Morgunblaðið - 18.11.2001, Page 41
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 41
Bústaðakirkja. Fyrrum nemendur Héraðs-
skólans á Laugarvatni ætla að fjölmenn í
messu í dag kl. 14. Kaffi eftir messu í
safnaðarheimilinu.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg-
ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis
mánudag kl. 13. TTT-klúbburinn kl. 17. Lif-
andi og fjölbreytt starf fyrir börn úr 4.-6.
bekk í umsjón Andra, Gunnfríðar, Guðrún-
ar Þóru og Jóhönnu. Öll börn velkomin og
alltaf hægt að bætast í hópinn.
Laugarneskirkja. Morgunbænir mánudag
kl. 6:45-7:05. 12-spora-hópar koma sam-
an í safnaðarheimili mánudag kl. 20. Um-
sjón Margrét Scheving, sálgæsluþjónn
safnaðarins. (Sjá síðu 650 í Textavarpi.)
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14. Öll
börn í 1. bekk velkomin. 10-12 ára TTT-
starf mánudag kl. 16:30. Öll börn í 4.-5.
bekk velkomin. Litli kórinn, kór eldri borg-
ara, þriðjudag kl. 16:30. Stjórnandi Inga J.
Backman. Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Mánudagur: TTT-klúbbur-
inn frá kl. 17-18.
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldumorgnar
mánudag kl. 10-12 í umsjón Lilju djákna.
Léttar hreyfingar, kaffi/djús og spjall/
bænir. Mánudagur: Starf fyrir 11-12 ára
stúlkur kl. 17-18. Starf fyrir 9-10 ára
drengi kl. 17-18. Unglingastarf á mánu-
dagskvöldum kl. 20:30.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tek-
ið er við bænarefnum alla virka daga frá
kl. 9-17 í síma 587 9070. Mánudagur:
KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl. 17:30-
18:30.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðsfundur
fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20:30.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur fyrir
stelpur á aldrinum 9-12 ára kl. 17:15 í
kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelp-
ur velkomnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf
fyrir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánu-
dögum kl. 17:30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld
kl. 20-22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Fjölskyldu-
samvera fyrir foreldra og börn þeirra frá kl.
13:30-15:30 í safnaðarheimilinu, Þver-
holti 3, 3. hæð. Al-Anon fundur í kirkjunni
kl. 21. Bænahópur á mánudagskvöldum í
Lágafellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu-
dag, kl. 19:30.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkj-
unnar í Hrakhólum mánudag kl. 17:30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16:30. Allir velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Mánu-
dagur: Kl. 17:30 æskulýðsstarf fatlaðra,
eldri hópur. Mikill leikur, bæn og samtal.
Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðu-
maður Vörður L. Traustason. Almenn sam-
koma kl. 16:30, lofgjörðarhópur Fíladelfíu
leiðir söng. Ræðumaður G. Theodór Birg-
isson. Allir hjartanlega velkomnir.
Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11.
Bænastund kl. 19. Samkoma kl. 20.
Högni Valsson prédikar, lofgjörð og fyrir-
bænir. Allir hjartanlega velkomnir.
KFUM&K, Holtavegi 20. Samkoma kl.
17. Yfirskrift: Baráttan og persónulegar
árásir. Upphafsorð: Sigrún Gísladóttir.
Ræðumaður sr. Sigurður Pálsson. Barna-
starf. Matsala eftir samkomuna. Vaka kl.
20:30. Hjarta sem gleðst. Ástríður Har-
aldsdóttir talar. Mikil lofgjörð og fyrirbæn.
Allir innilega velkomnir.
KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16:30. Bænastund
kl. 16. Ræðumaður Helga R. Ármanns-
dóttir. Allir hjartanlega velkomnir. Þriðju-
dagur: Almenn bænastund kl. 20:30. Mið-
vikudagur: Ungmennasamkoma kl.
20:30. Allt ungt fólk hjartanlega velkomið.
Safnaðarfélag Jósefskirkju. Basar, hluta-
velta og kaffisala í safnaðarheimilinu.
Krossinn. Sunnud.: Biblíuskóli kl. 13.30 -
15. Samkoma kl. 16.30. Þriðjud.: Sam-
koma kl. 20.30. Miðvikud.: Bænastund
kl. 20.30. Fimmtud.: Unglingarnir kl. 20.
Föstud.: Konunglegu Hersveitirnar kl. 18.
Laugard.: Samkoma kl. 20.30
Safnaðarstarf
GUÐSÞJÓNUSTA með nýrri tón-
list verður í Seljakirkju í kvöld,
sunnudag, kl. 20. Prestar Selja-
kirkju leiða guðsþjónustuna ásamt
tónlistarmanninum Þorvaldi Hall-
dórssyni.
Það er nýjung í safnaðarstarfi
Seljakirkju að bjóða upp á guðs-
þjónustur með breyttu sniði einu
sinni í mánuði.
Þessar guðsþjónustur hafa verið
vel sóttar jafnt af ungum sem eldri.
Þorvaldur Halldórsson fer á milli
kirkna á höfuðborgarsvæðinu á
vegum Reykjavíkurprófastsdæma
og á með okkur stund í Seljakirkju
þriðja sunnudag í hverjum mánuði.
Við hvetjum fólk til þess að koma
í kvöld í Seljakirkju til að eiga sam-
an uppbyggilega stund í bæn, lof-
gjörð og góðum félagsskap. Þor-
valdur syngur og leiðir almennan
söng, sr. Ágúst Einarsson flytur
hugvekju og þá verður alt-
arisganga í guðsþjónustunni.
Að venju er einnig þennan
sunnudag barnaguðsþjónusta kl.
11 og almenn guðsþjónusta kl. 14.
Fyrirlestur í hjóna-
klúbbi Digraneskirkju
ANNAR fyrirlestur vetrarins verð-
ur í kvöld, sunnudaginn 18. nóv-
ember, kl. 20:30.
Þá verður gestur okkar Hafliði
Kristinsson fjölskyldu- og hjóna-
ráðgjafi. Hann fjallar um starfsval
barna, „vandann að velja“, og
hvaða áhrif við höfum sem for-
eldrar. Hér er því mjög tímabær
umræða í síbreytilegu samfélagi.
Fjölskyldufólk getur því nýtt tæki-
færið og upplifað hressilegt upp-
byggjandi kvöld saman.
Fyrirlesturinn fer fram í safn-
aðarheimili Digraneskirkju og er
u.þ.b. 45 mínútna langur, síðan er
boðið upp á kaffisopa og fyr-
irspurnir. Á eftir er stutt kyrrð-
arstund í kirkjunni fyrir þá sem
vilja og geta. Dagskránni lýkur
milli kl. 22 og 22:30. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
Tónlistarstund
í Hjallakirkju
Í DAG sunnudag kl. 17 leikur
Haukur Guðlaugsson á orgel í
Hjallakirkju í Kópvogi. Haukur
leikur orgelverk eftir L-N Clér-
ambault, J.S. Bach, G.F. Händel,
Max Reger, L. Boëllmann o.fl. Þar
sem orgel Hjallakirkju er frekar
nýtt af nálinni leggur Haukur
áherslu á að sýna nokkra af hinum
fjölmörgu möguleikum sem þetta
27 radda orgel hefur til að gefa
ólíka tónaliti.
Haukur Guðlaugsson var í rúm
20 ár organisti á Akranesi og
gegndi einnig starfi Söng-
málastjóra Þjóðkirkjunnar í 26 ár
en hann lét af því starfi sl. sumar.
Orgel Hjallakirkju er smíðað í
orgelsmiðju Björgvins Tómassonar
í Mosfellsbæ og ber ópusnúmer 22
og þykir einstaklega vel heppnað
hljóðfæri og skemmir hljómburður
kirkjunnar ekki fyrir orgelinu.
Þetta er 8. orgelandaktin frá því
að orgelið var vígt 27. febrúar sl.
og sú næsta verður sunnudaginn
27. janúar nk.
Góður gestur
í heimsókn hjá
KFUM og KFUK
SAMKOMA verður í húsi KFUM og
KFUK í dag kl. 17:00. Að þessu
kemur góður gestur á samkomuna,
sr. Sigurður Pálsson, sókn-
arprestur í Hallgrímskirkju og
fyrrverandi formaður KFUM í
Reykjavík. Hann mun flytja ræðu
dagsins. Styrmir Magnússon,
starfsmaður leiðtogadeildar félag-
anna, mun hefja samkomuna með
stuttu ávarpi og bæn og Hörður
Geirlaugsson mun syngja einsöng.
Að lokinni samkomu er hægt að
staldra við og fá sér heitan mat á
vægu verði og njóta samfélagsins.
Boðið er upp á barnastarf í
þremur hópum á meðan samkoman
stendur yfir, fyrir 2-5 ára, 6-9 ára
og 10-12 ára. Öll börn og foreldrar
þeirra eru sérstaklega velkomin.
Klukkan 20:30 verður Vaka,
samkoma þar sem mikið er sungið,
sérstaklega lofsöngvar. Ræðumað-
ur verður Ástríður Haraldsdóttir
tónlistarkennari. Boðið verður upp
á fyrirbæn í lok samkomunnar.
Allir eru hjartanlega velkomnir
á báðar samkomurnar.
Kvöldmessa í
Seljakirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Þá var hann einnig oft kallaður til að
gegna störfum fundarstjóra á fund-
um hjá hreyfingunni. Georg var
fastagestur á kappleikjum ÍBV og
fór ávallt fremstur í hvatningu til
sinna félaga.
Íþróttahreyfingin í Vestmanna-
eyjum þakkar fyrir samfylgdina og
sendir eftirlifandi eiginkonu hans,
Kristrúnu Hörpu Rútsdóttur, börn-
um þeirra og öðrum aðstandendum
sínar innilegustu samúðarkveðjur.
Megi góður Guð blessa þau og
styrkja á þessari sorgarstundu.
Íþróttabandalag
Vestmannaeyja.
Í annað sinn á stuttum tíma er
höggvið skarð í hóp okkar Kiwanis-
félaga í Vestmannaeyjum. Að þessu
sinni er fallin í valinn, langt fyrir ald-
ur fram, einn okkar dugmestu og
starfsömustu félaga, Georg Þór
Kristjánsson.
Georg Þór gekk í Kiwanisklúbb-
inn Helgafell árið 1979 og gerði
markmið og hugsjónir hreyfingar-
innar strax að sínum. Hann hellti sér
út í starfið af fullum krafti, enda ekki
hans stíll að beita neinum vettlinga-
tökum. Á þeim tíma sem Georg Þór
starfaði með okkur gegndi hann
flestum þeim embættum og trúnað-
arstörfum sem þar þarf að vinna.
Hann hefur starfað sem forseti, sem
svæðisstjóri Sögusvæðis og þá var
hann umdæmisstjóri hreyfingarinn-
ar í Kiwanisumdæminu Ísland –
Færeyjar árin 1998–1999. Í
tengslum við þessi störf sín hefur
Georg ferðast víða hér á landi og er-
lendis og kynnst fjölmörgu fólki,
sem ævinlega féll fyrir þessum
kraftmikla og ákafa Eyjamanni.
Hann var í öllu því sem hann gerði
fyrir Kiwanishreyfinguna, klúbbinn
sinn og heimabyggð, góður fulltrúi
sem eftir var tekið og eftir verður
munað.
Síðustu embættin sem Georg Þór
tók að sér voru ritarastarf í stjórn
þessa starfsárs og formennska í K-
dagsnefnd klúbbsins. Þrátt fyrir
baráttu við illskeyttan sjúkdóm und-
anfarna mánuði, vann hann að þess-
um störfum eins og þrek leyfði og
ríflega það. Allan þann tíma sem
Georg starfaði fyrir okkur Kiwanis-
félaga stóð hans góða eiginkona
Harpa Rútsdóttir eins og klettur við
hlið hans, hvatti hann og studdi í öllu
því er takast þurfti á við. Í hinu
óformlega félagsstarfi klúbbsins
hafa þau einnig verið virkir þátttak-
endur og margir notið óþrjótandi
gestrisni á heimili þeirra.
Að leiðarlokum kveðjum við
Georg Þór með þakklæti fyrir mikið
og óeigingjarnt starf í þágu Kiwanis.
Það hefur verið ánægjulegt og lær-
dómsríkt að starfa með þessum góða
dreng og minning hans verður okkur
hvatning í framtíðinni. Við sendum
Hörpu, börnum þeirra og öðrum að-
standendum okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Helgafellsfélagar.
Nú hnígur sól að sævarbarmi,
sígur húm á þreytta jörð.
Nú blikar dögg á blómahvarmi,
blundar þögul fuglahjörð.
Í hljóðrar nætur ástarörmum
allir fá hvíld frá dagsins hörmum.
(A.G.)
Það er ekkert eins erfitt og þetta,
að kveðja góðan vin. Góðan vin sem
var ekki bara góður vinur heldur
varð hann líka okkar tryggasti og
sannasti vinur. Þrátt fyrir aldurs-
mun okkar bundumst við svo traust-
um böndum.
Goggi okkar, þú reyndist okkur
svo vel. Við urðum þeirrar gæfu að-
njótandi að kynnast þér og fjölskyld-
unni þinni 1994 þegar ég hóf störf
hjá Skeljungi í Reykjavík, en þá
varst þú einmitt starfsmaður þeirra í
Eyjum. Á þessum árum leið ekki
langt á milli símtala þar sem ég
heyrði frá þér eða í Hörpu, þinni
elskulegu konu. Voru ýmis mál rædd
eins og lífið og tilveran, vinnan eða
fótboltinn. Á þeim vettvangi varst þú
sterkur enda þitt aðaláhugamál.
Þegar við vorum að fylgjast með fót-
boltaútsendingu þá á sitt hvorum
staðnum var oft hringt á milli. Ef
það gerðist að þitt lið var til dæmis
undir eða gekk ekki sem skyldi þá
sagðir þú yfirleitt: ,,Hvaða tegund af
sjónvarpi ert þú með?“ eða ,,Erum
við ekki að horfa á sama leikinn?“
Þetta lýsti þér alveg í hnotskurn,
húmorinn var alltaf til staðar. Það
var aldrei neitt mál, það var allt
besta mál, ekkert mál eða ég redda
því. Svo jákvæður. Svona orðatiltæki
munum við áfram því þau lýstu þér
svo vel. Þú varst mjög fróður maður,
það var alltaf gott að leita til þín með
mál sem þurfti að tala aðeins um,
alltaf varst þú tilbúinn að leiðbeina
og aðstoða eins vel og þú gast.
Þegar litið er yfir farinn veg á
þessari erfiðu stundu, þá koma upp
margar góðar minningar sem verða
alltaf í brjósti manns. Þó fjarlægðin
hafi verið á milli okkar og hafið sem
skildi okkur að þá er ég ákaflega
þakklátur fyrir þær stundir sem við
áttum saman. Ber þar að nefna fót-
boltaferðirnar sem við fórum í og
eru alveg ógleymanlegar. Einnig var
ég svo heppinn að fá að koma til
Eyja og fara með þér á hið svo-
nefnda Skötukvöld, en það var eitt-
hvað sem þér var svo kært og þú
varst svo stoltur af.
Þú og Harpa konan þín tókuð allt-
af opnum örmum á móti mér og okk-
ur fjölskyldunni þegar komið var til
Eyja. Ykkur munaði sko ekki um að
hýsa fimm manna fjölskyldu frá
Reykjavík, slík var gestrisni ykkar.
Þá voru skipulagðar vettvangsferðir
um allt eins og sannir Eyjamenn
gera. Það varst þú, ákaflega stoltur
af heimabæ þínum. Það var ekki
skrítið að börnunum fannst eins og
þau væru komin til útlanda. Goggi
var ákaflega góður maður, þá sér-
staklega barngóður. Elsta dóttir
okkar hændist svo að þér, þó feimnin
gerði stundum vart við sig þegar þið
hittust, þá samt sem áður var oft og
iðulega ekki talað um annað en
Gogga. Hún var til að mynda ekki
lengi að finna nafn á páfagaukinn
sinn sem hún fékk einu sinni, Goggi
skyldi hann heita. Hún segir mér að
þú sért hjá englunum núna og hún er
ákaflega stolt af myndinni sem hún
sendi í síðustu viku.
Goggi, þín er sárt saknað.
Elsku Harpa okkar, börn, ætt-
ingjar, vinir og aðrir aðstandendur,
við vottum ykkur okkar dýpstu sam-
úð á þessum erfiðu tímum. Missir
ykkar er mikill. Megi ljós og kær-
leikur styrkja ykkur á þessari
stundu.
Minning þín lifir, Goggi.
Jón Helgi Sigurðsson,
Guðrún Birna og börn.
Hann Goggi er látinn eftir stutt en
erfið veikindi. Goggi var einn af þeim
mönnum sem maður sá aldrei skipta
skapi. Hann var alltaf svo ljúfur og
góður. Hann var einn af þeim sem
fóru út með alla krakkana í hverfinu
í fótbolta eða á lundapysjuveiðar á
fallegum ágústkvöldum. Fyrstu
kynni okkar systranna af Gogga
voru þegar Dóra læsti sig inni á baði
í sínu eigin barnaafmæli, þá voru góð
ráð dýr. Mamma hjóp yfir til ná-
grannanna sem hún þekkti lítið sem
ekki neitt og bað hann Gogga að
bjarga barninu út af baðinu. Eins og
Goggi var þá var þetta ekkert mál.
„Auðvitað geri ég það,“ og arkaði af
stað með stiga í grenjandi rigningu,
skreið innum gluggann og bjargaði
Dóru út, þó hún væri nú ekki mikið á
því að láta bjarga sér, á fullu við að
sulla í baðherbergisvaskinum.
Goggi var heimsins besti pabbi og
eiginmaður sem lagði sig allan fram í
að hafa lærið eins flott og vanalega
þegar Harpa þurti að fara upp á
land. Mikið gátum við systurnar oft
öfundað þau Kidda, Ragnheiði og
Helgu. En Goggi mátti eiga það að
þegar hann var að gera eitthvað með
krökkunum sínum þá bauð hann
okkur systrunum alltaf með, t.d. ár
eftir ár á þrettándagrímuballið. Eitt
sinn datt kettlingur ofan í brunninn
á húsinu hjá Gogga og Hörpu,
brunnurinn var fullur af vatni. Kett-
lingurinn flaut bjargarlaus um á
einni spýtu. Viti menn, Goggi fór inn
um lítið gat á brunninum með band
um sig miðjan og kom aftur út með
kettlinginn, allur skrámaður og
blautur. Já, hann Goggi gerði ekki
mannamun eða dýramun. Nú í dag
verður einn af bestu sonum Eyjanna
borinn til grafar. Einn af þeim sem
gáfu Eyjunum sinn karakter. Elsku
besta Harpa mín, við vitum að miss-
irinn er mikill og skarðið er stórt
sem hann Goggi skilur eftir sig. Við
biðjum Guð að styðja þig og fjöl-
skyldu þína.
Systurnar Hásteinsvegi 50.
Er vinir kveðja hér í heim
í hinsta sinn
brýst harmanóttin heljarmyrk
í hjartað inn.
Oss finnst þá oft, að fokið sé
í flestöll skjól
og gengin undir, geislum svipt
vor gleðisól.
En Guð, sem horfir hæðum frá
og hug vorn sér,
hann þekkir öll hin mörgu mein,
sem mannkyn ber,
og allra vina einnig veit
hann endurfund,
að sköp oss aðeins skilið fá
um skamma stund.
(E.M.J.)
Kæri vinur, ég leita huggunar í
þessum ljóðlínum. Það erfitt að
sætta sig við að þú skulir ekki lengur
vera til staðar, fullur af krafti og
bjartsýni, engin vandamál, ekkert
vesen.
Ég, aðkomumaðurinn, get ekki
ímyndað mér sannari eyjapeyja en
þig, kraftmikinn, lífsglaðan og ekki
síst hjálpsaman. Á yngri árum á kafi
í starfi skátahreyfingarinnar og í
íþróttum, síðar í bæjarpólitík og á
síðustu árum svæðisstjóri Kiwanis-
hreyfingarinnar. Vegir okkar lágu
þó ekki saman á vettvangi þessara
hreyfinga, heldur á velli hins dag-
lega brauðstrits, þar sem við unnum
náið saman í nær tvo áratugi, og
aldrei bar þar skugga á. Ég hef aldr-
ei kynnst manni með eins létt lund-
arfar og þér. Það var sama hvað
gekk á móti, aldrei skiptir þú skapi,
og jafnvel þó menn gerðu á hlut þinn
heyrði maður þig aldrei hallmæla
nokkurri sálu, jafnvel heldur bera
blak af þeim sama. Enda vil ég trúa
því að allir hafi viljað vera vinir þínir.
Ég kom til þín fyrr á þessu ári,
eftir að þú greindist með þennan erf-
iða sjúkdóm, og þá kom í ljós þetta
einstaka lundarfar. Það beið ykkar
Hörpu vinna við að sigrast á þessu
máli, ekki vandamáli, og síðar þegar
þér var sagt að sjúkdómurinn væri
ólæknandi, þá tókst þú því með sömu
rónni og hélst áfram baráttunni.
Kæri vinur, ef ég þyrfti að velja
milli manna myndi ég vilja hafa þig í
mínu liði. Elsku Harpa og fjölskylda,
við Þyrí biðjum góðan Guð að líta til
með þér og þínum í sorginni. Guð
blessi ykkur öll.
Snorri.
Í dag er hann Goggi í Eyjum bor-
inn til grafar. Stórt skarð hefur verið
höggvið í Vestmannaeyjar, þær
verða aldrei jafnar eftir þetta. Allt
eins hefði verið hægt að taka burt
Heimaklett, það hefði borið minna á
því. Ég kynntist Gogga fljótlega eft-
ir 1980 þegar ég byrjaði að koma
nokkuð reglulega til Eyja á frakt-
skipunum hjá Eimskip. Tókust með
okkur hin ágætustu kynni og kom-
umst við fljótlega að því að við bár-
um sama millinafn, þannig að upp
frá því kölluðum við hvor annan
aldrei neitt annað en „nafni“ og þótti
sumum það í meira lagi undarlegt og
höfðum við gaman af. Eftir að ég
hætti á sjónum fyrir þremur til fjór-
um árum hitti ég Gogga vin minn að-
eins einu sinni og var það á þjóðhátíð
2000. Það urðu miklir fagnaðarfund-
ir hjá okkur. Mikið var hlegið að
„leikstjóra“- stólnum sem hann
sagðist hafa fengið lánaðan hjá Luk-
as vini sínum. Það stóð nefnilega
Georg á baki stólsins.
Mig langar að votta fjölskyldu
Georgs mína dýpstu samúð. Megi
guð gefa þeim þann styrk sem til
þarf. Við hittumst síðar „nafni“.
Páll Þór Ómarsson Hillers.
Fleiri minningargreinar
um Georg Þór Kristjánsson bíða
birtingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR