veiðarfærin sem geti stýrt því hvaða fiskur veiðist séu línu- veiðarfæri og netaveið- arfæri. Stærð afla er hægt að stjórna með möskvastærð á netum og tegundum er hægt að stjórna með mis- munandi beitutegund- um á línu. Þannig eru línu- og neta- veiðar í raun nær einu veiðarnar sem hægt er að stýra án tortímingar sjáv- arbotnsins. Troll dregur til sín allar þær fisktegundir sem í þau veiðar- færi koma án tillits til stærðar eða tegunda. Slíkt leiðir óhjákvæmilega til mikils brottkasts þar sem ekki koma alltaf RÉTTAR fisktegundir eða stærðir í þau veiðarfæri. – Algjörlega er út í hött að bera saman brottkast við veiðar áður fyrr, þegar einungis örfáar fisktegundir voru seljanlegar, við nútímaveiðiskap þar sem nú er nánast hver einasti titt- ur, sem kemur upp úr sjónum, sölu- vara. En fáránlegra er að halda því fram, með sömu rökum, að sóknar- kerfi sem veiðistýring sé því fullreynt og hafi reynst handónýtt af því að sjó- menn stunduðu einnig brottkast afla í „gamla daga“. Hér á eftir koma nokkrar tillögur um gagngerar breytingar á fiskveiði- stjórnunarkerfinu á Íslandi. 1. Banna verður togveiðar á stórum svæðum og þá sérstaklega innan 12 mílna lögsögu frá horni í horn. Togveiðar með botnvörpu skulu einungis vera stundaðar á ytri mörkum íslenskrar fiskveiðilögsögu sem lengst frá uppeldis- og hrygning- arstöðvum fiskitegunda. Hinn öflugi og afkastamikli bátafloti Íslendinga tæki afla samanber kvótaúthlutun á núverandi fiskveiðiári auðveldlega í önnur veiðarfæri en botnvörpur. Ekki verður séð annað en að með slíkum markmiðum skapist þannig aðstæður í lífríki sjávar að verði hægt að ná veiðum á t.d. þorski aftur upp í 400.000-500.000 tonn á ári með mark- vissri uppbyggingu. 2. Taka verður upp sóknarstýringu í fiskveiðilögsögunni. Þannig er m.a. mögulegt að tryggja að allur afli sem veiðist í hverri veiðiferð komi að landi. 3. Engum sérstökum sóknardög- um verður úthlutað á hvern bát eða skip heldur ákveður sjávarútvegsráð- herra hverju sinni sóknartímabil á hver einstök svæði og getur beitt skyndilokunum reynist samsetning afla of smá, of stór, stærð stofna sé í hættu, fiskur að hrygna o.s.frv. Jafn- framt ákveður ráðherra hvaða veið- arfærum skuli beitt á einstök svæði og stærð báta takmörkuð samhliða því á einstökum svæðum. Þannig get- ur ráðherra einn ráðið því hvað er veitt, hvenær og hvernig án þrýstings frá einstaka hagsmunaaðilum. 4. Skipta verður lögsögunni upp í svæði gagnvart stærð báta og tegund veiðarfæra sem hægt er að gera á ýmsan máta eftir ákvörðun ráðherra. Nokkur möguleg dæmi til glöggvun- ar: 0-12 mílna landhelgi: bátar 0-50 brt að stærð með línu, handfærum, snurvoð, gildrum og netum. 12-50 mílna land- helgi: bátar og skip 50- 300 brt með línu, hand- færum, snurvoð, gildr- um og netum. 50-200 mílna land- helgi: skip 300 + brt öll framangreind veiðar- færi að viðbættri botn- vörpu á sérstökum svæðum. Sérstakar undanþágur verða veittar handa nótaskip- um. 5. Sóknarstýringunni verður stjórnað með takmörkunum á veiðarfærum, sókn- ardögum og svæðalokunum. 6. Beitt verður skyndilokunum á einstökum svæðum eða stórum svæð- um verði talin ástæða til þess sökum óveðurs þannig að of litlir bátar rói ekki í of slæmum veðrum. Stemma verður stigu við að útgerðarmenn leggi áhöfn skipa sinna og áhafnir björgunarskipa í óþarfa hættu vegna sóknarkerfisins. Þungar refsingar lægju við brotum á slíkum skyndilok- unum. 7. Óheimilt verður að veiða fisk í stærri netamöskva en ákveðna stærð, t.d. 7" riðil. Ákvörðun sjávar- útvegsráðherra hverju sinni. Stefnt verður að því að veiða fisk í þeirri stærð sem heppilegast er gagnvart lífríki sjávar. Veiðum verður stýrt al- farið frá veiðum á stærsta fiskinum, nema þá til grisjunar vegna stærða stofna, enda stærsti fiskurinn lang- líklegastur til að skila frá sér öflugum seiðum til endurnýjunar stofnanna. 8. Allir útgerðarmenn greiða auð- lindagjald af afla, t.d. 20-25% af brúttóaflaverðmæti sem greiðist í ríkissjóð. 9. Allur afli verður seldur á mörk- uðum til að tryggja rétt verð á aflan- um gagnvart hagsmunaaðilum, m.a. sjómönnum, fiskvinnslum og lánar- drottnum útgerðarinnar. Verðið á aflanum verður þá aldrei hærra eða lægra en það er í raun með hliðsjón af framboði og eftirspurn markaða. 10. Óheimilt verður að flytja afla úr landi óunninn. Slíkt treystir stoðir landsbyggðarinnar við fiskvinnslu. 11. Allir íslenskir ríkisborgarar eða fyrirtæki, sem hafa keypt sér bát eða skip, geta fengið veiðileyfi í sóknar- kerfinu. Ekki er hægt að skrá bát eða skip í sóknarkerfi nema það hafi fengið fullt haffærisskírteini hjá Sigl- ingastofnun Íslands. 12. Ríkisstjórn Íslands skal reyna að koma því við að eftir gildistöku nýrra laga um sóknarkerfið skuli nýir bátar/skip einungis fá skráningu í sóknarkerfinu sem hafa verið smíð- aðir að öllu leyti á Íslandi. Slíkt yrði óumræðanlega ómetanleg innspýting fyrir skipasmíðar á Íslandi, sem eru að leggjast af verði ekki reynt að sporna við. 13. Brot á reglum sem sjávarút- vegsráðherra setur um sóknarkerfið varða veiðistöðvun viðkomandi skips í lengri eða skemmri tíma eftir um- fangi brots. 14. Hafnar verða þegar hvalveiðar þótt ekki sé nema til grisjunar enda hvalur í gífurlegri samkeppni við út- gerðarmenn um fiskinn. Talið er að einn hvalur geti étið á við veiðigetu eins togara á ári hverju. 15. Sóknarkerfið verður tekið til reynslu í nokkur ár og útfært nánar eftir ÁKVÖRÐUN sjávarútvegsráð- herra. Allur fiskur verður flokkaður um borð í skipunum og landað þannig sérstaklega að hægt verður að gera sér grein fyrir því hversu miklum afla var hent á kvótaárunum. 16. Í hverjum landsfjórðungi verð- ur tekið upp embætti veiðistjóra sem sér um daglega veiðistýringu í hverj- um fjórðungi fyrir sig. Fiskistofa verður lögð niður og mun veiðistjóri sjá um skráningu afla og skipa í hverjum fjórðungi. Sjávarútvegsráð- herra mun setja reglugerðir um störf veiðistjóra. Hafrannsóknastofnun sér áfram um mælingar stofna o.þ.h. og er áfram ráðgefandi um sóknarþunga í fiskistofna, úrræði til verndar stofna og uppbyggingu þeirra. 17. Embætti veiðimálaráðherra verður tekið upp til stýringar á veið- unum treysti sjávarútvegsráðherra sér ekki til þess. OPIÐ BRÉF TIL SJÁVAR- ÚTVEGSRÁÐHERRA Höfundur er útgerðarmaður. Nú, segir Sigurður Marinósson, er nánast hver einasti tittur sem kemur upp úr sjónum söluvara. Sigurður Marinósson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.