Morgunblaðið - 18.11.2001, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 2001 47
MANNKYNIÐ allt er um sex
milljarðar einstaklinga. Af þeim
eru kristnir menn u.þ.b. þriðj-
ungur og tilheyra fjölda kirkju-
deilda, ólíkum um margt. Nokkrar
eru þar meiri að vöxtum en aðrar,
langstærst er rómversk-kaþólska
kirkjan, með um 900 milljónir. Og
fjöldi kirkju- og trúfélaga innan
hverrar deildar um sig er legíó; á
Íslandi eru þó „ekki nema“ um
tuttugu.
En hvernig má það vera, að í
heiminum öllum sé að finna marg-
ar kirkjudeildir og þaðan af ara-
grúa af smærri einingum? Ekki
geta þær allar haft rétt fyrir sér?
Það hlýtur bara að vera ein af
þessum fjölmörgu, sem hefur réttu
trúna innan sinna vébanda? Því
sannleikurinn hlýtur bara að vera
einn, og vegurinn til lífsins, eða
hvað?
Jú, rétt er það. En svo ein-
kennilega vill nú samt til, að flest
þessi kirkju- og trúfélög heimsins
eru fullgildir boðendur hins eina
sannleika. Undantekningin er
nokkrir söfnuðir, yfirleitt fámenn-
ir, sem telja sig kristna, en hafa
vísvitandi eða óvart rambað út fyr-
ir veginn og lent í ógöngum; þeir
eru ekki til umfjöllunar hér.
En þá að spurningunum.
Í guðspjöllunum ræðir Jesús um
sauðina og hirðinn, og sambandið
þeirra í millum. Og hann klykkir út
með orðunum um, að það muni
verða ein hjörð, og einn hirðir. Og
allt er það nú gott og blessað. En
þar með er ekki allt sagt, því nú
vita allir, sem eitthvað hafa komið
nálægt búskap, og jafnvel menn
eins og ég, sem veit tæpast hvað
snýr fram og aftur á þessum
skepnum, að kindur eru mjög ólík-
ar, bæði að útliti og skapferli. Sum-
ar eru blíðar, gæfar og trygg-
lyndar, aðrar stirðar og dyntóttar.
Og á litinn eru þær með ýmsu
móti: hvítar, svartar, gráar, mó-
rauðar, botnóttar, golmögóttar,
arnhöfðóttar eða hosóttar. Og svo
hafa þær misjafnt hornalag: þær
eru kallaðar úthyrndar, ef hornin
standa mikið út; skálhyrndar, ef
þau eru fallega hringbogin; krepp-
ilhyrndar eða öngulhyrndar, ef
þau bogna mjög krappt; kúp-
hyrndar, ef þau beygjast mjög aft-
ur; skakkhyrndar, ef þau beygjast
ekki eins; hníflóttar, ef þau eru
mjög lítil. Svo eru til kindur með
fjögur horn, fimm eða jafnvel sex.
Og svo vitanlega finnast þær líka
kollóttar. Og þannig mætti lengi
telja. Kindur geta m.ö.o. verið
ákaflega mismunandi, þótt í einni
hjörð séu. En þær fylgja hirðinum
allar sem ein. Hann leiðir þær og
ver fyrir óargadýrum, sem vilja
hremma og deyða. Hann fylgir
þeim áfram, og kemur þeim í skjól
þegar dimmir, leiðir þær í byrgið
og gætir svo dyranna.
Á líkan hátt er þessu farið með
kristna menn. Þeir eru ekki allir
eins: sumir eru gulir, aðrir svartir,
enn aðrir rauðir, og svo eru það
hinir fölu, bleiku eða hvítu. Sumir
eru léttir á geð, aðrir skapþungir.
Og þeir eru til blíðir og líka hrjúfir.
Þetta er m.ö.o. æði mislit hjörð. En
þeir fylgja Jesú Kristi að málum,
og honum einum, reyna að feta veg
hans, fylgja sporum hans og bend-
ingum, nákvæmlega eins og hjörð-
in í líkingunni. Og líkt og fjár-
markið er eitt og hið sama á öllum
kindum þeirrar hjarðar, þá eru
kristnir menn sama marki brennd-
ir allir, krossins heilaga tákni.
En af því að menn eru jafn ólíkir
og raun ber vitni, og kannski sum-
part vegna þess að Biblían er tor-
skilin á köflum, eru sumir ritning-
arstaðir það erfiðir, að hægt er að
skýra þá á marga vegu. Ég skil
þetta svona, hann Jón vill meina að
þetta eigi að skilja á annan hátt, og
hún Sigríður fullyrðir að þetta sé
vitlaust hjá okkur Jóni báðum. Og
fólk hópast síðan að þeim, sem
virðist útlista þetta á mest sann-
færandi hátt. Þannig verða kirkju-
deildir til, í grófum dráttum, og
síðan kirkju- og trúfélög. Það er
ekki af illkvittni eða öfund, að
menn fylkja sér um þessa túlkun
eða hina, langt því frá, heldur er
það einlæg sannfæring manna, að
viðkomandi ritningarstað eigi að
skilja á þennan veg frekar en hinn.
Ég skal taka dæmi.
Fyrir mörgum árum skírði ég
barn í Hólskirkju í Bolungarvík.
Þetta var í messu. Foreldrarnir
voru í hinni evangelísk-lúthersku
þjóðkirkju, eins og flestallir lands-
menn. En í þessari sömu messu, og
fyrir augliti safnaðarins, voru aðrir
foreldrar, úr röðum hvítasunnu-
manna, með lítið barn, og það ein-
ungis helgaði ég Guði, að beiðni
foreldranna, ég blessaði það, eins
og Jesús gerði forðum, en skírði
það ekki.
Í þessu litla dæmi höfum við eina
bók, heilaga ritningu, og tvo aðila,
sem lesa hana og skilja á mismun-
andi vegu. Markmiðið er hið sama,
að biðja Guð um að taka við börn-
unum, rita nöfn þeirra í himininn,
en niðurstaðan ólík, að því er virðist,
og formið þess vegna líka.
Og þær eru fleiri túlkanirnar á
vitnisburði heilagrar ritningar um
þetta efni. Miklu fleiri. Og eins um
kvöldmáltíðina. Og aðra þætti. En
þær skipta ekki máli hér. Sama
hugsun er þó að baki þar, og hún
sú, að finna hið réttasta.
Skilaboð mín til ykkar, sem lesið
þessi orð mín, eru: dæmum ekki
hvert annað, þótt hið kristna trúar-
form sé ólíkt. Jesús bað okkur um
að vera eitt, þ.e.a.s. einhuga. En
hann bað okkur aldrei um að vera
eins.
Í Hólskirkju í Bolungarvík forð-
um voru tvö börn skráð í lífsins
bók. Tvö laufblöð bættust á meið-
inn stóra. Ef til vill hvort á sína
greinina, en það skiptir engu máli,
því stofninn er óumdeilanlega einn
og hinn sami. Jesús Kristur.
Mislit hjörð
Kirkjudeildir heimsins eru æði margar
og kirkju- og trúfélögin enn fleiri.
Sigurður Ægisson vill meina að fyrir
því séu gildar ástæður.
saeson@islandia.is
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Unnur Ingólfsdóttir 467 3149
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Agnieszka Szczodrowska 465 1399
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Opið hús í dag milli kl. 14-16
Suðurlandsbraut 20,
sími 533 6050,
www.hofdi.is
Í dag getur þú skoðað þessi glæsilegu 194 fm raðhús. Húsin eru til af-
hendingar strax, fullbúin að utan og fokheld að innan. Að utan eru húsin
marmarasölluð. Innbyggður bílskúr er í húsunum. Sölumenn Höfða verða
á staðnum í dag með teikningar og allar upplýsingar um eigniranar.
Áhv. 7,0 millj. húsbréf. Verð 14,5 millj.
Nú býðst þér tækifæri til að skoða
þetta stórglæsilega 210 fm einbýli,
sem er staðsett í suðurhlíðum Grafar-
holts. Frábært útsýni er til suðurs og
vesturs. Innbyggður bílskúr er í hús-
inu. Húsið er til afhendingar strax,
fullbúið að utan og fokhelt að innan.
Skipti möguleg á minni eign.
Verð 20,4 millj.
Kirkjustétt 10-16, - Grafarholti
Ólafsgeisli 73 - einbýli
HUGVEKJA
JÓLABASAR Waldorfskólans í
Lækjarbotnum verður haldinn
laugardaginn 17. nóvember kl. 14
til 17.
Margt í boði, t.d. veiðitjörn fyr-
ir börnin, skuggaleikhús, kaffi og
meðlæti, og handverk.
Jólabasar
Waldorfskólans
EIN af fjáröflunarleiðum Blindra-
félagsins er sala jólakorta. Í ár
gerði listamaðurinn Halla Haralds-
dóttir kortið. Einnig eru gefin út
sérstök fyrirtækjakort með ljós-
myndum eftir Freystein G. Jónsson.
Jólakortin eru seld 10 í pakka
kosta kr. 1.000 og merkimiðar 10 í
pakka á kr. 100. Sölumenn ganga í
hús og selja kortin. Einnig er hægt
að fá kortin á skrifstofu Blindra-
félagsins, Hamrahlíð 17.
Jólakort
Blindra-
félagsins
Dr. Neil H. Katz stofnandi og stjórn-
andi stofnunar við Syracuse Uni-
versity sem heitir „Institute on
Creative Conflict Resolution“ heldur
námskeið fyrir stjórnendur um lausn
ágreinings hjá Endurmenntun HÍ
19. nóvember kl. 8-16.30 og 20. nóv-
ember kl. 8-15.
Á námskeiðinu ætlar Katz að
kenna skipulega lausn ágreinings
með áherslu á hlutverk stjórnand-
ans, en rannsóknir sýna að yfirmenn
verja meira en 40 af hundraði vinnu-
tíma í að reyna að leysa ýmis deilu-
mál. Farið verður í markvissar sátta-
leiðir og ráð til að byggja upp sterka
liðsheild, segir í fréttatilkynningu,
segir í fréttatilkynningu.
Námskeið fyrir
stjórnendur
NIÐURSTÖÐUR verkefnis um mat
á framtíðargildi svæða fyrir ferða-
þjónustu verða kynntar í hádegis-
erindi, sem Landvernd og verkefn-
isstjórn rammaáætlunar um nýt-
ingu vatnsafls og jarðvarma standa
fyrir, þriðjudaginn 20. nóvember kl.
12.10-13 í Lögbergi 101, Háskóla Ís-
lands.
Rögnvaldur Guðmundsson, hjá
Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjón-
ustunnar (RRF), flytur erindið og
fjallar um forsendur mats á framtíð-
argildi nokkurra hálendissvæða fyr-
ir ferðaþjónustu og hverjar séu
helstu niðurstöður úr þessu mati.
Aðgangur ókeypis og öllum opinn.
Hádegiserindi
í Lögbergi